Morgunblaðið - 27.05.2006, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
2 sæti
Í DAG er kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur og á
morgun liggur fyrir hvernig landsmenn hafa kosið sér
bæjar- og sveitarstjórnir til næstu fjögurra ára. Það
felast í því mikil tímamót að Reykjavík-
urlistinn bjóði ekki lengur fram í borg-
inni sem hann hefur stjórnað í tólf ár.
Samkvæmt könnunum virðast nokkrar
líkur til þess að Sjálfstæðisflokkurinn
fái hreinan meirihluta í kosningunum,
jafnvel með minnihluta atkvæða. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum ræður stuðn-
ingur við Framsóknarflokkinn úrslitum
um hvort einn flokkur fái hreinan meirihluta og ég er
sannfærður um að borgarbúar munu láta í ljós sína af-
stöðu til þess með afgerandi hætti á morgun.
Lýðræðið er margbrotið fyrirbæri og það er mögnuð
lífsreynsla fyrir ungan mann að leiða framboðslista í
fyrsta sinn. Sérstaklega er það mikil reynsla þegar á
móti blæs og gengið er upp brekkuna. Ég hef tekið þá
afstöðu að halda mínu striki, vera jákvæður og mál-
efnalegur og tala ekki illa um nokkurn mann. Hefur þó
á stundum ýmislegt gefið tilefni til andsvara, svo ekki
sé fastar að orði kveðið. Ég er sannfærður um að þessi
stefna okkar framsóknarmanna hefur mælst vel fyrir
og mun skila sér á endanum. Það er ekkert betra að
vera alltaf að rífast í stjórnmálum; saka aðra um svik
og brigsla fólki um lygar. Við sem erum í stjórnmálum
erum öll rekin áfram af heilbrigðum metnaði og hug-
sjónum fyrir samfélagið okkar og viljum gera vel. Það
stækkar enginn á því að ata andstæðinginn auri.
Við framsóknarmenn höfum sett fram metnaðarfulla
framtíðarsýn fyrir hönd Reykjavíkur og lýst yfir skýr-
um vilja til að framkvæma. Við höfum kallað það at-
hafnastjórnmál. Því hefur verið fleygt, að stjórnmál
snúist ekki síst um fólk en kosningar um fólk. Ég held
að það sé mikið til í því. Ég heyri á mörgum að þeir
vildu fremur geta valið fólk en flokka í stjórnmálum
nútímans. Ég heiti á þetta fólk að gefa nýjum manni
tækifæri og tryggja þannig nauðsynlega endurnýjun í
íslenskum stjórnmálum. Ekki veitir af.
Samkvæmt könnunum eru ótrúlega margir enn óá-
kveðnir og reynslan sýnir að við eigum jafnan töluvert
fylgi meðal þeirra sem ákveða sig á lokasprettinum.
Hvert atkvæði skiptir þar máli og ég bið því um þinn
stuðning. Hann skiptir miklu máli.
Þinn stuðningur getur ráðið úrslitum
Eftir Björn Inga Hrafnsson
Höfundur er oddviti B-listans í Reykjavík.
Í DAG leitar Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi
eftir umboði kjósenda til starfa í þágu Seltirninga allra.
Á framboðslista okkar er fjölbreyttur hópur kvenna og
það voru Seltirningar sjálfir sem völdu
framboðslista okkar í fjölmennu og vel
heppnuðu prófkjöri í febrúar. Vilji fólks
um endurnýjun og ferskleika í bæjarmál-
unum hefur því þegar sett mark sitt lista
okkar.
Síðustu fjögur árin hefur meirihluti
okkar í bæjarstjórn markvisst styrkt
stöðu bæjarins og eflt lífsgæði Seltirn-
inga. Árangurinn er góður og hefur ábyrgur rekstur
bæjarsjóðs tryggt grundvöll góðrar þjónustu við bæj-
arbúa. Við höfum lækkað skatta á sama tíma og þjón-
ustan hefur verið aukin. Sýnt þykir að Seltjarnarnes sé
um margt orðið fyrirmynd annarra sveitarfélaga. Góð
staða Seltjarnarnesbæjar er þó ekki sjálfgefin. Hún
byggist á áralangri stefnufestu meirihlutans og vilja til
að þjóna bæjarbúum vel.
