Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 56
56 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ eru til margar ólíkar skólastefnur og marg-
víslegar leiðir til að reka skóla, en mikilvægast í
öllu skólastarfi er þó alltaf sú menntun sem hann
veitir. Þess vegna er flestum miklu kærara það sem
fer fram innan veggja skólans heldur
en hvernig rekstri hans er háttað.
Góður skóli veitir góða menntun,
veganesti út í lífið, og sú menntun er
ekki háð rekstrarformi heldur metn-
aðarfullu skólastarfi.
Skólum borgarinnar er stjórnað
miðlægt en með vaxandi áherslu á
sjálfstæði einstakra skóla. Markmiðið
er að fá einstaklingsmiðað nám, lagað að þörfum
hvers og eins. Auk hefðbundins nám er lögð áhersla
á að nemendur öðlist sterka sjálfsmynd og fé-
lagslega færni með áherslu á réttindi og skyldur og
líf og starf í lýðræðissamfélagi. Engu að síður sýna
samanburðarrannsóknir að á Íslandi eru börn jafnt
sem skólar á Íslandi föst í dapurlegri, einsleitri
meðalmennsku. Þessu þarf að breyta með metn-
aðarfullum áherslum á menntun, sérstaklega í nátt-
úrufræði og skapandi greinum.
Undir stjórn R-listans hafa skólar sett sér mark-
mið og stefnu um leiðir í einstaklingsbundnu námi
og sérstöðu um nálgun. Eftir því sem sjálfstæði
grunnskólana verður meira eykst þörfin á að for-
eldrar geti valið skóla á grundvelli þeirrar skóla-
stefnu sem best fellur að heimsmynd og þörfum
barna þeirra.
Val um skóla eru réttindi
Hvar er skólinn þar sem náttúrufræði er kennd í
náttúrunni en ekki bara af bók? Hvar er borg-
arskólinn sem leggur áherslu á heildarskynjun,
hjarta, huga og hönd, þar sem áherslan er á barnið
og þörf þess fyrir tjáningu, hreyfingu og sköpun?
Þessi skóli er vissulega til en hann er einkaskóli og
ekki vegna þess að rekstraraðilarnir hafi kosið svo,
heldur fellur þessi litli skóli ekki að staðlaðri ímynd
grunnskóla Reykjavíkur. Foreldrar sem velja senda
barnið sitt í þennan skóla þurfa að greiða skóla-
gjöld. Engu að síður er hér um að ræða mjög svo
áhugaverða nálgun við skyldunám byggða á þörfum
einstaklingsins fyrir tjáningu og frumkvæði. Fjöldi
barna myndi njóta þess ríkulega að fá þessa nálgun
við nám en þessir skólar eru reknir af eldhugum
með verulegu framlagi foreldra og eru því aðeins
fyrir börn með fjársterka foreldra, því borgin hefur
ekki gætt jafnræðis í fjárframlögum með skóla-
göngu allra barna.
Allir skólar verði borgarskólar
Það er verið að mismuna börnunum í borginni með
einkaskólum. Þarf skóli að vera einkaskóli til að
geta raunverulega haft metnaðarfulla og öðruvísi
skólastefnu að leiðarljósi? Einkaskólar sem starfa á
grundvelli viðurkenndrar skólastefnu og markmiða
aðalnámskrár með þarfir barna í huga eiga líka að
verða borgarskólar, eiga líka að njóta jafnræðis í
fjárframlögum, enda sé þeim ekki heimilt að inn-
heimta frekari skólagjöld. Þá fyrst eiga foreldrar
og börn raunverulegt val um að sækja menntun í
þann skóla sem hentar barninu best á jafnrétt-
isgrundvelli. Það er stefna F-listans að börn og for-
eldrar eigi þetta val.
Valfrelsi foreldra og barna um skóla
Eftir Ástu Þorleifsdóttur
Höfundur er jarðfræðingur og skipar
4. sæti á lista Frjálslyndra og óháðra í Reykjavík.
LAUGARDAGINN 27. maí ganga Kópavogsbúar til
kosninga um bæjarstjórn næstu fjögurra ára. Vinstri
græn hafa sagt að þessar kosningar snúist um fólk.
Við viljum breyta áherslum í rekstri
bæjarins og setja fólk í forgang. Sam-
félag án þröskulda, þar sem allir hafa
sömu tækifæri. Samfélagið á að vera
fjölbreytt og pláss fyrir öll sjónarmið.
