Morgunblaðið - 27.05.2006, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MÖRGUM þykir lítill munur á málflutningi flokk-
anna í þessari kosningabaráttu, allir vilja gamla fólk-
inu vel, allir leggja áherslu á leikskóla og lækkun eða
niðurfellingu leikskólagjalda, allir tala
um mikilvægi umhverfisins o.s.frv. Sá
sem kæmi hingað alveg ókunnugur
mundi sennilega halda að hér væru
bara meira og minna sósíalískir flokk-
ar. Og gæti þá hugsast að róttækur
málflutningur Vinstri grænna hafi haft
einhver áhrif.
En hversu trúverðugur er nú þessi
málflutningur hinna flokkanna? Hversu trúverðugur
er fagurgali Framsóknar sem hefur ráðið heilbrigð-
isráðuneytinu í 11 ár og allan þann tíma hefur heil-
brigðiskerfið verið í uppnámi? Hversu trúverðugur er
málflutningur Sjálfstæðisflokksins sem hefur verið í
ríkisstjórn í 15 ár og veitt henni forystu lengst af
meðan bilið milli hinna best og lakast settu hefur farið
vaxandi og biðraðirnar hjá Mæðrastyrksnefnd hafa
lengst með hverju árinu? Og umhverfismálin: er þeim
treystandi sem stöðugt hafa reynt að sökkva landinu
undir virkjanalón, væru jafnvel farnir að sökkva
Þjórsárverum ef ekki hefði komið til þrautseigja nátt-
úruverndarsinna í áralangri baráttu gegn virkjana- og
álæðinu? Og enn er haldið áfram með álversboðskap-
inn. Og þar dansar Samfylkingin með.
En það er líka ástæða til að taka eftir því hvað ekki
er talað um. Hefur nokkur talað um einkavæðingu í
þessari kosningabaráttu? Eftir allt einkavæðingarfár
undanfarinna ára er allt í einu ekkert á einkavæðingu
minnst. Og þó hafa verið rammar deilur á Alþingi
undanfarnar vikur um lög sem greiða fyrir einkavæð-
ingu vatns og einkavæðingu Ríkisútvarpsins. En það
er alveg ljóst að eftir einkavæðingu bankanna, Lands-
símans og fleiri fyrirtækja og stofnana verður smám
saman farið að seilast inn í heilbrigðiskerfið og
skólana. Og þar er engum að treysta nema Vinstri
grænum. Við skulum ekki gleyma því að Samfylking-
unni verður tíðrætt um að maður verði nú að vera op-
inn fyrir öðrum rekstarformum. Og systurflokkar
Samfylkingarinnar í öðrum löndum hafa ekki verið
beint frábitnir einkavæðingu.
Kjósendur ættu að huga að þessu. Það er meiri
munur á flokkunum en fram kemur í kosningaslagorð-
unum. Og einn flokkur sker sig úr: Vinstrihreyfingin –
grænt framboð.
X-V 27. maí.
VG – eini flokkurinn með trúverðugan málflutning
Eftir Emil Hjörvar Petersen
Höfundur er formaður Vinstri grænna í Kópavogi
og skipar 3. sæti V-lista Vinstri grænna í Kópavogi.
MIÐBÆR Garðabæjar hefur verið áberandi í um-
ræðunni undanfarna daga og því ber að fagna. Á und-
anförnum misserum hefur verið unnið að hugmyndum
um hvernig megi skapa líflegan, vistvænan og mann-
vænan miðbæ í Garðabæ. Fyrirtækið
Klasi ehf. hefur leitt þá vinnu með verk-
efnastjórn skipuð fulltrúum meiri- og
minnihluta í bæjarstjórn Garðabæjar.
Einskis ágreinings hefur orðið vart í
verkefnastjórninni um þær meginfor-
sendur að skipulagi miðbæjarins sem
Klasi hefur kynnt.