Ánægðir bæjarbúar
Afrakstur síðustu ára gefur fyrirheit um spennandi
framtíð. Það hefur verið markmið okkar að efla þjónustu
Seltjarnarnesbæjar og um leið lífsgæði Seltirninga.
Mörg framfaraspor hafa verið stigin og sjálfstæðismenn
einnig staðið dyggan vörð um þau gildi sem hafa verið
forsenda öflugs og sjálfstæðs sveitarfélags. Viðhorf íbúa
til þjónustu bæjarins sýnir að vel hefur tekist að viðhalda
og efla þjónustu bæjarins á fjölmörgum sviðum. Í nið-
urstöðum þjónustukönnunar Gallup kemur í ljós að þjón-
usta bæjarins fær góða einkunn bæjarbúa. Í henni kemur
fram að rúmlega 85% íbúa eru ánægð með þjónustu bæj-
arins, sem verður að teljast einstakur árangur á meðal
stærri sveitarfélaga. Framkvæmdir bæjarins á kjör-
tímabilinu eru meiri en um langt skeið. Of langt mál yrði
að rekja þær allar en skal látið nægja að nefna nýtt bóka-
safn, stækkun Tónlistarskóla Seltjarnarness, frágang
opinna svæða meðfram strandlengjunni, ljósleiðaravæð-
ingu, verulegar endurbætur á sundlaug og skólum,
hverfavörslu til að sporna við innbrotum og gerð knatt-
spyrnuvallar auk minni sparkvalla með gervigrasi.
Ábyrg fjárstjórn skilar lægstu sköttum
Traustur rekstur sveitarfélaga er ekki sjálfgefinn, held-
ur veltur á ábyrgðarkennd og glöggri sýn á langtíma-
hagsmuni bæjarbúa. Útsvar hefur hvergi verið lækkað
nema á Seltjarnarnesi hin síðari ár og er nú það lægsta á
höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður Seltirninga vegna fast-
eignatengdra gjalda er sá lægsti á höfuðborgarsvæðinu
á sama tíma og mikil eftirspurn eftir búsetu í sveitarfé-
laginu hefur margfaldað verðmæti fasteigna á Seltjarn-
arnesi. Engu að síður hefur rekstur bæjarins aldrei skil-
að meiri afgangi og skuldir bæjarsjóðs eru óverulegar.
Það er bjart yfir Seltjarnarnesi
Þegar rætt er um frammistöðu stjórnmálaflokka er ein-
ungis unnt að miða við dóm kjósenda. Með kosningu
ábyrgra aðila í bæjarstjórn hafa íbúar Seltjarnarness í
samvinnu við bæjarstjórn stuðlað að uppbyggingu bæj-
arfélags sem í senn þykir eftirsóknarverður bústaður og
er öðrum sveitarfélögum fyrirmynd. Lykillinn að vel-
gengni sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi er sá að við
höfum einatt lagt okkur öll fram í þágu bæjarbúa allra
og gengið til kosninga með skýr stefnumið. Hið sama
verður ekki sagt um keppinauta okkar. Í kosningum hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi ávallt reitt sig
á dómgreind bæjarbúa og þá tiltrú hafa Seltirningar
endurgoldið með stuðningi. Í lok kjörtímabils blasir við
að vandfundið er það sveitarfélag hérlendis sem getur
státað af jafn styrkri stöðu og er betur í stakk búið til að
svara óskum bæjarbúa um aukin lífsgæði og fjölbreytta
og öfluga þjónustu. Við blasir nýtt kjörtímabil, ný sókn-
arfæri. Það er bjart framundan og næsta kjörtímabil
verður uppskerutími fyrir Seltirninga.
Seltjarnarnes – blómlegur bær
Eftir Jónmund Guðmarsson
Höfundur er bæjarstjóri og oddviti
Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi.
