Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 31
ns lands.
t frá því
unni til,
s og
a breyt-
unu menn
eið frá
r til skip-
nýja
ssonar,
apríl
nd til að
öryggis-
rslu í
ið föstu,
r sé
TO né
arn-
ndaríkj-
gar taki
gum.
varð sam-
ndanna
með því
var
er og tek-
Banda-
var ís-
mars
breyt-
rsamn-
henni,
fur verið
andi brott
r í dag.
rnarsam-
amanna á
ið tals-
ds og
mræmi
tt sæta
raun ekki
æði ís-
við vild-
il eilífð-
daríkin.
Nú hefur þessi málflutningur
gengið sér til húðar eins og svo
margt annað, sem andstæðingar
þessa farsæla friðarsamstarfs hafa
sagt.
Meðal málsvara varnarsam-
starfsins hefur ekki alltaf ríkt sam-
staða um stefnuna gagnvart
Bandaríkjastjórn. Sumir í okkar
hópi vildu, að Bandaríkjamenn
greiddu leigu fyrir aðstöðu sína
hér. Við, sem vorum ósammála
„aronskunni“ eins og þessi stefna
var kölluð, þótti ekki sæmandi að
gera öryggi þjóðarinnar að féþúfu,
auk þess sem við töldum, að með of
miklum efnahagslegum tengslum
yrði erfiðara en ella að sjá á bak
varnarliðinu, þegar það hyrfi af
landi brott.
Efnahagur íslensku þjóðarinnar
hefur batnað jafnt og þétt, frá því
varnarliðið kom og Íslendingar
voru meðal þeirra þjóða, sem
fengu hvað mestan fjárhagslegan
stuðning undir merkjum Marshall-
aðstoðarinnar. Raunar má segja,
að með tilliti til efnahagsáhrifa af
brottför varnarliðsins hefði ekki
verið unnt að velja heppilegri tíma
en þá, sem við nú lifum.
IV.
Á tímum kalda stríðsins byggð-
ist varnarstefna Vesturlanda á
framvörnum. Herafla var skipað
þannig, að með skömmu viðbragði
væri unnt að bregast við árás og
síðan mundu átök stigmagnast, þar
til gripið yrði til kjarnorkvopna, ef
í nauðir ræki. Í samræmi við þessa
stefnu var óvígur her í Vestur-
Þýskalandi og lagt höfuðkapp á að
snúast gegn sókn af Kólaskaga út
á Norður-Atlantshaf eins norð-
arlega og fært þótti.
Nú byggist varnarstefna Vest-
urlanda á því að unnt sé að bregð-
ast við hættu, sem getur verið af
margvíslegum toga og er herafl-
anum skipað samkvæmt því, hann
er sveigjanlegur og hreyfanlegur.
Hið nýja samkomulag Íslands og
Bandaríkjanna um framkvæmd
varnarsamningsins tekur mið af
þessu nýja hættumati. Hluta hins
hreyfanlega herafla er ætlað það
sérstaka hlutverk að gæta öryggis
Íslands og um það liggja fyrir
áætlanir, sem hafa verið kynntar
íslenskum stjórnvöldum.
Að mínu mati er þetta viðunandi
niðurstaða á langvinnum við-
ræðum fulltrúa þjóðanna um fram-
kvæmd varnarsamningsins.
Ákvæði um reglulegt samráð bæði
stjórnmálamanna og embættis-
manna í hinu nýja samkomulagi er
mikilvægur liður í að tryggja
kynningu á íslenskum sjón-
armiðum gagnvart hinum aðila
samningsins. Í öllu samstarfi er
mikilvægt að leggja rækt við slíka
þætti.
Þá er það mikilvægur liður í
þessu samkomulagi við Banda-
ríkjamenn, að þar er veitt afdrátt-
arlaust pólitískt umboð til sam-
starfs lögreglustofnana landanna
og landhelgisgæslu og strand-
gæslu. Þetta samstarf verið fyrir
hendi um langt árabil en nú er það
rammað inn í samkomulag, sem
ríkisstjórnir landanna gera.
V.
Samkomulagið við Bandaríkja-
stjórn lýtur aðeins að hluta þess,
sem hafa þarf í huga, þegar brugð-
ist er við hættu nú á tímum og þeg-
ar stjórnvöld gera ráðstafanir til
að tryggja öryggi borgara sinna.
Hættan um þessar mundir felst
ekki í því, að ríki hafi uppi áform
um að beita herafla sínum til að
færa út landamæri sín í Evrópu.
Hættan stendur hinum almenna
borgara mun nær og felst í því, að
innan einstakra ríkja kunna að
leynast einstaklingar eða hópar
manna, sem vilja vinna sam-
borgum sínum tjón.
Franska ríkisstjórnin gaf nýlega
út skýrslu um öryggisráðstafanir
gegn hryðjuverkum í Frakklandi.
Þar er hættan greind á þann veg,
að Frakkar geti búist við viðvar-
andi hættu af ofbeldisverkum, sem
undirbúin séu með leynd og unnin
af einstaklingum eða samtökum
þeirra en ekki af fulltrúum ein-
hverra ríkja og þess vegna sé erf-
iðara en ella að sjá þau fyrir.
Ódæðismennirnir stjórnist af hug-
myndafræði í þágu alþjóðlegs mál-
staðar, sem eigi sér sögulegar ræt-
ur. Eitt af markmiðum þeirra sé að
drepa eins marga franska borgara
– eða útlendinga í Frakklandi – og
kostur sé. Allar árasir þjóni mál-
staðnum. Mestu skipti, að þær hafi
sem þyngst sálræn áhrif á rík-
isvaldið og allan almenning.
Í tilefni af lyktum viðræðnanna
við Bandaríkin gaf íslenska rík-
isstjórnin út yfirlýsingu um að-
gerðir, sem hún mun vinna að í því
skyni að treysta og efla öryggi
þjóðarinnar.
Við endurskoðun laga um al-
mannavarnir verður hugað að því
að koma á fót miðstöð, þar sem
tengdir verði saman allir aðilar
sem koma að öryggismálum innan-
lands, hvort heldur vegna nátt-
úruhamfara eða vegna hættu af
mannavöldum.
Samstarf lögreglu, landhelg-
isgæslu, slökkviliða og björg-
unarsveita verður aukið, þannig að
tryggja megi þátttöku varaliðs
hvarvetna þar sem þess kann að
verða þörf í landinu. Á vettvangi
dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
hefur verið farið yfir hugmyndir
um skipulag og skipan slíks vara-
liðs, en án lagaheimilda verður
ekki ráðist í að koma því á fót.
Tryggt verður að íslensk yf-
irvöld hafi lögheimildir til náins
samstarfs við stjórnvöld og al-
þjóðastofnanir, þar sem skipst er á
trúnaðarupplýsingum. Hér er um
það að ræða, að hér á landi starfi
öryggis- og greiningarþjónusta
innan embættis ríkislögreglu-
stjóra, sem hafi ótvíræðar heim-
ildir til samstarfs við sambæri-
legar stofnanir annarra landa. Án
upplýsinga af því tagi, sem slíkar
stofnanir afla, er tómt mál að tala
um nægilega burði íslenskra yf-
irvalda til að standa undir þeim
kröfum, sem til þeirra ber að gera.
Unnið verður að því að koma á
öflugu, öruggu fjarskiptakerfi,
Tetra kerfi, sem nær til landsins
alls. Þetta kerfi er nú nýtt á höf-
uðborgarsvæðinu og í rúmlega 200
km radíus frá því, á Ísafirði og Ak-
ureyri. Markmiðið er að sendum
verði fjölgað nægilega til að kerfið
nýtist sem öryggistæki fyrir alla
landsmenn.
Innan skamms fær Landhelg-
isgæsla Íslands þriðju þyrluna og
undir lok október hina fjórðu. Nú
er verið að skoða tilboð í smíði nýs
varðskips og leitað hefur verið til-
boða í nýja flugvél fyrir landhelg-
isgæsluna. Stefnt er að því að efna
hinn 2. nóvember næstkomandi til
alþjóðlegrar ráðstefnu sérfræð-
inga til að ræða áhrif þeirra breyt-
inga, sem verða vegna sífellt fleiri
ferða risaolíuskipa og gasflutn-
ingaskipa frá Barentshafi til Norð-
ur-Ameríku, á öryggi á Norður-
Atlantshafi og þar með verkefni
landhelgisgæslunnar.
VI.
Hér hefur saga varnarsam-
starfsins verið rakin í stuttu máli,
lýst hefur verið megininntaki sam-
komulags Íslands og Bandaríkj-
anna um fyrirkomulag varnarmála
við brotthvarf varnarliðsins og lýst
auknum verkefnum íslenskra
stofnana á sviði öryggismála.
