Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 55 UMRÆÐAN L-LISTINN, listi fólksins, býður nú fram til bæj- arstjórnar á Akureyri í þriðja sinn. Við bjóðum fram krafta okkar til að vinna að þeirri hugsjón að gera bæinn okkar betri. Þess vegna mótum við stefnuskrá okkar eftir spurningunni: „Hvernig viljum við að Akureyri verði við lok kjörtímabils, árið 2010?“ Umfram allt viljum við efla bæj- arfélagið, þess vegna er kjörorð okk- ar: Afl fyrir Akureyri! Akureyrarbær getur veitt betri þjónustu þannig að bæjarbúum líði betur og þeir hafi það betra í lok kjörtímabilsins árið 2010 heldur en nú. Af þeim fjölmörgu verkefnum sem ráðast verður í vil ég nefna nokkur helstu. Við viljum bæta skipu- lag innanbæjarsamgangna og efla almennings- samgöngur með því að hafa frítt í strætó. Dalsbraut þarf að leggja í stokk. Bæta verður aðkomu skemmtiferðaskipa og við höfnum því að skera miðbæinn í sundur með síki! Ávallt verður að hafa nægar byggingarlóðir jafnt fyrir íbúðir sem atvinnustarfsemi. Tryggt aðgengi að daggæslu, skólum, heilsugæslu og allri þjónustu, leikskólar verði án skólagjalda og við viljum ekki einkavæða grunnskólana. Öll börn í leik- og grunnskóla fái heitan mat í hádeginu. Framhaldsskólarnir og Háskólinn á Akureyri njóta öflugs stuðnings okkar og við viljum ljúka skipulagi háskólasvæðis. Orkuháskólinn er boðinn velkominn, hann styrkir stórlega háskólastarf á Ak- ureyri! Glerársundlaug verður opin allt árið. Byggjum upp á KA- og Þórssvæðinu. Við viljum byggja akst- ursíþróttaaðstöðu við Glerá, tryggja fimleikafólki fyrsta flokks aðstöðu, við munum vinna að því að byggja áhorfendasvæði við íþróttahús Síðuskóla. Listahátíð unga fólksins verði árlegur viðburður og bæjarstjórn unga fólksins verður starfandi á hverju ári til að veita okkur hinum eldri aðhald. Stóraukum fjármagn til vímuvarna og forvarna og aukum niðurgreiðslu þátttökugjalda í íþrótta- og æskulýðsmálum. Vinnum markvisst áfram að uppbyggingu hjúkr- unarheimila fyrir þá sem þess þurfa og búum þeim heimilislegt umhverfi. Ráðinn verður sérfræðingur í öldrunarlækningum. Við teljum að málefnum fatl- aðra sé betur borgið hjá sveitarfélaginu en ríki og munum vinna ötullega að því. Umhverfismál bæjarins þarf að taka nýjum tök- um. Sorpmálin eru bæjarskömm, þeim verður komið í það horf að sómi verði að og afgreiðslutími gáma- svæðis verður endurskoðaður. Glerárgil og strand- lengjan meðfram bænum verða gerð að hreinu og vistvænu útivistarsvæði. Við munum vinna markvisst að stuðningi við at- vinnulíf í bænum og gera Akureyri fýsilegan kost fyrir ný fyrirtæki. Um leið viljum við strax hefja vinnu við að tryggja að þyrlubjörgunarsveit verði hér staðsett og að flugvöllurinn verði lengdur. Jafnrétti kynjanna á að vera ófrávíkjanleg regla í stjórnsýslu Akureyrarbæjar um leið og stjórnsýslan verði gegnsæ. Við viljum að bæjarstjórinn verði ráðinn á faglegum forsendum en ekki pólitískum. Hér er aðeins það helsta talið af markmiðum okk- ar í L-listanum. Nú er það undir ykkur komið Ak- ureyringar að veita okkur afl til að hrinda þeim í framkvæmd. Kjósum L-listann, lista fólksins! Afl fyrir Akureyri Eftir Odd Helga Halldórsson Höfundur er bæjarfulltrúi, skipar 1. sæti L-listans, lista fólksins á Akureyri. STUTTRI og snarpri kosninga- baráttu er að ljúka. Framsókn- arflokkurinn hefur lagt fram skýra stefnu í þessari kosningabaráttu og hefur umræðan meira og minna snúist um okkar mál. Við höfum not- ið þess að vera í um- ræðunni og ég er sannfærður um það að okkar mál verða viðfangsefnið á næsta kjörtímabili þótt andstæðing- arnir hafi reynt að gera lítið úr okkur. Eins og gefur að skilja þá sýnist sitt hverjum enda er það eðli stjórnmál- anna að tekist sé á um ólík sjón- armið. Munurinn á okkur og hinum flokkunum er fyrst og fremst sá að við höfum talað í lausnum undir kjörorðinu ATHAFNASTJÓRN- MÁL á meðan hinir vilja fleyta mál- unum fram yfir