Ríkisstjórnarflokkarnir í Kópavogi
Í 16 ár hafa ríkisstjórnarflokkarnir
stjórnað í Kópavogi. Þessir flokkar
hafa stjórnað í mesta góðæri Íslandssögunnar að eig-
in sögn, en engu að síður mistekist hrapallega að
nýta sér það til góðs fyrir bæjarbúa. Áherslan hefur
verið á malbik og steinsteypu.
Öldrunarþjónusta í Kópavogi er langt á eftir ná-
grannasveitarfélögunum. Félagsþjónustan nær engan
veginn að sinna nauðsynlegum verkefnum. Grunn-
skólar fá ekki það fjármagn sem þeir þurfa til að
halda uppi metnaðarfullu starfi. Leikskólagjöld með
því hæsta sem þekkist á landinu, þar til „korteri fyrir
kosningar“. Starfsfólk flýr leikskólana vegna lélegra
kjara, á sama tíma og bæjaryfirvöld vilja ekki ræða
við starfsfólkið um lausn sinna mála. Erindum starfs-
manna um bætt kjör er ekki svarað.
Ólýðræðisleg og ósiðleg vinnubrögð
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur
hvað eftir annað verið kærður stjórnsýslukærum
vegna ófaglegra vinnubragða, og þar er ekkert lát á.
Einkavinavæðingin á gott skjól hjá núverandi meiri-
hluta. Pukur við lóðaúthlutanir og lítilsvirðing við
lýðræði hafa verið einkennandi fyrir stjórnarhættina.
Vinstri græn krefjast opinnar stjórnsýslu og lýðræð-
islegra vinnubragða. Við viljum að þjónusta við bæj-
arbúa verði sett í forgang. Bæjarbúar eiga að geta
treyst því að sú þjónusta sem þeir þurfa sé til staðar
þegar þeir þurfa á henni að halda. Börn, aldraðir,
fatlaðir, nýir Íslendingar, unglingar, barnafjöl-
skyldur, konur, karlar, já allir bæjarbúar, þurfa að
geta tekið þátt í ákvörðunum er þá varða. Og nú
nokkrum dögum fyrir kosningar sendir Gunnar Birg-
isson bæjarbúum persónulegt bréf með viðfestri ávís-
un úr bæjarsjóði vegna lækkunar fasteignagjalda sem
var ákveðin rúmum mánuði fyrir kosningar. Sjaldan
hefur maður séð eins ósiðleg vinnubrögð og jafn
grímulausa tilraun til atkvæðakaupa.
Gjaldfrjálsan leikskóla strax
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og fáránlegt að
gjaldtaka þar sé meiri en í sumum einkareknum há-
skólum. VG vill gjaldfrjálsan leikskóla strax, og við
höfum bent á hvar á að taka peninga til þess. Við
krefjumst tafarlausra úrbóta í málum eldri bæjarbúa.
Núverandi meirihluti hefur nánast ekkert gert í þeim
efnum í 16 ár. Við viljum hætta allri gjaldtöku í
grunnskólum og tryggja þannig jafna aðstöðu barna.
Við viljum að Kópavogur taki forystu í að bæta kjör
starfsmanna bæjarins og segi sig úr Launanefnd
sveitarfélaga.
Ágæti kjósandi!
Við höfum fundið mikinn meðbyr í þessari kosn-
ingabaráttu. Á laugardaginn gefst þér tækifæri til að
breyta áherslum í stjórn bæjarins. Hvert einasta at-
kvæði skiptir máli. Fyrir fólk með fólki, Vinstri græn
hreinar línur.
Ríkisstjórnina burt úr Kópavogi
Eftir Ólaf Þór Gunnarsson
Höfundur er öldrunarlæknir og
oddviti Vinstri grænna í Kópavogi.
EFSTI maður á lista sjálfstæðismanna í Garðabæ, Erling Ásgeirsson,
skrifar grein í Morgunblaðið þar sem hann fer með ótrúlegar rangfærslur.
Hann leggur mér þau orð í munn að ég sé á móti niðurfellingu fast-
eignaskatts.
Hið rétta er að Bæjarlistinn er þeirrar skoðunar að fast-
eignaskatturinn á einstaklinga sé óréttlátur skattur, síðasti
eignaskatturinn sem lagður er á í landinu og því er eðlilegt
að á sama tíma og stjórnvöld hafa verið að afnema almenna
eignaskatta á síðustu árum verði fasteignaskattur lagður
af. Fasteignaskattur sveitarfélaganna verður hins vegar
ekki aflagður nema með lagabreytingu frá Alþingi og því
þarf að vinna að þessu máli pólitískt með þingmönnum sem
og samtökum sveitarfélaga.
