Morgunblaðið - 23.07.2006, Side 30

Morgunblaðið - 23.07.2006, Side 30
30 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Íbúðir HRÍSÁS - SKORRADALSHREPPI Til sölu eru 75 m2 sumarhús í byggingu á eignarlóð við Hrísás 17 í landi Indriða- staða, Skorradalshreppi. Hér er um að ræða óvenjulega glæsileg og íburðarmikil hús. Allur frágangur til fyrirmyndar. Steypt plata með hitalögn. Húsunum verður skil- að með gólfefnum og hurðum en án inn- réttinga og tækja. Fallega staðsett 3682 m2 kjarrivaxin eignarlóð. Verð: 18,9 millj. 13957 Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, s. 550 3000, einnig á fmeignir.is SKÁLALÆKJAÁS - SKORRADALSHREPPI Til sölu eru 97,1 m2 sumarhús í byggingu á eignarlóð við Skálalækjarás 1 í landi Indriðastaða, Skorradalshreppi. Hér er um að ræða óvenjulega glæsileg og íburðarmikil hús. Allur frágangur til fyrir- myndar. Steypt plata með hitalögn. Hús- unum verður skilað með gólfefnum og hurðum en án innréttinga og tækja. Fal- lega staðsett 3.963 m2 kjarrivaxin eignar- lóð. 13956 Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, s. 550 3000, einnig á fmeignir.is FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Glæsileg húseign í hjarta miðborgarinnar. Hér er um að ræða tæplega 400 fm eign sem hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu tveimur árum. Eignin skiptist í 14 íbúðar- herb., 4 baðherb., gott eldhús, borðstofu og snyrtingu. Að auki er 2ja herb. íbúð með sérinng. í kjallara. Lóðin er 309 fm eignarlóð með aðkomu frá Lækjargötu. Húsið, sem er teiknað af Rögnvaldi Ólafssyni arkitekt hef- ur verið látið halda sem mestum uppruna sínum. ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU. Skólabrú - Heil húseign til leigu BORGARTÚN - LAUST Góð 444 fm skrifstofuhæð á 3. hæð miðsvæðis í Borgartúni. Mjög sýnileg staðsetning. Góð aðkoma er að húsinu. Hæðin er nú innréttuð sem 12 skrifstofuherbergi, kaffistofa og snyrting. Möguleg aðstoð við fjármögnun. V. 69,9 m. 7432 Sími 511 2900 Áhugasamir hafið sambandi við skrifstofu Leigulistans, eða Guðlaug í s. 896 0747. Til sölu - Síðumúli (allt húsnæði Gutenbergs) www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.Sími 588 4477 Fjárfestingatækifæri! Höfum fengið í einkasölu alla húseignina við Síðumúla 16-18 í Reykjavík, heildarstærð eignarinnar er samtals 2320 fm. Framhús, jarðhæð og önnur hæð, verslun og skrifstofur, samtals ca 936 fm. Bakhús, jarðhæð, lager, iðnaður, samtals ca 1384 fm. Mjög góð staðsetning. Aðkoma að húsnæðinu er mjög góð, næg bílastæði. Afhending er samkomulag. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Húsið hentar undir hverslags rekstur, svo sem verslun, þjónustu, lager og/eða framleiðslu. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í símum 588-4477 og 822-8242. ÞAÐ var viðtekin regla hér á ár- um áður að berja á landbúnaðinum þegar stjórnvöldum urðu á mistök í stjórn efnahagsmála. Á síðari árum hafa menn þó al- mennt orðið víðsýnni og gert sér grein fyrir fjölþættu mikilvægi ís- lensks landbúnaðar, m.a. fyrir framleiðslu á hollri neysluvöru og til að treysta matvæla- öryggi þjóðarinnar. Sömuleiðis er öflugur og fjölþættur landbún- aður og iðnaður honum tengdur forsenda fyrir nýsköpun atvinnulífs, byggðar og búsetu vítt og breitt um landið. Engu að síður er afar brýnt að endurskoða stefnu stjórnvalda í landbúnaðarmálum. Matvælanefnd for- sætisráðherra á villigötum Yfirlýsingar fulltrúa BSRB og Bænda- samtakanna um störf og áherslur Mat- vælanefndarinnar s.k. benda til að hún hafi fyrst og fremst verið sett á fót til að draga fram andstæða hags- muni neytenda og laun- þega annars vegar og íslensks landbúnaðar, bænda og þess fólks sem kemur að framleiðslu og vinnslu landbúnaðarafurða hins vegar. Er slík nálgun furðulega þröng því sam- kvæmt erindisbréfi hafði nefndin fengið það verkefni að leita leiða til að ná niður verði á matvælum hér á landi í víðum skilningi. Svo virðist sem nefndinni hafi verið stýrt í það gamla kratahjólfar frá síðustu öld að berja á innlendri landbúnaðarfram- leiðslu og þeim margvíslegu atvinnu- greinum sem henni