Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 47

Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 47 UMRÆÐAN EcoGreen Multi FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Vítamín, steinefniog jurtir APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR www.nowfoods.com F A B R IK A N 2 0 0 6 EFTIRSÓTTIR TÖLVUNARFRÆÐINGAR F A B R IK A N 2 0 0 6 Opið fyrir umsóknir á www.hr.is OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 599 6200 • www.hr.is Tölvunarfræðingar vinna ótrúlega fjölbreytt störf. Þeir eru m.a. forritarar, bankastjórar, hugbúnaðarsérfræðingar, stjórnendur, ráðgjafar, sérfræðingar, framkvæmdastjórar, vefsíðuhönnuðir og háskólakennarar. Einnig vinna margir þeirra við netþróun, gervigreind, rannsóknir og meira að segja við hönnun vélmenna. 80% þeirra sem munu útskrifast úr tölvunarfræði við HR í vor eru búnir að fá fleiri en eitt atvinnutilboð. 30% þeirra hefur fengið fimm eða fleiri tilboð. Kynntu þér spennandi nám í tölvunarfræði hjá HR. Möguleikarnir eru óþrjótandi. Upplýsingar í síma 599 6200 eða á www.hr.is Í FLUGVÉL á leið frá Drauma- landinu hóf ég lestur bókar, sem mikið hefur verið í umræðunni. Skemmst er frá því að segja að bók- ina skildi ég vart við mig fyrr en ég hafði lesið hana. Löngu fyrir heim- ferðina. Þvert á ætlun mína. Draumalandið er vandað verk. Ég ætla ekki að fara út í efnið. Hver verður að lesa fyrir sig. Höfundur stendur við hvert orð með tilvitn- unum, sem er eithvað annað en sleggjudómar frá áróðursmaskínu Landsvirkjunar og ríkisstjórn- arinnar. Stórkostlegt er hvernig efnið er sett fram á auðskiljanlegu mannamáli. Ég taldi mig vel upp- lýstan um þessi mál. Nú skal við- urkennt að ég gerði mér ekki grein fyrir, hversu hratt Draumalandið rekur að feigðarósi. Ég vil þakka Andra Snæ fyrir að opna augu mín. Einnig er við hæfi að biðja Hjörleif Guttormsson af- sökunar á orðbragði í blaðagrein frá mér. Hefði hann ekki staðið fastur fyrir er öldungis óvíst að við værum þó þetta sjálfstæð þjóð í dag. Sagan mun setja Hjörleif á stall með Ólafi Thors og fleiri góðum mönnum. Sama er ekki að segja um núver- andi iðnaðarráðherra. Því miður. Allt virðist opið upp á gátt. Álverk- smiðjur, sem aðrir vilja ekki eða er verið að loka í öðrum löndum, fá inni hjá okkur. Allt út á hreina orku, sem skal vera eins konar hnattrænt framlag okkar til Kyoto- sáttmálans Mikið væri óskandi að Orri tæki sér smáfrí frá kaupum á laxi í hafi og hæfi söfnun fyrir kaupum á Kárahnjúkavirkjun og væntanlegri skaðabótakröfu álrisans. Hann gæti byrjað á að tala við Silvíu Nótt, Björk, Bakkavararbræður, Björg- úlfsfeðga, Bónusfeðga og alla hina millana. Fyrir utan svo öll nátt- úruverndarsamtökin og hvalavinina. Þannig gætu Káranhjúkar orðið „túristastaður“ um alla framtíð. Tóm stíflan minnisvarði um skamm- sýna stjórnmálamenn og Kringils- árrani vitnað um sjálfstæða þjóð. Í flugvélinni á heimleiðinni var ég svo heppinn að fá Morgunblaðið. Í því var vel skrifuð grein eftir Svav- ar Knút Kristinsson, sem á þá ósk heitasta að fara með dóttur sinni að skoða svæðið norðan Vatnajökuls, áður en allt fer í kaf. Víst er að svo er um fleiri. Hér er tækifæri fyrir Náttúruverndarsamtökin að styrkja fjárhagsstöðuna með skipulögðum ferðum inn á svæðið. Í leiðinni gætu þeir sem vilja skrifað undir mót- mæli gegn virkjuninni. Það er langtum sterkara en að hlekkja sig við vinnuvélar og gefa yfirvöldum með því tækifæri til að siga lög- reglu á sig eins og hverja aðra hryðjuverkamenn. Þá er fróðleg grein eftir núverandi orku- málastjóra. Í lok hennar bendir hann á að allt orkuverð fer hækk- andi og varar við að fara of geyst í að selja raforkuuna. Eftir heimkomuna fletti ég göml- um blöðum og sá að í viðbót við blessun forseta Draumalandsins á hryðjuverkunum fyrir austan er Orkuveitan búin að gera samning um sölu orku fyrir stækkun í Straumsvík. Hvers vegna lá svona mikið á, Alfreð? Svo er þjóðinni sagt að ekki hafi verið gefið leyfi fyrir stækkuninni. Hótanir um að loka og fara hafa greinilega borið árangur. Í útvarpinu var fréttatilkynning frá Alcoa um að fyrirtækið ætlaði að ákveða eftir ein- hver ár hvort þeir byggðu ál- ver á Húsavík eða ekki! Leyfi fyrir byggingunni er greinilega komið. Líklega er hagkvæmara að stækka á Reyðarfirði og ákvörðun því frestað. Í þættinum Speglinum kannaðist Valgerður ekki við að hafa nefnt brot af þeim tonnafjölda, sem eftir henni er haft. Klykkti svo út með því, að erfitt væri að setja einhverjar hömlur á byggingu ál- vera vegna ES-reglna og auk þess ættu orkufyrirtæki virkjunarsvæði. Er nema von að spurt sé, hver stjórni Draumalandinu? Sigurður Oddsson fjallar um stóriðju ’Álverksmiðjur, sem aðrir vilja ekkieða er verið að loka í öðrum löndum, fá inni hjá okkur.‘ Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur. Hver stjórnar Draumalandinu? mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.