Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 74

Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 74
74 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Toyota Hilux Double Cab 38". Fullbreyttur dísel árg. 2003, ek. 55 þ. km. Verð 3.670. Tilboð 3.370. Þessir eru sjaldan til sölu! S. 567 4000. Sjáðu hann á heimsbilar.is Hyundai Starex díesel 4x4 árg. '04 ek. 53 þús km, dráttarkrókur, 7 manna. Verð 2.480 þús. Uppl. í síma 862 8551. Nissan Almera. Árg. '99, bensín, ek. 124 þús. Beinsk. Vetrardekk á felgum, CD, fjarstýrð samlæs- ing. Verð 470 þús. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 892 7828 MB Sprinter 316 CDI Iglhaut aldrif. Skr. 6/2003, ek. 50 þús. km, skr. fyrir 3-6 farþega, driflæs. að framan/aftan, hátt/lágt drif, loft- kæling, olíumiðstöð, aukaraf- geymir, fjarst. samlæsingar, upp- hituð framrúða með regnskynj- ara, dráttarbeisli. Verð 4.850 þús. Allar frekari upplýsingar í síma 821 1173 og á www.enta.is. Dodge Durango árg. '04, ek. 14 þús. km. Til sölu Dodge Durango Limited, mjög flottur, leður, sól- lúga, krókur og á heilsársdekkj- um. Verð 3.950 þús. stgr. Upplýs- ingar 896 0089. Land Cruiser 100 new 1/4 2005. Ek. 21 þús. km. Bensín. M. ýms- um aukab., 33" dekk o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Bílalán. Upplýsingar í síma 690 2577. Nissan Vanette. árgerð '99, ek- inn 114 þús. km. Verð 590 þús. Upplýsingar í síma 822 1790. VW Polo árg. '00 ek. 90 þús. VW Polo 16v 3/2000. Flottur bíll með samlitum sætum og 15" ál- felgum. Skoðaður 2007. Áhvílandi 300.000. Ásett 590.000. Tilboð 490.000. Uppl. í síma 698 2449. Smáauglýsingar 5691100 Til sölu Dodge Grand Caraven 3,3 l SXT. Ek. 20 þ. m. 5 d., sjálf- sk., rafd. rúður, cd/dvd-spilari, fjarst. saml., ABS, loftkæling, hraðast., filmur. Tilboðsverð 2,8. Uppl. í síma 697 4123. Subaru Outback 1998. Ekinn 103 þús. 2,5 vél, sjálfskiptur. Ný dekk, tímareim og bremsur fyrir kr. 150 þús. Vel með farinn og frábær ferðabíll. Verð 900 þús. Uppl. í síma 899 2005. DÓMNEFND hefur valið 64 verð- launatexta úr rúmlega 2.500 inn- sendum textum sem bárust í Fernu- flugi sem er samkeppni um nýja texta á mjólkurfernur. Keppnin fór fram í 5. til 7. bekk grunnskóla og nú í fyrsta sinn einnig í framhalds- skólum landsins. Tilkynnt var hvaða verk hefðu lent í 1.–3. sæti í hvorum flokki. Fyrstu verðlaun sem námu 100.000 kr. hlutu Guðrún Arnardóttir í Grunnskóla Ísafjarðar og Sverrir Norland í Mennta- skólanum í Reykjavík. Önnur verð- laun og 50.000 kr. hlutu Ástrós Steingrímsdóttir í Lindarskóla og Ólöf Vala Schram í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Í þriðja sæti voru svo Dagný Kristjánsdóttir í Hóla- brekkuskóla og Katrín Thelma Jónsdóttir í Borgarholtsskóla og fengu þær 25.000 kr. hvor. Fernuflugið snerist að þessu sinni um ljóða- og örsagnagerð. Kepp- endur áttu að svara spurningunni „Hvað er að vera ég?