Morgunblaðið - 30.09.2006, Síða 9
Haust- og vetrarlisti
Greenhouse
Verið
velkomin
að sækja
frían
bækling.
Opið í dag,
laugardag,
kl. 10-14 í
Rauðagerði
26
s. 588 1259
www.green-house.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 9
FRÉTTIR
GÍSLI Helgason hefur sent yfirlýs-
ingu til miðstjórnar Frjálslynda
flokksins um að hann hafi ákveðið
að gefa kost á sér til framboðs fyrir
flokkinn í næstu kosningum. Hann
sækist eftir 1. sæti í Reykjavíkur-
kjördæmi norður eða 2. sæti í
Reykjavíkurkjördæmi suður.
Ég hef starfað að málefnum
Frjálslynda flokksins síðan í janúar
2003, þegar ég gekk í flokkinn. Ég
tel að margháttuð reynsla mín
muni nýtast málstað okkar vel.“
Gísli gefur kost á
sér hjá F-listanum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Dúnúlpur,
vattúlpur,
hlýjar vetrarkápur
Nýr samkvæmisfatnaður
Bæjarlind 6
sími 554 7030
Eddufelli
sími 557 1730
HAUSTBÓKAMARKAÐUR
SKJALDBORGAR
MÖRKINNI 1
Barnabækur, fræðslubækur fyrir
börn og unglinga, unglingabækur,
skáldsögur, handbækur, dulræn
efni, ævisögur, krossgátublöð
og margt fleira.
Allir sem versla fá gjafabók
Haustbókamarkaður Skjaldborgar er
upplagður grundvöllur fyrir jólagjafakaup
eða einfaldlega gott tækifæri til að
komast í paradís bókaormsins.
Opið virka daga 9-17, nema fimmtudag 9-20,
laugardaga 10-17 og sunnudaga 12-16.
haust
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 40, s. 561 1690
Ný sending
af buxum
frá
Fisléttar - Harðar - Sterkar
Léttustu ferðatöskurnar
Pantanir óskast sóttar.
Smáralind, sími 5288800,
www.drangey.is
Bjútý“ taska
algjör snilld
5 ára ábyrgð
Laugavegi 63 • s: 551 4422
Skoðið úrvalið á laxdal.is
Peysuúrval
ÖRYRKJABANDALAG Íslands
hefur kært til fjármálaráðherra
málsmeðferð Söfnunarsjóðs líf-
eyrisréttinda og Lífeyrissjóðs
bænda varðandi ákvörðun um
skerðingu örorkulífeyris. Telur Ör-
yrkjabandalagið að sjóðunum beri
að fara að stjórnsýslulögum þar sem
þeir starfi samkvæmt sérlögum og
fjármálaráðherra skipi í stjórnir
þeirra.
Fram kemur að starfsemi sjóð-
anna sé opinber starfsemi og að
ákvarðanir sjóðsins teljist til stjórn-
valdsákvarðana í skilningi stjórn-
sýslulaga. Hafi rannsóknarregla
stjórnsýslulaga verið brotin og and-
mælaréttur viðkomandi, auk þess
sem leiðbeiningaskylda stjórnvalda
hafi ekki verið virt.
Trygging gegn áföllum
Fram kemur að þær breytingar
sem gerðar hafa verið á samþykkt-
um sjóðanna á undanförnum mán-
uðum og staðfestar hafi verið af
fjármálaráðuneytinu og heimili
skerðingar á lífeyrisgreiðslum eigi
sér ekki stoð í lögum. „Í því sam-
bandi má benda á að sjóðsfélagar,
þar á meðal örorkulífeyrisþegar,
hafa greitt iðgjöld til sjóðsins og
stofnað til réttinda. Meðal þeirra
réttinda sem þeir hafa keypt hjá
sjóðnum er trygging gegn áföllum
vegna örorku. Hafi sjóðsfélagi með
greiðslu iðgjalda áunnið sér slíkan
rétt þá er sá réttur úrskurðaður á
grundvelli upplýsinga, meðal annars
upplýsinga um örorkustig sjóðs-
félagans. Á lífeyrisgreiðslur til ör-
yrkja sem úrskurðaðar hafa verið,
hafa framlög frá Tryggingastofnun
ríkisins samkvæmt lögum um al-
mannatryggingar engin áhrif, enda
væri slík regla til þess fallin að koma
í veg fyrir að löggjafinn gæti bætt
hag örorkulífeyrisþega, þar sem all-
ar slíkar úrbætur rynnu beint í vasa
lífeyrissjóðsins. Óumdeilt er að rétt-
ur til lífeyris, sem til hefur verið
stofnað og áfallinn er, nýtur verndar
samkvæmt eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar og telst sá ör-
orkulífeyrisréttur sem hér er til um-
fjöllunar til þess háttar lífeyrisrétt-
inda sem verndar njóta sem eign,“
segir síðan.
ÖBÍ telur lífeyrissjóði
brjóta stjórnsýslulög
MIKILL áhugi er á Náttúruskóla
Reykjavíkur, og annar skólinn ekki
eftirspurn. Í skólanum er unnið með
nemendum og kennurum í grunn-
skólum úti í náttúrunni, en markmið-
ið er að opna augu þátttakenda fyrir
umhverfi sínu og að nýta græn svæði
Reykjavíkur til fræðslu fyrir skóla-
börn, eins og fram kemur á vef Um-
hverfissviðs Reykjavíkur.
Skólinn er þriggja ára þróunar- og
samstarfsverkefni umhverfissviðs
Reykjavíkur, Menntasviðs Reykja-
víkur, Skógræktarfélags Reykjavík-
ur og Landverndar.
Svo virðist sem vaxandi áhugi sé í
samfélaginu á lýðheilsu, hreyfingu
og útiveru. Fleiri og fleiri kennarar
koma auga á möguleika útikennslu
til að ná settum markmiðum um ein-
staklingsmiðað nám, segir á vef um-
hverfissviðs.
Ratleikur fyrir unglinga
Í Náttúruskólanum fá yngstu
börnin fræðslu í Grasagarðinum, og
nemendur í 5.-7. bekk fá heildag-
sheimsókn í Heiðmörk. Fyrir nem-
endur unglingastigsins og kennara
þeirra er svo boðið upp á stærðfræði
ratleik í Elliðaárdal, en leikurinn
byggist á fjölbreyttum stærðfræði-
verkefnum þar sem fléttað er saman
umhverfi og sögu Elliðaárdalsins og
uppgötvunum helstu stærðfræðinga
sögunnar. Ratleikurinn reynir því
ekki aðeins á rökgreind heldur einn-
ig á tilfinningar, samstarf o.fl.
Náttúruskóli vinsæll
Fréttir á SMS