Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 58
58 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Á KJÖRTÍMABILINU sem nú er að líða hefur skipu-
lags- og byggingarnefnd unnið að endurskoðun á deili-
skipulagi miðbæjarins. Meginmarkmið þeirrar vinnu er
að efla miðbæinn með því m.a. að móta
skjólsæla og sólríka íbúðabyggð með
verslun og þjónustu sem styrkir götu-
mynd Háholts og Þverholts. Svæðið er
hjarta bæjarins og því verður lögð rík
áhersla á metnað og vandaða hönnun
við gerð og frágang bygginga á svæð-
inu. Mikilvægt er að Klapparholtið
haldi sinni sérstöðu og að útsýni til
fjalla og fella verði sem best. Þessi hugmyndavinna
sem unnið hefur verið að á síðustu misserum er nú
tilbúin til frekari skoðunar og er verið að undirbúa að
stofna rýnihópa með íbúum og sérfræðingum sem
skoði betur hugmyndirnar.
Bygging kirkju á næsta kjörtímabili
Á stefnuskrá okkar Sjálfstæðismanna fyrir komandi
kosningar er að byggð verði kirkja í miðbæ Mosfells-
bæjar. Í hugmyndavinnunni um skipulag miðbæjarins
hefur það einmitt verið eitt af stóru atriðunum að finna
verðugan stað fyrir kirkju. Sú hugmynd liggur nú fyrir
að kirkjan verði staðsett við hliðina á Háholti 14 (Þver-
holtshúsinu) og Hlín blómahúsi, en það glæsilega fyr-
irtæki hefur ákveðið að flytja sig yfir götuna og í nýju
verslunarmiðstöðina sem þar er að rísa. Mikil ánægja
og einhugur ríkir meðal sóknarnefndarinnar um þessa
staðsetningu og hefur nefndin kynnt málið fyrir bisk-
upi sem sýnir málinu mikinn skilning og áhuga. Sókn-
arnefnd hefur þegar sótt um byggingarstyrk til kirkju-
byggingarsjóðs og er stefnt að því að ný kirkja verði
risin í miðbæ Mosfellsbæjar árið 2009.
Menningarhús í miðbæinn
Við Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ höfum það einnig á
okkar stefnuskrá að byggja menningarhús í miðbæ
Mosfellsbæjar og marka því sérstöðu í listalífi á höf-
uðborgarsvæðinu. Í Mosfellsbæ hefur löngum verið
fjölbreytt og blómlegt menningar- og listalíf. Í bænum
starfa fjölmargir kórar, margt tónlistarfólk, mjög öfl-
ugt leikfélag, myndlistarmenn eru fjölmargir bæði með
vinnustofur og búsetu, starf handverksfólks er blóm-
legt og svo mætti lengi telja. Til að hlúa ennfrekar að
þessari starfsemi ætlum við Sjálfstæðismenn að byggja
menningarhús. Sú hugmynd hefur verið viðruð við
sóknarnefnd hvort um sameiginlegt verkefni geti verið
að ræða t.d. að safnaðarheimili sem fyrirhugað er að
reisa við kirkjuna geti einnig nýst sem menningarhús
bæjarins og kirkjan sem tónlistarhús. Þessar hug-
myndir hyggjumst við ræða betur við sóknarnefnd þeg-
ar ákvörðun um kirkjubyggingu liggur fyrir. Samhliða
þessu þarf að hlúa að okkar gamla og góða Hlégarði og
finna húsinu verðugt hlutverk til framtíðar.
Kirkja og menningarhús verður geysileg lyftistöng
fyrir miðbæinn, lyftistöng sem honum er nauðsynleg til
að efla líf og aðdráttarafl miðbæjarins. Í Mosfellsbæ
þar sem allir skipta máli, xD fyrir árangur, ábyrgð og
lífsgæði.
Kirkja og menningarhús –
líflegur miðbær í Mosfellsbæ
Eftir Harald Sverrisson
Höfundur er formaður skipulags- og byggingarnefndar
Mosfellsbæjar og í 2. sæti á lista sjálfstæðismanna.
FJÖLMENNUR baráttufundur Aðstandendafélags
aldraðra og Samtök eldri borgara, sem haldinn var ný-
lega í Háskólabíói, sýndi svo ekki verð-
ur um villst að þessi mál brenna á
mörgum. Og svo virðist sem málefni
aldraðra séu orðin aðalkosningamál í
komandi sveitarstjórnarkosningum.