KOSNINGABARÁTTAN hefur verið stutt og snörp. Hún fór af stað með
miklum loforðum margra framboða um gríðarlegar framkvæmdir og auk-
in útgjöld til þjónustu samhliða lækkun skatta. Það veit það hver maður að
þetta gengur ekki upp. Þess vegna leggur Samfylkingin
fram raunhæfan lista yfir metnaðarfull verkefni næstu ára
um leið og hún leggur verk sín í dóm kjósenda. Þegar miklu
er lofað skiptir meira máli hvað gert er.
Eftir uppbyggingu síðustu ára í öflugri og ódýrri þjón-
ustu við borgarbúa, blasa ný tækifæri hvarvetna við. At-
vinnulífið er kröftugt, skólar af öllu tagi að byggjast upp,
ferðamenn sækja okkur heim sem aldrei fyrr og íslenskt
listafólk fær tækifæri til að byggja sig upp á heimavelli áð-
ur en það spreytir sig á stærstu sviðum heimsins.
Á næstu árum þurfum að við spila úr þeim tækifærum sem við höfum
skapað okkur. Vegna þess að borgin okkar er einstök, getur Reykjavík náð
forskoti í hinni alþjóðlegu samkeppni um fólk og fyrirtæki. Hvort það
tekst, ræðst af því hvort við berum gæfu til að gera samfélagið okkar enn
betra.
Lykilatriði í þeim efnum er að hafa sýn til framtíðar, að sjá Reykjavík
framtíðarinnar sem borg þar sem mannlífið stendur í þeim blóma að eft-
irsótt verði að eiga hér heima. Á næstu árum viljum við taka næstu skref
með Reykjavík í átt til meiri velferðar, fleiri og fjölbreyttari tækifæra og
aukinnar uppbyggingar. Þetta getum við gert á grundvelli árangurs und-
anfarinna ára. Við viljum stuðla að framúrskarandi skólastarfi, öruggri
þjónustu fyrir alla aldurshópa, gjaldfrjálsum leikskólum og að þekking-
arstarfsemi og íbúabyggð blómstri í Vatnsmýrinni. Þetta er á meðal þess
byggingarefnis sem ný Reykjavík er gerð úr þannig að borgin verði í senn
heimsborg og nútímalegur heimabær þar sem lífsgæði eru á heims-
mælikvarða.
Með þessa sýn í farteskinu býð ég fram krafta mína til að leiða Reykjavík
til móts við nýja tíma. Framtíðin er í okkar höndum, við skópum hana og
hún er hér.
Hugsum stórt
– framtíðin er hér
Eftir Dag B. Eggertsson
Höfundur er borgarstjóraefni Samfylkingarinnar.
Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna verður
formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir les-
endur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar.
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar
VILHJÁLMUR fór fyrstur fram
með kröfu um tafarlausa leiðrétt-
ingu á launum þeirra er annast
aldraða.
Borgarstjórn-
arflokkur sjálfstæð-
ismanna hefur sett
fram ákveðnar áætl-
anir varðandi bætt-
an aðbúnað aldraðs
fólks. Öldruðum
verði gert kleift að búa á heimili
sínu sem lengst með aukinni
heimaþjónustu og hjúkrun. Fast-
eignagjöld á íbúðarhúsnæði verða
lækkuð og þjónustu- og leiguíbúðir
byggðar.
Öldruðum verði sýnd virðing og
hlutverk þeirra í þjóðfélaginu met-
ið.
Vilhjálmur –
aldraðir
Eftir Jón Gunnar Hannesson
Höfundur er læknir.
SÚ ÁNÆGJULEGA tilkynning barst Álftnesingum í vikunni frá Green
Globe umhverfisvottunarkerfinu að bæjarfélagið stæðist grunnkröfur sam-
takanna. Þessi viðurkenning er ómetanlegt skref að fullnaðarvottun Green
Globe og segir okkur svo ekki verði um villst, að Álftnes-
ingar eru í fremstu röð hvað umhverfisskipulag, umgengni
og umhirðu varðar. Álftanes er annað sveitarfélagið á Ís-
landi á eftir Ólafsvík til þess að fá slíka staðfestingu.