tengjast. SVÞ vill græða en hverra erinda gengur ASÍ? Í yfirlýsingum frá Alþýðu- sambandi Íslands (ASÍ) og Sam- tökum verslunar og þjónustu (SVÞ) er þess krafist að tollar á innfluttar mjólkur- og kjötvörur verði taf- arlaust lækkaðir, en sú aðgerð opnar á hömlulítinn innflutning á þeim vörum. Slík sjónarmið geta verið skiljanleg út frá þröng- um sjónarmiðum Sam- taka verslunar og þjón- ustu sem í fákeppnisumhverfi sjá fram á aukinn sjálf- tökugróða. Erfiðara er að skilja viðhorf ASÍ en innan þeirra samtaka er einmitt fjöldi fólks sem á atvinnu sína, bú- setu og eignaverð und- ir því að matvælaiðn- aðurinn haldist í landinu og nái að þróast og dafna frekar en hitt. Verður manni hugsað til samtaka launafólks á Blönduósi, Sauðárkróki, Ak- ureyri, Kópaskeri, Sel- fossi og víðar sem eiga allt sitt undir þessari vinnslu. Athyglisvert er að hjá BSRB, hinum stærstu launþega- samtökum landsins, kveður við allt annan tón. Í yfirlýsingu þeirra er lögð áhersla á að verðið eitt skipti ekki öllu máli, einnig verði að horfa til gæða, hollustu og fram- leiðsluöryggis gagn- vart neytendum. Þá beri að leggja áherslu á byggða- og búsetu- sjónarmið og vernda atvinnu fjölda fólks í tæknivæddum matvælaiðnaði. Bent er á að Íslend- ingar hafi nú þegar afnumið tolla á meginþorra innfluttra matvæla, gagnstætt því sem til dæmis er í ríkjum Evrópusambandsins. Gæði, hollusta og öryggi inn- lendra kjöt- og mjólkurvara Við höfum verið stolt af færni okk- ar og þekkingu í mjólkuriðnaði og kjötiðnaðurinn sækir hratt fram. En það er ekki sjálfgefið að þessi þekk- ing, störf og háþróaði iðnaður hald- ist í landinu. Fyrir nokkrum árum stóðum við framarlega í skip- smíðaiðnaði og nýjungum og tækni- framförum á því sviði. Þau stjórn- völd sem nú sitja sneru við honum baki og síðan hefur bæði verkþekk- ingin og skipasmíðin að mestu horfið úr landi. Samkeppnisþjóðir okkar stóðu vörð um sinn skipasmíðaiðnað. Sömu sögu má segja um mörg önnur tækifæri í iðnaði og annarri nýsköp- un sem hafa hrakist úr landi í tíð þessarar ríkisstjórnar. Matvælaframleiðsla er dýrmætur þáttur í sjálfstæði og innra öryggi hverrar þjóðar og því skyldi varlega gengið fram í að fórna henni. Vinstri græn vilja þjóðarsátt um íslenskan landbúnað Skoðanakannanir meðal almenn- ings sýna mikinn og afdráttarlausan stuðning við landbúnaðinn og dreifða búsetu í sveitum landsins. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð hefur lagt til að stuðningur rík- isins við landbúnaðinn verði í aukn- um mæli bundinn búsetunni, jörðunum, vörslu landgæða og sjálf- bærum, heilnæmum fram- leiðsluháttum. Koma þarf í veg fyrir raðuppkaup á jörðum og fram- leiðslurétti, draga úr magntengdum ríkisstuðningi, setja honum takmörk og afnema framsalsrétt á þeim greiðslum. Tryggja þarf möguleika ungs fólks til að taka við búum eða koma ný inn í búskap. Þingmenn Vinstri grænna hafa ítrekað flutt tillögur um að Alþingi kjósi nefnd skipaða fulltrúum allra þingflokka sem ásamt samtökum bænda og öðrum hlutaðeigandi al- mannasamtökum móti nýjan grund- völl fyrir búvöruframleiðsluna og geri tillögur um hvernig treysta megi grunn fjölskyldubúsins og bú- setu í sveitum landsins. Þótt lækkun á tollum gagnvart innfluttum kjöt- og mjólkurvörum geti vel komið til greina við ákveðnar aðstæður og þegar til lengri tíma er litið er það ótvírætt að einhliða aðgerðir af því tagi nú án þess að annar virkur stuðningur sé kominn til framkvæmda er algjört glæfraspil. Ég er sannfærður um að meginþorri þjóðarinnar er sammála okkur í Vinstri grænum um, að standa beri vörð um fjölþættan ís- lenskan landbúnað, holla innlenda matvælaframleiðslu, fjölskyldubú- skap og öfluga byggð í sveitum landsins. „Að treysta á landið“! Jón Bjarnason vill standa vörð um öflugan og fjölþættan landbúnað ’Erfiðara er aðskilja viðhorf ASÍ en innan þeirra samtaka er einmitt fjöldi fólks sem á at- vinnu sína, bú- setu og eigna- verð undir því að matvælaiðnaður- inn haldist í land- inu og nái að þróast og dafna frekar en hitt.‘ Jón Bjarnason Höfundur er alþingismaður VG.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.