Morgunblaðið - 27.05.2006, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Vormessa í
Krýsuvíkurkirkju
MESSAÐ verður í Krýsuvík-
urkirkju sunnudaginn 28. maí. kl
14. Sr. Þórhallur Heimisson, prest-
ur við Hafnarfjarðarkirkju prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Undirleik á
harmonikku annast Stefán Ómar
Jakobsson? Rútuferð í boði sókn-
arnefndar Hafnarfjarðarkirkju
verður frá Hafnarfjarðarkirkju kl.
13.
Guðsþjónustur hafa verið í
Krýsuvíkurkirkju tvisvar á ári síð-
an Sveinn Björnsson listmálari var
jarðsettur í kirkjugarði hennar 9.
maí 1997. Sá siður hefur skapast að
messað er að vori í maí mánuði og
er þá altaristafla kirkjunnar hengd
upp og að hausti í október þegar
hún er tekin niður og færð til vetr-
ardvalar í Hafnarfjarðarkirkju. Eft-
ir guðþjónustuna verður boðið upp
á messukaffi í Sveinshúsi en þar
verður að þessu sinni opnuð ný sýn-
ing á verkum Sveins Björnssonar
sem nefnist: „Siglingin mín“. Á
þessari sýningu er sýnd þróun æv-
intýraskipsins í list Sveins.
Núverandi timburkirkja var reist
árið 1857. Þegar Sveinn Björnsson
var jarðsettur í Krýsuvíkurkirkju-
garði hafði síðast verið jarðsett þar
árið 1917. Krýsuvíkurkirkja var
notuð sem sóknarkirkja allt fram
undir 1910. Hún var aflögð 1917 og
notuð til íbúðar frá 1929. Henni var
síðan aftur breytt í kirkju 1963-64
fyrir tilstuðlan Björns Jóhann-
essonar fyrrverandi forseta bæj-
arstjórnar í Hafnarfirði, en hann
kostaði endurgerðina. End-
urvígslan fór fram árið 1964.
Ferð eldri borgara
í Grensáskirkju
MIÐVIKUDAGINN 31. maí lýkur
starfi eldri borgara í Grensáskirkju
á þessu vori með vorferð.
Að þessu sinni verður ekið kring-
um Hvalfjörð, komið við í Hall-
grímskirkju í Saurbæ, skroppið í
Vatnaskóg og kaffi drukkið á Hótel
Glym. Lagt verður af stað frá
Grensáskirkju kl. 13 og gert ráð
fyrir að koma þangað aftur upp úr
kl. 17. Ferðin kostar 2.000 kr. á
mann og er kaffið innifalið.
Þátttaka er öllum heimil, óháð
aldri og búsetu, en væntanlegir
þátttakendur þurfa að skrá sig í
Grensáskirkju í síma 580 0800 eigi
síðar en á þriðjudag fyrir hádegi.
Kolaportsmessa
KOLAPORTSMESSA verður 28.
maí kl. 14 í „Kaffi Port“ innst í Kola-
portinu. Frá kl. 13.30 syngur og
spilar Þorvaldur Halldórsson ýmis
þekkt lög bæði eigin og annarra.
Hann annast einnig tónlistina í
helgihaldinu. Ragnheiður Sverr-
isdóttir leiðir helgihaldið og sr.
Bjarni Karlsson prédikar. Öllum er
velkomið að koma með fyrirbæn-
arefni.
Í gegnum tíðina hefur skapast
andrúmsloft tilbeiðslu í þessu
óvenjulega Guðs húsi. Þó margt sé
um að vera í Kolaportinu eru ávallt
margir þátttakendur sem gjarnan
fá sér kaffisopa, syngja, biðja og
hlusta. Í lok stundarinnar er gengið
um með olíu og krossmark teiknað í
lófa þeirra sem vilja. Um leið eru
flutt blessunarorðin: „Drottinn
blessi þig og varðveiti þig“. Allir
velkomnir.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
Á SUNNUDAG 28. maí nk. kl. 14
verður haldin ensk messa í Hall-
grímskirkju. Prestur verður sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Hörður Áskelsson. Jónína
Kristinsdóttir mun leiða almennan
safnaðarsöng.
Fimmta árið í röð er boðið upp á
enska messu í Hallgrímskirkju síð-
asta sunnudag hvers mánaðar.