Á Álftanesi eru skýrir valkostir kjósenda, framvinda eða
stöðnun. Framboðin tvö hafa með skýrum hætti komið sín-
um málum á framfæri. Svo virðist sem Á-listinn sé enn við
sama heygarðshornið, það sanna dæmin hér:
Á-listi kynnir gamla teikningu af miðsvæðisskipulag-
inu, önnur var samþykkt.
Íbúalýðræði við val á Á-lista, nei það var nú aldeilis ekki þannig?
Þrjár fjölskyldur bjóða fram að þessu sinni undir merkjum Á-lista.
Á-listinn var með skoðanakönnun með 600 manna úrtaki, niðurstöðu
er leynt.
Á-listi hafnar samningunum við Eir um uppbyggingu aðstöðu fyrir
eldri íbúa.
Á-listinn vill byggja 40 til 60 íbúðir á svæði vestan við Asparholt, sem
er á skipulagi opið svæði. Sbr. tillögu Á-lista á fundi bæjarstjórnar 15.
mars 2005.
Á-listi veit afstöðu eigenda Bessastaða til 18 holu golfvallar í Bessa-
staðanesi, sem hafna hugmyndinni. Leggja samt til að völlurinn komi
þar.
Af hverju vinna menn svona?
Fulltrúar D-lista á Álftanesi hafa kynnt magnaðar áherslur sínar, sem sýna
framsýni og umhyggju fyrir öllum íbúum. Fjölskylduvænt samfélag okkar
er rómað af öllum, sem hér búa. Við ætlum að viðhalda sérstöðu okkar í
frábæru umhverfi og ætlum enn að bæta aðstöðu skólanna og íþrótta-
aðstöðu úti og inni. Við setjum málefni eldri íbúa á oddinn og ætlum að
standa við gerða samninga við Eir frá því í október 2005 um metnaðarfulla
uppbyggingu fyrir þá sem eldri eru.
Sími á kjördag er 869 2968, ef frekari upplýsinga eða aðstoðar er þörf.
Framfarir fyrir íbúana á Álftanesi X-D.
Álftanes – Green Globe, önnur
framfaramál og skýrir kostir
Eftir Guðmund G. Guðmundsson
Höfundur er bæjarstjóri og 1. maður á lista D.
Kristinn Pétursson: „Endur-
vinna gagnagrunn ICES og
Hafró.“
Þorsteinn Gestsson fjallar um
vímuefni.
Kosningar 2006
www.mbl.is/kosningar
Árni Davíðsson: „Vilja kjósendur
áfram spillingu í stjórn Kópavogs-
bæjar?“
Sigvarður Halldóruson: „For-
varnarmál í Árborg.“
Bragi Ingiberg Ólafsson:
„Reykjavíkurflugvöllur.“
Sigurlaug G. Ingólfsdóttir: „Til
hvers pólitík og stjórnmála-
flokka?“
Lilja Ragnarsdóttir: „Réttsýni í
fyrirrúmi.“
Guðjón E. Jónsson: „Eldri borg-
arar.“
Halldór Þormar: „Dagur vonar,
Dagur sigurs.“
Magnús Helgi Björgvinsson:
„Ég kýs Samfylkinguna í Kópa-
vogi!“
Ragnar Sigurðsson: „Akureyri
áfram í öndvegi“
Haukur Ásgeirsson: „Fylkjum
liði um Kristján Þór.“
Friðrik Ingi Óskarsson: „Hug-
renningar um borgarstjórnarmál.“
Stefán Þórsson: „Samstæðis-
flokkurinn.“
Magnús Helgi Björgvinsson:
„Að meðaltali flytja um 10% íbúa
frá Kópavogi á hverju ári.“
Gunnar Einarsson „Traust fjár-
málastjórn – staðreyndir um
miðbæ Garðabæjar.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar