Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 61
UMRÆÐAN
ÞAÐ eru ekki margir af mínu sauðahúsi í pólitík,
en betra ef svo væri, því pólitískt starf í sveitarstjórn
getur verið mjög skapandi. Ein meginástæða þess að
ég hef gefið kost á mér til starfa er sú
að mér hefur lengi fundist myndlist og
hönnun vera vannýtt auðlind. Sem
skólastjórnandi og formaður hönnuða
á Íslandi hef ég horft upp á yf-
irburðafólk með mikla fagmenntun í
listum og hönnun koma hingað heim
að loknu framhaldsnámi og uppgötva
að ráðamenn hafa enn ekki áttað sig á
því að innan þessara greina liggja mestu sóknarfærin
í okkar samtíma og framtíð.
Eftir að hafa setið í menningar- og ferðamálaráði
síðastliðin átta ár hef ég átt þess kost að taka þátt í
að móta menningarstefnu borgarinnar og koma fjölda
góðra hugmynda í verk.
Sjónlistamiðstöðin á Korpúlfsstöðum er síðasta
stóra verkefnið sem menningarráð kom á laggirnar.
Verkefnið var mér mikið kappsmál og gleðilegt
hversu góð samstaða skapaðist um starfsemina í
glæsilegum húsakynnum. Starfsemin þar er í mínum
huga fyrsta dæmi þess að hönnuðir og myndlist-
armenn vinni saman að því að skapa aðstæður sem
hentar hvorum tveggja.
Þarna verður tæknisetur með tækjum til frum-
myndagerðar, vinnustofur listamanna og dval-
araðstaða fyrir erlenda listamenn og hönnuði. Starf-
semin mun einnig verða í þágu þeirra sem búa á
svæðinu, því að á Korpúlfsstöðum er einnig fyr-
irhugað námskeiðahald sem Myndlistaskólinn í
Reykjavík mun halda utan um.
Hugmyndabanki/Hönnunarsetur Reykjavíkur
Á síðasta kjörtímabili lagði ég fram tillögu í menn-
ingarráði um að stofna hönnunarsetur/hugmynda-
banka í Reykjavík. Hugmyndinni var vel tekið en
ekki vannst tími til þess að hrinda henni í fram-
kvæmd.
B-listinn vill vinna markvisst að því að nýta og
ávaxta mannauð borgarinnar með því að veita styrki
og starfslaun til þess að þróa frumlegar og einstakar
tillögur þar sem listir, vísindi og hönnun mætast. Við
viljum móta framsækna menningarstarfsemi þar sem
Reykjavík tekur forystu í nýrri sókn lista og vísinda
með afgerandi hætti.
Með því að veita styrki til frumlegra hugmynda,
sem ef til vill falla ekki inn í ramma sem búnir hafa
verið til utan um núverandi styrkjakerfi borgarinnar,
væri nýju blóði og skapandi afli veitt inn í menning-
arlífið og atvinnulífið. Hugmyndin er að veita árs-
styrki og þriggja ára styrki til eitt hundrað verkefna
á ári.
Fimmtíu milljónir í
innkaup á samtímamyndlist
Myndlistarmarkaðurinn á Íslandi var að komast í
eðlilegt jafnvægi eins og í öðrum löndum þegar stóra
málverkafölsunarmálið kom upp. Það hafði afar slæm
áhrif á öll viðskipti með íslenska myndlist. B-listinn
vill stórefla þennan þátt viðskipta á ný hér á landi
með því að bæta 50 milljónum við innkaup á sam-
tímamyndlist í borginni, eða 63,5 milljónir alls, því nú
eru innkaup Listasafns Reykjavíkur á samtíma-
myndlist 13,5 milljónir kr.
Það er kominn tími til að íslenskir vísindamenn,
hönnuðir og listamenn leggi heiminn að fótum sér, til
þess hafa þeir hæfileika, menntun og vilja. Þessu vill
B-listinn vinna að á næstu kjörtímabilum.
Samtímalist, vísindi
og hönnun
– vannýtt auðlind
Eftir Ásrúnu Kristjánsdóttur
Höfundur er hönnuður og skipar
4. sæti B-listans í Reykjavík.
Svikið loforð
Hafnfirðingar muna hinar miklu deilur um Áslandsskóla fyrir réttum
fjórum árum þegar Samfylkingin fór fram með offorsi í andstöðu við
einkaframkvæmd og tilraun með einkarekinn grunnskóla. Eitt af lof-
orðum þeirra vinstri manna þá var að Hafnarfjarðarbær keypti upp
skólamannvirki sem byggð hefðu verið í einkaframkvæmd. Þetta sviku
þeir enda ljóst að um hagkvæman rekstrarkost fyrir bæ-
inn er að ræða.
Íþróttahús – hagkvæmur kostur
Nemendur Áslandsskóla hafa þurft að sækja íþrótta-
kennslu í Haukahúsið á Ásvöllum en því fylgir mikill
kostnaður við akstur fyrir utan óhagræði fyrir nemendur,
fjölskyldur þeirra og skólann. Frumteikning af íþrótta-
húsi við Áslandsskóla liggur fyrir og frá upphafi var gert
ráð fyrir að ráðast í þá framkvæmd með sama hætti og skólinn var
byggður þ.e. að verktakinn byggi húsið og leigi bænum. Fullvíst er að sú
hækkun á leigu sem yrði muni kosta minna en allur sá akstur sem nú
greiðist fyrir. Stundaskrá nemenda verður líka samfelldari og skóladag-
urinn þ.e. vinnutími barnanna styttist.
Tvískinnungur Samfylkingar
Sama rektrarform er við Lækjarskóla og eftir mikið þóf féllst Samfylk-
ingin á að byggja íþróttahús við skólann. Það er eitt skýrasta merkið um
að kosningaloforð og upphlaup þeirra árið 2002 voru ekki pappírsins
virði. Þeir féllust nefnilega á að íþróttahús Lækjarskóla yrði byggt í
einkaframkvæmd eins og ráð var fyrir gert. En það var greinilega of
stór biti að kyngja að Áslandsskóli fengi einnig sitt íþróttahús nú þegar
skólinn er kominn í fulla notkun. Skólinn, nemendur hans og foreldrar
voru því skilin eftir.
Vilji sjálfstæðismanna: Eflum Áslandsskóla
Það liggur fyrir að hægt væri að hefja byggingu íþróttahúss við Áslands-
skóla strax. Einnig má fullyrða að sparnaður vegna skólaaksturs mæti
að fullu hækkun á leigukostnaði bæjarins vegna skólans.
Hefjumst því handa nú að loknum kosningum.
XD í fremstu röð.
Íþróttahús
við Áslandsskóla
Eftir Almar Grímsson
Höfundur skipar 3. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Sheer Driving Pleasure
BMW 5 lína
www.bmw.is