Einar Sveinbjörnsson bæjarfulltrúi
hefur lýst andstöðu sinni við hugmyndirnar eins og
hann hefur sjálfur vakið athygli á í greinum í Morg-
unblaðinu. Sú afstaða hefur, eins og áður sagði, á hinn
bóginn ekki komið fram hjá fulltrúum minnihlutans í
verkefnastjórninni.
Samningurinn við Klasa kveður á um að Klasi kynni
tillögur að nýjum miðbæjarkjarna í Garðabæ og setji
fram lausnir vegna umferðar og hljóðvistar. Í tillögum
þeirra á einnig að koma fram hagkvæm samsetning
íbúða- og atvinnuhúsnæðis og forsögn að nýju skipu-
lagi. Þessari vinnu skal lokið, samkvæmt viðauka við
samninginn, í lok september 2006. Áætlaður hönnunar-
og þróunarkostnaður vegna vinnu Klasa er u.þ.b. 25
mkr. Verði tillögur Klasa samþykktar mun Klasi bera
allan þann kostnað. Ef tillögur Klasa ná ekki fram að
ganga greiðir Garðabær 16 mkr. fyrir þá vinnu sem
þegar hefur verið unnin. Ljóst er að ávinningur Garða-
bæjar af þeirri vinnu er mikill og nýtist við áframhald-
andi vinnu við skipulag miðbæjarins jafnvel þótt til-
lögur Klasa verði ekki notaðar.
Ef Garðabær ákveður að ganga til liðs við aðra um
tillögur Klasa hf. greiðir Garðabær Klasa sérstaka
þóknun er nemur 1,3% af áætluðu lokaverðmæti verk-
efnisins, samkvæmt samningnum. Þetta ákvæði hefur
verið gagnrýnt en það er að ástæðulausu þar sem
Garðabær mun aldrei þurfa að leggja út fyrir þessum
kostnaði. Ef við notum ekki tillögur Klasa hf. greiðir
Garðabær ekkert, en ef við notum tillögurnar munu
þeir sem gengið verður til samstarfs við um uppbygg-
inguna greiða þennan kostnað. Því hefur verið haldið
fram að Klasi hf. muni ekki greiða fyrir lóð við Hafn-
arfjarðarveg en það er alger firra. Að sjálfsögðu verða
þessi lóðaverðmæti seld en ekki gefin, enda eign
Garðbæinga.
Að lokum er rétt að ítreka að Garðbæingar geta
treyst því að ég mun áfram vinna að málefnum miðbæj-
arins með hagsmuni íbúa og fyrirtækja í Garðabæ að
leiðarljósi. Tilgangur samningsins við Klasa er að bæta
þjónustu í bænum, bæta mannlífið og bæjarbraginn í
Garðabæ og styrkja atvinnustarfsemi í miðbænum. Það
er beinlínis rangt að halda því fram að einhverjir aðrir
hagsmunir ráði ferðinni í þeirri vinnu. Rík áhersla er
lögð á samráð og samstarf við íbúa í Garðabæ og fyr-
irtæki í miðbænum og hefur fjöldi fólks tekið þátt í
hugmyndavinnunni. Sem bæjarstjóri mun ég áfram
leggja metnað minn í að vinna að heilum hug að velferð
og auknum lífsgæðum Garðbæinga m.a. með því að
vinna að þróun hugmynda að líflegum miðbæ allra
Garðbæinga, þar sem atvinnustarfsemi getur þrifist og
mannlífið blómstrað.
Miðbær Garðabæjar fyrir alla Garðbæinga
Eftir Gunnar Einarsson
Höfundur er bæjarstjóri í Garðabæ.
SJÁLFSTÆÐISMENN munu tryggja að samhliða
aukinni uppbyggingu í bæjarfélaginu verði áfram veitt
góð þjónusta, bæði fyrir nýja íbúa sem og þá sem fyrir
eru í bæjarfélaginu. Við ætlum að halda séreinkennum
bæjarins í allri skipulagsvinnu sem eru
fallegt umhverfi og ósnortin náttúra og
ætlum að gera Mosfellsbæ að fyrsta val-
kosti fólks til útivistar á höfuðborg-
arsvæðinu.
Aukinn gæðatími
Í nútímasamfélagi er ekki óalgengt að
báðir foreldrar séu útivinnandi og er
því mikilvægt að fyrir hendi sé góð dag-
gæsluþjónusta í bæjarfélaginu. Nið-
urgreiðslur til allra foreldra voru tekn-
ar upp í tíð sjálfstæðismanna og munum
við auka niðurgreiðslur til foreldra og
lækka leikskólagjöld. Við gerum ráð
fyrir þjónustu fyrir börn frá eins árs
aldri í nýjum leikskólum og munum
kanna með samstarf við dagmæður um
þá þjónustu. Við höfum breytt fyr-
irkomulagi sumarleyfa leikskóla þannig
að nú geta foreldrar valið þann tíma sem hentar fjöl-
skyldunni.
Með því að tryggja heildstæðan grunnskóla, þar sem
listnám, skólanám og íþróttir fara fram á skólatíma, og
endurskoða fyrirkomulag á þjónustuframboði og fyr-
irkomulagi frístundaselja er hægt að auka sam-
verustundir fjölskyldunnar og minnka skutl foreldra.
Hvatapeningar til íþrótta og tómstunda
Við viljum hvetja til aukinnar þátttöku barna í íþrótt-
um og tómstundum með því að veita fjármuni til lækk-
unar á þátttökugjöldum grunnskólabarna sem er góð
forvörn.
Aukin samþætting – betri þjónusta við aldraða
Við munum halda áfram uppbyggingu þjónustu sem
gerir öldruðum kleift að búa sem lengst á eigin heimili
og ætlum að breyta áherslum og samþætta félagslega
heimaþjónustu og heimahjúkrun til að tryggja sem
heildstæðasta þjónustu fyrir einstaklinginn. Á næsta
kjörtímabili munum við byggja nýja þjónustumiðstöð
við Hlaðhamra. Við viljum bæta í á sviði heilsueflingar
og íþrótta fyrir aldraða, því með reglulegri hreyfingu
aukast líkur á líkamlegu og andlegu heilbrigði.
Við ætlum í samvinnu við ríkisvaldið að byggja
hjúkrunarheimili við Hlaðhamra og höfum við und-
irbúið það mál vel og getum hafist handa um leið og vil-
yrði fæst enda óviðunandi að ekki sé hjúkrunarheimili í
Mosfellsbæ.
Nýtum það sem til staðar
er til hagsbóta fyrir fatlaða
Sjálfstæðismenn vilja halda áfram að styðja vel við fatl-
aða og fjölskyldur þeirra. Sérstökum lóðum var út-
hlutað í Krikahverfi fyrir hreyfihamlaða til að gefa
þeim einstaklingum tækifæri á að sérhanna húsnæðið
að þörfum þess fatlaða. Við munum endurskoða tekju-
viðmið aldraðra og öryrkja til lækkunar fasteigna-
gjalda. Við ætlum að ná samvinnu við ríkisvaldið um að
þeir fötluðu einstaklingar sem þurfa geti stundað vinnu
og hæfingu í bæjarfélaginu í stað þess að þurfa að
ferðast um langan veg, því í Mosfellsbæ eru fyrir hendi
þau úrræði sem þarf.
Núverandi meirihluti hefur sýnt ábyrga fjár-
málastjórnun, framkvæmdir í verki og árangur í þágu
Mosfellinga. Sjálfstæðismenn hafa skýra stefnuskrá og
eitt stórt markmið; að auka lífsgæði Mosfellinga, þar
sem allir skipta máli.