Erling Ásgeirsson heldur einnig fram að Bæjarlistinn muni fella niður
þá afslætti sem í gildi hafa verið gagnvart eldri borgurum í Garðabæ.
Þetta er ekkert annað en hræðsluáróður þeirra sem komast í þrot með sín
rök. Hefur Erling Ásgeirsson ekkert uppbyggilegra fram að færa rétt fyrir
kosningar en að halda fram dylgjum í okkar garð?
Það er stefna Bæjarlistans, A-listans í Garðabæ, að gera þurfi vel við
eldri borgara og að sjálfsögðu eigum við að lækka álögur, álögur sem eru
órettlátar. Einnig er það stefna okkar að taka til endurskoðunar þau þjón-
ustugjöld sem lögð eru á fjölskyldur í Garðabæ, sem eru með þeim hæstu á
höfuðborgarsvæðinu.
Álögur í Garðabæ
lækki yfir línuna
Eftir Steinþór Einarsson
Höfundur skipar 1. sæti A-listans í Garðabæ.
ÞEGAR áherslur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru skoðaðar og bornar
saman við það sem ríkisstjórnin hefur verið að framkvæma er ekkert sam-
hengi.
Á sl. þremur kjörtímabilum hefur verið staðið fyrir meiri til-
færslum frá þeim efnaminni til þeirra efnameiri en dæmi eru
um í sögu lýðveldisins. Svigrúm peningaafla og fyrirtækja hef-
ur verið aukið og skattbyrði færð frá þeim yfir til launafólks.
Einnig hafa verið gerðar tilfærslur á skattbyrði þannig að létt
hefur verið af þeim sem bera meira úr býtum og aukin á þeim
tekjulægri.
Handstýrður ójöfnuður
Ef notaðar eru hefðbundnar leiðir til að skoða tekjumun og
hvernig hann hefur þróast á Íslandi síðasta áratug kemur eft-
irfarandi í ljós. Árið 1995 var sexfaldur munur á lægstu og
hæstu tekjum fyrir skatta en var orðinn sjöfaldur árið 2004 og
hafði ójöfnuður því aukist um 18% á tímabilinu. Þegar sama
tímabil er skoðað eftir skatta er munurinn 3,7-faldur árið 1995
en orðinn 5,3-faldur árið 2004 og hafði ójöfnuðurinn aukist um
43%. Hvað segir þetta okkur? Markaðurinn jók ójöfnuð um
18% á tímabilinu en breytingar á skattkerfinu juku ójöfnuð í 43%. Mismunurinn
er handstýrður ójöfnuður núverandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins.
Neyð í hagvexti
Í nýrri könnun Rauða krossins, „Hvar þrengir að“, er þessi vaxandi misskipting
staðfest og fullyrt að bilið milli þeirra ríkustu og þeirra fátækustu fari stækk-
andi. Aldraðir, öryrkjar og geðfatlaðir eru meðal þeirra hópa sem lakast
standa og búa við mestu fátæktina. Ástæðurnar eru lágar bætur frá Trygg-
ingastofnun ríkisins sem ekki duga fyrir nauðþurftum. Þetta er veruleikinn
undir ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins á mesta hagvaxtarskeiði íslensku þjóð-
arinnar.
Bleikar skikkjur yfir blá föt
Það skal engan undra að borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vilji
ekki viðurkenna að hann tilheyri flokknum og sýni ekki frjálshyggjufólkið sem
ber ábyrgð á þessari stefnu. Hann klæðir sig í bleika skikkju félagshyggjunnar
en er ótrúverðugur þegar verk flokksins eru skoðuð. Það er mikilvægt að kjós-
endur kíki undir bleiku skikkjuna áður en þeir setja kross við Sjálfstæðisflokk-
inn og hafi í huga að það er innihaldið sem máli skiptir og ekki hægt að tryggja
eftir á.
Handstýrður ójöfnuður
Sjálfstæðisflokksins
Eftir Þorbjörn Guðmundsson og Stefán Benediktsson
Höfundar eru í 9. og 15. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar
samþykkti á fundi sínum hinn 4.
maí sl. endurskoðaða skólastefnu
fyrir leik-, grunn- og tónlistar-
skóla í Garðabæ
fram til ársins
2009.
