Morgunblaðið - 27.05.2006, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 67
MINNINGAR
mátti. Eftir tæplega viku dvöl á
sjúkrahúsi, þar sem Kristján og Sig-
rún dvöldu hjá henni og umvöfðu hana
kærleika, lést hún að morgni föstu-
dagsins 19. maí.
Við Haukur sendum öllum aðstand-
endum Þórdísar innilegar samúðar-
kveðjur.
Þó við kveðjumst í þessum heimi nú
er ég viss um að við munum hittast og
heilsast í öðrum heimi seinna.
Ég þakka Þórdísi samveruna sem
við áttum.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín G. Ísfeld.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Í dag kveðjum við góða skólasystur
okkar Þórdísi Pétursdóttur sem fallin
er frá langt um aldur fram. Það voru
tápmiklir unglingar sem innrituðust í
Menntaskólann í Kópavogi haustið
1979. Framundan voru tímar breyt-
inga, unglingsárin nánast að baki og
við tóku fjögur skemmtileg og
ógleymanleg ár í MK. Þetta var fá-
mennur hópur, þrír bekkir þar sem
allir þekktu alla og allir voru vinir. Inn
í þetta samfélag kom Þórdís Péturs-
dóttir.
Það fór ekki mikið fyrir Þórdísi en
hún féll fljótt inn í hópinn, hún var ein-
læg, staðföst og rólyndi hennar var
einstakt. „Allir hlutir verða að fá að
taka sinn tíma,“ er setning sem höfð
var eftir Þórdísi og góð áminning í
hraða nútímans.
Þegar lagt var af stað í ferðalög var
hún á heimavelli. Hún var náttúru-
barn, hafði mikla kunnáttu í landa-
fræði og í rólegheitum uppfræddi hún
okkur ferðafélaga sína um staðhætti
og söguslóðir.
Skíðaferðir þóttu henni skemmti-
legar og fáir höfðu meira úthald í þeim
en Þórdís. Undir rólegu yfirborðinu
leyndist þó mikill húmoristi, það var
alltaf stutt í brosið og glampann í aug-
unum.
Við samstúdentar Þórdísar frá MK
þökkum henni fyrir góða samfylgd og
vottum fjölskyldu hennar okkar inni-
legustu samúð.
Ingibjörg Hinriksdóttir,
Sif Garðarsdóttir, Helga Aspe-
lund og Gerður Guðjónsdóttir.
Jæja, elsku Þórdís mín, það er kom-
ið að kveðjustund í bili trúi ég. Mér
finnst ekki langt síðan við vorum báð-
ar á Klaustri, ég bjó þar en þú komst
þangað til að kenna, enda nýútskrifuð
sem kennari. Ég var beðin um að leyfa
þér að gista hjá mér, svona fyrst um
sinn því það var ekki laust húsnæðið
sem þú áttir að fá.
Það var oft spjallað fram á nótt og
hlegið, þetta var okkar tími saman
enda góðar stundir. Við sáumst ekki
oft í seinni tíð en fréttum alltaf hvor af
annarri.
Er þetta ekki óréttlátt? Ung kona í
blóma lífsins tekin burt frá eiginmanni
og þremur börnum, það hlýtur að vera
tilgangur með þessu en manni finnst
þetta ekki rétt, og maður verður bæði
reiður og sorgmæddur en svona er líf-
ið, við fæðumst öll og deyjum.
Jæja elsku Þórdís nú ertu laus við
kvalir og líður vel, ég veit að þú fylgist
með börnum þínum, því þú varst besta
mamma í heim og líka á himnum. Það
er erfitt fyrir eiginmann, börn og móð-
ir og einnig Sigrúnu og Kristjáni sem
þú varst sem dóttir, að missa þig frá
sér.
En Þórdís, nú kveð ég þig og við
hittumst þegar minn tími kemur.
Ég vil votta eiginmanni, börnum,
móðir, Sigrúnu, Kristjáni og öðrum
ættingjum innilega samúð í þessari
miklu sorg, megi Guð og góðir vættir
vaka yfir ykkur.
Guð blessi minningu þína... minnig
þín er perla.
Kveð þig elsku vina
komin er lífsins nótt
geymi ég minningu þína
Guð gefi þú sofir rótt.
(SRR)
Þín vinkona
Soffía Ragnarsdóttir.
Guðmundur Jóns-
son trésmiður féll frá
í blóma lífs og starfs
laugardaginn 22. apr-
íl síðastliðinn eftir
hetjulega baráttu við illvígan sjúk-
dóm í nær tvö ár.
Guðmund þekktum við í gegnum
starf hans hjá Grindinni og vorum
við í nánast daglegum samskiptum
við hann. En best kynntumst við
honum á ferðalögum erlendis, þeg-
ar við stóðum fyrir hópferðum á
vörusýningar. Var Guðmundur
mjög ötull að taka þátt í slíkum
ferðum, enda var honum mikið í
mun að fylgjast með öllum nýj-
ungum í starfsgrein sinni, innrétt-
ingasmíðinni.
Guðmundur var góður félagi,
bóngóður og prúður sem vildi öll-
um vel.
GUÐMUNDUR
JÓNSSON
✝ GuðmundurJónsson fæddist
á Skagaströnd 25.
maí 1954. Hann lést
á heimili sínu laug-
ardaginn 22. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Grindavíkurkirkju
28. apríl.