Framúrskarandi Mosfellsbær
Eftir Herdísi Sigurjónsdóttur og Öglu Hendriksdóttur
Herdís er forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
og í 3. sæti á framboðslista og Agla er í
8. sæti á framboðslista sjálfstæðismanna.
Herdís
Sigurjónsdóttir
Agla
Hendriksdóttir
DÓTTIR mín verður tveggja ára í ágúst. Nú, í lok maí, er ég ekki enn
búin að fá staðfestingu á því hvenær hún byrjar á leikskólanum. Eins og
margir foreldrar er ég búin að hringja margoft á skólaskrifstofuna til að
spyrja en fátt er um svör. Í síðustu viku barst mér svo
bréf frá skólaskrifstofu þar sem mér var tilkynnt að dótt-
ir mín fengi skólavist í haust og að ég ætti að hafa sam-
band við leikskólastjóra til að fá frekari upplýsingar. Ég
varð aldeilis kát með þetta og hringdi strax í leik-
skólastjórann. Ég spurði hana hvenær dóttir mín myndi
hefja sitt leikskólanám og í ljós kom að hún gat ekki
svarað því frekar en þeir á skólaskrifstofunni. Hún svar-
aði að fyrst þyrfti að manna allar stöður og ég myndi fá
að vita það með hæfilegum fyrirvara hvenær barnið gæti hafið aðlögun.
Hvað þykir hæfilegur fyrirvari spyr maður sig? Flestir Íslendingar eru
löngu farnir að skipuleggja sín sumarfrí og flestir þurfa að láta vita í
vinnunni í apríl hvenær þeir munu taka frí.
Látum ekki bjóða okkur þetta! En enn sitjum við foreldrar í Hafn-
arfirði og getum ekki svarað vinnuveitendum okkar og hvað þá skipulagt
okkar sumarfrí! Ég veit að börn sem verða tveggja ára núna í maí eru
ekki enn komin inn á leikskólann og enn aðrir eru í þeim sporum að
þurfa að breyta leikskólavist t.d. úr 8:00–14:00 í 8:00–17:00 og það er
bara hreinlega ekki hægt! Foreldrar barna í t.d. Garðabæ þar sem sjálf-
stæðismenn eru við völd eru margir búnir að fá dagsetningu á það hve-
nær þeirra eins árs börn komast inn.
Foreldrar, látum ekki bjóða okkur þetta! Það er búið að vera bullandi
góðæri í samfélaginu en samt er ástandið ekki betra. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur orkuna og viljann sem þarf til að koma þessum málum í gott
horf.
Nýtið ykkar atkvæði á laugardaginn og kjósið X-D!
Leikskólamál í
ólestri í Hafnarfirði
Eftir Eddu Rut Björnsdóttur
Höfundur skipar 16. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
ERLING Ásgeirsson veitist að mér og skoðunum mínum hér á síðum
Morgunblaðsins í vikunni. Sjálfstæðismenn hafa nú lagt í vafasaman leið-
angur fyrir þessar kosningar þegar þeir segjast ætla að afnema fast-
eignaskatta hjá 70 ára og eldri. Það að mismuna skatt-
þegnum þessa lands eftir aldri stangast á við lög og er því sú
leið óframkvæmanleg. Á það benti ég í bæjarstjórn á dög-
unum og studdist m.a. við skoðun ríkisskattstjóra í þessum
efnum. Lögin um tekjustofna sveitarfélaga heimila lækkun
fasteignaskatts hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum.
