Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 28
Það er ekki erfitt að skipu-leggja rómantíska og af-slappandi helgarferð tilLondon Það er fátt róm-
antískara en að rölta með Thames
ánni með kaffibolla í hönd og skoða
mannlífið og borgina. Skella sér
jafnvel upp í Lundúnaaugað og
virða fyrir sér útsýnið yfir borgina.
En stundum er veðrið ekki upp á
marga fiska og þá er hvorki útsýnið
né röltið skemmtilegt. Þá er tilvalið
að fara inn á safn eins og Tate Mod-
ern og skoða listasýningar og enda
svo á veitingastaðnum sem er á
efstu hæðinni eða fara á Oxosem er
ekki langt frá og fá sér rauðvín eða
kaffi og horfa niður á Thames.
Lautarferð í miðri borg
Á föstudegi eða laugardegi getur
verið gaman að fara á Borough
markaðinn hjá London Bridge.
Kaupa ýmsa osta, mat, vín og annað
góðgæti og rölta svo niður að
Thames á eða fara í einhvern garð,
setjast þar á bekk eða í gras og
njóta góðra veitinga og samver-
unnar.
Helgar eru einnig tilvaldar til að
rölta um á fata- og glingursmarkað
eins og Portobellomarkaðinn á laug-
ardögum eða Spitalfieldsmarkaðinn
á sunnudögum. Skoða úrvalið og
enda svo á kaffihúsi eða veit-
ingastað í nágrenninu.
Covent Garden er vinsæll staður
Margir tengja London
við búðaráp en það er líka
hægt að slaka þar á og
njóta lífsins.
Laila Sæunn Péturs-
dóttir skoðaði London í
rólegheitum.
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Daglegtlíf
maí
meðal ferðamanna en er að sama
skapi einnig fallegur og skemmti-
legur staður. Þar er götumarkaður,
einnig veitingastaðir og götu-
listamenn. Gaman er að rölta um
Covent Garden og skoða mannlífið
og markaðinn og setjast svo niður á
Patissiere Paul kaffihúsi sem er í
Bedford Street. Það er einstaklega
huggulegt en þar er hægt að fá dýr-
indis mat og kökur. Þrátt fyrir að
þessi staður sé mjög vinsæll og
mikið sé að gera tekur maður ekki
eftir því vegna skemmtilegs um-
hverfis.
Gufubað og nudd
Til að slaka einstaklega vel á er
tilvalið að fara í eina heilsulind eins
og Spa NK eða The Spa at Mand-
arin Oriental. Þessar heilsulindir
þykja sérlega flottar en vert er
einnig að athuga hvort það sé ekki
heilsulind á hótelinu ykkar eða rétt
hjá, svo þið þurfið ekki að ferðast
mikið. Það er fátt betra en að eyða
hluta af deginum svamlandi um í
heitum pottum, slappa af í gufubaði
og fara jafnvel í nudd.
Á fjölunum frá 1952
London er þekkt leikhúsborg og
gaman er að skella sér á eitt leikrit.
Úr mörgu er að velja og oft eru
sýningar sem staðið hafa yfir í mörg
ár og þar á meðal Mouse Trap sem
er spennuleikrit Agöthu Christie en
það hefur verið sýnt í London frá
árinu 1952. Aðrar sýningar eru ekki
alveg eins langlífar en ljóst er að ef
leikhús er málið þá er pottþétt hægt
að finna eitthvað við hvers manns
hæfi. Oft borgar það sig þó að bóka
miða fyrirfram og athugið að það
eru engar sýningar á sunnudögum.
Að setjast inn á skemmtilegt veit-
ingahús á kvöldin og borða saman
góðan mat toppar rómantísku ferð-
ina. Í London er fjöldinn allur af
veitingastöðum.
Ef þið ætlið að fara á einn af
glæsileguog fínu stöðunum eins og
Gordon Ramsay eða Ritz hótelið
eða þá vinsæla staði eins og Nobu
eða Toto’s er eins gott að bóka með
fyrirvara. En þið getið líka prófað
að rölta um Soho eða önnur hverfi
og séð hvort þið finnið stað sem
ykkur lýst vel á. Þá þurfið þið ekki
að stressa ykkur á að vera komin á
tilsettum tíma á veitingastaðinn en
reyndar getur þá verið spurning um
hversu góður maturinn er. En aðal-
málið er að sjálfsögðu að njóta þess
að vera saman og slaka á.
Rómantísk helgarferð
LONDON
Hægt er að panta miða í Lund-
únaaugað á slóðinni: www.ba-
londoneye.com/
Leikhúsmiða má t.d. panta á
www.officialtheatretickets.com
www.londontheatreboxo-
ffice.com/
www.londontheatredirect.com
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Á föstudögum og laugardögum er tilvalið að fara á Borough-markaðinn og verða sér þar úti um osta, vín og fleira
góðgæti og setjast síðan niður í einhvern fallegan garð og njóta veitinganna úti undir berum himni.
Útsýnið yfir
borgina er
tilkomu-
mikið úr
Lundúna-
auganu.
Höfundur hefur verið
búsettur í London.
KAFFISOPINN hressir ekki aðeins
heldur mun hann vera hollur að auki,
ef eitthvað má marka norska vís-
indamenn. Samkvæmt danska
blaðinu Jyllandsposten hafa næring-
arfræðingar við Óslóarháskóla birt
niðurstöður rannsóknar, sem segir
kaffi í hóflegu magni hafa góð áhrif á
líkamsstarfsemina, koma í veg fyrir
kransæðasjúkdóma, gigt, og ýmsar
bólgur.
