Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 46
Staðurstund
Opnunarmynd alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar fjallar um El-
ísabetu II og fær fjórar stjörnur
frá gagnrýnanda. » 48
kvikmynd
Platan Romm Tomm Tomm
kemur út í dag en hún hefur að
geyma frumsamda tónlist Tóm-
asar R. Einarssonar. » 48
tónlist
Nýja platan frá hljómsveitinni
Reykjavík! fær fimm stjörnur,
fullt hús, hjá gagnrýnanda
Morgunblaðsins. » 50
tónlist
Flóki Guðmundsson fjallar um
kasakska sjónvarpsmanninn
Borat sem ekki er allur þar sem
hann er séður. » 51
af listum
Madonna kemst í nýjasta hefti
Heimsmetabókar Guiness sem
tekjuhæsta söngkona í heimi og
tekur við af Britney Spears. » 50
fólk
|laugardagur|30. 9. 2006| mbl.is
Heljarinnar Queen-hátíð erhaldin nú um helgina áskemmtistaðnum Pla-yers í Kópavogi. Það er
að sjálfsögðu aðdáendaklúbbur
Queen hér á landi sem stendur að
baki hátíðinni en klúbburinn heldur
um þessar mundir bæði upp á 10 ára
afmæli sitt og 60 ára afmæli Freddys
Mercurys, fyrrverandi söngvara
Queen, sem lést úr eyðni árið 1991.
Aðalsprauta Queen-klúbbsins er
Sigurður Sigurgeirsson en hann varð
undireins aðdáandi Queen þegar
hann heyrði lagið „Bohemian Rhap-
sody“ aðeins 13 ára gamall árið 1976.
„Queen hefur fylgt mér allar götur
síðan. Ég hef gifst, eignast börn og
gengið í gegnum fjölmargar breyt-
ingar á lífsleiðinni en Queen hefur
alltaf verið til staðar. Mér tókst mjög
fljótlega að smita systur mína og
mág af Queen-áhuganum og svo
ákváðum við sumarið 1996 að stofna
klúbbinn – sama ár og Freddy Merc-
ury hefði orðið fimmtugur.“
Féll eins og alki við fyrsta lag
Hvað er það við Queen sem heillar
þig?
„Ég veit það eiginlega ekki. Það
var bara eitthvað sem gerðist. Ætli
þetta sé ekki eins og með alkana sem
falla við fyrsta sopa, ég féll við fyrsta
lag og kemst ekki út úr þessu.“
Hver er besta Queenplatan?
„Þær eru náttúrlega allar mjög
góðar en meistarastykkið er að sjálf-
sögðu A Night at the Opera. Svo held
ég mikið upp á A Kind of Magic.“
En það er ekki bara tónlistin sem
heillar, tískan og áran í kringum
bandið heillar líka, ekki satt?
„Jú, tískan spilar stóra rullu og
þar er Freddy Mercury kannski
áhrifamestur. Maður tekur til dæmis
eftir því núna þegar við erum að
halda þessa hátíð að þeir sem klæða
sig upp (og það gera þónokkrir) leita
oftast í fataskáp Freddys Mercurys.
Ég veit til dæmis um nokkra sem
voru á dögunum í Taílandi og notuðu
tækifærið til að láta sérsníða á sig
búning.“
Brian May veit af klúbbnum
Vita eftirlifandi meðlimir Queen
að það er aðdáendaklúbbur hér á
landi?
„Brian May [gítarleikari] veit það
alla vega. Ég fór á tónleika með
Queen og Paul Rodgers í fyrrasumar
og hitti þá Brian May baksviðs. Ég
kynnti mig og sagði honum frá
klúbbnum og honum þótti þetta allt
mjög merkilegt. Hann skrifaði svo
fyrir mig kveðju til klúbbsins sem við
geymum eins og gull,“ segir Sig-
urður og hlær.