Stjórnmálamenn hvar í flokki sem er
vilja leysa vandamál aldraðra og kepp-
ast um að lofa betri tíð fyrir þennan
aldurshóp.
Í Garðabæ hefur þessum málaflokki alla tíð verið
haldið á lofti. Það var í lok síðasta kjötímabils sem
bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti opinbera stefnu í
málefnum aldraða, og var eitt fyrsta sveitarfélagið til
að samþykkja stefnu í þeirra málum.
Hjúkrunarrými í Garðabæ
Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 er gert ráð fyrir að
75% fólks yfir 80 ára sé við svo góða heilsu að það geti
með viðeigandi stuðningi búið heima. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Hagstofu Íslands 1. desember síðastliðinn
voru 196 Garðbæingar 80 ára og eldri. Sé tekið mið af
heilbrigðisáætlun og íbúafjölda þurfum við 49 hjúkr-
unarrými til að fullnægja þörfinni í dag. En hver er
staðan í dag? Garðabær á 10 hjúkrunarrými á Hrafn-
istu, á Vífilsstöðum eru 50 rými og í Holtsbúð 40 rými.
Þessar tölur eru í takt við upplýsingar heilbrigð-
isráðherra, sem heimsótti hjúkrunar- og dvalarheim-
ilið Holtsbúð nýlega og staðfesti að Garðabær væri
með flest hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu miðað
við íbúafjölda.
Þegar hjúkrunarheimilið Holtsbúð tók til starfa
aldamótaárið 2000 þótti það glæsilegt og lýsandi fyrir
mikinn metnað bæjaryfirvalda. Síðan þá hafa kröfur
breyst.
Áfram góður aðbúnaður eldri bæjarbúa
Í stefnuskrá sjálfstæðismanna kemur eftirfarandi m.a.
fram:
Hjúkrunarheimilið í Holtsbúð verði flutt í nýtt hús-
næði þar sem rýmum verði fjölgað úr 40 í 60, fyrst og
fremst einbýli.
Í samstarfi við Félag eldri bæjarbúa í Garðabæ verði
starfsemi Garðabergs efld og jafnframt skipulögð
starfsemi félagsmiðstöðvar eldri bæjarbúa sem tekin
verður í notkun í Jónshúsi á Sjálandi árið 2007.
Lögð verði áhersla á aukið framboð á hentugu hús-
næði fyrir eldri bæjarbúa í Garðabæ. Leitast verður
við að í boði sé mismunandi búsetu- og eignarform.
Samtökum eldri bæjarbúa verði séð fyrir lóðum til
að byggja hentugt húsnæði fyrir fólk sem vill minnka
við sig.
Heimilisaðstoð verði stórefld
Aukið verði val vegna heimilisaðstoðar og komið á
auknu valfrelsi í þjónustu við eldri bæjarbúa.
Hvatapeningum verði úthlutað til eldri bæjarbúa til
að stuðla að aukinni hreyfingu, heilsurækt og sam-
neyti við aðra.
Gert verði ráð fyrir auknum afnotum eldri bæjarbúa
af íþróttamannvirkjum Garðabæjar.
Fasteignaskattur á bæjarbúa sem eru 70 ára og
eldri verði felldur niður í þrepum og að fullu árið
2009.
Bæjaryfirvöld beiti sér fyrir því að málefni eldri
bæjarbúa færist alfarið frá ríki yfir til sveitarfélaga.
Við frambjóðendur í Sjálfstæðisflokknum viljum
setja metnað okkar í að verða til fyrirmyndar í mál-
efnum eldri bæjarbúa þeirrar kynslóðar sem lagt hef-
ur grunninn að því velferðarþjóðfélagi sem við búum í.
Málefni aldraðra ofarlega
á baugi í Garðabæ
Eftir Ingibjörgu Hauksdóttur
Höfundur er hjúkrunarfræðingur og skipar
6. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
NÚ ER þessi kosningabarátta á enda runnin og við göngum til at-
kvæða í dag. Samfylkingin í Kópavogi hefur lagt áherslu á málefnalega
umræðu um framtíð Kópavogs, eins og við sjáum hana öllum bæjarbúum
til heilla. Við höfum lagt fram ábyrga og raunhæfa
stefnuskrá þar sem við setjum fjölskyldu- og velferðarmál
í öndvegi á næstu árum. Við ætlum að auka þjónustu við
öryrkja og byggja upp fyrirmyndaröldrunarþjónustu á
öllum sviðum. Við ætlum að efla heimaþjónustu, fjölga
hjúkrunarrýmum og styrkja félagsstarf eldri borgara.
