Morgunblaðið - 30.09.2006, Page 52
52 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞEIR SEGJA AÐ ÞESSI MYND SÉ
SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VIÐ ERUM
FJÖLSKYLDA ER
ÞAÐ EKKI? JÁ, Á MJÖG
RANGAN OG
SORGLEGAN HÁTT
AÐ VERA
MEÐ BARNA-
PÍU HEFUR
GERT MIG AÐ
ÖÐRUM
MANNI
ÞÉR FINNST ÞAÐ BARA
KALLI... ÞÚ ERT NEFNILEGA
ALLTAF AÐ LEITA EFTIR
STÖÐUTÁKNUM...
ÞÚ VILT BARA
EITTHVAÐ SEM
LÆTUR KRAKKANA Í
HVERFINU LÍTA UPP
TIL ÞÍN
ÞÉR HEFÐI
GENGIÐ BETUR
MEÐ ÁRITUÐUM
HAFNABOLTA
KALVIN, VEISTU HVAÐA
DAGUR ER?
NEI,
HVAÐA
DAGUR ER
Í DAG?
MJÖG MERKILEGUR DAGUR
VÁ, Í
ALVÖRUNNI!
SEGÐU MÉR!
VILTU
AÐ ÉG
SEGI
ÞÉR?
SEGÐU
MÉR!
SEGÐU
MÉR!
GERÐU
ÞAÐ
!!!
ÉG DAG ER
DAGURINN
SEM ÞÚ FERÐ
Í BAÐ!
SUMT GAMALT FÓLK ER
ALLTAF AÐ VÆLA YFIR ÞVÍ AÐ
KRAKKARNIR ÞEIRRA KOMI
ALDREI AÐ HEIMSÆKJA ÞAU.
ÞETTA FÓLK FÆR MIG BARA
TIL ÞESS AÐ HLÆJA
MÉR VAR SAGT AÐ EF ÉG
VILDI EIGA FARSÆLT HJÓNABAND
ÞÁ ÞYRFTI ÉG AÐ VINNA Í ÞVÍ...
OG
TRÚÐU
MÉR...
ÉG HEF EKKI
GERT ANNAÐ Í
ÞESSU HJÓNABANDI
EN AÐ VINNA!
ÉG ER AÐ
FARA FRÁ
ÞÉR CLARK!
OG Á MEÐAN
ÉG MAN...
NÆRBUXURNAR
EIGA AÐ
VERA UNDIR
BUXUNUM!
ÉG ÞORI EKKI AÐ FARA Í
VINNUNA Á MORGUN. HVAÐ ÆTLI FÓLK
SEGI EIGINLEGA UM HÁRIÐ Á MÉR?
EKKI LÁTA
SVONA, ÞAÐ
ER EKKERT
AÐ HÁRINU
Á ÞÉR
ÞÉR FINNST ÞAÐ
BARA VEGNA ÞESS
AÐ ÞÚ ERT KARL-
MAÐUR. ÉG VIL BARA
AÐ ÞÚ SETJIR ÞIG Í
ÞETTA HLUTVERK
JÆJA HÆ ADDA,
ROSALEGA ER FÍNT
Á ÞÉR HÁRIÐ
TAKK, MIG
LANGAÐI
BARA AÐ
BREYTA TIL
ÉG GET
EKKI
HÆTT
ÁN
KÓNGULÓARMANNSINS
ER ENGIN MYND...
...OG
LEIKFERILLINN
ÞINN FER Í
VASKINN
EF ÞÚ HELDUR
AÐ HANN SKIPTI
MIG MEIRA MÁLI
EN ÞÚ...
ÞÁ ÞEKKIRÐU MIG EKKI NÓGU
VEL, ÞRÁTT FYRIR AÐ HAFA
VERIÐ GIFTUR MÉR Í NOKKUR ÁR
Sveitasöngvarinn Keith Urbanhefur lýst því yfir að hann og
kvikmyndaleikkonan Nicole Kid-
man hafi fengið bakþanka nokkrum
vikum fyrir brúðkaup sitt í júní.
„Við þurftum að takast á við
spurninguna: Erum
við að gera það
rétta? segir hann í
viðtali við breska
blaðið Daily Mirror.
Hann segir þau þó
hamingjusamari en
nokkru sinni fyrr og
að hann hafi getað
veitt Kidman umhverfi sem hún geti
blómstrað í.
Fólk folk@mbl.is
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Hverjir bjuggu
í skálanum?
