Morgunblaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 26
Hólmavík | Verið er að slá kop-
arklæðningu á þak Hólmavík-
urkirkju þessar vikurnar. Fyrir
tveimur árum var settur kopar á
þak turnsins en nú verður allt
þakið klætt kopar.
Hólmavíkurkirkja stendur á
Brennhól og setur mikinn svip á
bæinn. Hún var byggð á árinu
1952. Kopar er nú settur á þakið
í stað bárujárns til þess að
minnka viðhaldskostnað.
Áætlað er að verkinu ljúki um
miðjan júlí. Þegar rigningunni
slotar má því búast við að fag-
urlega glampi á koparinn í sól-
skininu og Hólmavíkurkirkja
verði enn fallegri.
Kopar á þak Hólmavíkurkirkju
Byggingar
Suðurnes | Akureyri | Árborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hólmvíkingar ætla eins og aðrir lands-
menn að halda þjóðhátíðardaginn hátíð-
legan í dag, sautjánda júní. Hátíðarhöldin
hefjast með keppni í 100 metra sundi með
frjálsri aðferð fyrir hádegi. Eftir hádegi
safnast íbúar svo saman í Hvamminum við
kirkjuna, skrýðast fánum, blöðrum og
veifum og fara í skrúðgöngu að Íþrótta-
miðstöðinni þar sem skemmtunin fer
fram. Farið verður í leiki, fjallkona flytur
ávarp og ungir og aldnir íbúar gleðjast
saman.
Grunnskólakennarar á Hólmavík ásamt
öðru starfsfólki skólans og mökum eru ný-
komnir heim úr ferð til vinabæjarins Hole
í Noregi. Þar skoðuðu ferðalangarnir
skóla og aðra áhugaverða staði í sveitarfé-
laginu og hlutu höfðinglegar móttökur hjá
vinunum norsku.
Vinabæjarsamskiptin eflast svo og
styrkjast enn frekar þessa helgi, en tveir
fulltrúar hins nýsameinaða sveitarfélags
Hólmavíkur- og Broddaneshrepps eru
staddir á vinabæjarmóti í Finnlandi. Mót-
ið er að þessu sinni haldið í Merimesku og
Kustavi og hittast þar fulltrúar allra nor-
rænu vinabæjanna og bera saman bækur
sínar.
Námskeið fyrir starfsfólk í þjónustustörf-
um var haldið á Café Riis á Hólmavík á
fimmtudaginn. Útflutningsráð Íslands
stóð fyrir námskeiðinu og Samtök ferða-
þjónustunnar og Atvinnuþróunarfélag
Vestfjarða, ATVEST, komu einnig að því.
Fyrirlesari námskeiðsins var Margrét
Reynisdóttir frá Útflutningsráði. 20
manns sóttu námskeiðið og komu frá
Hólmavík, Drangsnesi og Stykkishólmi.
Fjallað var um helstu þjónustuþætti eins
og ásýnd, áreiðanleika, viðmót og fram-
komu.
Þátttakendur voru margir af yngri kyn-
slóðinni, úr ýmsum þjónustugreinum og
konur í miklum meirihluta. Margt áhuga-
vert kom fram á námskeiðinu og virtist
mikil vakning til að gera betur og deildu
þátttakendur reynslu sinni í því skyni.
Úr
bæjarlífinu
HÓLMAVÍK
EFTIR KRISTÍNU SIGURRÓS
EINARSDÓTTUR FRÉTTARITARA
Egilsstaðir | Í dag verður ljósmyndasýn-
inginn Brot úr sögu bílaaldar opnuð í
anddyri Safnahússins á Egilsstöðum.
Myndefnið er bifreiðin og hvernig hún á
20. öldinni leysti af hólmi þarfasta þjón-
inn. Sýningin er á vegum Ljósmynda-
safns Austurlands og eru myndirnar all-
ar teknar á Austurlandi eða tengdar
Austfirðingum. M.a. eru á sýningunni
myndir af bílum KHB, teknar á 6. ára-
tugnum, eftir Kristján Ólason sem var
áhugaljósmyndari, búsettur á Reyð-
arfirði. Einnig eru sýnd skjöl frá ýmsum
tíma, svo sem umsóknir um bifreiða-
kaup, ábyrgðir vegna kaupa á Ford
sjálfrenningi og gömul ökuskírteini.
