Morgunblaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 60
Í HNOTSKURN
»Forráðamenn FL Grouplýstu því yfir fyrir nokkru
að þeir stefndu að því að setja
Icelandair á markað. Sl. vor
var nefnt í því sambandi en
ekki varð af því þar sem að-
stæður á markaði voru ekki
hagstæðar.
»Síðan það var hefur hluta-bréfamarkaðurinn tekið
við sér og sala á farmiðum
gengið vel.
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
MIKIÐ ber á milli hugmynda FL
Group og KB banka um verðlagn-
ingu á Icelandair. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins setja aðal-
eigendur FL Group upp
lágmarksverðið 40 milljarða króna
fyrir Icelandair, en KB banki telur
að sanngjarnt verð fyrir félagið sé á
bilinu 25 til 30 milljarðar króna.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá hefur KB banki boðið Ólafi
Ólafssyni, stjórnarformanni Sam-
skipa, og tengdum fjárfestum að
gerast kjölfestufjárfestar í Iceland-
air, nái KB banki á annað borð samn-
ingum um kaup á félaginu við núver-
andi eigendur, FL Group.
Snurða hlaupið á þráðinn í
viðræðum um sölu á félaginu
Ólafur hefur, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, lýst yfir áhuga
á þátttöku, svo fremi sem hann telji
verðlagningu á félaginu sanngjarna.
Snurða mun hafa hlaupið á þráð-
inn í viðræðum um sölu á félaginu,
þar sem FL Group setur það skilyrði
að kaupverðið verði ekki undir 40
milljörðum króna, en KB banki og
Ólafur Ólafsson telja, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, að með
slíkri verðlagningu séu eigendur FL
Group að tryggja sér framtíðarhagn-
að félagsins, þannig að arðsemi
kaupanna fyrstu árin verði afar tak-
mörkuð fyrir kaupandann.
Því er með öllu óvíst að af samn-
ingum verði um kaup KB banka á
Icelandair. Hverfi KB banki frá
kaupum á Icelandair aukast líkurnar
á því að FL Group fari sjálft með
Icelandair á markað, en eigi áfram
um 30% hlut, og verði þannig kjöl-
festufjárfestir félagsins, a.m.k. fyrst
um sinn.
Mikið ber á milli KB og FL Group
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
NA 5–10 m/
sek. við suður-
ströndina. Bjart
m/köflum vest-
anlands, annars skýjað og
smáskúrir eða súld. » 8
Heitast Kaldast
9°C 3°C
SUÐUR-afríska söngkonan Dilana, sem Íslend-
ingar þekkja sem keppanda í Rock Star Super-
nova, er nú stödd á Íslandi og í gærkvöldi kom
hún fram á Broadway ásamt Magna „okkar“ og
hljómsveitinni Á móti sól. Í kvöld verða aðrir
tónleikar og í samtali sem Magni átti við Morg-
unblaðið fyrir tveimur vikum sagði hann að til
stæði að halda tónleika með húsbandi Rock Star,
Ástralanum Toby sem lenti í þriðja sæti og
Storm sem send var heim í næstsíðasta þætt-
inum. Óvíst er hvar tónleikarnir verða en ljóst er
að eftirspurn er eftir Rock Star-stjörnum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Magnaðir tónleikar Dilönu á Broadway
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
REYKJAVÍKURBORG hefur sett
af stað verkefni til að stuðla að því
að Reykjavík verði áhugaverður
kostur fyrir erlend kvikmyndafyr-
irtæki. Að mati borgaryfirvalda
verður helsta hagsmunamál verk-
efnisins að lög um endurgreiðslu á
framleiðslukostnaði verði endur-
nýjuð. Á málþinginu „Kvikmynda-
borgin Reykjavík“ sem haldið var í
Ráðhúsinu í gær bentu svo fag-
aðilar á að nauðsynlegt væri að
koma á fót kvikmyndastúdíói í
Reykjavík. Í ræðu sem Björn Ingi
Hrafnsson, formaður borgarráðs,
hélt á þinginu benti hann á að
Reykjavík væri ákjósanlegur stað-
ur fyrir kvikmyndaframleiðslu
vegna skilvirkrar stjórnsýslu og
hagstæðs laga- og fjármálaum-
hverfis. Taldi hann mikilvægt að
innan borgarinnar starfaði hópur
sem hefði það að meginmarkmiði
að þjónusta erlend kvikmyndafyr-
irtæki. „Beiðnir geta snúið að því
að loka nokkrum götum eða að
slökkva á lýsingu borgarinnar,“
nefndi Björn sem dæmi og vísaði
þar gamansamlega til þess að
borgin var myrkvuð vegna upphafs
kvikmyndahátíðar í Reykjavík í
fyrradag.
Að mati flestra þeirra sem fluttu
erindi á málþinginu skortir nauð-
synlega kvikmyndastúdíó í
Reykjavík sem gagnast gæti bæði
erlendum kvikmyndafyrirtækjum
sem og innlendum. Baltasar Kor-
mákur, leikstjóri og formaður Fé-
lags íslenskra kvikmyndaframleið-
enda, benti t.a.m. á að nauðsynlegt
væri að verkefni eins og það sem
Reykjavík færi nú út í ætti ekki
einungis að greiða fyrir umsvifum
erlendra fyrirtækja heldur einnig
að efla og styðja við íslenskan
kvikmyndaiðnað.
Undir þetta tóku flestir flutn-
ingsmenn sem voru fulltrúar frá
Kvikmyndastofnun Íslands og
þremur íslenskum fyrirtækjum á
sviði kvikmyndaframleiðslu.
Helga Margrét Reykdal, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins True
North, og Jón Bjarni Guðmunds-
son, yfirmaður erlendrar deildar
hjá Saga Film, bentu á að hingað
til hefðu erlend fyrirtæki einkum
haft áhuga á náttúru Íslands og
því hefði Reykjavík yfirleitt aðeins
verið áningarstaður.
Reykjavík ákjósanleg
fyrir kvikmyndagerð
Borgaryfirvöld skipa starfshóp og hyggjast laða að erlend kvikmyndafyrirtæki
HEIMSFERÐIR fengu í gær af-
henta flugvél af gerðinni Boeing 737-
800 sem félagið hefur tekið á lang-
tímaleigu. Andri Már Ingólfsson, for-
stjóri Heimsferða, segir félagið ætla
að bæta þjónustuna við viðskiptavini
sína og fljúga með þá undir merkjum
Heimsferða. „Við ætlum þó ekki í al-
mennan flugrekstur í samkeppni við
þau flugfélög sem fyrir eru á mark-
aðinum,“ segir Andri Már.
Þetta er fyrsta vélin af fjórum sem
Heimsferðir ætla að leigja í þessum
tilgangi, hinar þrjár verða afhentar í
vor.
„Flugvélin er ágætlega rúm með
184 sæti og mun sinna nánast öllu
okkar flugi í vetur, þar á meðal flugi
til Prag, Búdapest og Krakár auk
Kanaríeyja og Kúbu. Sem dæmi um
sveigjanleikann sem vélin veitir má
nefna að nú munum við geta boðið
upp á morgunflug til Kanaríeyja.
Þetta er í fyrsta sinn sem flogið er
undir merkjum Heimsferða.
Heimsferðir
fljúga með
farþega
Ljósmynd/Víkurfréttir
Undir eigin merkjum Forstjóri
Heimsferða, Andri Már Ingólfsson,
við vélina merkta Heimsferðum.
MYNDLISTARKONAN Þórdís Að-
alsteinsdóttir opnar í dag einkasýn-
ingu á Kjarvalsstöðum. Þórdís hefur
getið sér góðan orðstír í New York
þar sem hún hefur búið og starfað
um nokkurt skeið. Þar hefur hún
tekið virkan þátt í sýningahaldi og
fengið umfjöllun í alþjóðlegum list-
tímaritum. Á Kjarvalsstöðum sýnir
hún málverk, auk tveggja víd-
eóverka og veggmálverks sem hún
málaði á staðnum.| 20
Veggmálverk
á Kjarvals-
stöðum
VARNARLIÐIÐ hverfur frá Íslandi
í dag og munu Íslendingar þá taka
við varnarsvæðunum sem Banda-
ríkjamenn hafa haft til afnota frá 7.
maí árið 1951 og mannvirkjum á
varnarsvæðunum.
Látlaus athöfn verður af þessu til-
efni á Keflavíkurflugvelli síðdegis í
dag. Þar verður bandaríski fáninn
dreginn niður í seinasta sinn og ís-
lenski fáninn því næst dreginn að
húni.
Meðal þeirra sem viðstaddir verða
athöfnina eru Carol van Voorst,
sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi,
fulltrúi íslenskra stjórnvalda og yf-
irmaður varnarliðsins.
Íslendingar
taka við
„Ísland – Jeg heilsa þjer“ | 11
♦♦♦
♦♦♦