Morgunblaðið - 27.05.2006, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU spennandi kosningar framundan á Álfta-
nesi. Aðeins eru boðnir fram tveir listar, Á og D.
Á-listinn kemur sterkur inn með vönduð og heilsteypt
stefnumál og öll kosningabaráttan fagmannlega unnin
þrátt fyrir lítið fé. Fjölmargir lýsa yfir
stuðningi við Á-listann og taka þátt í
kosningabaráttunni. Hér er á ferð öfl-
ugur hópur sérfræðinga á fjölmörgum
sviðum. Í þeim hópi eru óflokksbundnir
sem og fólk úr öllum flokkum, þar á með-
al sjálfstæðismenn.
D-listinn berst nú um á hæl og hnakka
við að halda þeim völdum sem hann hef-
ur haft alltof lengi.
Þeir hafa haft völdin nógu lengi til þess að finnst orðið
eðlilegt að nota bæjarsjóð til að greiða áróðursbæklinga
fyrir D-listann. Þannig lætur D-listinn útbúa kosn-
ingabæklinga og DVD diska fyrir milljónir og finnst auk
þess við hæfi að oddvitinn dreifi þeim sjálfur í hvert hús.
Slík er siðblindan orðin að oddviti D-listans tekur til
viðbótar án samþykkis tæpa milljón úr bæjarsjóði til að
kosta skemmtiferð fyrir sjálfan sig og félaga sína til
Kúbu rétt fyrir kosningar. Er það þetta sem við Álftnes-
ingar kjósum og viljum?
D-listinn segist leggja skipulag miðsvæðisins í dóm
kjósenda. Kjósendur hafa þegar tvívegis hafnað marg-
umræddu deiliskipulagi miðsvæðisins. Viljum við láta D-
listann gefa meirihluta íbúa langt nef með því að hunsa
væntingar um vandað og faglega hannað miðsvæði? Með
því að kjósa Á-listann hafna Álftnesingar skipulaginu í
þriðja sinn. Við viljum líta til framtíðar, gefa okkur tíma
til að hanna miðsvæðið eftir þörfum og vilja okkar. Við
þurfum að byggja upp samfélag sem fellur að umhverf-
inu og hentar því samfélagi fólks sem velur sér búsetu
hér. Við viljum sjá blandaða, fjölbreytta og vel hannaða
byggð í hjarta bæjarins.
Eins viljum við byggja upp góða þjónustu við unga
sem aldna íbúa. Skólinn, leikskólinn, íþrótta- og tóm-
stundastarf þarf allt að fylgja uppbyggingunni.
Þá þurfa elstu íbúarnir að fá að njóta þeirrar þjónustu
sem þeim ber. Það eru vart haldbær rök að ekki fáist
fólk til að sinna heimaaðstoð. Það er ekki ásættanlegt að
iðulega líði 6 til 8 vikur á milli heimsókna heimilishjáp-
arinnar. Á sama tíma segir D-listinn að hann ætli nú að
fara að gera vel við eldra fólkið. Er það trúverðugt?
Ef framtíð Álftaness á að verða björt er nauðsynlegt
að Á-listinn nái meirihluta. Því skora ég á alla Álftnes-
inga sem láta sig umhverfi, útlit og framtíð Álftaness
varða að kjósa Á-listann.
Setjum X við Á og tryggjum lýðræðisleg og góð vinnu-
brögð.
Álftanes á að vera öndvegisstaður
Eftir Kristján Sveinbjörnsson
Höfundur er bæjarfulltrúi Á-listans.
ÉG ÁKVAÐ síðla kvölds að skoða hvað mótherjarnir í
kosningunum væru að bralla og fór inn á xd.is. Þarna
var mynd af Vilhjálmi og frjálshyggjuföruneyti hans á
lista Sjálfstæðismanna og forsíðufyrirsögn undir fótum
frambjóðendanna tungulipru: „Afkoma aldraðra og líf-
eyristryggingar – athugasemdir að
gefnu tilefni.“ Mér brá heldur í brún þeg-
ar ég áttaði mig á því að þarna var ekki
um að ræða loforð um bætta stöðu að
gefnu tilefni. Nei þarna voru svokallaðar
„upplýsingar“ frá fjármálaráðuneytinu
og heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu um hvað lífeyrisþegar hafi það
nú gott á Íslandi.