Verkefnið fólst í því að kynn-ast högum íslenskrafræðimanna sem búa ogstarfa erlendis, og varpa
ljósi á hvernig starfsferill þeirra hef-
ur þróast og ekki síst hvaða áhrifa-
þættir stýra vali þeirra á búsetu-
landi,“ segir Páll Rafnar
Þorsteinsson um nýja rannsókn þar
sem grafist er fyrir um ástæður
þess að Íslendingar með dokt-
orsmenntun snúa ekki aftur til Ís-
lands að námi loknu.
Rannís stóð að rannsókninni sem
hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna. Páll mun kynna
skýrslu sína um verkefnið í Reykja-
víkurAkademíunni í JL-húsinu á
mánudag kl. 12.30. Hans Kristján
Guðmundsson, forstöðumaður
Rannís, stjórnar umræðum.
Rannsóknin fór þannig fram að
tekin voru viðtöl við fjölbreyttan hóp
Íslendinga sem lokið hafa dokt-
orsmenntun og lifa og starfa erlend-
is: „Í hámenntuðum Íslendingum er-
lendis býr mikill mannauður sem
ekki er nýttur á Íslandi, en með
rannsókninni var leitast við að kom-
ast að því með hvaða hætti mætti
virkja þekkingu þessa fólks til hags-
bóta fyrir íslenskt samfélag.“
Páll nefnir að umræðan um
menntamannaflótta (e. brain drain)
hafi verið áberandi erlendis und-
anfarin ár og að einhverju leyti bor-
ið á góma hérlendis líka: „Ljóst er
að tækifærin eru harla fá á Íslandi í
samanburði við það sem gerist víða
erlendis. Það skýrir vissulega hvers
vegna margir fræðimenn kjósa að
freista gæfunnar annars staðar en
hér.“
Í rannsókninni var litið til fjölda
þátta sem haft geta áhrif á það hvort
fólk snýr aftur til Íslands að loknu
námi eður ei: „Við litum meðal ann-
ars til þess hvaða augum þetta fólk
lítur Ísland og hver tengsl þess eru
við íslenskt vísindasamfélag. Eitt af
því sem rannsóknin leiddi í ljós var
að flestir sem við var rætt höfðu
áhuga á að hafa betri fagleg tengsl
við Ísland, en margir töldu sig ekki
hafa forsendur til þess af ýmsum
sökum, s.s. vegna þess að hér skorti
viðunandi starfsaðstöðu eða hrein-
lega að á Íslandi séu ekki stundaðar
rannsóknir á þeirra sérsviði,“ út-
skýrir Páll. „Það vekur strax upp þá
spurningu hvort ekki sé ástæða til
að efla samstarf við íslenska fræði-
menn erlendis og um leið auðga ís-
lenskt vísindaumhverfi.“
Páll nefnir að félags- og menning-
arlegir þættir virðist skipta máli
varðandi val fólks á búsetustað og
starfsvettvangi. Rannsóknin leiddi
einnig í ljós að viðmælendur Páls
bera sterk tilfinningaleg tengsl til
Íslands: „Það eru umfram allt þessi
tilfinningalegu tengsl sem verða til
þess að fólk vill helst hafa a.m.k.
annan fótinn á Íslandi en fagleg
sjónarmið standa oft í vegi fyrir
því.“
I ljósi niðurstaðna rannsókn-
arinnar segir Páll áhugavert að
skoða möguleika á því að virkja ís-
lenska fræðimenn erlendis til þátt-
töku í íslensku fræðasamfélagi án
þess að þeir þurfi að flytjast hingað
til lands: „Þeir gætu til dæmis
stundað einhverjar rannsóknir við
stofnanir hérlendis eða sinnt
kennslu í skemmri tíma, en haldið
stöðum sínum erlendis þar sem er
betri aðstaða til að stunda rann-
sóknir og þar sem fræðimennirnir
búa ekki síður að góðu tengslaneti
við kollega sína, sem um leið getur
verið arðvænlegt að auka aðgang ís-
lensks fræðasamfélags að.“
Menntun | Rannsókn á ástæðum þess að
íslenskir doktorsnemar ílengjast erlendis
Íslenskur mann-
auður erlendis
Páll Rafnar
Þorsteinsson
fæddist í Reykja-
vík 1977. Hann
lauk stúdents-
prófi frá MH
1998, BA-prófi í
heimspeki frá
Háskóla Íslands
2002 og meist-
araprófi í stjórnmálaheimspeki frá
London School of Economics 2003.
Hann leggur nú stund á dokt-
orsnám við Cambridge-háskóla.