Ljósmynd/Minjasafn Austurlands
Brot úr sögu bílaaldar
Guðmundur Frið-jónsson skáld áSandi skrifaði um
eldgamlar vísur og kall-
aði barnagælur:
Blessuð lóan syngur sætt og segir
dýrðin.
Það er hennar þakkargjörðin,
þegar hún kemur hér í fjörðinn.
Hann segir, að svan-
urinn komist eigi til jafns
við lóuna á alþýðuskálda
vörum. Þessa vísu hafi
hann lært barn um hann
og enga aðra, en finnur
að því, að svo veglegur
söngvari eigi eigi heima
þarna:
Sungu með mér svanur, örn,
smyrill, kría, haukur,
keldusvín og krummabörn,
kjói og hrossagaukur.
Og enn fremur skrifar
Guðmundur Friðjónsson
skáld á Sandi:
Minn er Glói mesta þing,
margan spóa eltir,
hleypur móa hratt um kring,
hátt við sjóinn geltir.
Blessuð lóan
syngur sætt
pebl@mbl.is
♦♦♦
Keflavík | Sparisjóðurinn í Keflavík hefur
ákveðið að veita sérstök hvatningarverð-
laun við upphaf Ljósanætur í haust. Verð-
launin, sem nema einni milljón króna,
renna til fyrirtækis eða einstaklings, sem
þótt hefur skara fram úr við uppbyggingu
og atvinnusköpun á Suðurnesjum.
Hugmyndin að því að efna til verð-
launanna kviknaði innan sparisjóðsins þeg-
ar tilkynnt var um uppsagnir hundruð
starfsmanna varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli fyrr á þessu ári. Verðlaununum er
ætlað að örva og hvetja fyrirtæki og ein-
staklinga til þess að sækja fram og byggja
upp nýja atvinnumöguleika á Suðurnesj-
um.
Þriggja manna dómnefnd mun ákvarða
hver hlýtur verðlaunin. Ábendingar um
fyrirtæki og einstaklinga sem taldir eru
verðskulda verðlaunin eru vel þegnar, seg-
ir í fréttatilkynningu, og er áhugasömum
bent á að senda uppástungur á netfangið:
hvatning@spkef.is, ásamt rökstuðningi.
Hvati Geirmundur Kristinsson, Þorsteinn
Erlingsson og Baldur Guðmundsson.
SpKef efnir
til hvatning-
arverðlauna
Mývatnssveit |
Sólveig Illugadótt-
ir hefur opnað sýn-
ingu í Reykjahlíð-
arkirkju. Yfirskrift
sýningarinnar er
Íslensk náttúra og
villt dýr.
Á sýningunni gefur að líta þjóðarfjallið
Herðubreið, spendýr, sjávardýr og fugla.
Nokkrum verkanna fylgja örsögur sem
listakonan hefur spunnið við myndirnar.
Sýningin sem er 27. einkasýning Sólveig-
ar, er opin alla daga frá kl. 10 til 18 fram til
15. ágúst.
Íslensk náttúra í
Reykjahlíðarkirkju
15. – 22. ágúst
Landbúnaðarferðin okkar er að þessu sinni til Bæjaralands í
Þýskalandi og Austurríkis og er fyrir alla þá sem hafa mikinn áhuga á
landbúnaði. Lögð verður áhersla á heimaframleiðslu á hinum ýmsu
landbúnaðarvörum, heimsóttir bæir sem gefa hvað fjölbreyttasta
mynd af því sem í boði er og ekki má gleyma hefðbundnum búskap.
Flogið er til München og gist þar eina nótt áður en haldið er sem leið
liggur til Austurríkis þar sem að gist er í 2 nætur. Seinni hluta ferðar
verður gist í 4 nætur í bænum Kempten. Í ferðinni verða áhugaverðir
ferðamannastaðir að sjálfsögðu skoðaðir í leiðinni.
Fararstjóri: Inga Sigga Ragnarsdóttir
s: 570 2790www.baendaferdir.is
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Landbúnaðarferð
Verð: 96.300 kr. á mann í tvíbýli.
Suður Þýskaland og
Austurríki
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r