Morgunblaðið - 30.09.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 19
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ALLT var upp í loft í gær á heims-
meistaramótinu í skák milli Rússans
Víktor Kramníks og Búlgarans Ve-
selin Topalovs og alls ekki víst, að
því yrði haldið áfram. Var ástæðan
sú, að Topalov og aðstoðarmenn
hans báru fram formlega kvörtun
vegna tíðra klósettferða Kramníks
meðan á skákunum stóð, allt að 50 í
hverri skák, en á salernunum eru
engar eftirlitsmyndavélar. Höfðu
stórmeistararnir báðir í hótunum
um að hætta einvíginu.
Einvígi þeirra Kramníks og Topa-
lovs fer fram í Elista, höfuðborg
rússneska sjálfstjórnarlýðveldisins
Kalmýkíu, og hafa fyrstu fjórar
skákirnar farið þannig, að Kramník
hefur sigrað í tveimur og tveimur
lauk með jafntefli. Í gær átti að taka
til við fimmtu skákina af alls 12 en
það dróst vegna kvörtunar Topalovs
og aðstoðarmanna hans til áfrýjun-
arnefndar FIDE, Alþjóðaskáksam-
bandsins. Í því segir meðal annars:
„Eftir hvern leik fer Kramník í
hvíldarherbergi sitt og þaðan á kló-
settið. Í hverri skák til þessa hefur
hann farið 25 sinnum í hvíldarher-
bergið og 50 sinnum á klósettið. Þar
eru engar eftirlitsmyndavélar. Sam-
bærilegar tölur fyrir Topalev eru
átta sinnum í hvíldarherbergið og
fjórum sinnum á klósettið.
Tökum dæmi úr þriðju skákinni:
15.54 – Kramník leikur 15. leik
15.55 – Fer á klósettið
15.56 – Kemur af klósettinu
15.57 – Fer á klósettið
15.59 – Kemur af klósettinu
16.03 – Fer á klósettið
16.04 – Kemur af klósettinu
16.07 – Kemur og leikur 16. leik.
Þannig hefur þetta gengið fyrir
sig í öllum skákunum og því er eðli-
legt að spyrja: Hve oft þarf að fara á
klósettið í venjulegri skák? Svarið er
í mesta lagi 5 til 10 sinnum, ekki 50
sinnum.“
Í bréfinu segir Topalov eða
fulltrúi hans, að þessar tíðu klósett-
ferðir Kramníks séu ekki bara und-
arlegar, heldur beinlínis grunsam-
legar, og þess er krafist, að
skákmönnunum verði bannað að
nota klósettin í hvíldarherbergjun-
um. Þess í stað noti þeir almennings-
salerni í húsinu og verði fylgt þangað
í hvert skipti.
Keppendur noti
sama klósettið
Áfrýjunarnefnd FIDE tók kvört-
unina fyrir í gær og komst að þeirri
niðurstöðu, að klósettferðir Kram-
níks væru að vísu eitthvað orðum
auknar en samþykkti samt að banna
skákmönnunum að nota klósettin í
hvíldarherbergjunum. Skyldu þeir
fara á almenningssalernið, sem yrði
þá frátekið fyrir þá eina.
Topalov og hans menn voru ekki
ánægðir með þennan úrskurð og
bentu á, að samkvæmt honum gæti
Kramník farið eftirlitslaus á nýja
klósettið svo oft sem hann vildi. Lág-
markskrafa væri, að skákmönnun-
um yrði fylgt á klósettið hverju sinni.
Topalov tók fram, að yrði tryggt,
að engum brögðum væri beitt, væri
hann tilbúinn til að halda einvíginu
áfram en hann myndi hins vegar
ekki taka í hönd Kramník fyrir leiki.
Viðbrögð Kramníks og aðstoðar-
manna hans við kvörtun Topalovs og
úrskurði áfrýjunarnefndarinnar
voru afar hörð. Segir Kramník, að
um sé að ræða freklega móðgun við
persónu sína og minnir á, að um nú-
verandi aðstöðu hafi verið sérstak-
lega samið við FIDE. Ástæðan fyrir
tíðum klósettferðum sé sú, að honum
finnist gott að ganga um er hann
hugsar um skákina. Hvíldarherberg-
ið sé lítið og því gangi hann fram og
aftur um það og klósettið líka.