Við ætlum að byggja upp bestu skóla í Evrópu og auka
þjónustu við foreldra í leik- og grunnskólum. Við ætlum
að leggja rækt við blómlegt íþrótta- og tómstundastarf
bæjarbúa og byggja upp kraftmikið endurmenntunarsetur. Við leggjum
áherslu á að bjóða fyrirtækjum í verslun og þjónustu aðstöðu í bænum
og byggja Kópavog upp sem miðpunkt höfuðborgarsvæðisins. Við ætlum
að stjórna bænum á lýðræðislegan hátt og tryggja gegnsæi og réttlæti í
allri stjórnsýslu bæjarins. Við færum okkar bestu þakkir til þeirra fjöl-
mörgu bæjarbúa sem hafa stutt okkur í orði og verki þessar síðustu vik-
ur, þessi mikli meðbyr hefur reynst okkur ómetanleg hvatning og styrk-
ur í okkar baráttu. Nú er það kjósenda að meta hverjum er best
treystandi til að byggja upp sterkara samfélag í Kópavogi þar sem allir
eru með.
Kæru Kópavogsbúar,
ykkar er valið
Eftir Guðríði Arnardóttur
Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.
ÁGÆTU Akureyringar. Í dag göngum við að kjörborðinu og kjósum
okkur fulltrúa í bæjarstjórn næstu fjögur árin. Ég skora á ykkur að
nýta kosningaréttinn og bendi á tólf ástæður til að merkja við V-lista
Vinstri grænna. Þannig getum við tryggt þrjá fulltrúa í
bæjarstjórn, Baldvin, Kristínu og Dillu.
- Eini flokkurinn með kvenfrelsistefnu
- Afnám kynbundins launamunar
- Gjaldfrjáls leikskóli
- Fjölskyldukort í sund, á skíði og skauta
- Gangskör verður gerð í svifryks- og sorpmálum
- Sjálfbær þróun verði samofin öllum rekstri og
ákvarðanatökum
- Ylströnd í bæinn, miðaldaþorp á Gásum
- Akureyri verði heilsulind og ferðaparadís með góðum samgöngum
- Stuðningur við Krabbameinsfélagið og önnur stuðningsfélög sjúkra
- Auka úrræði í þjónustu við geðfatlaða, aukin endurhæfing á Krist-
nesi
- Forvarnastarf fyrir alla, með þeim og fyrir þá í skapandi skólabæ.
- Heilbrigt samfélag þar sem atvinna er tækifæri til að lifa með
reisn
Skoðaðu málið og sjáðu að við eigum samleið.
Tólf ástæður til að
kjósa Vinstri græn
Eftir Kristínu Sigfúsdóttur
Höfundur er famhaldsskólakennari og skipar
2. sætiðá lista Vinstri grænna á Akureyri.
JAFNAÐARSTEFNAN er öfundsverð stefna og það hafa frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sýnt okkur borgarbúum að und-
anförnu. Þeir hafa sett sína hægri stefnu niður í skúffu og tekið upp
„photoshoppaða“ mynd af jafnaðarstefnunni. Og tískubransinn hefur tek-
ið frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins upp á arma sína og sent okkur
borgarbúum dálítið væmnar glansmyndir af þeim.
Hið rétta andlit
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki saklaus unglingur sem lang-
ar í viðurkenningu samfélagsins og leggur sig því fram
við að aðlagast væntingum kjósenda. Unga brosandi fólk-
ið á lista Sjálfstæðisflokksins er allt nýútskrifaðir Heim-
dellingar og hefur barist gegn opinberum rekstri t.a.m. á
leikskólum. Nýjasta nýtt er að Vilhjálmur Þ., oddviti
listans, segist ekki undir neinum í Valhöll, kannast hreinlega ekki við að
hafa nokkru sinni átt þangað nokkuð að sækja!