Í september 2005
var skipaður stýri-
hópur til að vinna
að endurskoðun
skólastefnunnar en
í hópnum voru að-
ilar úr leik-, grunn- og tónlistar-
skólanefnd. Stýrihópurinn vann
hratt og örugglega og efndi til
skólaþings í nóvember 2005 þar
sem öllum íbúum Garðabæjar var
gefinn kostur á að hafa áhrif á þró-
un og uppbyggingu skólamála í
bænum. Skólaþingið var fjölmennt
og velheppnað. Í framhaldi af
þinginu störfuðu fjórir vinnuhópar
að frekari útfærslu og hugmynda-
vinnu með stýrihópnum.
Víðtækt og fjölmennt samráð
Um 300 manns komu að endur-
skoðun skólastefnunnar og ljóst er
að svo víðtæk og fjölmenn stefnu-
mörkun á sér vart hliðstæðu hjá
öðrum sveitarfélögum.
Vil ég nota tækifærið og þakka
þeim fjölmörgu sem komu að end-
urskoðun skólastefnu Garðabæjar
kærlega fyrir þeirra framlag.
Þeirra hlutverk er afar mikilvægt
fyrir skólastarfið og endurspeglar
það samstarf sem bæjaryfirvöld
vilja eiga við heimilin og foreldr-
ana í bænum. Ábyrgðin á uppeldi
og menntun barnanna hvílir jafnt
á herðum heimilanna sem og
skólasamfélaginu.
Meginmarkmið
skólastefnunnar
Meginmarkmið skólastefnunnar
er að stuðla að góðri menntun
barna í Garðabæ með það að leið-
arljósi að ala upp sjálfstæða og
ábyrga einstaklinga. Skólastefn-
unni er ætlað að vera vegvísir
fyrir Garðabæ um það hvert skal
stefna á næstu þremur árum.
Framkvæmd einstakra þátta er
síðan háð fjárhagsáætlun hverju
sinni.
Með heildstæðri skólastefnu, er
lögð áhersla á að skólastarf sé
mótað með hliðsjón af hags-
munum einstaklinganna um leið
og félagslegur þroski og sam-
skiptafærni skipa veglegan sess.
Áherslan er á að innra starf hvers
skóla taki mið af þörfum nemenda
og að gæði séu höfð í fyrirrúmi.
Einnig er mikilvægt að samræma
og samþætta störf mismunandi
skólastiga og annarra aðila sem
koma að starfi með börnum og
unglingum.
Vegvísir að áframhaldandi
uppbyggingu skólastarfs
Eins og segir í skólastefnunni þá
er það von bæjaryfirvalda að end-
urskoðuð skólastefna verði veg-
vísir að áframhaldandi uppbygg-
ingu árangursríks skóla- og
uppeldisstarfs í Garðabæ. Þess er
vænst að skólastefna Garðabæjar
auðveldi foreldrum að fylgjast
með markmiðum og framkvæmd
skólastarfs og hvetji þá til að vera
virkari þátttakendur í skólastarf-
inu. Í markmiðum skólastefnu
Garðabæjar er tekin skýr afstaða
til þess að skólar í Garðabæ þrói
starfsaðferðir og kennsluhætti
sem taki mið af þroska og þörfum
hvers einstaklings. Með ein-
staklingsmiðun í skólastarfi er
tekið tillit til þess að í öllum hóp-
um eru ólíkir einstaklingar sem
eiga rétt á að þroskast og nema í
samfélagi við aðra nemendur.
Meginmunur frá fyrri skóla-
stefnu og þeirri sem nú birtist er
sá að sjálfstæði skóla, frumkvæði
og ábyrgð á framkvæmd er aukið
frá því sem áður var. Áfram er
síðan lögð áhersla á góða og fjöl-
breytta kennsluhætti, vellíðan
nemenda, vel menntaða kennara
og starfsfólk, góðan aðbúnað og
náið samstarf heimila og skóla.
Þeir sem vilja kynna sér stefn-
una er bent á að skólastefnan er
aðgengileg inn á heimasíðu
Garðabæjar, www.gardabaer.is
undir flipanum, skólar.
Garðabær – Góð skólastefna
Eftir Pál Hilmarsson
Höfundur er formaður skóla-
nefndar og skipar 2. sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn