Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Kigali. AFP. | Stjórnvöld í Rúanda
kölluðu í gær sendiherra sinn í
Frakklandi heim, ásamt því sem þau
lýstu því yfir að þau hefðu slitið
stjórnmálasambandi við frönsk
stjórnvöld. Má rekja þessar aðgerðir
til þess að franski dómarinn Jean-
Louis Bruguiere gaf út handtöku-
skipun á hendur Paul Kagame, for-
seta Rúanda, vegna meints þáttar
hans í morðinu á forvera sínum,
Juvenal Habyarimana, árið 1994.
Taldi dómarinn að morðið hefði átt
þátt í þjóðarmorðinu alræmda sama
ár, með því að koma af stað atburða-
rás þar sem öfgamenn úr röðum
hútú-þjóðflokksins drápu um
800.000 manns, einkum fólk úr tútsí-
ættbálknum. Eru níu aðilar til við-
bótar sakaðir um aðild að morðinu.
Charles Murigande, utanríkisráð-
herra Rúanda, brást hart við og
gekk svo langt að saka frönsk stjórn-
völd um að reyna að splundra rík-
isstjórn landsins.
Slíta sam-
starfi við
Frakka
Sendiherra Rúanda
í París kallaður heim
Á ÞESSARI tölvugerðu mynd má sjá hvernig japanski
arkitektinn Tadao Ando og myndhöggvarinn Kiichi
Sumikawa sjá fyrir sér Nýja Tókýó-turninn, en hann
verður 610 metra hár fullkláraður árið 2011.
AP
Verður hæsta mannvirki Japans
Jerúsalem. AFP. |
Um 80% Ísraela
vilja að Amir Per-
etz, varnarmála-
ráðherra og leið-
togi Verka-
mannaflokksins,
segi af sér ráð-
herraembætti, ef
marka má skoð-
anakannanir sem
birtust í gær í blöðunum Maariv og
Yediot Aharonot.
Fylgi við hægriflokka, einkum
Likud undir forystu Benjamins Net-
anyahu, eykst á kostnað stjórnar-
flokkanna. Peretz, sem hefur litla
reynslu af hernaði, hefur verið hart
gagnrýndur fyrir hernaðinn gegn
Hizbollah-liðum í Líbanon sem er
sagður hafa mistekist þar sem ekki
tókst að uppræta vopnasveitir sam-
takanna. Ísraelsher hefur heldur
ekki tekist að koma í veg fyrir flug-
skeytaárásir Palestínumanna.
Vilja að
Peretz
hætti
Amir Peretz
Stokkhólmur. AFP. | Stuðningur við
nýja ríkisstjórn borgaraflokkanna í
Svíþjóð hefur farið minnkandi eftir-
sögulegan sigur hennar í þingkosn-
ingunum í september, ef marka má
nýja skoðanakönnun sem birt var í
gær. Alls hlutu hægriflokkarnir fjór-
ir 48,2% atkvæða í kosningunum en
stjórnarflokkarnir þrír 46,1%.
Samkvæmt nýrri könnun Synov-
ate Temo, sem framkvæmd var dag-
ana 6. til 22. nóvember og náði til
2.920 manna, hefur þetta snúist við
og mælast jafnaðarmenn og tveir
samstarfsflokkar þeirra með 51%
fylgi, miðað við 45% hjá stjórninni.
Er þetta m.a. rakið til hneykslis-
mála og óánægju með fyrirhugaða
lækkun á atvinnuleysisbótum.
Fjarar undan
hægristjórn
Bagdad. AFP, AP. | Stjórnmálahreyf-
ing róttæka sjíta-klerksins Moqtada
al-Sadr hótaði í gær að ganga úr rík-
isstjórn Íraks, ef Nuri al-Maliki for-
sætisráðherra hitti George W. Bush
Bandaríkjaforseta á fyrirhuguðum
fundi leiðtoganna í Jórdaníu í næstu
viku. Á sama tíma hélt óöldin í Írak
áfram, þegar minnst 48 biðu bana í
ofbeldisaðgerðum í landinu.
Alls hefur hreyfingin 30 af 275
sætum á íraska þinginu, ásamt því að
vera lykilstuðningsaðili al-Malikis.
Fer hún nú fram á, að stjórnin út-
skýri „samskipti sín við hernámslið-
ið“ og krefjist tímaáætlunar um
brotthvarf Bandaríkjahers frá Írak.
Gáfu talsmenn hennar jafnframt í
skyn, að bandalag hefði myndast á
milli fylgismanna Saddams Huss-
eins, fyrrverandi
forseta, öfga-
manna úr röðum
súnníta og her-
námsliðsins.
Nú hefur verið
staðfest, að allt að
215 hafi týnt lífi í
sprengjuárásum í
Sadr-borg, hverfi
sjíta í Bagdad, á
fimmtudag en talsmenn Bandaríkja-
hers hafa fullyrt að þúsundir liðs-
manna Mahdi-vígasveita al-Sadrs
hafist þar við.
Þúsundir syrgðu fórnarlömbin
Stjórnvöld komu á sólarhrings út-
göngubanni í Bagdad í kjölfar árás-
anna á fimmtudag og höfðu aðeins
þeir sem syrgðu fórnarlömbin leyfi
til að ganga og aka um götur borg-
arinnar í gær. Þúsundir manna undir
lögregluvernd fylgdu líkför tuga
fórnarlambanna suður til borgarinn-
ar Najaf, helsta greftrunarstaðar
sjíta. Allt að 257 liggja særðir eftir
árásina og er búist við að dánartalan
muni hækka, þar sem margir eru
mjög alvarlega særðir. Hundruð
manna leituðu í gær ástvina sinna á
sjúkrahúsum í Bagdad á milli vonar
og ótta um að þeir væru á lífi.
Al-Maliki forsætisráðherra hvatti
þegna sína til að grípa ekki til hefnd-
araðgerða vegna árásanna. Ofbeldið
hélt engu að síðar áfram og í gær
týndu allt að 23 lífi og 45 særðust
þegar tvær sjálfsmorðsárásir voru
gerðar í borginni Tal Afar í norður-
hluta landsins.
Þá voru gerðar a.m.k. fjórar árásir
á moskur súnníta í norðurhluta Bag-
dads og minnst 19 súnnítar drepnir.
Á sama tíma voru sex súnnítar
brenndir lifandi fyrir utan mosku í
Bagdad. Sagt er, að íraskir hermenn
skammt frá hafi ekkert aðhafst.
Hóta úrsögn úr stjórninni
Fylgismenn Moqtada al-Sadr í Írak vara Nuri al-Maliki við að funda með Bush
Í HNOTSKURN
» Vígamenn úr röðum sjítahafa þegar hefnt árásanna
í Sadr-borg á fimmtudag.
» Fjórar moskur vorubrenndar og hellt steinolíu
yfir sex súnníta og þeir
brenndir lifandi fyrir framan
hóp íraskra hermanna.Moqtada al-Sadr
♦♦♦
Eftir Svein Sigurðsson
og Baldur Arnarson
FÓLKIÐ er atvinnulaust og mennt-
unarsnautt. Það notar áfengi og
eiturlyf í stórum stíl og þessi félags-
legi ömurleiki gengur í arf frá einni
kynslóð til annarrar. Í Evrópu er að
verða til ný lágstétt, sem orðið hefur
undir á öllum sviðum.
„Eitt af því, sem einkennir þessa
nýju lágstétt, er að hún sveltur ekki.
Hún hefur þak yfir höfuðið, dálítil
fjárráð og nýtur almennra, borgara-
legra réttinda. Efnalega hefur hún
það betra en áður var en samt er
hlutskipti hennar líklega verra en
fyrr,“ segir Gabor Steingart, einn af
ritstjórum þýska tímaritsins Der
Spiegel og höfundur bókarinnar
„Baráttan um auðinn: Eftirsóknin
eftir völdum og velferð um allan
heim“, en kaflar úr henni hafa að
undanförnu birst í tímaritinu.
Lágstéttin nýja situr oft hálfan
daginn fyrir framan sjónvarpsskjáinn
og óreglan er mikil. Sjónvarps-
framleiðendur viti þetta og ræði sín á
milli um „lágstéttar-sjónvarp“.
Í Þýskalandi er talið að um 8% íbú-
anna noti 40% af því áfengi, sem
drukkið er, og afleiðingar birtast m.a.
í upplausn fjölskyldunnar. Annað,
sem einkennir hina nýju lágstétt, er
að hún er ekki í neinum tengslum við
verkalýðshreyfinguna en á árum áður
var hún stoð og stytta fátæks fólks og
veitti því jafnt félagsskap sem og alls
konar uppfræðslu. „Öreigarnir“ nú á
tímum hafa engin slík tengsl, litla
menntun eða enga og hafa ekki áhuga
á að bæta úr því.
Gengur Steingart svo langt, að full-
yrða að verkalýðsfélögin séu dauð í
þeirri mynd sem „við þekktum þau“
og að þau hafi ekki lengur völd til að
sjá umbjóðendum sínum fyrir
„skjóli“.
Hluti af alþjóðavæðingunni?
Hann skrifar: „Hinir nýju öreigar
sem einsleit stétt komu fyrst fram á
sjónarsviðið á síðustu tíu árum. Og
þetta er langt í frá einstakt þýskt fyr-
irbæri: Lágstétt er að myndast í öll-
um leiðandi iðnríkjum.“
Hann bætir við, að samfara al-
þjóðavæðingunni hafi 1,2 milljarðar
manna komið inn á alþjóðlegan
vinnumarkað, með þeim afleiðingum
að verkafólk hafi ekki sömu samn-
ingsstöðu og fyrr. Á sama tíma hafi
hin nýja lágstétt glatað stéttartil-
finningu sinni, auk þess sem hún taki
ekki lengur þátt í pólitísku starfi líkt
og lágtekjufólk gerði áður.
Vanrækt börn
„Eitt af einkennunum er lítill
metnaður fyrir hönd barnanna. Þau
eru illa talandi, eiga erfitt með að ein-
beita sér og vegna vaxandi ólæsis
verður æ erfiðara að hjálpa þessu
fólki,“ segir Steingart.
Hann segir að þessi nýja lágstétt
sé að verða til í öllum iðnríkjunum og
m.a. vegna þess að í nútíma hagkerfi
sé lítil þörf fyrir þá, sem enga mennt-
un eða kunnáttu hafi.
Margar kannanir sýna að hin nýja
lágstétt hallast yfirleitt að stjórn-
málaflokkum, sem eru annaðhvort
yst til hægri eða yst til vinstri. Síðan
virðist lítið mál að fara þarna á milli.
Það er af þessum sökum sem hann
telur lágstéttina ógn við lýðræðið,
hún taki ekki virkan þátt í því. Þróun-
in felur einnig að hans mati í sér ógn
við sjálfa samfélagsgerðina:
„Upplausn samfélagsins í dag ógn-
ar Vesturlöndum meira en alþjóðleg
hryðjuverkastarfsemi, jafnvel þótt
stjórnmálamenn einbeiti sér að bar-
áttunni gegn síðarnefnda atriðinu.“
Hann útilokar svo ekki, að lágstéttin
muni gera uppreisn.
Nýr þjóðfélagshópur í óreglu, án stéttarvitundar og menntunar
Ný lágstétt í Evrópu