Heimdellingarnir
Ætlar Vilhjálmur Þ., sem setið hefur lengur og í fleiri nefndum en nokk-
ur annar borgarfulltrúi, nú bæði að bjarga borginni og halda í taumana
á frjálshyggjugrislingunum?
Vilhjálmur hefur setið í borgarstjórn lengur en þátttaka okkar í Euro-
vision spannar. Hvers vegna ætti maður, sem hefur svona lengi haft
tækifæri til þess að bæta borgina, vera allt í einu núna tilbúinn til að
gera eitthvað? Án efa er Vilhjálmur duglegur að sitja fundi en verkin
eru ekki mikil þótt hann hafi verið í meirihluta stóran hluta setu sinnar í
borgarstjórn.
Varist eftirlíkingar
Samfylkingin hefur sýnt það í stjórn borgarinnar á síðustu 12 árum að
hægt er að gera vel fyrir fólkið í borginni með góða jafnaðarstefnu að
leiðarljósi. Okkar markmið er að gera góða borg betri með áherslu á
jafnrrétti. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar,
hefur sýnt það að framkvæmdagleði og skýr sýn á framtíð Reykjavíkur
gerir hann að þeim leiðtoga sem sæmir höfuðborg landsins. Og þrátt fyr-
ir allt fyrirgefum við íhaldinu fyrir að reyna að herma eftir okkur en
vörum kjósendur við.
„Photoshoppaður“
Sjálfstæðisflokkur
Eftir Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur
Höfundur er háskólanemi, verslunareigandi
og í 12. sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík.
ÞAÐ styttist í borgarstjórnarkosningar. Úrslit verða
mjög tvísýn. Baráttan stendur milli Samfylkingarinnar
og Sjálfstæðisflokksins. Ljóst er, að margt getur breyst
á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Það ræðst síð-
ustu dagana hvort Sjálfstæðisflokknum
tekst að ná aftur meirihluta í Reykjavík
eða hvort fyrrum R-listaflokkum og
Frjálslyndum tekst að fá meirihluta í
borgarstjórn.
Framsókn styður íhaldið
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Fram-
sóknar skýrði frá því í viðtali við Frétta-
blaðið, að Framsóknarflokkurinn hefði snúið sér til
Sjálfstæðisflokksins, þegar Ingibjörg Sólrún lét af störf-
um sem borgarstjóri. Hefði Framsókn þá viljað mynda
meirihluta með Sjálfstæðisflokknum, ef R-listinn næði
ekki samkomulagi um nýjan borgarstjóra. Sögusagnir
voru áður á kreiki um þetta en nú hefur það fengist
staðfest. Þetta kemur ekki á óvart. Hugur Framsóknar
stendur til íhaldsins, samanber 11 ára stuðning flokks-
ins við samstjórn íhalds og Framsóknar um landsstjórn-
ina. Þeir kjósendur í Reykjavík, sem vilja halda íhaldinu
frá völdum í höfuðborginni, ættu því ekki að kjósa
Framsókn. Með því gætu þeir verið að stuðla að því
að íhaldið kæmist til valda í Reykjavík með stuðningi
Framsóknar. Það er öruggast að kjósa Samfylk-
inguna, ef menn vilja halda Sjálfstæðisflokknum frá
völdum í Reykjavík.
Stjórnin hefur stórskert
kjör aldraðra og öryrkja
Enda þótt kosið sé um önnur mál í borgarstjórn-
arkosningum í Reykjavík en í alþingiskosningum tel
ég í góðu lagi, að kjósendur refsi stjórnarflokkunum
þegar þeir ganga að kjörborði í Reykjavík. Stjórn-
arflokkarnir hafa stórskert kjör aldraðra og öryrkja
og ekki látið sveitarfélögin fá lögbundin framlög til
byggingar hjúkrunarheimila. Nú hafa kjósendur
tækifæri til þess að refsa Sjálfstæðisflokknum og
Framsóknarflokknum. Ljóst er, að kjósendur eru að
snúa baki við Framsókn vegna stjórnarstefnunnar.
En það er ekki nóg. Það verður líka að refsa Sjálf-
stæðisflokknum.
Framsókn vildi mynda meirihluta með íhaldinu!
Björgvin Guðmundsson fjallar um stjórnmálaviðhorfið
Höfundur er viðskiptafræðingur og situr í
heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.