Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 4
Reuters
Skipta Enski boltinn verður sýndur
á Sýn 2007–2010 en ekki á Skjánum.
ENSKI boltinn verður sýndur á
sjónvarpsstöðinni Sýn næstu þrjú
árin eða frá 2007–2010. Þetta varð
niðurstaðan eftir harða keppni um
sýningarréttinn milli 365 miðla og
Skjásins.
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla,
sagði að gert væri ráð fyrir að leik-
irnir yrðu sýndir á Sýn. Hann vildi í
gær ekki greina frá því hvað fyrir-
tækið hefði greitt yfir sýningarrétt-
inn en búið væri að fá öfluga kost-
unaraðila til liðs við fyrirtækið. Að
svo stöddu vildi hann ekki gefa upp
hverjir það væru.
Milljarður
Magnús Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri Skjásins, sagði að Skjárinn
hefði ákveðið að taka ekki þátt í
þriðju umferð útboðsins en þá hefði
verðið verið komi í milljarð króna.
„Við skulum hafa það hugfast að
þetta er boðið í dollurum og dollara-
gengið er mjög lágt sem stendur,“
sagði Magnús í samtali við Fréttavef
Morgunblaðsins í gær.
Enski boltinn á
Sýn 2007–2010
Milljarður var of mikið fyrir Skjáinn
4 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.jpv.is
Vilborg Dagbjartsdóttir kann
þá list að segja börnum góðar
sögur sem halda huganum
föngnum. Í bókinni birtast
sögur og ljóð sem komu út á
árunum 1959–2005.
Barnaefni Vilborgar er þegar
orðið sígilt.
ÞRÁTT fyrir að fönnin virðist á undanhaldi er enn
kuldalegt um að litast við rætur Esju og ekki útlit fyrir
breytingar á næstunni. Þrátt fyrir að lítið væri um báta
lét skipstjórinn á smábátinum Bjargfugli RE-55 frostið
þó ekki stöðva sig og hélt til veiða út á Faxaflóa í gær-
dag. Ekki fylgdi sögunni hvernig bar í veiði en miðað
við fuglagerið sem bátnum fylgdi þann tíma sem ljós-
myndari Morgunblaðsins fylgdist með hefur fengurinn
verið ágætur.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands má
búast við að aðeins bæti í vind frá því í gær og vindátt
snúist í norðaustur, 5–8 metra á sekúndu. Bjart verður
yfir höfuðborginni alla helgina og frost frá einni gráðu
til fimm.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kuldalegt við Esjurætur
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FRUMVARP til laga um ættleiðingastyrki verður
lagt fyrir Alþingi í næstu viku. Í því er gert ráð
fyrir 480 þúsund króna eingreiðslu til kjörforeldra
sem ættleitt hafa erlent barn, eða börn. Félags-
málaráðherra vonast til að frumvarpið verði af-
greitt fyrir jólafrí Alþingis, sem hefst skv. starfs-
áætlun 8. desember, og lögin taki gildi 1. janúar
nk. – og nái til ættleiðinga eftir þann tíma.
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun kynnti
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra skýrslu
starfshóps um ættleiðingastyrki og voru tillögur
sem þar koma fram samþykktar. Samkvæmt
skýrslunni kynnti starfshópurinn sér hvernig
greiðslum væri háttað á öðrum Norðurlöndum þar
sem slíkir styrkir hafa þekkst í u.þ.b. tíu ár.
„Niðurstaðan var að leggja fyrir ráðherra að
taka upp styrki sem næmu 480 þúsund krónum og
er það verulega í takt við það sem gerist og gengur
á Norðurlöndunum,“ segir Karl Steinar Valsson,
varaformaður og fulltrúi Íslenskrar ættleiðingar í
starfshópnum. Farið er fram á að styrkirnir verði
undanþegnir staðgreiðslu skatts þannig að þeir
nýtist raunverulega að fullu en auk þess verða þeir
óháðir tekjum. Heildarkostnaður við ættleiðingu
barns er frá 1,1 milljón króna til 1,4 milljónum.
Ættleiðingar erlendis frá eru að meðaltali um 25
á ári og ef fjöldinn verður sambærilegur á næstu
árum yrðu útgjöld ríkisins um tólf milljónir króna
á ári. Aðeins átta börn hafa verið ættleidd hingað
til lands það sem af er ári en t.a.m. bíða um sextíu
óafgreidd mál hjá kínverskum stjórnvöldum. Gera
má ráð fyrir að nokkur fjölgun verði í ættleið-
ingum á næstu árum og útgjöld ríkisins verði því á
milli 20–35 milljónir á ári.
Framkvæmd hjá Vinnumálastofnun
Styrkirnir munu eingöngu ná til þeirra sem
fengið hafa forsamþykki til að ættleiða erlent barn
og greiðslan er bundin við milligöngu löggilts ætt-
leiðingafélags. Þar af leiðandi munu svokallaðar
fjölskylduættleiðingar, þ.e. ættleiðing á barni sem
býr í öðru ríki en er í fjölskyldutengslum við eða er
barn annars umsækjanda, falla utan reglnanna.
Vinnumálastofnun mun að öllum líkindum hafa
umsjón með framkvæmd styrkjanna og skv. Karli
Steinari er það til að auðvelda alla vinnslu. Stofn-
unin sér t.d. um greiðslu fæðingarorlofs og gert er
ráð fyrir að styrkurinn geti verið eingreiðsla með
fyrstu greiðslu úr fæðingarorlofssjóði.
Ættleiðingar styrktar
Niðurstöður starfshóps um ættleiðingastyrki voru kynntar á ríkisstjórnarfundi
í gær Gert er ráð fyrir að styrkir til kjörforeldra nemi 480 þúsund krónum
Í HNOTSKURN
»Starfshópur um ættleiðingastyrki varskipaður í júlí sl. og skilaði nýverið af
sér tillögum til félagsmálaráðherra.
»Vonast er til að frumvarp verði afgreittá Alþingi fyrir jólafrí.
»Réttur til ættleiðingastyrks mun ná tilþeirra barna sem ættleidd eru eftir
gildistöku laganna.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann í 15 mánaða fang-
elsi fyrir vopnað rán í lyfjaverslun í
Kópavogi í febrúar sl. Hann var
vopnaður hnífi og með andlit sitt hul-
ið og ógnaði afgreiðslufólki. Hafði
hann á brott með sér 9 pakka af lyf-
inu rítalín að verðmæti tæplega 11
þúsund krónur.
Maðurinn var handtekinn viku eft-
ir ránið og játaði hann verknaðinn.
Fram kemur í dómi, að maðurinn
sagðist hafa verið í lyfjaneyslu í 12 ár
og síðustu 6 árin hefði hann sprautað
sig. Eftir handtökuna hafi hann verið
allsgáður, eða í átta mánuði.
Að mati héraðsdóms var brot
mannsins alvarlegt og hefði háttsemi
hans verið til þess fallin að valda
starfsmönnum ótta. Sé það virt
ákærða til refsiþyngingar en á hinn
bóginn var tekið tillit til játningar
hans og einlæga viðleitni hans til að
vinna bug á lyfjafíkn sinni.
Finnbogi H. Alexandersson hér-
aðsdómari dæmdi málið. Verjandi
var Hilmar Ingimundarson hrl. og
sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
15 mánaða
fangelsi
fyrir rán
Ógnaði fólki í lyfja-
verslun með hnífi
ENDURVARPI heimsþjónustu
breska ríkisútvarpsins, BBC World
Service, sem verið hefur á tíðninni
FM 94,3 hefur verið hætt til jóla. Í
stað þess verður tíðnin nýtt undir
kynningu á íslenskri tónlist með
áherslu á þá sem nýútkomin er. Á
meðan hún er í loftinu mun út-
varpsstöðin bera nafnið Kaninn.
Að sögn Ágústar Héðinssonar,
forstöðumanns útvarpssviðs 365-
miðla, er með þessu verið að koma
til móts við íslenska tónlistarmenn
og mun kynningin standa yfir í
um fjórar vikur. „BBC er ekki
tekjulind fyrir okkur og þessi
kynning verður það ekki heldur,
þetta er svona samfélagsþjónusta,“
segir Ágúst en að verkefninu
stendur Samtónn í samvinnu við
365-miðla.
Einn þeirra sem stendur að
Kananum er Jakob Frímann
Magnússon. Hann útilokar ekki að
framhald verði á útsendingum
stöðvarinnar en óvíst er í hvaða
mynd. Dagskrárgerð verður m.a. í
höndum íslenskra tónlistarmanna.
Endurvarpi
BBC hætt
tímabundið
Í FRUMVARPI
til breytinga á
lögum um ís-
lenskan rík-
isborgararétt,
sem Björn
Bjarnason
dómsmálaráð-
herra kynnti
fyrir ríkisstjórn
í gær, er lagt til
að kunnátta í íslensku verði skil-
yrði fyrir veitingu ríkisborg-
araréttar með stjórnvalds-
ákvörðun. Lagt er til að
dómsmálaráðherra fái heimild til
að ákveða með reglugerð hve rík-
ar kröfur á að gera í því efni.
Samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu lúta veiga-
mestu breytingarnar sem lagðar
eru til í frumvarpinu að því að
samræma skilyrði fyrir veitingu
ríkisborgararéttar og skilyrði
sem þarf að uppfylla til að fá bú-
setuleyfi.
Lagt verði bann
við myndatökum
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
kynnti Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra frumvarp til breyt-
inga á lögum um dómstóla. Í því
er m.a. lagt til að dómurum verði
fjölgað úr 38 í 40 og að dómurum
verði heimilt að fela löglærðum
aðstoðarmönnum sínum að fara
með dómstörf að takmörkuðu
leyti, m.a. að ljúka málum þar
sem hinn stefndi sækir ekki dóm-
þing.
Einnig er lagt til að myndatök-
ur og aðrar upptökur verði bann-
aðar í dómhúsum, fyrir utan þær
sem fara fram á vegum dómstóls-
ins. Dómstjóri geti heimilað
myndatökur og aðrar upptökur í
einstök skipti.
Kunnátta í
íslensku
verði skilyrði
Björn Bjarnason
LÖGREGLAN í Reykjavík segir
karlmann sem handtekinn var
vegna óláta í flugvél á leið til
Reykjavíkur frá Egilsstöðum á
fimmtudagskvöld hafa borið við
minnisleysi þegar skýrsla var tekin
af honum í gær. Maðurinn, sem er
hálfþrítugur, lét afar ófriðlega þeg-
ar flugvélin var í aðflugi og þurfti
lögregla að beita hann valdi til að
koma í fangaklefa eftir að lent var
á Reykjavíkurflugvelli. Maðurinn
sem var mikið ölvaður hefur alloft
áður komist í kast við lögin, skv.
upplýsingum frá lögreglu.
Flugdólgur ber
við minnisleysi