Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 11
B R Æ Ð R A B O R G A R S T Í G 9 , S Í M I 4 1 4 1 4 5 0
w w w . v e r o l d . i s • v e r o l d @ v e r o l d . i s
Eftir höfund Þriðja táknsins
NÝ DROTTNING
GLÆPASÖGUNNAR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/V
E
R
34
94
2
11
/0
6
Óhugnanlegt morð á heilsuhóteli á Snæfellsnesi. Reimleikar og hörmulegir
atburðir grafnir úr fortíðinni - en tengjast þeir eitthvað morði á ungri konu
sumarið 2006?
Sér grefur gröf er ný og spennandi glæpasaga eftir Yrsu Sigurðardóttur en
bækur hennar koma nú á markað á 25 tungumálum í yfir 100 löndum heims.
„Skemmtileg morðsaga eftir nýja glæpasagnadrottningu.“
Tímaritið ALLAS í Svíþjóð um Þriðja táknið
„Sagan er æsispennandi … grípur lesandann heljartökum.“
DAGBLADET í Noregi um Þriðja táknið
„Snjöll“
„Spennandi“
„Skemmtileg“
„Heillandi“
„Bráðfyndin“
Úr erlendum umsögnum
um Þriðja táknið
STJÓRN Landsvirkjunar tók fyrir
beiðni Ómars Ragnarssonar um
stuðning við kvikmyndagerð af
myndun Hálslóns á fundi sínum í
gærmorgun og samþykkti að tvö-
falda stuðning sinn við Ómar úr
fjórum milljónum króna í átta
milljónir gegn afnotum af kvik-
myndaefni hans.
Ómar og samstarfsmenn hans
munu einnig fá húsaskjól og fæði í
búðum Landsvirkjunar við Kára-
hnjúka á meðan á kvikmyndatök-
um stendur.
Í fréttatilkynningu segir að
Landsvirkjun virði ólík sjónarmið
gagnvart Kárahnjúkavirkjun og
telji jákvætt að styðja Ómar í við-
leitni sinni við að sýna sem best
myndun Hálslóns. Samstarf
Ómars og Landsvirkjunar hafi
enda ætíð verið gott. Minnt er á
að þegar lagður var hornsteinn að
Fljótsdalsstöð sl. vor komu fram
óskir andstæðinga Kárahnjúka-
virkjunar undir forystu Andra
Snæs Magnasonar um að sjón-
armið þeirra færu einnig í blýhólk
hornsteinsins og var orðið við
þeim óskum.
Tvöfaldar stuðning
við Ómar Ragnarsson
Stuðningur Ómar Ragnarsson og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, eftir fundinn í gær.
SJÖ milljónir króna söfnuðust þeg-
ar fermingarbörn um land allt
gengu í hús þann 6. nóvember með
bauk Hjálparstarfs kirkjunnar.
Fyrir söfnunina sáu börnin
myndir af munaðarlausum systk-
inahópi í Úganda að sækja vatn í
drullugt vatnsból. Þau fengu
fræðslu um hjálparstarf á vegum
kirkjunnar í Afríku og m.a. hvernig
munaðarlausum börnum er hjálpað
með leiðsögn og efnislegri aðstoð.
Sífellt fjölgar í hópi þátttakenda,
64 prestaköll voru með nú miðað
við 56 í fyrra. Þá söfnuðust 6,8
milljónir. 3.250 börn fengu fræðslu
í ár en í fyrra voru þau 3.100. All-
flest þéttbýli á landinu voru með
núna en erfitt er að safna þar sem
dreifbýlt er, segir í fréttatilkynn-
ingu.
„Börnin sem tóku þátt stóðu sig
gríðarlega vel samkvæmt upplýs-
ingum frá prestum og skynjuðu að
með vinnu sinni og framlögum sem
þau fengu í baukana væru þau að
bjarga mannslífum. Nú deyja 4.900
börn á dag í þróunarlöndum vegna
þess að þau drekka óhreint vatn.
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar öll-
um sem gáfu, fermingarbörnum
fyrir dugnað og prestum og kirkju-
starfsmönnum samstarfið,“ segir í
frétt frá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Fermingarbörn söfnuðu
sjö milljónum króna
BÆJARSTJÓRINN á Seltjarnar-
nesi, Jónmundur Guðmarsson,
undirritaði í Stokkhólmi á dögunum
samkomulag um að Seltjarnarnes-
bær yrði fulltrúi Íslands í alþjóða-
samtökunum INEC (International
Network of E-Communities).
Bæjarfélaginu var boðin innganga
í samtökin í vor eftir að stjórn þeirra
hafði kynnt sér ljósleiðaraáform
þess og þau verkefni sem í bígerð
eru og snúa að rafrænni þjónustu.
INEC eru fjölþjóðleg samtök for-
ystumanna í þróun háhraðatenginga
og rafrænnar þjónustu. Þannig eru í
samtökunum fulltrúar borga, svæða
og þjóðlanda. Meðal meðlima má
nefna Stokkhólm, Amsterdam,
Möltu, Utah, Dubai og Malasíu. Sel-
tjarnarnes mun eiga fulltrúa í stjórn
samtakanna og á þann hátt eiga þátt
í að móta ákvarðanatöku og stefnu
til framtíðar.
Á myndinni eru Christer Matts-
son, fyrir hönd INEC, og Jónmund-
ur Guðmarsson, bæjarstjóri.
Fulltrúi Íslands á
alþjóðavettvangi
FERÐAFÉLAG Íslands og SPRON
efna til kvöldgöngu upp í hlíðar Esj-
unnar á sunnudagskvöldið. Allt útlit
er fyrir stjörnubjart kvöld og verður
stjörnufróður maður með í för og
mun hann segja fólki frá því sem fyr-
ir augu ber á kvöldhimninum. Feg-
urðin þar nýtur sín betur þegar kom-
ið er út fyrir ljósbjarma höfuð-
borgarsvæðisins. Snævarr Guð-
mundsson verður með leiðsögn um
stjörnuhimininn en hann er m.a.
þekktur fyrir fræðslu í stjörnuveri
sínu í Húsdýragarðinum.
Jafnframt stjörnuskoðuninni upp-
lifa göngumenn íslenska fjallanátt-
úru á vetrarkvöldi. Esjan er í allt
öðrum og dulmagnaðri búningi en að
sumri og degi til og sérstök stemning
er að ganga í myrkrinu með ljós en
þó bregður fölri birtu á umhverfið
frá borgarljósunum.
Fyllsta öryggis verður gætt.
Gengið verður skammt upp í Esju-
hlíðar, hefðbundin og léttasta leið
upp frá bílastæðinu við Kollafjörð í
grennd við Mógilsá og sem leið ligg-
ur eftir göngustígnum í átt að Þver-
fellshorni. Ekki verður farið í neinn
bratta og þaðan af síður upp á Esju
heldur látið nægja að ganga í róleg-
heitum í tæpan klukkutíma upp að
læk neðan við Þverfellið.
Gangan verður róleg, aðeins tveir
til þrír tímar og verður lagt af stað
klukkan 18 frá bílastæðinu.
Stjörnukvöld í Esjuhlíðum