Messukaffi.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja)
28th of May, at 2 pm. Holy Comm-
union. The Seventh Sunday of East-
er. Celebrant and Preacher: The
Revd Bjarni Thor Bjarnason. Org-
anist: Hörður Áskelsson. Leading
singer: Jónína Kristinsdóttir. Ref-
reshments after the Service.
Færeyskur
kór við messu í
Langholtskirkju
KIRKJUKÓR frá Toftum í Fær-
eyjum er á ferð um Ísland þessa
dagana. Kórinn syngur við messu í
Langholtskirkju sunnudaginn 28.
maí kl. 11.
Fólk er hvatt til að mæta og
hlusta á kórinn ásamt því að taka
þátt í messunni eftir spennandi
kosninganótt, en í messunni verður
m.a. beðið fyrir því fólki sem valið
hefur verið til að leiða sveit-
arstjórnir landsins.
Minningarmessa
Alnæmissamtakanna
í Fríkirkjunni
í Reykjavík
ÁRLEG minningarmessa vegna
þeirra sem látist hafa af völdum al-
næmis hér á landi verður kl. 14 á
sunnudag.
Kveikt verður á kertum til að
minnast þeirra er látist hafa, einu
kerti fyrir hvern einstakling sem
við minnumst. Er messan sam-
starfsverkefni Fríkirkjunnar í
Reykjavík og Alnæmissamtakanna.
Þess má geta að minningarstund
þessi er alþjóðleg og heitir hún á
ensku Candlelight Memorial Day.
Formaður Alnæmissamtakanna,
Ingi Rafn Hauksson, flytur ávarp.
Andrea Gylfadóttir söngdíva gleður
eyru kirkjugesta við undirleik Carls
Möller.
Boðið verður upp á veitingar í
safnaðarheimili Fríkirkjunnar að
lokinni guðsþjónustunni.
Buxtehude í
Hjallakirkju
Á SUNNUDAG kl. 11 er kant-
ötuguðsþjónusta í Hjallakirkju í
Kópavogi. Flutt verður verkið
„Cantate Domino“ eða „Syngið
Drottni nýjan söng“ eftir Dietrich
Buxtehude fyrir tvo sóprana, bassa
og orgel. Flytjendur eru Hulda Guð-
rún Geirsdóttir, sópran, Kristín R.
Sigurðardóttir, sópran og Benedikt
Ingólfsson, bassi, ásamt organista
kirkjunnar. Einnig flytja félagar úr
Kór Hjallakirkju hvítasunnu- og
sumarsálma. Prestur er séra Sigfús
Kristjánsson og organisti Jón Ólaf-
ur Sigurðsson.
Vorhátíð í
Garðaprestakalli
ÞAÐ verður mikið um dýrðir í
Vídalínskirkju á sunnudag kl. 11.
Þá er vorhátíð Garðaprestakalls
sem hefst með tónlistarguðsþjón-
ustu í kirkjunni, þar sem söngfólk
úr kórum Garðabæjar syngur. Þá
mun Imma tröllastelpa hugleiða
guðspjall dagsins með sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur.
Strax að lokinni guðsþjónustunni
verður boðið upp á grillaðar pylsur
að hætti Lionsklúbbs Garðabæjar.
Þar á eftir býður hið eina sanna
bakarí Garðabæjar, „Kökubank-
inn“, Iðnbúð 2, upp á súkkulaðiköku
sem engan svíkur. Þá munu tvær
valkyrjur, Steinunn Guðbjörns-
dóttir og Sigríður Lárusdóttir, leika
undir söng á harmonikkur. Síðan
mun Henný Kristjánsson kenna við-
stöddum línudans. Vorhátíðinni lýk-
ur kl. 13. Jóhann Baldvinsson org-
anisti mun leiða samveruna að öðru
leyti ásamt prestunum Jónu Hrönn
Bolladóttur, Friðrik J. Hjartar,
Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna og
Immu tröllastelpu ásamt fjöl-
skyldunefnd Garðasóknar.