Vísindamennirnir norsku unnu úr
gögnum, sem höfðu fengist úr banda-
rískri rannsókn, þar sem fylgst var
með 27.000 konum um 15 ára skeið.
Niðurstöðurnar sýndu, að þær konur,
sem drukku 1–3 kaffibolla á dag, voru
20–25% ólíklegri til að fá krans-
æðasjúkdóma og gigt. Ástæðan er sú
að 60% andoxunarefnanna í kaffinu
skila sér til neytandans.
Sá galli er þó á, að eigi áhrifin að
vera góð mega bollarnir ekki verða
fleiri en fimm.
Kaffisopinn
heilnæmur
HEILSA
Í BYRJUN maí var opnuð ný
sýning í einum salnum hjá
heimsmetasafninu Guinness
World Records á Strikinu við
Kongens Nytorv í Kaup-
mannahöfn.
Þar er nú hægt að sjá nokk-
ur sýnishorn af gull- og plat-
ínuplötum rokkkóngsins Elvis
Presley, vaxmyndastyttu af
Elvis í fullri stærð, nokkra gít-
ara sem tilheyrðu hljómsveit
hans og ýmislegt annað sem
minnir á goðið og Memphis
stemninguna.
Elvis á
Strikinu
KAUPMANNAHÖFN
Nánari upplýsingar fást á
www.topattractions.dk/
Guinness World Records
Østergade 16
DK-1100 København K
Sími 0045 33 32 31 31
Tölvupóstur: info@topatt-
ractions.dk
Safnið er opið frá 10 á
morgnana og sýningunni lýk-
ur 23. júlí.
Nú er fólk farið að huga aðferðalögum sumarsins ogmargir að fara í flug. En
hvaða rétt hafa neytendur ef innrit-
aður farangur í flugi týnist og skilar
sér ekki á áfangastað eða verður fyrir
skemmdum eða eyðileggst?
Flytjandi ber ábyrgð
Til að byrja með þá þarf að til-
kynna það til viðkomandi flytjanda
eða flugrekanda jafnskjótt og þess
verður vart, í síðasta lagi sjö dögum
eftir viðtöku ef um er að ræða innrit-
aðan farangur. Ef um töf er að ræða
skal tilkynning hafa borist í síðasta
lagi tuttugu og einum degi frá því að
farangur hefði átt að vera afhentur.
Dagur merkir almanaksdagur. Til-
kynningin skal gerð skriflega og með
sannanlegum hætti innan áð-
urnefndra tímafresta.
Almennt gildir að flytjandi ber
ábyrgð á tjóni sem verður af völdum
tafa í flutningi á innrituðum farangri.
Þó verður flytjandi ekki talinn bera
ábyrgð á tjóni sem orsakast af töfum í
flutningi geti hann sannað að hann og
starfsmenn hans og umboðsmenn
hafi viðhaft þær aðgerðir sem sann-
gjarnt getur talist að viðhafðar séu
eða að ógerlegt hafi verið að fram-
kvæma slíkar aðgerðir. Flytjandi er
ábyrgur fyrir tjóni á óinnrituðum far-
angri, þar með töldum persónulegum
eigum, ef tjón má rekja til sakar
hans, starfsmanna hans eða umboðs-
manna.
Reglur þessar byggjast á ákvæð-
um loftferðalaga og alþjóðlegum
samningum sem Ísland hefur und-
irgengist, m.a. Montreal-samn-
ingnum frá 1999. Þessar reglur taka
til allra íslenskra flugrekenda og alls
innanlandsflugs hver sem flytjandinn
er. Ábyrgð flytjanda vegna þess að
farangur glatast, eyðileggst, skemm-
ist eða tefst er takmörkuð við 1.000
SDR, sem samsvarar í dag um
108.500 krónum, vegna hvers far-
þega, nema farþegi hafi við innritun
farangurs sérstaklega tilgreint þá
hagsmuni sem tengdir eru við af-
hendingu farangurs á ákvörð-
unarstað og greitt umkrafið auka-
gjald, og gildir þá hið tilgreinda
verðmæti sem hámark á ábyrgð flytj-
anda, nema hann sanni að raunveru-
legir hagsmunir farþega hafi verið
minni. Frestur til að höfða mál vegna
skaðabóta er tvö ár.
Nokkrir sinna eftirliti
Flugmálastjórn annast eftirlit með
réttindum farþega samkvæmt reglu-
gerð 574/2005 um tafir, niðurfellingur
flugs og frávísun frá borði vegna um-
frambókana. Neytendastofa, sem áð-
ur hét Samkeppnisstofnun, fer með
eftirlit með framkvæmd laga um al-
ferðir eða svokallaðar pakkaferðir í
samræmi við lög nr. 80/1994. Ferða-
málastofa, áður Ferðamálaráð Ís-
lands, annast svo eftirlit með starf-
semi ferðaskrifstofa,
bókunarþjónustu og ferðaskipuleggj-
enda í samræmi við lög nr. 73/2005.
FERÐALÖG | Farangurinn skilar sér ekki eftir flugið
Tilkynning berist innan sjö daga
TENGLAR
.....................................................
www.caa.is
Morgunblaðið/Þorkell