Fyrsta atriði hljóðaði svo: „Í fyrsta lagi hafa með-
algreiðslur Tryggingastofnunar ríkisins á hvern ellilíf-
eyrisþega hækkað um tæp 80% frá 1995 á meðan verð-
vísitala neysluverðs hækkaði um 41%.“
Svo kom næsta atriði þess efnis að kaupmáttur þeirra
sem hefðu lægstar tekjur hefði hækkað til jafns við aðra
og „gott betur“ og í þriðja lagi var það brýnt fyrir les-
endum að samanburður milli íslenska tryggingakerf-
isinns og annarra OECD ríkja væri villandi.
Ég átti ekki til orð. Í fyrsta lagi er þetta yfirklór yfir
stöðu aldraðra svo frámunalega sorglegt og ógeðfellt.
Sérstaklega í ljósi loforðaflaumsinns og samhygðarinnar
sem gusast út úr frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningar.
Greiðslur hafa hækkað um 80% en 36% af því fara í
skatta sem ríkið hirðir til baka af lífeyrisþegum og af-
gangurinn í umrædda 41% hækkun á vísitölu neyslu-
verðs. Ég fæ ekki séð að mikið sé eftir til skiptanna af
þessari hækkun sem sjálfstæðismenn stæra sig af.
Þetta eru skilaboðin til eldri borgara: Þið hafið fengið
„gott betur“ að sögn Sjálfstæðisflokksins. Þá vitið þið
líka að átak flokksins í málefnum eldriborgara mun fel-
ast í því að búa til tölur til að sanna að þið hafið það „gott
betur“. Kannski telja þeir sig vera búna að vinna kosn-
ingarnar og því óhætt að læðast út úr bleika skápnum
sem þeir hafa lokað sig inni í á undanförnum vikum.
Kannski treysta þeir því að eldriborgarar séu ekki mikið
á netinu og lesi því ekki heimasíðu flokksins og telja því
öruggt að reifa þessar fullyrðingar þar í þeirri fullvissu
að þær muni aldrei koma fyrir augu eldri borgara. Þeir
geti sannfært unga fólkið um þessa vitleysu og sagt svo
eitthvað annað við eldriborgara í pósti til þeirra.
Trúverðugleiki hins nýbleika Sjálfstæðisflokks var að
vísu ekki mikill fyrir í mínum huga en þessi lestur fékk
hárin til að rísa af hneykslun. Í Samfylkingunni tölum
við einum rómi í málefnum eldri borgara, á þingi og í
sveitarstjórnum, við vitum að þessi mál eru í ólestri og
við biðjum um umboð borgarbúa til að vinna þeim gagn.
En Sjálfstæðisflokkurinn telur augljóslega að hann sé
búin að gera sitt og „gott betur“.
Eldri borgarar og gott betur
Sjálfstæðisflokksins
Eftir Sigrúnu Elsu Smáradóttur
Höfundur er varaformaður stjórnar OR og
í 6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Betri byggð
Á miðvikudaginn héldu samtökin Betri byggð fréttamannafund til að
kynna drög að kosningahandbók kjósenda í skipulagsmálum. Á öftustu
síðu handbókarinnar er gerð úttekt á afstöðu framboðanna í Reykjavík til
Vatnsmýrarinnar og flugvallarins og borin saman við afstöðu samtakanna
Betri byggðar. Könnuð var afstaða framboðanna til þess
hvort flugvöllurinn á að fara úr Vatnsmýrinni, hvenær
menn vilja að hann fari, hvert menn vilji að hann fari og hve
margir eigi að búa á Vatnsmýrarsvæðinu.
Vilhjálmur Þ.
Í ágúst 2005 skipti Vilhjámur Þ. um skoðun og lýsti því yfir
að hann væri algerlega fylgjandi því að flugvöllurinn færi.
Þá bar ekkert á milli í stefnu Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar annað en að sjálfstæðismenn vildu ekki nema 10.000 manna byggð í
Vatnsmýrina en Samfylkingin 15.000 manns. Betri byggð vill 25.000
manna byggð í Vatnsmýrina. Nú viku fyrir kosningar skiptir Vilhjálmur
enn einu sinni um skoðun og segir að vel komi til greina að flugvöllurinn
verði áfram í Vatnsmýrinni.
Samfylkingin
B-listi vill að flugvöllurinn verði á Lönguskerjum en hefur enga skoðun á
því hve margir eigi að búa í Vatnsmýrinni frekar en V-listinn sem vill flug-
völlinn í Hólmsheiðina. F-listinn vill að flugvöllurinn verði á sínum stað.
Þar með er dagljóst að eini framboðslistinn sem kemur í aðalatriðum til
móts við málstað samtakanna Betri byggðar er Samfylkingin og því skora
ég á þá sem hlynntir eru málstað Betri byggðar að kjósa Samfylkinguna,
X-S, til að tryggja að Vatnsmýrin verði frábær byggð.