Fjölskyldur í Garðabæ og á Álfta-
nesinu eru hvattar til þátttöku. Sjá
www.gardasokn.is. Allir velkomnir
Ragnheiður Gröndal
syngur í hjóna- og
sambúðarmessu
MIKILVÆGUSTU undirstöðurnar í
sambúð og hjónabandi eru ástin,
trúfestin og virðingin. Allar þessar
þrjár stoðir þarf rækta. Það er mik-
ilvægt að kirkjan komi með tilboð
um þjónustu sem hjálpar hjóna- og
sambúðarfólki að rækta þessar und-
irstöður. Þess vegna er boðið til
hjóna- og sambúðarmessu í Garða-
kirkju, sunnudaginn 28. maí kl. 20.
Þetta er fjórða svona kvöldmessan á
árinu 2006, en þetta nýja helgihald
er samstarfsverkefni Bessastaða-
og Garðasóknar. Prestarnir Jóna
Hrönn Bolladóttir og Friðrik J.
Hjartar þjóna fyrir altari, en hjónin
Þorsteinn Þorsteinsson skólastjóri
FG og Sigríður Hulda Jónsdóttir
uppeldisfræðingur eru ræðumenn
kvöldsins. Tónlistin er í höndum
Ómars Guðjónssonar gítarleikara
en Ragnheiður Gröndal syngur. Það
er mikilvægt að gefa sér tíma til að
rækta ástina. Sjá www.gardasokn-
.is. Allir velkomnir, óháð aldri og
kynhneigð.
Tónleikar Stúlknakórs
Akureyrarkirkju
STÚLKNAKÓR Akureyrarkirkju
heldur tónleika í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 28. maí kl. 15. Kórinn
er að ljúka undirbúningi fyrir tón-
leikaferð til Austurríkis og Slóven-
íu, sem farin verður í júní. Tónleik-
arnir í Akureyrarkirkju eru haldnir
til að þakka öllum þeim fjölmörgu
einstaklingum, félögum, fyr-
irtækjum og sjóðum sem styrkt hafa
kórinn til ferðarinnar. Efnisskráin
er afar fjölbreytt og munu kór-
félagar einnig syngja einsöng.
Á tónleikunum geta gestir keypt
happdrættismiða og verður dregið
úr keyptum miðum. Vinningur er
flugferð fyrir tvo til Evrópu. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Krýsuvíkurkirkja.
UMRÆÐAN
MÖRGUM hefur þótt kosningabaráttan í Reykjavík vera með rólegasta
móti. Þetta gæti þó breyst núna á lokasprettinum en ungliðar Samfylking-
arinnar hafa hafið umfangsmikla auglýsingaherferð þar sem vitnað er orð-
rétt í stefnuyfirlýsingu ungra sjálfstæðismanna. Meðal þess sem kemur
fram í stefnuskjölum ungra sjálfstæðismanna frá sambandsþingi SUS í
október síðastliðnum er að þeir telji opinbera styrki til
menningar- og menntamála ekki eiga rétt á sér og vilji af-
nema þá með öllu. Þeir segja opinbera leikskóla jafnframt
vera tímaskekkju og vilja selja Orkuveitu Reykjavíkur til
einkaaðila. Ungt samfylkingarfólk er á öndverðum meiði
og við teljum að þorri Reykvíkinga sé það líka.
Auglýsum vonda stefnu andstæðinganna
Ástæðan fyrir því að við grípum til þess ráðs að auglýsa
stefnuályktanir SUS er sú að Sjálfstæðisflokkurinn hefur kosið að fara
með stefnu sína í felur nú rétt fyrir kosningar og teljum við að þeim hafi
með því tekist að villa um fyrir kjósendum. Þeir hafa tekið upp nokkrar
vinsælar félagshyggjuhugmyndir sem þeir auglýsa grimmt í stað eigin
hugmyndafræði auk mjög almennra yfirlýsinga um að vilja búa rosalega
vel að öllum í Reykjavík, ungum sem öldnum. Þeir sleppa því hins vegar að
taka fram að hugsjón þeirra sé og hafi verið stórfelldur niðurskurður í op-
inberum framlögum til leikskóla, grunnskóla, menningar og annarrar
samneyslu.
Úlfur í sauðargæru
Við teljum brýnt að benda fólki á að flokkurinn er úlfur í sauðargæru þeg-
ar kemur að lykilmálefnum borgarinnar. Við óttumst að eftir kosningar
muni grunngildi ungra sjálfstæðismanna um einkavæðingu bæði grunn-
skóla og leikskóla borgarinnar koma upp á yfirborðið á ný, ásamt því sem
blómlegu menningarlífi Reykjavíkur verði fórnað á altari frjálshyggjunnar
með verulega skertum framlögum til listastarfsemi og menningaratburða.