Afmælishátíðin hófst formlega í
gær þegar hollenska Queen-bandið
Miracle lék á Players en í dag fer að-
aldagskrá hátíðarinnar fram. Með-
limir klúbbsins hittast þá yfir tónlist
og myndböndum hljómsveitarinnar
en um kvöldið verður síðan blásið til
tónleika þar sem Miracle stígur aftur
á svið ásamt Freddy Mercury Ís-
lands, sjálfum Eiríki Haukssyni.
Dansleikurinn er öllum opinn.
Queen-arar
sameinist
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afmælisbörn Stofnmeðlimir Queen-klúbbsins sem fagnar tvöföldu afmæli. Sigurður Sigurgeirsson, Vilborg
Hjaltested, Margrét Sigurgeirsdóttir og Tómas Jóhannesson. Queen-hátíð verður á Players um helgina.
BÓKAFORLAGIÐ Veröld hefur gengið frá
samningum um útgáfu á nýrri glæpasögu
Yrsu Sigurðardóttur í Bandaríkjunum,
Bretlandi, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu, Grikk-
landi og Póllandi. Fyrir utan heimalönd for-
laganna verður bókin m.a. sett á markað í
Ástralíu, Austurríki, Indlandi, Kanada og
allri rómönsku Ameríku þar eð víðtækur
söluréttur er tryggður í sumum samning-
anna.
HarperCollins gefur bókina út í
Bandaríkjunum og Kanada
Yrsa leggur um þessar mundir lokahönd á
nýju bókina sem er önnur glæpasaga henn-
ar. Sú fyrsta, Þriðja táknið, varð ein sölu-
hæsta bók ársins 2005 hérlendis og fer nú á
markað á 24 tungumálum í yfir eitt hundrað
löndum í öllum byggðum heimsálfum
Það er forlagið Santillana sem gefur hina
óútgefnu bók út á Spáni. Santillana er einn-
ig með dótturfélög í öllum löndum hins
spænskumælandi heims. Í fyrstu verður
glæpasagan gefin út á þess vegum í Mexíkó,
Kólumbíu, Argentínu og Chile en hin löndin
þrettán munu fylgja í kjölfarið.
Það var næststærsta bókaútgáfa Bret-
lands sem tryggði sér í fyrra réttinn að út-
gáfunni þarlendis, Hodder Headline. Fær
útgáfurisinn einnig útgáfu- og sölurétt á
bókum Yrsu í gjörvöllu breska heimsveld-
inu.
Í Bandaríkjunum og Kanada er það Har-
perCollins sem gefur söguna út, eins og
reyndar Þriðja táknið, forlagið Sperling &
Kupfer hefur tryggt sér útgáfuréttinn á
Ítalíu og Fischer-forlagið í Þýskalandi.
Þriðja táknið kemur út á Ítölsku í lok októ-
ber og nýja bókin að ári.
Nýja bókin er væntanleg í verslanir á Ís-
landi í nóvember. Að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Veröld fjallar hún um
óhugnanlegt morð sem er framið á nýju
heilsuhóteli á Snæfellsnesi sumarið 2006.
Þar sem hótelið stendur var áður bóndabær
og kemur í ljós að hann á sér forsögu reim-
leika.
Grunur fellur á eiganda hótelsins og ræð-
ur hann Þóru Guðmundsdóttur sem lög-
mann, en hana þekkja lesendur Þriðja
táknsins. Eftirgrennslanir Þóru leiða í ljós
að fyrir mörgum áratugum áttu sér stað
hörmulegir atburðir á bænum er hafa alla
tíð legið í þagnargildi.
Bókmenntir | Útgáfurétturinn að óútgefinni glæpasögu Yrsu Sigurðardóttur selst vel
Samningar tryggja dreifingu
bókarinnar um víða veröld
Morgunblaðið/Einar Falur
Lesin um allan heim Óútkomin glæpasaga
Yrsu Sigurðardóttur verður þýdd á ýmis
tungumál og dreift um veröld víða.