Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SparBíó 450 KR. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 1:45 OG 2 LAUGARDAG OG SUNNUDAG Í SAM
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
/ ÁLFABAKKI
HARSH TIMES kl. 6 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára.
HARSH TIMES VIP kl. 8 - 10:30
NACHO LIBRE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 1:45 - 4 - 6 LEYFÐ
THE WILD m/ensku tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
THE ALIBI kl. 10:10 B.i.16.ára.
STEP UP kl. 5:50 - 8 B.i. 7.ára.
BÖRN kl. 4 - 8:30 - 10:30 B.i.12.ára.
BÖRN VIP kl. 2 - 6
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 1:45 - 3:50 LEYFÐ
OVER THE HEDGE m/Ísl. tali kl. 1:45 - 3:50 LEYFÐ
THE PROPOSITION kl. 8 B.i. 16.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 Tilboð 400.kr kl. 10 B.i. 12.ára.
BÍLAR m/Ísl. tali kl. 1:45 LEYFÐ
ÞRJÓTUR 16:00
ALLT ANNAÐ DÆMI 16:00
TJÓN 18:00
HINIR BJARTSÝNU 18:00
TÍMI DRUKKNU HESTANNA 18:15
SKJALDBÖKUR GETA FLOGIÐ 20:00
DRAUMUR Á ÞORLÁKSMESSUNÓTT 20:00
MEZCAL 20:10
ÉG ER 20:20
UMSÁTUR 22:10
SUMARHÖLLIN 22:15
SÓLIN 22:25
HÁSKÓLABÍÓ 29. SEPT.
HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolabio.is
MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA
“NAPOLEON DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
eeee
VJV
eeee
Roger Ebert
"Sláandi og
ógleymanleg!"
eee
E.B.G. Topp5.is
E.T. kvikmyndir.is
ELDFIM OG TÖFF HÖRKUMYND MEÐ CHRISTIAN BALE
„AMERICAN PSYCHO“, „BATMAN BEGINS“
OG EVA LONGORIA „DESPERATE HOUSEWIVES“
FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG
„THE FAST AND THE FURIOUS“
Ekki missa
af fyndnustu
Walt Disney
teiknimynd
haustins.
margir eigendur hunda
þrífi ekki upp eftir
hunda sína. Víkverji
var á göngu um göngu-
stíg í Fossvogi á dög-
unum, þegar hann
gekk fram á mann sem
var með gulan hund
sinn í bandi – að horfa á
hann munda sig til að
skíta á gangstétt fyrir
framan inngang á húsi.
Þegar maðurinn sá
Víkverja koma, spyrnti
hann fæti lauslega í aft-
urenda hundsins, sem
var þó ekki á þeim bux-
unum að hætta við
hálfnað verk – heldur
tók skref inn á grasflöt og skeit þar.
Eigandinn var skömmustulegur,
þegar Víkverji sagði að þetta væri
skemmtileg sjón, eða hitt þó heldur.
Eigandinn þreif ekki upp eftir hund
sinn. Daginn eftir sá Víkverji konu
með svartan hund, þar sem hún beið
eftir honum á meðan hann var að
skíta á leiksvæði barna fyrir neðan
Grímsbæ.
Hún þreif heldur ekki upp eftir
hund sinn. Það er það sama með
ökuníðinga og marga hundaeig-
endur, að þeir bera ekki virðingu
fyrir öðrum og umhverfi sínu – er
skítsama um allt.
Það er ljóst að þaðer afar erfitt að
stöðva hraðakstur á
götum í þéttbýli, eða á
þjóðvegum landsins –
þegar ekki er tekið
nægilega hart á þeim
ökuníðingum sem aka
ekki eftir settum
reglum og bera ekki
virðingu fyrir öðrum í
umferðinni. Það er
sama hvað mikið er
rætt og ritað um hrað-
akstur og hvað alvar-
leg slysin verða í um-
ferðinni, er stór hópur
ungmenna sem lætur
ekki segjast, heldur
herða hraðakstur. Víkverji hefur áð-
ur bent á að það sé sterkari leikur
hjá lögreglunni að einbeita sér að því
að stöðva ökuníðinga, heldur en að
liggja í leyni til að sekta borgara fyr-
ir smávægileg umferðarlagabrot.
x x x
Það er annar hópur en ökuníð-ingar sem lætur ekki segjast.
Það er fámennur hópur hundaeig-
enda, sem þrífur ekki eftir hunda
sína þegar þeir skíta um víðan völl í
íbúðahverfum, þar sem börn og ung-
lingar eru að leik. Víkverji er orðinn
langþreyttur á því að horfa upp á að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að
föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið.
(Lk. 12, 32.)
Í dag er laugardagur
30. september, 273. dag-
ur ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Léleg dagskrá
ÉG vil taka undir með konu
sem skrifaði Velvakanda
um föstudagsmyndina sem
sýnd var 15. sept. sl. Því-
líkur viðbjóður og ég skil
ekki að manni sé boðið upp
á þetta þegar börn og ung-
lingar eru enn þá vakandi.
Eins finnst mér dag-
skráin hjá Sjónvarpinu í
sumar hafa verið til
skammar, sérstaklega um
helgar. Ég skil ekki þessa
skoðanakönnun sem sýnir ánægju
landsmanna á dagskránni, sér-
staklega um helgar.
Nú eru sýndir þættir á laug-
ardags- og sunnudagskvöldum,
spjallþættir sem eru hundleiðinlegir,
en það er þáttur Evu Maríu og Jóns
Ólafssonar. Finnst þetta ekki spenn-
andi dagskrárefni. Þessir þættir
komast ekki í hálfkvisti við Út og
suður sem voru skemmtilegir þætt-
ir.
Mér finnst nýi útvarpsstjórinn
vera að eyðileggja þetta allt saman.
Þóra Skarphéðinsdóttir.
Strætisvagnar – svar óskast
ER það möguleiki að strætisvagn
nr. 12 sé 1 og hálfa mínútu frá Mjódd
að Sæbraut, stoppustöð á móts við
Húsasmiðju?
Það virðist enginn millivegur vera
á þessu strætisvagnakerfi, vagnarn-
ir eru ýmist á undan áætlun eða of
seinir.
Stebba.
Ómar og Ríkissjónvarpið
ÉG vil láta reka Ómar Ragnarsson
frá Sjónvarpinu því að mínu mati
hefur hann misnotað aðstöðu sína og
finnst mér hann ekki hafa komið
heiðarlega fram.
Eins var ég hneykslaður að sjá
fyrrverandi forseta í göngunni hans
Ómars, hún hefði betur sleppt því.
Ég er ekki á móti mótmælunum sem
slíkum en finnst þau ganga út í öfgar
á lokastigum málsins þegar búið er
að eyða milljörðum í verkið.
Það var grein í Morgunblaðinu
eftir Kristófer Má Kristjánsson um
málefni ríkisútvarpsins. Hann vill
láta loka því.
En ég spyr: Á hvað á landsbyggð-
arfólk að hlusta eða horfa? Eigum
við ekki að vera til lengur? Það heyr-
ist ekki í neinu útvarpi eða sést sjón-
varp nema Ríkissjónvarpið á mörg-
un stöðum úti á landi.
Kristinn V. Bjarnason,
Á í Dölum.
Hundur í óskilum
HUNDUR fannst í Öskjuhlíðinni 27.
sept. sl. Hugsanlegir eigendur geta
vitjað hans í síma 869 6416.
Baddi er týndur
BADDI er svart-
ur og hvítur
fress. Hann týnd-
ist frá Drápuhlíð
10 21. september
sl. Hann er ólar-
laus en eyrna-
merktur: 04-G4.
Þeir sem hafa
orðið hans varir
vinsamlega hafið samband í síma
692 2392.
Morgunblaðið/Kristinn
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það krefst líklega nokkurs hugrekkis að
komast í gegnum daginn í dag með reisn.
Til þess að það takist þarftu að loka allar
neikvæðu raddirnar út úr höfðinu á þér
og segja þeim að þú munir ekki hlusta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er tilfinningalega gefandi að vera
með manneskju sem er spennt og ham-
ingjusöm yfir að vera með manni. Þú átt
eftir að velta því fyrir þér hvers vegna
þú valdir áður að vera jafn mikið og raun
bar vitni með einhverjum sem virtist
ekki hafa það mikinn áhuga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ætli ástin sé eins konar fíkn? Ef ekki,
hvers vegna fær maður fráhvarfsein-
kenni þegar maður er fjarri ástvini sín-
um of lengi? Lækningin kemur í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbanum finnst að ef hann leitar út
fyrir hópinn eftir stuðningi sé hann á
einhvern hátt að bregðast kjarnanum.
Raunverulegir vinir vilja að maður finni
stuðning og hamingju, þó að það sé hjá
einhverjum öðrum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Væri það ekki skrýtið ef maður gerði
sjálfan sig og sínar eigin þarfir að for-
gangsatriði og sinnti ekki öllu öðru fyrr
en maður væri viss um að þeim hefði
verið mætt? Afstaða himintunglanna
styður ljónið í að finna þannig nálgun.
Þegar Venus er í vog-
armerki, berst hún fyrir
réttlæti og jafnvægi öllum
til handa. Ef einhver hefur
verið með of marga bolta á
lofti upp á síðkastið, eiga
réttu boltarnir eftir að lenda í kjöltunni á
honum á réttum stað á réttum tíma á
meðan hinir svífa í loftinu. Kannski er
það ekkert kraftaverk. Hugsanlega minn-
ir orka vogarinnar okkur á það, að biðja
um hjálp þegar við þurfum á henni að
halda og létta undir þar sem við getum.
stjörnuspá
Holiday Mathis