Þetta eiga kjósendur skilið að vita og það verður spennandi að sjá hverju
ungir sjálfstæðismenn svara okkur. Þeir munu eiga erfitt með að hlaupast
undan þessum stefnumálum sínum. Helga Kristín Auðunsdóttir og Bolli
Thoroddsen eru 1. og 2. varaforseti SUS og eru bæði mjög ofarlega á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í borginni. Gísli Marteinn Baldursson, sem
vermir þriðja sæti listans, er jafnframt einn helsti vonarpeningur ungra
sjálfstæðismanna. Gísli Marteinn, ötull talsmaður nýfrjálshyggju, hefur á
opnum fundi m.a. lýst yfir stuðningi við stefnu George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna.
Borgarbúar vilja félagslegar áherslur
Stefna Ungra jafnaðarmanna er skýr. Við teljum að gera eigi leikskóla í
Reykjavík gjaldfrjálsa með öllu, styrkja eigi opinberan grunnskóla, auka
beri styrki til menningarmála frekar en að minnka þá og að kranavatnið
eigi að vera áfram í eigu borgarbúa. Þessi stefnumál eru að okkar mati
drjúgum meirihluta Reykvíkinga að skapi en aftur á móti er mikill minni-
hluti sammála nýfrjálshyggjustefnu ungra sjálfstæðismanna.
Stefna ungra sjálf-
stæðismanna er
hættuleg fyrir Reykjavík
Eftir Andrés Jónsson
Höfundur er í 18. sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík.
NÚ ER komið að því að Hafnfirðingar ráði í lausar stöður við stjórnun
Hafnarfjarðarbæjar. Það á ekki að ráða eina manneskju, það á að ráða
hóp fólks – flokk – til að fara með stjórn bæjarins næstu fjögur árin.
Hver einstaklingur innan hópsins skiptir máli og því nauð-
synlegt að hafa í huga hið gamalkunna: aldur, menntun
og fyrri störf. Þessi atriði skipta okkur máli svo útkoman
verði hópur með víðtækan grunn til að takast á við alla
málaflokkana.
Skýrir kostir
Fjórir flokkar sækjast eftir stöðunum en aðallega er tek-
ist á um tvo af þeim. Það er alveg ljóst að það er ekki á
færi eins manns að annast þetta verkefni.
Við þurfum að hafa í huga að hópurinn þarf að skipta með sér verkum
í eftirfarandi málaflokkum: fjármálum og stjórnsýslu, atvinnumálum,
skólamálum, íþrótta- og tómstundastarfi, félags- og heilbrigðismálum,
málefnum aldraðra, skipulags- og byggingarmálum, ferða-, menningar-
og umhverfismálum.
Öflugur hópur
Ágæti kjósandi, mig langar að vekja athygli þína á því að á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði er fólk á öllum aldri, fjölskyldufólk
með margvíslega menntun og reynslu, konur og karlar. Frambjóðend-
urnir hafa sinnt störfum í fjármálum, heilbrigðis- og öldrunarmálum,
æskulýðs- og tómstundamálum, skólamálum, atvinnu- og bygging-
armálum, menningar- og ferðamálum. Breiður hópur með mikla reynslu,
þ.á m. stjórnunarreynslu í ofantöldum störfum hér heima og erlendis.
Valið er auðvelt
Sveitarstjórnarkosningar snúast um að velja þann flokk, hóp fólks, sem
þú treystir best til að fara með stjórn bæjarins. Þetta er ekki vinsælda-
kosning. Það skiptir máli hverjir skipa listann því vinnan er unnin af
hópnum í heild. Fólkið sem raðar sér í sætin fyrir aftan oddvitann og
stendur við bakið á honum verður hans nánasta samstarfsfólk við að
stýra bænum. Sá hópur mun móta stefnuna í ofantöldum málaflokkum og
gera sitt ítrasta í þjónustu við þig.
Sjálfstæðisflokkurinn er til þjónustu reiðubúinn.
Traustur hópur
sjálfstæðismanna
Eftir Halldóru Björk Jónsdóttur
Höfundur skipar ellefta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn