Morgunblaðið - 02.09.2006, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Kór Áskirkju syngur, organisti Kári Þormar.
Upphaf barnastarfs komandi vetrar.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Kór Bústaðakirkju syngja. Mola-
sopi eftir messu. Sr. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar. Einsöng í messunni
syngur Halla Margrét Árnadóttir. Dómkór-
inn syngur. Organisti Marteinn H. Frið-
riksson. Barnastarfið hefst nú aftur og
verður alla sunnudaga á messutíma. Börn-
in eru með í upphafi messunnar en fara
síðan á kirkjuloftið og eiga sína stund þar,
ásamt æskulýðsleiðtogum sem í vetur
verða undir forystu sr. Þorvaldar Víð-
issonar.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til
ABC-barnahjálpar. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14:00. Altarisganga. Svala
Thomsen djákni prédikar. Sr. Sveinbjörn
Bjarnason þjónar fyrir altari. Organisti Sól-
borg Valdimarsdóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf
kl. 11:00. Starfsfólk kirkjunnar og vetr-
arstarfið kynnt og fulltrúar hinna ýmsu
starfsgreina lesa ritningarorð og biðja bæn-
ir dagsins. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu
Ágústsdóttur og Magneu Sverrisdóttur
djákna. Organisti Hörður Áskelsson kantor.
Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Umsjón með barna-
guðsþjónustu Erla Guðrún Arnmundardóttir
og Þóra Marteinsdóttir. Organisti Douglas
A. Brotchie. Léttar veitingar eftir messu.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Guðsþjónusta kl. 10:30 á Landspítala
Hringbraut. Sr. Bragi Skúlason, organisti
Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta og upphaf barna-
starfs kl. 11. Þórunn Vala Valdimarsdóttir
syngur einsöng og Elfa Rún Kristinsdóttir
og Júlía Mogensen leika með á fiðlu og
selló. Börnin í barnastarfinu kom fyrst í
kirkjuna en síðan fara þau í safnaðarheim-
ilið með Rut, Steinunni og Arnóri. Prestur
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kaffisopi eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11:00 við upphaf sunnudagaskól-
ans. Sr. Hildur Eir Bolladóttir þjónar ásamt
sunnudagaskólakennurum vetrarins, Þor-
valdi Þorvaldssyni söngvara og Stellu Rún
Steinþórsdóttur menntaskólasúlku og
Laugarnesbúa. Kór kirkjunnar leiðir söng-
inn við undirleik Gunnars Gunnarssonar og
Ragnar Hilmarsson er meðhjálpari. Gunn-
hildur Einarsdóttir kirkjuvörður býður upp á
molasopa og djús að lokinni guðsþjónustu.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Líf og fjör í upphafi sunnudagaskól-
ans. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í
safnaðarheimilið. Sögur, brúður og söngur.
Öll börn fá kirkjubókina og límmiða. Kaffi,
djús og spjall í safnaðarheimilinu eftir
messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Vetrarstarfið hafið með há-
tíðlegri stund í kirkjunni. Börnin fá sunnu-
dagaskólabækur og poka. Biblíusagan,
brúðuleikrit og að sjálfsögðu verður söng-
urinn á sínum stað. Barn verður borið til
skírnar. Organisti Pavel Manasek. Sr. Arna
Grétarsdóttir og leiðtogar sunnudagaskól-
ans hafa umsjón með stundinni. Verið
hjartanlega velkomin. www.seltjarn-
arneskirkja.is.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Barn borið til skírnar. Al-
mennan safnaðarsöng leiða Carl Möller og
Anna Sigga. Hjörtur Magni Jóhannsson
leiðir stundina og prédikar. Allir velkomnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Upphaf sunnudagaskólans.
Brúðurnar Rebbi refur og Engilráð láta sjá
sig. Unglingar úr æskulýðsfélaginu sýna
dansinn Beat-less. Kirkjukaffi á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Prest-
ar sr. Gísli Jónasson og sr. Bryndís Malla
Elídóttir. Organisti Magnús Ragnarsson.
Upphaf barnastarfsins – barnaguðsþjón-
usta á sama tíma í safnaðarheimili.
DIGRANESKIRKJA: Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Yrsa Þórðardóttir. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digra-
neskirkju. Sunnudagaskóli í kapellu á
sama tíma. Súpa og brauð í safnaðarsal að
messu lokinni (www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Hátíð í tilefni af upphafi
barnastarfsins. Skrúðganga, brúðuleikrit
og mikill söngur.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt séra Önnu Sigríði
Pálsdóttur. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti: Hörður Bragason. Ferming-
arbörnum úr Foldaskóla, Hamraskóla og
Húsaskóla og foreldrum er boðið sér-
staklega til guðsþjónustu. Að lokinni guðs-
þjónustunni er fundurog rætt um ferming-
arfræðsluna, ferminguna og það sem
henni tengist. Eftir fundinn verður hádeg-
isverðarhlaðborð en beðið er um að hver
fjölskylda komi með eitthvað matarkyns á
það hlaðborð. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
Grafarvogskirkju. Prestur séra Bjarni Þór
Bjarnason. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Undir-
leikari: Stefán Birkisson. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11 í Borgarholtsskóla. Prestur séra
Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón: Gunnar,
Díana og Dagný. Undirleikari: Guðlaugur
Viktorsson. Guðsþjónusta kl. 16 á hjúkr-
unarheimilinu Eir. Séra Vigfús Þór Árnason
prédikar og þjónar fyrir altari. Þorvaldur
Halldórsson syngur og leikur undir á píanó.
HJALLAKIRKJA: Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson
þjónar. Brúður koma í heimsókn og Tóta
trúður lítur inn. Félagar úr kór kirkjunnar
syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Bæna- og kyrrð-
arstund þriðjud. kl. 18. www.hjallakirkja.is
KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Börn syngja undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur kórstjóra. Sókn-
arprestur, sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson,
predikar og þjónar fyrir altari. Barnastarf í
kirkjunni kl. 12:30. Umsjón: Sigríður, Þor-
kell Helgi og Örn Ýmir.
LINDASÓKN í Kópavogi: Vetrarstarf hefst
að nýju í Lindaskóla sunnudaginn 10. sept-
ember. Nánar auglýst síðar.
SELJAKIRKJA: Sunnudagaskólinn kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör! Guðsþjónusta kl.
14. Ólafur Jóhann Borgþórsson æskulýðs-
fulltrúi prédikar. Kór kirkjunnar leiðir söng-
inn. Jón Bjarnason er organisti. Ath. breytt-
an guðsþjónustutíma! www.seljakirkja.is.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma kl.
20 með mikilli lofgjörð, vitnisburðum og fyr-
irbænum. Friðrik Schram prédikar. Þáttur
kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ sýndur á
Omega kl. 14. Samkoma á Eyjólfsstöðum
á Héraði kl. 17.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur laugard. kl. 11. Bænastund
miðvikud. kl. 20. Biblíufræðsla allan sólar-
hringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sonja
Klein verður með smálestur í Færeyska sjó-
mannaheimilinu laugardagskvöldið 2.
sept. kl. 20. Kaffi á eftir. Sunnudaginn 3.
sept. kl. 15 verður færeysk guðsþjónusta
með Sonju Klein í Háteigskirkju, kaffi á eftir
í Færeyska sjómannaheimilinu, Braut-
arholti 29.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma sunnu-
dag kl. 20. Ræðumaður Ólafur Jóhanns-
son. Trond Schelander stjórnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam-
koma kl. 14. Bryndís Svavarsdóttir talar
orð guðs. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og
samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir.
Guðspjall dagsins:
Hinn daufi og málhalti.
(Mark. 7.)
Vetrarstarf Grafarvogs-
kirkju hafið
Segja má að vetrarstarfið hafi
hafist með útimessu á Nónholti við
Grafarvog. Á sunnudag fjölmenna
svo fermingarbörnin með foreldrum
sínum til guðsþjónustu kl. 11 og
barnastarfið hefst.
Í öllu safnaðarstarfi koma ávallt
fram nýjungar, í þetta sinn tengjast
þær ekki síst nýjum æskulýðsfull-
trúa, Gunnari, en hann hefur verið
ráðinn í fullt starf. Tveir nýir hópar
munu hittast í kirkjunni í vetur, en
hún er notuð til safnaðarstarfs frá
morgni til kvölds alla daga vik-
unnar. Þessir tveir hópar eru hópur
er mun nefnast „Musteri sálarinnar“
og hópur er tengist geðhjálp-
armálum.
Grafarvogskirkja.
Vetrarstarf
Hallgrímskirkju hafið
Á morgun, sunnudaginn 3. sept.,
hefst formlega vetrarstarf Hall-
grímskirkju. Með messu kl. 11.00
hefst hefðbundið barnastarf kirkj-
unnar, en þá fá börnin fræðslu og
samfélag við hæfi þegar kemur að
prédikun dagsins. Í messunni verður
starfsfólk kirkjunnar og vetr-
arstarfið kynnt og fulltrúar hinna
ýmsu starfsgreina lesa ritningarorð
og biðja bænir dagsins. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu
Ágústsdóttur og Magneu Sverr-
isdóttur djákna. Organisti Hörður
Áskelsson kantor. Eftir messu verð-
ur boðið upp á kaffisopa að venju.
Í dag laugardag kl. 16 verður opn-
uð haustsýning Listvinafélags Hall-
grímskirkju, en það eru myndverk
eftir Hafliða Hallgrímsson.
Annað helgihald verður með svip-
uðu sniði og áður en þó með viðbót
og nýjungum.
Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta í
Hjallakirkju
Vetrarstarfið í Hjallakirkju í
Kópavogi hefst með því að við höld-
um hátíð í kirkjunni hinn 3. sept-
ember kl. 11. Þetta er sannkölluð
fjölskyldustund fyrir fólk á öllum
aldri, þótt efni hennar miðist að
mestu leyti við yngri kynslóðina.
Þema stundarinnar er „Verndum
bernskuna“, brúður barnastarfsins
láta sjá sig og Tóta trúður kemur í
heimsókn. Tónlistin verður lífleg og
fjörug – alveg í takt við annað sem
fram fer. Næsta sunnudag á eftir,
10. september, hefst svo formlega
sunnudagaskólastarfið með barna-
guðsþjónustu kl. 13. Við hvetjum
alla til að koma í kirkjuna á þessum
hátíðisdegi og taka fyrstu skrefin
með okkur inn í komandi vetur.
Barnastarf í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
Fríkirkjan í Hafnarfirði býður
upp á fjölbreytt barnastarf í vetur.
Barnaguðsþjónustur verða í kirkj-
unni alla sunnudaga kl. 11 og hefjast
á morgun, sunnudaginn 3. sept-
ember. Á þriðjudögum milli kl. 16 og
18 verður svo starfandi „Krakka-
kirkja“ þar sem boðið verður upp á
margt skemmtilegt fyrir börn á
aldrinum 6–12 ára. Meðal þess sem
boðið verður upp á er söngsmiðja í
umsjón Ernu Blöndal þar sem börn-
in læra að koma fram og syngja. Sig-
ríður Valdimarsdóttir ásamt aðstoð-
arfólki leiðir svo börnin í leik og
föndri, allt eftir aldri og áhuga. Kl.
16 á hverjum þriðjudegi verður tek-
ið á móti börnunum í safnaðarheim-
ilinu með hollri hressingu og síðan
er skipt í hópa. Allir krakkar eru
boðnir velkomnir til þátttöku.
Fjölskylduhátíð
í Fella- og Hólakirkju
Fjölskylduhátíð í Fella- og Hóla-
kirkju sunnudaginn 3. september kl.
11 í tilefni af upphafi vetrarstarfs-
ins. Skemmtileg og fjölbreytt dag-
skrá. Skrúðganga, brúðuleikrit og
mikill söngur. Börn á öllum aldri eru
innilega velkomin í Fella- og Hóla-
kirkju.
Kyrrðarstundir og
hversdagsmessur
í Grensáskirkju
Eftir sumarhlé hefjast nú að nýju
kyrrðarstundir og hversdagsmessur
í Grensáskirkju.
Kyrrðarstundir eru í hádeginu
alla þriðjudaga. Stundin hefst með
orgelleik en síðan er sunginn sálm-
ur, lesinn ritningarlestur og gengið
til altaris. Eftir altarisgönguna er
fyrirbænastund þar sem beðið er
fyrir bænarefnum sem borist hafa.
Stundinni í kirkjunni lýkur upp úr
kl. 12:30 og þá er hægt að kaupa
léttan málsverð á sanngjörnu verði.
Hversdagsmessur verða alla
fimmtudaga kl. 18:15 en fyrir mess-
una er söngstund frá kl. 18:00. Um
er að ræða einfalda messu á rúm-
helgum degi. Þorvaldur Halldórsson
leiðir söng en einnig er ritning-
arlestur, hugleiðing út frá orði Guðs
og altarisganga. Messunni lýkur rétt
fyrir kl. 19:00. Tilvalið er að koma
við í kirkjunni að loknum vinnudegi
eða skreppa þangað rétt fyrir kvöld-
mat í hversdagsmessu.
Sunnudagaskóli og
breyttur guðsþjón-
ustutími í Seljakirkju
Sunnudaginn 3. september hefst
sunnudagaskólinn aftur í Selja-
kirkju kl. 11 eftir sumardvala. Þá
syngjum við saman, heyrum sögur
og njótum hressandi stundar. Sr.
Valgeir Ástráðsson hefur umsjón
með stundunum og til aðstoðar eru
þeir sr. Bolli Pétur Bollason og Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson, æskulýðs-
fulltrúi kirkjunnar.
Almennar guðsþjónustur færast
frá kvöldtíma yfir til kl. 14 frá og
með umræddum sunnudegi, 3. sept-
ember. Í fyrstu guðsþjónustunni kl.
14 prédikar Ólafur Jóhann Borg-
þórsson, æskulýðsfulltrúi kirkj-
unnar, kórinn leiðir sönginn undir
stjórn Jóns Bjarnasonar tónlistar-
stjóra.
Vetrarstarf Seljakirkju er að hefj-
ast. Allar upplýsingar um það eru á
heimasíðu kirkjunnar seljakirkja.is
eða í síma kirkjunnar 567 0110. Ver-
ið velkomin.
Upphaf sunnudagaskól-
ans í Árbæjarkirkju
Sunnudaginn 3. september kl.
11.00 hefst sunnudagaskólinn eftir
Grafarvogskirkja
KIRKJUSTARF
EÐ
A
LD
A
G
A
R
Laugavegur
Audi A4 avant quattro 3,2
skráður 02/05 ek. 9.000
verð 5.450.000 kr.
Laugavegur
MMC Pajero 3,2 GLX
skráður 02/01 ek. 86.000
verð 2.490.000 kr.
Laugavegur
Audi A4 2,0
skráður 04/04 ek. 40.000
verð 2.890.000 kr.