kosningarnar með því að setja þau í nefndir. Eins og áður þá eru skoðanakann- anir ríkur þáttur í kosningabaráttu. Þær eiga að gefa almenningi vís- bendingu um það hvernig straum- arnir liggja og gefa fyrirheit um lík- lega niðurstöðu kosninganna. Það hefur vakið athygli mína að hlutfall þeirra sem ekki eru tilbúnir að gefa upp val sitt eða eru óákveðnir er sí- fellt að aukast. Þegar þetta er skrif- að nokkrum dögum fyrir kosningar þá er svarhlutfall í könnunum að- eins rúm 60% og mér finnst með ólíkindum að engin fréttastofa hafi séð ástæðu til þess að greina þetta háa hlutfall þeirra sem neita að taka þátt í þeim leik að mæla skoðanir fólks. Með þeirri upplýsingatækni sem við búum yfir er alltaf auðveld- ara og auðveldara að halda utanum upplýsingar um einstaklinga og fólk vill ekki láta kortleggja sig með eða á móti tilteknum stjórnmálaflokk- um. Það er skiljanlegt. Einnig eru stuðningsmenn Reykjavíkurlistans ekki búnir að gera það upp við sig hvern af þeim þremur flokkum sem báru upp Reykjavíkurlistann þeir ætla að láta hafa atkvæði sitt. Þar munu málefnin ráða og þar stönd- um við styrkum fótum. Reynslan sem við höfum af skoðanakönn- unum sýnir að jaðarflokkarnir Sjálf- stæðisflokkur og VG mælast alltaf betur í könnunum en kosningum. Það er eins og stuðningsfólk þess- ara flokka haldi með sínum flokki eins og íþróttafélagi. Það skiptir ekki máli hvort liðið spilar vel eða illa, alltaf er kosið það sama óháð því hver stefnan er, eða hvernig frambjóðendur standa sig. Svona eru framsóknarmenn ekki. Þeir standa með sínum flokki svo langt sem það nær en ekki lengra. Við höfum hagað málflutningi okkar þannig að sátt geti náðst um deilu- mál sem lengi hefur staðið styr um. Það er eðli Framsóknarflokksins að leggja mál upp með þeim hætti, að sætta ólík sjónarmið og að nið- urstaða fáist. Þess vegna veit ég að framsóknarmenn munu standa með sínum flokki í þessum kosningum. Grunnhugmyndafræði Fram- sóknarflokksins kristallast í þeim meginmálum sem við höfum lagt fram. Þar er gullna reglan að sætta ólík sjónarmið og ná niðurstöðu. Flugvöllurinn á Löngusker er lausn á 50 ára deilumáli þar sem mætast sjónarmið um að Vatnsmýrin verði nýtt undir byggð en flugvöllurinn verði áfram í Reykjavík. Aðrir flokkar tala óskýrt og vilja ekki gefa upp afstöðu sína fyrr en eftir kosningar. VG hefur reyndar lagt til flugvöll við vatnsverndarsvæðin sem við framsóknarmenn segjum að komi alls ekki til greina. Við erum líka eini flokkurinn sem hefur gefið afdráttarlausa yfirlýs- ingu um Sundabraut. Miðað við þær þrjár lausnir sem fóru í mat á um- hverfisáhrifum höfum við valið botngöng á ytri leið en það er sú leið sem næst kemst kröfum íbúa- samtaka Laugardalshverfanna. Þriðja málið sem ég vil nefna er frístundanám fyrir öll börn á aldr- inum 5–18 ára. Eftir að hafa einsett grunnskólana í Reykjavík undir for- ystu Sigrúnar Magnúsdóttur þá hef- ur ekki ennþá verið lokið við að upp- fylla hugmyndafræði einsetins skóladags að samþætta frístund- anámið skóladeginum. Við höfum lagt til að öll börn hafi rétt til þess að velja sér íþróttir eða listnám við sitt hæfi og gefin verði út frí- stundakort til allra skólabarna þannig að það verði ekki einungis börn þeirra sem hafa efni á því að borga sem njóta þess. Þetta tryggir jafnrétti til náms og er í leiðinni mikið forvarnarstarf. Öll þessi mál auk fjölda annarra sýna að við tölum í lausnum. Með viljann að vopni og ykkar stuðningi ætlum við okkur stóra hluti í þess- um kosningum. Allir þeir sem eru tilbúnir að kynna sér málefnastöðu flokkanna sjá að við erum sá flokk- ur sem hefur talað skýrast og ætlar að framkvæma. Kjóstu af ábyrgð. xB Kjóstu af ábyrgð Eftir Óskar Bergsson Höfundur er rekstrarfræðingur og húsasmíðameistari og skipar 2. sætið á B-listanum í Reykjavík. 9. MAÍ - 10. JÚNÍ Nýr bæklingur um vín frá Chile í næstu vínbúð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.