Lækkanir á öðrum forsendum en til tekjulágra í þessum hóp-
um eru óheimilar nema til lagabreytinga komi. Þar fyrir ut-
an stenst það vart jafnræðissjónarmið stjórnarskrárinnar að
mismuna hópum samfélagsins við skattlagningu og á það jafnt við um aldur,
búsetu, litarhátt o.s.frv. Niðurfelling fasteignaskatta á grundvelli aldurs er
því hvorki samrýmanleg gildandi lögum, stjórnarskránni né almennum jafn-
ræðissjónarmiðum. Þetta veit Erling, forustusauður þeirra sjálfstæð-
ismanna, mætavel og því sérkennilegt að hann skuli enn reyna að beita þessu
ómerkilega kosningaagni á gamla fólkið í bænum. Það breytir ekki þeirri
staðreynd að fasteinaskatturinn er óréttlátur skattur, síðasti eignaskatt-
urinn sem lagður er á í landinu. Hann á að fella niður í áföngum, hjá öllum.
Það verður ekki gert nema með fulltingi Alþingis og í samstarfi við Samband
sveitarfélaga. Fari svo að sjálfstæðismenn í Garðabæ geri nokkra tilraun til
þess að mismuna bæjarbúum í skattalegu tilliti mun ég sem borgari þessa
lands og fasteignaeigandi í Garðabæ ekki hika við að leita réttar míns hjá
dómstólum eða umboðsmanni Alþingis.
Í Garðabæ berja menn enn
höfðinu við steininn
Eftir Einar Sveinbjörnsson
Höfundur skipar 12. sæti A-listans í Garðabæ.
SÍÐUSTU mánuði hefur undirrituð skrifað talsvert um fasteignaverð í
Garðabæ, hvernig hátt verðlag og þjónustugjöld og lítið framboð á minna
íbúðarhúsnæði fælir ungt fólk frá Garðabæ. Sjálfstæðismenn hafa stungið
höfðinu í sandinn síðustu ár og í staðinn sitjum við uppi með
þá dapurlegu staðreynd að ungir Garðbæingar flytji í stórum
stíl úr bæjarfélaginu þegar þeir kaupa sér fasteign.
Ef við lítum á fasteignavef Morgunblaðsins sést að þann
24. maí voru ellefu íbúðir í Garðabæ skráðar til sölu á verði
innan við 20.000.000 króna. Þar af eru átta sérstaklega fyrir
50 ára og eldri, sem þýðir að aðeins þrjár íbúðir í þessum
verðflokki geta hugsanlega hentað ungu fólki. Þar að auki er
aðeins ein þessara íbúða í Sjálandshverfi eða Akralandi sem
sjálfstæðismenn hafa endurtekið bent á að henti ungu fólki svo vel. Halldóra
Þorsteinsdóttir blaðamaður og sérstakur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fast-
eignamarkaðnum gefur í skyn að nóg framboð sé af húsnæði sem henti ungu
fólki í Garðabæ og að þær íbúðir séu á hagstæðu verði.
Ef við kynnum okkur málin á vef Fasteignamats ríkisins, sem Halldóra
hefur augljóslega ekki gert sést að meðalverð á tveggja herbergja íbúð í
Garðabæ síðastliðið ár hefur verið rúmum 4.000.000 krónum hærra en í ná-
grannasveitarfélagi okkar, Hafnarfirði. Þar að auki var á sama tíma aðeins
16 kaupsamningum á tveggja herbergja íbúðum þinglýst í Garðabæ, en 99 í
Hafnarfirði.
Sjálfstæðismenn hafa brugðist þeirri skyldu að tryggja minni íbúðir í nýj-
um hverfum fyrir aðra en þá sem alast upp með silfurskeið í munni.
Sjálfstæðismenn hafa augljóslega ekki verið með hugann við unga
Garðbæinga á aldri okkar sem erum að hugleiða kaup á fyrstu íbúð. Er ekki
kominn tími til að við eignumst okkar eigin fulltrúa í bæjarstjórn svo að ein-
hver tali okkar máli, því það er nokkuð víst að sjálfstæðismenn gera það ekki.
Setjið því X við A!
Fasteignaverð í Garðabæ
… sagan öll
Eftir Hjördísi Evu Þórðardóttur
Höfundur er sálfræðinemi.