Á tímum kalda stríðsins og raun-
ar allt fram á þennan dag hafa um-
ræður um íslensk öryggis- og varn-
armál öðrum þræði tekið mið af
þeirri trú sumra stjórnmálamanna,
að önnur lögmál í öryggismálum
gildi um Ísland en önnur lönd. Hér
þurfi ekki að gera sambærilegar
ráðstafanir á þessu sviði og gerðar
eru í öðrum löndum. Ég hef jafnan
andmælt þessum sjónarmiðum og
talið þau byggjast á óskhyggju en
ekki raunsæju mati á stað-
reyndum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft
sögulegu forystuhlutverki að
gegna við mótun og framkvæmd
ábyrgrar íslenskrar stefnu í utan-
ríkis- og öryggismálum. Sjálfstæð-
isflokknum má enn treysta til þess-
arar forystu eins og góður árangur
í þessum áfanga sýnir. Brýnt er, að
á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og
undir forystu hans verði áfram
hugað að farsælli stefnu um stöðu
Íslands í alþjóðasamstarfi og bestu
og skynsamlegustu leiðum til að
tryggja öryggi þjóðarinnar.
ryggið ber að tryggja
» Brýnt er, að á vettvangi
Sjálfstæðisflokksins
og undir forystu hans
verði áfram hugað
að farsælli stefnu um
stöðu Íslands í
alþjóðasamstarfi …
Höfundur er dóms- og
kirkjumálaráðherra.
g að
nd-
koma
u
að
fi fólk
lokks-
n þar
að al-
m yngri
st allar
frá
m í sím-
g það
ð að
kkinn.
ór
r hann
nnum
mið
m sjálf-
ja árás
i verið
pi.
rvöll
óð-
a í
mörg-
ki róað-
und
rna
tillt
gginn,
um
ta
vel
u fyrir
ð þeim
ra
lþing-
a dag
rr en
kki
dómsmálaráðherrans vopnuð
bareflum og með hjálma á höfði
ruddist út úr þinghúsinu og tók
að berja hvern þann sem fyrir
varð í sama mund og lögreglan
kastaði táragasi á mannfjöldann.
Þá tóku ýmsir á móti og voru
sumir dæmdir fyrir það.
Þetta er vert að rifja upp í til-
efni að skrifum Þórs um vopna-
búr kommúnista.
Þær víðtæku persónunjósnir
með símahlerunum og skrásetn-
ingu á skoðunum og lífshlaupi
hundraða ef ekki þúsunda manna,
sem Þór gerir grein fyrir og virð-
ist stoltur af, voru stundaðar ára-
tugum saman eins og nú hefur
verið upplýst og prófessorinn
staðfestir. Frumkvæðið hafði
sjálfur dómsmálaráðherrann og
sérvaldir trúnaðarmenn hans inn-
an lögreglunnar unnu verkið. Að
sögn Þórs var það ekki aðeins
ráðherrann sem fékk í hendur
upplýsingar er þannig var aflað
heldur líka sendiráð Bandaríkj-
anna við Laufásveg.
Lýsingin sem Þór gefur á allri
þessari starfsemi minnir helst á
ástandið í Bandaríkjunum á
McCarthy tímanum þegar stjórn-
völd þar vestra sáu kommúnista í
hverju horni og spöruðu ekki of-
sóknir á hendur öllum sem þau
höfðu grunaða um vafasamar
skoðanir. Það var þá sem varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna
hrópaði: „Rússarnir koma, Rúss-
arnir koma,“ stökk síðan út um
glugga og framdi þannig sjálfs-
morð. Allri skýrslugerð snuðr-
aranna fyrir bandaríska sendi-
ráðið mætti einnig líkja við
persónunjósnir STASI í Austur-
Þýskalandi á sínum tíma.
En hver varð eftirtekjan hér af
öllum þessum símahlerunum og
langvarandi persónunjósnum?
Leiddu þær í ljós að menn væru
að safna að sér vopnum eða ógn-
uðu með öðrum hætti öryggi rík-
isins? Sýndi sig að einhverjir sem
hlerað var hjá sinntu njósna-
starfsemi fyrir Rússa?
Svarið við öllum slíkum spurn-
ingum er nei og aftur nei. Eða
dettur nokkrum í hug að dóms-
málaráðherrann og „öryggisþjón-
ustan“ í lögreglustöðinni hefðu
stungið þvílíkum upplýsingum
undir stól og látið vera að nota
annan eins hvalreka á pólitíska
andstæðinga sína?
Hjákátlegastur er svo lokakafl-
inn í þessu sorglega leikriti, það
að öll gögnin hafi verið brennd
árið 1976 af því að helsti trún-
aðarmaður dómsmálaráðherrans
hjá lögreglunni hélt sig vera að
verða hæstaréttardómara. Fari
Þór Whitehead rétt með hvað
þetta varðar sýnir það svo ekki
verður um villst að spæjararnir
töldu sér ekki henta að leyni-
skýrslur þeirra yrðu dregnar
fram í dagsljósið.
