Morgunblaðið - 30.09.2006, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 33
www.vitusbeing.dk
NÁM Í DANMÖRKU
Í boði er:
Á ensku og dönsku
• Byggingafræði
• Byggingaiðnfræði
• Markaðshagfræði
Á ensku
• Framleiðslutæknifræði
• Útflutningstæknifræði
Á dönsku
• Véltækni
• Véltæknifræði
• Landmælingar
• Tölvutæknifræði
• Aðgangsnámskeið
• Byggingatæknifræði
Hjá VITUS BERING í Horsens
bjóðum við upp á margvíslega
menntun.
Fulltrúi skólans Johan Eli Ellendersen,
verður í Reykjavík á biluni 27.september -
7.október 2006.
Þeir sem hafa áhuga geta haft samband
við Johan Eli Ellendersen, með því að hringja
beint í Johan í síma í 845 8715.
UNIVERSITY COLLEGE
VITUS BERING DENMARK
CHR. M. OESTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 7625 5000
FAX: +45 7625 5803
EMAIL: CVU@VITUSBERING.DK
V I T U S B E R I N G D E N M A R K
U N I V E R S I T Y C O L L E G E
Sagt var: Íbúafjöldinn er nú 1.600 manns miðað við 1.450 á síðasta ári.
RÉTT VÆRI: Íbúar eru nú 1.600 en voru 1.450 í fyrra.
(Hér er ekki um neina viðmiðun að ræða.)
Gætum tungunnar
Það eru forréttindi að fá að vinna
með ungu fólki. Sú orka og hug-
myndaauðgi sem býr
með unglingum er okk-
ur fullorðna fólkinu til
fyrirmyndar. Helgina
29. september til 1. októ-
ber fer fram landsmót
Samfés í Reykjavík, en
þar koma saman rúm-
lega 380 unglingar úr fé-
lagsmiðstöðvum af öllu
landinu og vinna að
skapandi, fræðandi og
gefandi verkefnum.
Landsmótið er glæsilegt
dæmi um að það er í
góðu lagi með ungt fólk
á Íslandi.
Rannsóknir hafa sýnt að virk þátt-
taka í skipulögðu félags- og íþrótta-
starfi er besta forvörn sem völ er á.
Félagsmiðstöðvar eru lykiltæki í hönd-
um sveitarfélaga til að móta virkt og
öflugt forvarnarstarf. Það eru 90 fé-
lagsmiðstöðvar aðilar að Samfés og
eru þær dreifðar um allt land. Sveit-
arfélög hafa af framsýni fjárfest í hús-
næði og búnaði fyrir ungt fólk og sífellt
er félagsmiðstöðvum að fjölga og að-
staða þeirra að batna. Félagsmið-
stöðvar eru vettvangur félagsstarfs
ungs fólks þar sem allir geta tekið þátt
án skilyrða. Sveitarfélögin eiga að nýta
þá fjárfestingu sem ligg-
ur í félagsmiðstöðvunum
betur, ekki bara aðstöð-
una sem hefur verið
sköpuð heldur líka þann
auð sem liggur í sér-
þekkingu starfsfólks og
orku unglinganna.
Möguleikar til þróunar
starfseminnar eru nær
óteljandi, t.d. hvað varð-
ar samstarf við aðrar
stofnanir sveitarfélaga
sem og samstarf við aðra
aðila sem starfa með
ungu fólki.
Við þurfum að gera enn betur í að
hlusta á ungt fólk og virða skoðanir
þeirra. Við þurfum að vinna með þeim
frekar en að vinna fyrir þau og við
þurfum að gefa þeim tækifæri til að
hafa raunveruleg áhrif. Skref í þessa
átt er Ungmennaráð Samfés, en það
verður stofnað formlega á Landsmóti
Samfés sunnudaginn 1. október. Í
ráðinu verða fulltrúar frá öllum lands-
hlutum og eru það ungmennin sjálf
sem hafa unnið undirbúningsvinnuna.
Á þennan máta fær ungt fólk raun-
veruleg tækifæri til að hafa áhrif á
starfsemi Samfés og um leið vettvang
til að ræða þau mál sem þau telja mik-
ilvæg hverju sinni. Við þurfum að gefa
okkur tíma til að hlusta á raddir þeirra
sem erfa skulu land.
Ungt fólk tekur þátt
Ólafur Þór Ólafsson skrifar í
tilefni af landsmóti Samfés í
Reykjavík sem haldið er nú um
helgina
» Félagsmiðstöðvareru lykiltæki í hönd-
um sveitarfélaga til að
móta virkt og öflugt for-
varnarstarf.
