Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 57
UMRÆÐAN
Í GREININNI Ábyrgð stjórn-
málamanna, taka tvö, í Morg-
unblaðinu fimmtudaginn 25. maí sl.
ásakar Dofri Hermannsson mig um
að skrökva um Samfylkinguna í
Morgunblaðsgrein
frá 20. maí sl. Ég á að
hafa skrökvað um af-
stöðu Samfylking-
arinnar til flugvall-
arstæðis
Reykjavík-
urflugvallar, og um
afstöðu hennar til legu Sundabrautar.
Flugvöllur
Tilefni þessara ásakana er eftirfar-
andi setning úr minni grein: ,,Sam-
fylkingunni er nokkuð sama hvert
innanlandsflugið fer og vill það helst
til Keflavíkur....“
Eina röksemd Dofra, að ekkert
standi um Keflavík í stefnuskrá Sam-
fylkingarinnar, er ekki svaraverð.
Mín túlkun er byggð á opinberum
málflutningi Dags og Steinunnar Val-
dísar að undanförnu. Þar vísa ég t.d. í
kappræður Dags og Vilhjálms í sjón-
varpi í vikunni.
Sundabraut
Um Sundabrautina segir Dofri:
,,Stefanía Katrín segir Samfylk-
inguna virða að vettugi nauðsyn sér-
fræðiálits vegna lagningar Sunda-
brautar...“
Þetta segi ég hvergi í minni grein.
Þetta eru orð Dofra, ekki mín. En
bragð er að þá barnið finnur, því
þetta er rétt lýsing hjá Dofra á af-
stöðu Samfylkingarinnar til Sunda-
brautar. Ég ætla þess vegna hér með
að gera þessa lýsingu hans að minni
og rökstyðja það nánar.
Sérfræðiþekking
eða samræðupólitík
Grundvallarforsenda fyrir fram-
gangi Sundabrautar er ákvörðun
borgaryfirvalda, sem fara með skipu-
lagsvald í Reykjavík, um legu braut-
arinnar og tengingu hennar við stofn-
brautarkerfi borgarinnar. Fyrr getur
Vegagerðin ekkert aðhafst í málinu.
Forystusveit Samfylkingarinnar
hefur stundað samræðupólitík um
Sundabraut í tólf ár án þess að hafa í
dag grænan grun um það hvar hún
eigi að liggja eða tengjast stofnbraut-
arkerfi borgarinnar. Aðkoma sér-
fræðinga að þessu veigamikla álita-
máli hefur verið afar ómarkviss. Það
hefur hins vegar ekki dregið úr yf-
irlýsingagleði Ingibjargar Sólrúnar
sem talaði um að flýta Sundabraut
eins og kostur væri, árið 1997, og
sagði við Grafarvogsbúa árið 2000 að
framkvæmdir hæfust líklega árið
2001. Sama er að segja um afstöðu
Dags B. Eggertssonar. Hann vildi
Sundabraut á hábrú á ytri leið fyrir
tæpu ári, vildi Sundabraut á lágbrú
og landfyllingu, innri leið, sl. haust,
síðan vildi hann kosningar um málið,
fyrir tæpum tveimur mánuðum vildi
hann fara ,,...alla leið með eina akrein
í hvora átt“, en telur nú jarðgöng
vera fyrsta kost.
Svona hringlandahætti er auðvitað
best lýst með orðum Dofra. Orðum
sem ég sagði aldrei en tek samt heils-
hugar undir að ,,...virða að vettugi
nauðsyn sérfræðiálits vegna lagn-
ingar Sundabrautar.“
Góður stjórnmálamaður veit ekki
alla hluti. En hann veit hvenær hann
þarf á sérfræðiþekkingu að halda og
kann að kalla eftir henni og nýta sér
hana.
Ábyrgð
stjórnmála-
manna,
taka þrjú
Eftir Stefaníu Katrínu Karlsdóttur
Höfundur er frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
opið:
mán.–föstud. 11–18
laugard. 11–16
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Allt að
38%
ódýrara
Gjafavörusýning
sýnum vorlínuna frá Alessi
Váá!
Við lækkum til frambúðar
mbl.is
smáauglýsingar
HÉR ERU nokkrar staðreyndir
um stjórn Sjálfstæðisflokksins í
Mosfellsbæ á þessu kjörtímabili.
Sjálfstæðismenn
hrósa sér af rekstr-
arafgangi bæj-
arsjóðs. Ég spyr
hvernig er hann til
kominn? Rekstrarfé
bæjarins kemur frá
fyrirtækjum og ein-
staklingum sveitarfélagsins og ég
get ekki séð mikinn galdur í því
að skila góðu búi þegar álögur á
bæjarbúa eru stöðugt hækkaðar,
t.d. hafa leikskólagjöld hækkað
um tæp 40% í tíð núverandi meiri-
hluta. Fasteignagjöldin eru eins
og flestir bæjarbúar vita með
þeim hæstu á landinu og það sem
þú veist ef til vill ekki kjósandi
góður er að fyrir áramótin síðustu
lagði Samfylkingin til að prósenta
fasteignagjalda yrði lækkuð en því
höfnuðu sjálfstæðismenn, en nú
rétt fyrir kosningar er allt í einu
hægt að lækka þau í formi ein-
greiðslu til fasteignaeigenda í
bænum. Hvað breyttist? Þurfti
Sjálfstæðisflokkurinn dúsu til að
stinga upp í bæjarbúa? Er eitt-
hvað sem segir okkur að samskon-
ar eingreiðsla komi til á næsta
ári?
Það er líka lítill vandi að skila
góðu búi á pappír þegar fram-
kvæmdir eins og íþróttahúsið og
sundlaugin við Lágafellsskóla er
ekki í eigu bæjarins heldur byggð
af einkaaðilum og bærinn skuld-
bindur sig til að leigja aðstöðuna
til 30 ára. Í þessa framkvæmd
fara því ekki peningar úr bæj-
arsjóði nema í formi leigu en bær-
inn eignast aldrei þessi mannvirki.
Og hvað finnst ykkur um dulbúinn
kosningaáróður sjálfstæðismanna í
bréfinu sem fylgdi eingreiðslunni?
Er bæjarsjóður þar að greiða fyr-
ir auglýsingu eins framboðs? Ég
spyr, því að ég get ekki betur séð
en að þetta hafi kostað töluverða
peninga. Í kosningapésa sjálfstæð-
ismanna er mikið fjallað um fal-
legt umhverfi, útivist og hve gott
sé að búa í Mosfellsbæ. Það að
gott er að búa í Mosfellsbæ er
ekki þeim að þakka. Útsýni til
Esjunnar og út á Leirvoginn er
ekki þeirra verk. Flestir göngu-
stígar voru gerðir í tíð fyrri meiri-
hluta, Lágafellsskóli og leikskólinn
Hulduberg byggðir og einsetning
grunnskólanna kom í þeirra hlut.
Við það unga fjölskyldufólk í
Mosfellsbæ sem lætur sér detta í
hug að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn vil ég
bara benda á gamalt íslenskt orð-
tak: Þangað sækir klárinn sem
hann er kvaldastur.
Með bestu kveðju til íbúa Mos-
fellsbæjar.
Til kjósenda í Mosfellsbæ
Eftir Lísu Greipsson
Höfundur skipar 11. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.