En er eðlilegt að einn lög-
reglustjóri láti kveikja í gögnum
embættis síns, sem varða meintar
ógnir við öryggi ríkisins, af því
hann heldur sig vera að hverfa úr
starfi og nýr maður að taka við?
Svo er að sjálfsögðu ekki. Brenn-
an sýnir að hið mikla leynd-
arskjalasafn var hvorki eign lög-
reglustjóraembættisins né
íslenska ríkisins heldur einkaeign
örfárra útvalinna vina dóms-
málaráðherrans. Íslensk tunga á
mörg orð yfir slíkan hóp en ég
veigra mér við að nota þau vegna
þess að ég tel að nú skipti mestu
máli að hófsamir menn í öllum
stjórnmálaflokkum taki höndum
saman um að leggja á borðið það
sem enn er þó eftir af gögnum um
hleranirnar og sameinist um að
forða því í bráð og lengd að þau
ósköp sem Þór Whitehead lýsir
verði endurtekin.
ead
ft-
öll-
er-
ndi
Höfundur er fyrrverandi ritstjóri
og fyrrverandi alþingismaður.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
KRISTÍN Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, opnaði í gær nýjan ör-
tæknikjarna í HÍ, sem er sá fyrsti
sinnar tegundar hérlendis. Um er að
ræða 200 m² rannsóknaraðstöðu í
húsi verkfræði- og raunvís-
indadeildar (VR III) við Suðurgötu. Í
þessu rými hefur m.a. verið inn-
réttað 50 m² hreinherbergi, en það
er aðstaða þar sem rykmengun í
andrúmslofti er haldið í lágmarki.
Þetta er nauðsynlegt þegar fram-
leiða á hluti sem eru jafn stórir eða
minni en einstök rykkorn.
Stærstu áfangarnir byggja á
þekkingu á hinu smæsta
Við opnunina minnti Kristín á að í al-
þjóðlega rannsóknarumhverfinu
væri nú búist við því að stærstu
áfangarnir byggist í vaxandi mæli á
aukinni þekkingu á hinu smæsta.
„Nanótækni eða örtækni er ört vax-
andi þekkingarsvið um allan heim,“
sagði Kristín og benti á að smætt-
unarforskeytið „nanó“ væri ættað úr
grísku, en gríska orðið „nanos“ þýð-
ir dvergur. „En þótt tæknin sé
kennd við dvergstærðir eru vænt-
ingar okkar um árangur risavaxn-
ar,“ sagði Kristín
Benti hún á að í upphafi hefði
nanótæknin að mestu verið bundin
við eðlisfræði og efnavísindi, en
hefði nú einnig rutt sig til rúms í
heilbrigðis- og lífvísindum. „Hagnýt-
ing örtækninnar byggir þannig í
auknum mæli á þverfræðilegu sam-
starfi og samvinnu milli háskóla,
stofnana og fyrirtækja.“
Að sögn Kristjáns Leóssonar, vís-
indamanns við Raunvísindastofnun
HÍ, markar opnun kjarnans áfanga í
umfangsmikilli tækjauppbyggingu í
örtækni (míkró- og nanótækni) á Ís-
landi sem staðið hefur frá árinu
2004, með þátttöku stjórnvalda, HÍ,
Raunvísindastofnunar Háskólans,
Iðntæknistofnunar, Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins og
Háskólans í Reykjavík. Segir hann
tækjakosti hafa verið deilt á tvo ör-
tæknikjarna og er annar þeirra í HÍ
en hinn á Iðntæknistofnun.
Morgunblaðið/Ásdís
Vígsla Kristín Ingólfsdóttir rektor klippti á þar til gerðan borða og vígði með því hinn nýja örtæknikjarna HÍ. Við
hlið hennar er Kristján Leósson, vísindamaður hjá Raunvísindastofnun HÍ og umsjónarmaður hreinherbergisins.
Ört vaxandi þekkingarsvið
Í HNOTSKURN
»Örtæknikjarninn mun nýt-ast í rannsóknum í eðl-
isfræði, efnafræði, verkfræði
og lífvísindum.
»Þegar hafa nokkur íslensksprotafyrirtæki lýst áhuga
á samstarfi við örtæknikjarn-
ann.
»Ráðgert er að heildar-fjárfesting í tækjabúnaði
fyrir örtæknikjarna annars
vegar í HÍ og hins vegar á Iðn-
tæknistofnun fyrir árin 2004–
2007 muni nema um 150 millj-
ónum króna.