Ólafur Þór Ólafsson
Höfundur er formaður Samfés.
SAMFYLKINGIN var stofnuð
af fjórum stjórn-
málaflokkum, sem
vildu mynda stóran
stjórnmálaflokk til að
skapa velferðarríki
jafnaðarmanna, á Ís-
landi.
Við, sem stofn-
uðum Samfylkinguna,
vissum vel að
áherslur og hefðir
gömlu flokkanna
báru í sér ólíka af-
stöðu til ýmissa mála.
Við vissum líka að
stór flokkur verður
að rúma ólíkar skoð-
anir um bestu leiðir
að markmiðum sín-
um. Til að auðvelda
það mynduðum við
síðar framtíðarhópa,
sem ákvarða áherslur
og leiðir, með lýð-
ræðislegri samræðu-
pólitík í stað vald-
beitingar.
Eitt þeirra mála, sem skiptar
skoðanir eru um, er afstaða til
virkjana og stóriðju. Framtíð-
arhópur um „Auðlindanýtingu í
sátt við umhverfið“ kynnti á
flokksstjórnarfundi í sumar víð-
tæka og vel útfærða tíu síðna
skýrslu um efnistök og stefnu
flokksins á því sviði. Þar var sam-
komulag um að ekki skyldi farin
sú leið að tilgreina einstaka staði
þar sem leyft yrði eða bannað að
raska náttúrunni heldur yrðu sam-
þykktir almennir mælikvarðar.
Álit flokksins á hverri framkvæmd
réðst svo af því hvernig hún stæð-
ist mælikvarða Samfylkingarinnar
um náttúruvernd. Með þetta vega-
nesti átti framtíðarhópurinn að
leggja lokahönd á plaggið svo
hægt yrði að samþykkja það á
flokkstjórnarfundi.
Prédikarapólitík
Það næsta sem fréttist var að
þingflokkurinn hafði ráðið mann
til að skrifa stefnu flokksins um
náttúruvernd. Hann er að sögn
hinn mætasti maður, lærður leik-
ari með svo einbeittan vilja til
náttúruverndar, að það jafnast á
við að flokkurinn fengi Gunnar í
Krossinum til að skrifa fyrir sig
stefnu um fóstureyðingar og mál-
efni samkynhneigðra.
Öllum samþykktum flokks-
stjórnar um efnistök var þar með
viðsnúið og innleitt það verklag að
sá hópur, sem sterkasta stöðu hef-
ur hvert sinn, keyri yfir aðra.
Samræðustjórnmálum flokksins
var breytt í prédikarapólitík þing-
flokksins.
Ef það verklag verður að reglu
mun Samfylkinguna skorta það
víðsýni, sem þarf til, að vera stór
og breið stjórnmálahreyfing.
Stefnan verður þröngsýnn rétt-
trúnaður prédikarans. Þá kann
Samfylkingin ekki að vera stór
flokkur.
Silfur Egils
Í sjónvarpsviðtali var kynnt sem
stefna Samfylkingarinnar að eng-
ar framkvæmdir, sem tengdust
stóriðju, yrðu leyfðar næstu fimm
ár. Og ekki yrði rými til viðbótar
nema fyrir eitt álver í landinu.
Með skírskotun í Kyoto-bókun
hefur þeirri fullyrðingu verið and-
mælt, m.a. af fyrrum iðn-
aðarráðherra.
Spurt er: Ef Hafnfirðingar
samþykkja stækkun álvers í
Straumsvík mun Samfylkingin þá
fallast á það? Eða mun hún
hafna því og bjóða
Reyknesingum og
Þingeyingum að bí-
tast um björgina?
Eða mun hún segja
öllum að berjast við
alla, eins og Egill
vildi forðum?
Ég óttast að í slík-
um átökum vakni sú
hugsun að besta ráð-
ið fyrir þau kjör-
dæmi og önnur, sé
að þingflokkur Sam-
fylkingarinnar verði
sem minnstur. Það
væri afspyrnuvont
örvæntingarráð og
dýrkeypt. Aftur á
móti gæti orðið gott
ráð að endurnýja
eitthvað í þingliði
flokksins. Til þess
gefst lag í komandi
prófkjörum.
Kann Samfylkingin
ekki að vera stór?
Birgir Dýrfjörð skrifar um
stefnu Samfylkingarinnar
Birgir Dýrfjörð
» Samræðu-stjórn-
málum flokksins
var breytt í pré-
dikarapólitík
þingflokksins.
Höfundur situr í flokksstjórn
Samfylkingarinnar.
Fréttir
í tölvupósti
mbl.is