Samfylkingin,
Vilhjálmur og Betri byggð
Eftir Stefán Benediktsson
Höfundur er arkitekt og í 9. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
NÚ REYNIR á Kópavogsbúa. Þær kannanir sem gerðar hafa verið
sýna að Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í Kópavogi.
Það þýðir að sá meirihluti sem staðið hefur fyrir hinni öflugu uppbygg-
ingu sl. 16 ár er fallinn.
Framsóknarmenn sem lagt hafa sitt á vogaskálarnar til
þess að þessi bær hefur orðið farsæll og framsækinn eins
og raun ber vitni. Oddviti sjálfstæðismanna sagði í Kast-
ljósi að þó svo að þeir fái hreinan meirihluta þá hugi þeir
að góðu samstarfi við Framsóknarflokkinn. Hvað þýðir
það í raun? Ekkert, því þegar þarf að taka ákvarðanir
eru þeir með hreinan meirihluta og áhrif okkar fram-
sóknarmanna yrðu engin. Það er því mikilvægt fyrir
Kópavogsbúa að þeir setji sitt X við B. Með því tryggja íbúar bæjarins
það best að góð stefnumál og rödd staðfestu og skynsemi haldi áfram að
heyrast í Kópavogi X-B.
Nú reynir á
Kópavogsbúa – X B
Eftir Ómar Stefánsson
Höfundur er oddviti framsóknarmanna í Kópavogi.
ÚTI UM allt land bjóða nú fram flokkar til sveitastjórna undir flaggi
vinstristefnunnar. Jafnvel íhaldsflokkurinn veigrar sér ekki við að lofa
fyrst og fremst meiri útgjöldum í velferðar- og skólamál. Það ganga lausir
úlfar í sauðargærum. Þau stefnumál sem eru hvað mest áberandi hjá öllum
flokkum, eins og gjaldfrjáls leikskóli, birtust fyrst í stefnuskrá Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs. Það er engin ástæða til þess að kaupa
annars flokks vinstristefnu í þessum kosningum því þér
býðst fyrsta flokks, trúverðug og traust vinstristefna frá
Vinstri grænum. Þegar allir flokkar þykjast vera með bestu
vinstristefnuna þarf að leiða hugann að trúverðugleika.
Væri það trúverðugt ef Vinstri græn settu á oddinn afnám
hátekjuskatts og einkavæðingu ríkisfyrirtækja? Er það eitt-
hvað trúverðugra að sömu flokkar og sitja í ríkisstjórn setji
skóla- og velferðarmál á oddinn á sveitarstjórnarstiginu?
Augljóslega ekki.
Vinstri græn hafa ekki fjárhagslegt bolmagn né vilja til þess að móðga
kjósendur með svipmyndum af lélegri golfsveiflu frambjóðenda sinna.
Hvaða ímynd hafa framsóknarmenn af kjósendum fyrst þeir halda að aug-
lýsing sem segir að léleg golfsveifla sé merki um góðan stjórnmálamann
muni skila þeim atkvæðum? Jú einmitt, þeir eru allir í sveitamennskunni
og halda að kjósendur séu sauðir.
Í sumum sveitarfélögum spyrja menn sig hvort það sé meiri eða minni
kattaskítur í sandkössunum en á síðasta kjörtímabili. Í flestum sveit-
arfélögum spyrja menn sig líka hver stefna Samfylkingarinnar sé í raun og
veru. Oft rambar þessi svokallaða fylking á ágætis stefnumál en þegar til
kastanna kemur sundrast hún. Þegar þörf er á því að virða náttúruna er
virkjunin studd. Þegar kemur að því að standa við loforð við kjósendur er
stokkið af velli. Það er ekkert skrýtið að fólk skuli spyrja sig hvar Samfylk-
ingin standi í raun og veru þegar forsvarsmenn þeirra eru óháðir, flokks-
bundnir, borgarstjóraefni, forsætisráðherraefni og afhuga stjórnmálum
sitt á hvað, hvað eftir annað, dag eftir dag og jafnvel sama dag. Já, það er
vandasamt að kaupa ekki köttinn í sekknum ef maður kýs Samfylkinguna.
Þið, kjósendur, ættuð að hafa áhyggjur af úlfum í sauðargærum, þeim
sem líta á ykkur sem sauði og köttum í sekkjum. Við bjóðum ykkur hreinar
línur: Þið getið treyst okkur til þess að sjá um velferðarmálin, börnin,
skólamálin, fjölskylduna, eldri borgarana og þá sem standa höllum fæti.
Vinstri græn eiga kannski ekki mikið af peningum í auglýsingar en við
munum nýta peninga hins opinbera vel til þess að tryggja að öllum líði vel í
samfélaginu. Ef þig langar í raun og veru að sjá vinstristefnu eftir næstu
kosningar, eins og allir flokkar bjóða upp á, þarftu ekki að hafa neinar
áhyggjur heldur bara merkja X við V.
Úlfar, sauðir, kettir,
peningar og Vinstri græn
Eftir Dögg Proppé Hugosdóttur
Höfundur er formaður UVG og situr í 9. sæti lista Vinstri grænna í Reykjavík.
ÞAÐ VAR einhverju sinni að Ólaf-
ur Thors sagði það, að það væri mik-
ilvægara fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
hafa embætti borgarstjóra Reykja-
víkur, heldur en að hafa með hönd-
um embætti for-
sætisráðherra í
ríkisstjórn á Íslandi.
Það veit á gott eitt að
hvorugt embættið,
sem hér er rætt um,
er í höndum Sjálf-
stæðisflokksins, það
er hvorki forsætisráðuneytið né
borgastjóraembættið. En landsfað-
irinn, Ólafur Thors, sem gegndi for-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum í yf-
ir þrjátíu ár, snýr sér vart við í
gröfinni vegna þessa! Sannast sagna
er það brýnt atriði, að áframhald
verði á því að sjálfstæðismenn verði
ekki borgarstjórar í Reykjavík. Af
sjálfu leiðir að valið næstkomandi
laugardag þann 27. maí er einfalt:
Kjósum X-S.
Allir með í
hinni nýju
Reykjavík
Frá Kjartani Emil Sigurðssyni
Höfundur er stjórnmála- og
þjóðhagfræðingur.
Í SAMTÖLUM við eldri borgara síðustu daga höfum við frambjóðendur
Samfylkingarinnar í Reykjavík fundið fyrir því að öldruðum líst vel á þau
áherslumál sem Samfylkingin og borgarstjóraefni hennar, Dagur B. Egg-
ertsson, hafa sett fram. Fólk vill færa þjónustuna nær íbúunum með því að
láta sveitarfélagið sjá sem mest um stjórn mála. Jafnframt er fólk svekkt
yfir þeim kjörum sem ríkisvaldið býður öldruðum með skatta- og út-
gjaldastefnu sinni. Sjálfstæðismenn í sveitarstjórnum skynja þetta rétt fyr-
ir kosningar og heimta nýja stefnu af sínum mönnum. En
það er bara of seint.
Frægt er þegar Geir Haarde fjármálaráðherra lýsti yfir
andstöðu við samkomulag sem borgarstjóri gerði við Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra um smíði hjúkrunarheim-
ila í borginni. Svo fast stóð fjármálaráðherrann á brems-
unni í fjögur ár að úr varð mikill reykur og erfitt er að afmá
bremsuförin.
Þótt ljóst sé að smíði tveggja hjúkrunarheimila sem borg-
aryfirvöld hafa þrýst á um muni bæta úr brýnni þörf er ljóst að fleira þarf
að koma til. Fólk vill búa heima hjá sér sem lengst og því þurfa að koma til
fleiri dagvistarúrræði og þróa þarf áfram þjónustu á heimilum fólks.
Í allri þessari umræðu um stöðu aldraðra og sjúkra er það táknrænt hve
málefnum yngri hjúkrunarsjúklinga hefur lítið verið þokað áleiðis. Þessi
hópur og aðstandendur hans eru yfirleitt í mjög erfiðri stöðu. Þrátt fyrir
það hefur rýmum fyrir þennan hóp ekkert fjölgað frá 1997 eftir því sem
upplýst var á fundi á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík með
fulltrúum heilbrigðisráðuneytis fyrir skömmu og um 50 sjúkir eru stöðugt
á biðlista. Þar kom fram að algjör kyrrstaða hefur verið í ráðuneytinu
hvað þennan hóp varðar. Stjórn Skógarbæjar hefur kynnt hugmyndir um
fleiri rými fyrir þennan hóp. Fulltrúar Samfylkingarinnar munu beita sér
fyrir því að tillögur af því tagi verði að veruleika.
Sjálfstæðismenn
í felulitum
Eftir Stefán Jóhann Stefánsson
Höfundur situr í stjórn hjúkrunarheimilis í borginni og er
í 8. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn