Morgunblaðið - 30.09.2006, Page 10
10 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RUDOLPH W. Giuliani, eða Rudy
eins og samlandar hans kalla hann
oftast, varð þjóðhetja eftir hryðju-
verkaárásirnar á Bandaríkin 11.
september 2001. Þessi umdeildi
borgarstjóri New York stóð sjálfur í
eldlínunni, óð reykinn og sements-
rykið við Tvíburaturnana og varð
vitni að því þegar fólk stökk út um
glugga skýjakljúfanna til að forða sér
undan brennandi logunum. Rudy
birtist heimsbyggðinni allri á sjón-
varpsskjánum stuttu eftir árásirnar
og lét engan bilbug á sér finna.
Fyrir árásirnar hefði fólk líklega
ekki veðjað á að Rudy myndi ná að
höfða svo mjög til fólks. Hann var að
vísu öflugur leiðtogi sem borgarstjóri
í New York og var af mörgum talinn
hafa bjargað borginni frá því að
verða glæpum endanlega að bráð.
Tilfinningasemi og samúð höfðu ekki
þótt hans sterkustu persónueinkenni
í þeirri baráttu. Hann fullyrti frá
fyrstu stundu að hryðjuverkaárás-
irnar myndu hafa þær afleiðingar
einar, að Bandaríkin yrðu sterkari en
áður, tilfinningalega, pólitískt og
efnahagslega, og enginn maður er
talinn hafa stappað jafn vel stálinu í
landa sína og hann. Bandaríska
fréttatímaritið Time valdi hann sem
mann ársins 2001 og æ síðan hefur
verið litið mjög til hans sem framtíð-
arleiðtoga landsins. Hann hefur t.d.
verið sterklega orðaður við forseta-
framboð fyrir repúblikana árið 2008.
Leiðtogi þarf skýr markmið
Giuliani hélt fyrirlestur á ráð-
stefnu Símans í tilefni 100 ára afmæl-
is fyrirtækisins í gær. Fyrirlestur
hans fjallaði fyrst og fremst um hvað
fælist í því að vera sterkur leiðtogi.
Það er umfjöllunarefni sem hann hef-
ur áður velt fyrir sér, t.d. í bókinni
Leadership, sem kom út árið 2002.
Giuliani sagðist sjálfur hafa lært
mest af samferðamönnum sínum í
gegnum tíðina. Fyrst og fremst yrði
leiðtogi að hafa skýr markmið. Leið-
togi væri skipstjórinn, sem ávallt
þyrfti að vita hvert ætti að stefna.
Margir féllu í þá gryfju að fara að
haga sér í samræmi við skoðana-
kannanir, en slíkir menn væru ekki
leiðtogar, heldur leikarar.
Giuliani eyddi töluverðum tíma í að
ræða Ronald Reagan, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, og sagði hann
hafa verið dæmigerðan leiðtoga, sem
vék ekki frá sannfæringu sinni þrátt
fyrir úrtölur. Afleiðingin hefði verið
sú að hann hefði haft veruleg áhrif og
vísaði Giuliani m.a. til orða Gorbach-
evs, fyrrum Sovétleiðtoga, um að
Sovétríkin hefðu án efa haldið velli
lengur en ella, ef ekki hefði verið fyr-
ir stjórnmál Reagans. Giuliani sagði
að frá tíð Reagans hefði forsetatíð
annarra forseta einkennst af við-
brögðum við þeim hugmyndum sem
hann hefði haldið á lofti. Bill Clinton
hefði t.d. orðið að ráðast í endurbæt-
ur á félagslega kerfinu í anda þeirrar
stefnu sem Reagan hefði fyrstur sett
fram.
Annar leiðtogi, sem hafði skýra
sýn að mati Giulianis, var Martin
Luther King, sem trúði því að hægt
væri að knýja fram breytt viðhorf í
kynþáttamálum án ofbeldis.
Annar kostur, sem prýðir góða
leiðtoga, er jákvæðni, að mati Giul-
ianis. „Leiðtogar verða að bjóða
lausnir,“ sagði hann. Bæði Hitler og
bin Laden hefðu gert sér grein fyrir
mætti þess að bjóða upp á lausnir,
þótt þeirra leiðir hefðu verið ofbeldis-
fullar og hræðilegar.
Þá sagði Giuliani að til að vera leið-
togi þyrfti hugrekki. Því mætti hins
vegar ekki rugla saman við óttaleysi,
því óttalaus leiðtogi væri ekki góður.
Leiðtogar þyrftu hins vegar að geta
yfirstigið ótta sinn. Galdurinn væri
undirbúningur, sem er enn eitt að-
alsmerki góðra leiðtoga. Þar nefndi
Giuliani 11. september til sögunnar
og sagði að þótt enginn hefði nokkru
sinni getað séð það fyrir að flugvélar
yrðu notaðar sem vopn til að fella
Tvíburaturnana hefðu yfirvöld í New
York undirbúið sig rækilega fyrir alls
konar hörmungar. Borgaryfirvöld
hefðu átt áætlanir um rýmingu Man-
hattan, sem hefðu komið sér vel, sem
og áætlanir um viðbrögð sjúkrahúsa
ef kæmi til miltisbrandsfaraldurs,
svo dæmi séu nefnd.
Giuliani sagði að leiðtogar mættu
ekki safna að sér já-mönnum, heldur
yrðu þeir að hafa greiðan aðgang að
ólíkum sjónarmiðum til að geta tekið
réttar ákvarðanir. Aðal góðs leiðtoga
væri að gera sér grein fyrir hvar
hann væri veikur fyrir og láta sam-
starfsmenn bæta það upp.
Loks nefndi Giuliani að leiðtogi
mætti aldrei gleyma að hann stjórn-
aði fólki, hann mætti ekki líta á fólk
sem tölur.
Framboð stór ákvörðun
Aðspurður sagðist Giuliani ekki
geta svarað því hvort hann ætlaði að
bjóða sig fram til embættis forseta
Bandaríkjanna árið 2008. Hann sagð-
ist ætla að einbeita sér að því að
tryggja Repúblikanaflokknum góða
kosningu í þingkosningunum í nóv-
ember og þegar það væri að baki
gæti hann tekið ákvörðun um eigin
framtíð. Framboð væri stór ákvörð-
un sem hann tæki ekki nema að vel
yfirlögðu ráði og í samráði við konu
sína, Judith. Hann sagði að nýr for-
seti myndi þurfa að takast á við fjöl-
mörg verkefni, t.d. að halda áfram að
tryggja varnir gegn hryðjuverkum,
bæta bandaríska heilbrigðiskerfið og
huga að orkulindum framtíðarinnar.
Giuliani sagði jafnframt að Banda-
ríkjamenn þyrftu sífellt að huga að
því að skýra fyrir umheiminum hvers
vegna þeir hefðu brugðist við hryðju-
verkunum á þann hátt sem þeir
gerðu. Þeir hefðu talið sig örugga
fyrir árásum, en 11. september 2001
hefði komið gat í brynju þeirra.
„Bandaríkjamenn eru óþolinmóðir
og ágengir. Þeir vildu ekki bíða
næstu árásar, heldur leita hryðju-
verkamennina uppi.“
Ekki við Clinton
eða Bush að sakast
Á blaðamannafundi eftir fyrirlest-
urinn sagði Giuliani meðal annars að
fáránlegar samsæriskenningar um
11. september, sem ganga m.a. út á
að bandarísk stjórnvöld hafi staðið að
baki árásunum, trufluðu sig. Það
væri alveg ljóst að al-Qaeda bæri
ábyrgð á árásunum. Bæði Bill Clint-
on og George W. Bush hefðu gert allt
sem í þeirra valdi stóð til að koma í
veg fyrir slíka árás. „Hvorugur
þeirra er spámaður og þeir gátu ekki
séð þetta fyrir, miðað við þær upplýs-
ingar sem þeir höfðu,“ sagði hann og
bætti við að alltaf væri hægt að finna
einhver mistök eftir á. Þar vísaði
hann m.a. til þess að eftir árás Jap-
ana á Pearl Harbor í síðari heims-
styrjöldinni hefðu menn séð að ýms-
ar vísbendingar hefði mátt greina um
árásina fyrirfram. En jafnvel þótt
Roosevelt forseti hefði ekki áttað sig
á þeim, þá bæri hann enga sök á því
hvernig fór. Á sama hátt væri ekki
við Clinton eða Bush að sakast nú.
Giuliani sagði að í sínum huga ríkti
mikið þakklæti í garð Íslendinga
vegna stuðnings íslenskra stjórn-
valda við innrásina í Írak.
„Leiðtogar verða að bjóða lausnir“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Giuliani „Bandaríkjamenn eru óþolinmóðir og ágengir. Þeir vildu ekki
bíða næstu árásar, heldur leita hryðjuverkamennina uppi.“
Í HNOTSKURN
»Rudy Giuliani var borg-arstjóri í New York þegar
hryðjuverkaárásirnar voru
gerðar 11. september 2001 og
þótti sameina þjóðina á þeim
erfiðu tímum.
»Giuliani tekur fljótlegaákvörðun um hvort hann
ætlar að bjóða sig fram til
embættis forseta Bandaríkj-
anna árið 2008.
Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, var ræðumaður á ráðstefnu í tilefni 100 ára afmælis Símans. Hann varð þjóð-
hetja í Bandaríkjunum eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 og sumir spá því að hann verði næsti forseti landsins.
Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur
rsv@mbl.is
BENEDIKT
Bjarnason gefur
kost á sér í 3.–4.
sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í
Norðvest-
urkjördæmi fyrir
næstu alþing-
iskosningar. Bene-
dikt er á lokaári í
viðskiptafræði við
Háskólann á Bifröst og samhliða því
vinnur hann að uppbyggingu verk-
efnisins Sjávarþorpið Suðureyri.
Benedikt er fæddur og uppalinn á
Suðureyri við Súgandafjörð í Ísa-
fjarðarbæ. Hann hefur unnið flest
þau störf í fiskvinnslu og sjó-
mennsku sem eru í boði á Vest-
fjörðum. Hann stundaði nám í raf-
eindavirkjun við Iðnskólann til 1992
og vann á rafeindaverkstæði Pólsins
á Ísafirði á 1992–2001 er hann flutti
til Danmerkur þar sem hann var við
nám bæði í Odense teknikum og
Syddansk Universitet.
„Ástæður framboðs míns er óbil-
andi trú mín á uppbyggingu lands-
byggðarinnar. Ég tel að tækifæri
landsbyggðarinnar hafi verið að
aukast á seinni árum. Með mark-
vissri og metnaðarfullri stefnu í,
samgöngu-, atvinnu- og mennta-
málum mun samkeppnisstaða NV-
kjördæmis styrkjast verulega og
verða sambærileg við önnur kjör-
dæmi. Einnig er ég mjög áhuga-
samur um færslu á verkefnum frá
ríki til sveitarstjórna,“ segir í yf-
irlýsingu frá Benedikt.
Stefnir á 3.–4. sæti
í NV-kjördæmi
Benedikt
Bjarnason
FULLKOMIN LÖGUN OG LEIKNI