“ í 60–100 orð- um og máttu velja um hvort þeir gerðu það í bundnu eða óbundnu máli. Sigurtextarnir munu birtast á um 40 milljónum mjólkurferna frá og með næstu áramótum. Gera má ráð fyrir að hver texti birtist á um 600 þúsund nýmjólkur- og létt- mjólkurfernum á tveggja ára tíma- bili. Myndin er frá afhendingu verð- launanna: Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra, verðlaunahafarnir Ástrós Stein- grímsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Guðrún Arnardóttir, Katrín Thelma Jónsdóttir, Ólöf Vala Schram og Sverrir Norland ásamt Guðlaugi Björgvinssyni, fjármálastjóra MS. Verðlaunahafar í Fernuflugi ÁRLEGT gróður- og grillblót ása- trúarmanna verður haldið í dag í Aronsbústað við Mógilsá og mun Jóhanna Harðardóttir Kjalnes- ingagoði helga blótið. Á blótinu býðst gestum að horfa á kvikmynd sem gerð var hér á landi í hitteð- fyrra. Myndin nefnist Huldufólk 102, en hún er tilnefnd til verðlauna sem heimildamynd ársins. Allir eru velkomnir og verða grill á staðnum. Þar segir að gestir verði sjálfir að koma með grillmatinn. Hægt verður að láta sækja sig að stoppistöðinni við gönguleið upp á Esju (strætóleið 27 gegnum Mos- fellsbæ), en blótið hefst við Arons- bústað klukkan 14:00. Blót ásatrúar- manna við Mógilsá ÚTSKRIFT við Flensborgarskólann í Hafnarfirði fór fram 20. maí sl., í Víðistaðakirkju og voru alls útskrifaðir 47 nemendur, 2 af sérsviði fjölmiðlunar af Upplýsinga- og fjölmiðlabraut og 45 stúdentar. Þá var athöfnin send út beint á netinu í gegnum vefveitu Hafnarfjarðarbæjar. Flestum einingum til stúdentsprófs lauk Hafdís Ár- sælsdóttir eða 180 einingum. Dúx skólans var Kristján Valgeir Þórarinsson með 9,4 í meðaleinkunn en hann lauk námi af náttúrufræðibraut eftir 3ja ára nám. Eng- inn nemandi skólans hefur áður lokið stúdentsprófi á 3 árum með betri árangri. Í ávarpi sínu sagði Einar Birgir Steinþórsson skóla- meistari m.a. „Það hefur verið gríðarleg fjölgun nem- enda á framhaldsskólastigi undanfarin ár. Nánast allir sem ljúka grunnskóla sækja um inngöngu í framhalds- skólana. Flensborgarskólinn hefur lagt sig fram við að þróa ný úrræði í tengslum við það námsframboð og skipulag sem hann vinnur eftir. Við höfum lagt áherslu á að byggja upp og veita góðan stuðning bæði fyrir þá sem hratt vilja fara yfir sem og þá sem þurfa lengri tíma. Við höfum fjölbreyttan nemendahóp sem á rætur í hátt í 70 ólíkum grunnskólum og þjóðlöndum. Það er því langt frá því að vera einsleitur hópur sem gengur um ganga skól- ans þó svo gæti virst við fyrstu sýn.“ 47 brautskráðir frá Flensborgarskóla FJÖLBRAUTASKÓLANUM í Breiðholti var slitið 24. maí sl. í Íþróttahúsi FB og voru 188 lokaprófsskírteini afhent, 91 skírteini af starfsnámsbrautum og 97 stúd- entsprófsskírteini. Á skólaárinu hafa þá verið afhent 304 lokaprófsskírteini. Bestum árangri á stúdents- prófi nú náði Hjalti Magnússon sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,36. Við þessa athöfn var fimm hundraðasti húsasmiður- inn útskrifaður; Andri Geir Jónasson, og einnig fimm hundraðasti rafvirkinn; Steingrímur M. Bragason. Í hópi rafvirkja voru nú fjórar konur. Kristín Arnalds skólameistari vék að því í ræðu sinni hve alvarlegt vandamál brottfall væri að verða í skólakerfinu. Nemendur vinna flestir önnur störf með náminu og er oft erfitt að greina hvort fær meiri athygli, námið eða brauðstritið. Þessari þróun þarf að snúa við með öllum tiltækum ráðum, að mati Krist- ínar. Brautskráning frá FB ÚRSLITAMÓT Tívolísyrpunnar í skák verður haldið á sunnudaginn, en þar tefla krakkar á grunnskóla- aldri til úrslita í þessari mótaröð sem fer nú fram í fjórða skiptið. Teflt er í opnum flokki, en verð- launað í þremur aldursflokkum. Sigurvegarinn hlýtur að launum ferð fyrir tvo til Kaupmannahafn- ar, en einnig verður dregið í happ- drætti svo allir eiga möguleika á vinningi. Mótið fer fram í veitinga- salnum í Iðnó við Tjarnarbakkann, og hefst kl. 13, og eru öllum vel- komið að fylgjast með. Tívolískák í Iðnó FRÉTTIR Brottför orrustuþotnanna Í TVÍGANG hefur því verið haldið fram í fréttum Morgunblaðsins, ann- ars vegar í viðtali við Halldór Ás- grímsson og hins vegar við Geir H. Haarde, að Valur Ingimundarson sagnfræðingur fullyrði í grein í Skírni um varnarmálin að Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, hafi fengið persónulegt vil- yrði um að orrustuþotur, björgunar- þyrlur og annar herafli yrði hér á landi áfram á fundi með George W. Bush Bandaríkjaforseta árið 2004. Hið rétta er að í greininni segir Val- ur: „Fullyrt hefur verið að Davíð Oddsson hafi fengið fyrir því trygg- ingu á fundi sínum með Bush sumar- ið 2004 að ekki yrði gripið til einhliða ákvarðana af hálfu Bandaríkja- manna.“ Tekið er sérstaklega fram, að Bandaríkjaforseti hafi ekki gert upp hug sinn varðandi framtíð Keflavíkurstöðvarinnar, þótt hann segðist vilja leysa málið í sátt við Ís- lendinga. Í greininni er hins vegar sett fram sú túlkun, að brotthvarf Davíðs úr stjórnmálum hafi auðveld- að Bandaríkjamönnum að taka endanlega ákvörðun um að kalla orrustuþoturnar á brott og leggja herstöðina niður í núverandi mynd. Beðist er velvirðingar á þessu. Kosningatölur í Ölfusi MISTÖK urðu við gerð töflu um sveitarfélagið Ölfus í kosninga- handbók Morgunblaðsins. Úrslit sveitarstjórnarkosninganna 2002 urðu sem hér segir: Framsóknarflokkurinn (B-listi) fékk 35,5% atkvæða og tvo fulltrúa. Sjálfstæðisflokkur (D-listi) fékk 36,0% atkvæða og þrjá 3 fulltrúa. Þ- listi fékk 15,6% atkvæða og einn full- trúa. C-listi fékk 12,8% atkvæða og einn fulltrúa. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. V en ekki U VINSTRI grænir í Hafnarfirði bjóða fram undir listabókstafnum V. Í kosningahandbók Morgunblaðsins í gær vantaði listabókstaf flokksins fyrir kosningarnar í dag, en fyrir fjórum árum buðu Vinstri grænir fram undir listabókstafnum U. Vel- virðingar er beðist á mistökunum. LEIÐRÉTT ENGAN sakaði þegar eldur kvikn- aði í sinu á sumarhúsalandi á Grímsstöðum í Borgarfirði á þriðja tímanum sl. fimmtudag, en litlu mátti muna að eldurinn næði að læsa klónum í nærliggjandi bústaði, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Betur fór en á horfðist í fyrstu, og gekk greiðlega að ná tökum á eldinum eftir að Slökkvilið Borgar- ness kom á staðinn. Eldur í sinu í sumarhúsalandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.