Hann var fagmað-
ur fram í fingurgóma
og fylgdist mjög vel
með og var opinn
fyrir öllum nýjung-
um. Hann var dug-
legur að notfæra sér
tölvutæknina í starfi,
hvort sem var að
teikna upp innrétt-
ingar, setja upp
heimasíðu eða vinna
með tölvustýrðum
vélum. En þar náðu
leiðir okkar einnig
saman þar sem við
höfðum selt Grindinni nokkrar
tölvustýrðar vélar. Það var umtal-
að í okkar herbúðum hvað Guð-
mundur væri bæði fljótur að læra
og hvað hann væri snjall að setja
upp forrit og finna lausnir sjálfur.
Það er mikill missir að Guð-
mundi í húsgagna- og innréttinga-
geiranum en ekki síst vegna þess
hversu góður og sannur félagi
hann var.
Við söknum öll vinar í stað nú er
Guðmundur hefur kvatt. Aðstand-
endum hans og samstarfsfólki hjá
Grindinni vottum við okkar dýpstu
hluttekningu.
Starfsfólk Hegas ehf.
Að leiðarlokum
kveðjum við tryggan
vin með eftirsjá. Bar-
átta Axels við
krabbameinið stóð í rúm þrjú ár,
hún einkenndist af æðruleysi og
mikilli bjartsýni fram til síðasta
dags. Oft var tvísýnt um afdrif
hans en með undraverðum hætti
náði hann sér á strik.
En enginn veit hvað morgundag-
urinn ber í skauti sér né hvenær
dauðinn knýr dyra og ekki er
spurt um aldur. Þótt vinátta okkar
eigi sér ekki langan aldur bund-
umst við sterkum vináttuböndum.
Á stundum sem þessum renna góð-
ar minningar gegnum hugann,
meðal sameiginlegra áhugamála
voru ferðalög og reikar hugurinn
til þeirra stunda sem við hjónin
áttum saman sl. sumar er við
AXEL
BJÖRNSSON
✝ Axel Björnssonfæddist í
Reykjavík 3. ágúst
1951. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans við
Hringbraut 5. maí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Háteigskirkju 11.
maí.
dvöldum hjá Axel,
Helgu og afastrákn-
um Axel Breka í
Sitges á Spáni. Ferð
okkar til Monserat er
ógleymanleg og þau
náttúruundur sem við
okkur blöstu þar. Á
þessum tíma keyrð-
um við vítt og breitt
og var Axel alltaf við
stýrið í einni ferð
okkar sem farin var
til La Roca Village,
aðallega fyrir okkur
konurnar, lögðum við
lykkjur á leið okkar í víðasta skiln-
ingi þess orðs. Var það lýsandi fyr-
ir persónuleika Axels að gefast
ekki upp heldur var slegið á létta
strengi þar til áfangastað var náð.
En léttleikinn fannst mér einkenna
samband þeirra hjóna öðru fremur
og einnig vakti styrkur Helgu at-
hygli okkar, hún stóð sem klettur
við hlið Axels þar til yfir lauk með
dyggum stuðningi barna sinna. Nú
hefur Axel lagt upp í sína hinstu
ferð en eftir situr minning um
mætan mann.
Við hjónin vottum fjölskyldu og
afkomanda Axels okkar dýpstu
samúð.
Jóhanna Gunnarsdóttir.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,
JÓN VALUR ÓMARSSON,
Grenigrund 38,
Akranesi,
lést laugardaginn 20. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn
29. maí kl. 14.00.
Jórunn Friðriksdóttir, Ómar Sigurðsson,
Sigurður Ari Ómarsson, Sigríður H. Sigurðardóttir.
Ástkær móðir og amma,
ODDRÚN SIGURÐARDÓTTIR
frá Miðhúsaseli,
Fellum,
búsett í Jyllinge,
Danmörku,
lést á Roskilde Amtsygehus þriðjudaginn
16. maí.
Útförin fer fram í Jyllinge sunnudaginn 4. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Friðrik, Anna Efemía, Erla, Sólveig
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
KJARTAN J. HALLGRÍMSSON,
Tjörnum,
Skagafirði,
lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks miðvikudaginn
24. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd barna og annarra aðstandenda,
Sigrún Þóra Ásgrímsdóttir.
Eiginmaður minn og faðir,
ANDRÉS GUNNARSSON,
Erluhrauni 10,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 25. maí.
Auður Eiríksdóttir,
Elísabet Andrésdóttir,
Eiríkur Hjörtur Andrésson,
Gunnar Andrésson,
Valgerður Auður Andrésdóttir.
Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi,
ANDRÉS HAFLIÐASON
flugvirki,
Háaleitisbraut 22,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur fimmtudaginn 25. maí.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn
1. júní kl. 13.00.
Anna Hafliðadóttir, Sigfús Hreiðarsson,
Hafliði Sigfússon, Katherine Davidson,
Hildur Sigfúsdóttir,
Edda Sigfúsdóttir.
Elsku drengurinn okkar,
PÉTUR ÞORVARÐARSON,
Ártröð 3,
Egilsstöðum,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju þriðjudag-
inn 30. maí kl. 14.00. Sent verður út frá athöfninni
í íþróttahúsið á Egilsstöðum.
Þorvarður Stefánsson, Sigríður Bergþórsdóttir,
Jörgen Sveinn Þorvarðarson,
Jón Þór Þorvarðarson, Margaret Anne Johnson,
Andrés Jörgensson, Hulda Ósk Harðardóttir,
Hafþór Jörgensson, Helena N. Wolimbwa,
frændsystkini og aðrir aðstandendur.