Hættur nema
allt verði óbreytt
Kramník og aðstoðarmenn hans
segja, að Topalov hafi í sínu liði dul-
sálfræðing og fleira fólk, sem virðist
ekki hafa annað hlutverk en að trufla
og móðga Kramník og alveg sérstak-
lega vegna þess, að honum hafi
gengið betur en Topalov til þessa.
Segir Kramník, að þetta gangi þvert
gegn siðareglum FIDE og hann sak-
ar áfrýjunarnefndina um að ganga
erinda Topalovs. Vegna þess sé
henni ekki treystandi og skipta verði
nú þegar um alla nefndarmennina.
Kramník sagði að síðustu, að hann
myndi ekki tefla meira fyrr en búið
væri að tryggja, að staðið yrði við
umsamda skilmála, það er að segja,
að hann fengi að nota klósettið í
hvíldarherbergi sínu þegar honum
þóknaðist.
Þannig stóðu leikar í gær og blés
þá ekki byrlega fyrir því markmiði
með einvíginu að binda enda á klofn-
inginn, sem verið hefur innan skák-
heimsins frá 1993.
Bindur deila um klósettferðir
Kramníks enda á skákeinvígið?
Sagður fara allt að 50
sinnum eftirlitslaust á
klósettið í hverri skák
AP
Tilraun til sátta Veselin Topalov (t.h.) og Vladímír Kramník tefldu fyrstu
skákina í einvígi sínu 23. september sl. Þeir eru báðir 31 árs að aldri.
Í HNOTSKURN
» Skákheimurinn hefur ver-ið klofinn frá því Garrí
Kasparov sagði skilið við
FIDE árið 1993.
» Síðan hafa heimsmeist-ararnir verið tveir en
markmiðið með einvíginu var
að binda enda á klofninginn
og sameina titlana.
» Búlgarski stórmeistarinnTopalov er stigahæsti
skákmaður í heimi og margir
spáðu honum sigri í einvíginu.
Kramník gekk þó betur í
fyrstu fjórum skákunum.
London. AFP. | Yfirvöld í Grant-
ham, heimabæ Margaret Thatc-
her, fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands, eru andvíg því, að
komið verði upp styttu af „Járn-
frúnni“.
Það var óháður bæjarfulltrúi í
Grantham, sem átti hugmyndina
um að heiðra Thatcher með þess-
um hætti, og lagði hann jafnframt
til, að styttunni yrði komið fyrir á
miðju hringtorgi. Það er nú ein-
mitt það, sem mönnum líst ekki á,
en margir óttast, að styttan á
þessum stað og gláp á hana geti
valdið stórslysum. Þá benda þeir
líka á, að Thatcher sjálf vilji ekki
styttu af sér og hafi lagt til, að sín
yrði best minnst með einhverju
nytsamlegu, til dæmis bókasafni.
Varað við Thatcher-styttu
Vínarborg
s: 570 2790www.baendaferdir.is
30. nóvember - 3. desember
Vínarborg er mikil tónlistarborg og skartar sínu fegursta á
aðventunni, enda eru jólamarkaðir á mörgum stöðum í borginni sem
er nokkuð óvenjulegt. Í þessari ferð ætlum við að fara í skoðunarferð
um borgina, þar sem sagan og tónlistin eru í fyrirrúmi. Skoðum
Stefánsdómkirkjuna og förum í hina stórkostlegu höll Schönbrunn
þar sem m.a. keisaraynjan Sisi bjó á sínum tíma. Hægt er að komast
á Vínartónleika þar sem tónlist eftir Mozart og Strauss er spiluð.
Gist á hinu glæsilega Radisson SAS Palais Hótel. Lúxusferð til
fallegrar borgar sem hefur upp á margt að bjóða!
Fararstjóri: Hin eina sanna Diddú
Verð: 98.860 kr. á mann í tvíbýli.
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
Lúxus- Jólaferð
Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISMANNA
Í REYKJAVÍK
S
Æ
T
IÐ
Guðlaugur Þór
www.gudlaugurthor.is
gudlaugurthor@gudlaugurthor.is
Opnum sunnudaginn 1. okt.
kosningaskrifstofu
Gu›laugs fiórs
a› Lágmúla 9
Kl. 14.00-17.00:
Létt tónlist leikin fyrir gesti.
Sýnt úr leikritinu Hafið bláa fyrir börnin.
Allir velkomnir - kaffi og veitingar.
Stuðningsfólk
Kraftur til framtíðar