Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 20

Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LÍKUR benda til þess að fyrrver- andi liðsmaður rússnesku leyniþjón- ustunnar, Alexander Lítvínenko, hafi verið myrtur með geislavirku efni, pólón 210, að sögn breskra yf- irvalda í gær. Lítvínenko, sem var 43 ára og nýbúinn að fá breskan rík- isborgararétt, lést á fimmtudags- kvöld á sjúkrahúsi í London og full- yrti hann að rússneskir útsendarar hefðu verið látnir eitra fyrir sig vegna harðrar gagnrýni hans á Vlad- ímír Pútín Rússlandsforseta. Pútín vísaði ásökununum á bug í gær. „Því miður eru hörmulegir at- burðir eins og þetta andlát notaðir í pólitískum áróðri,“ sagði forsetinn. Lítvínenko skrifaði m.a. bók þar sem hann sakaði Pútín og menn hans um að hafa skipulagt sprengjutilræði í rússneskum borgum 1999 er urðu hundruðum óbreyttra borgara að bana. Skæruliðum Tétsena var kennt um tilræðin. Prófessor Roger Cox, sérfræðing- ur breskra heilbrigðisyfirvalda, sagði að „mikil“ alfa-geislun, „senni- lega af völdum efnis sem nefnist pólón 210“, hefði fundist í þvagi Lítvínenkos. Ekki er ljóst hvernig efnið barst í líkama mannsins, vinir hans segja að hann hafi verið á varð- bergi gagnvart mat af ótta við eitrun og hafi aldrei neytt áfengis. Þekktur liðsmaður sovésku leyni- þjónustunnar gömlu, KGB og jafn- framt gagnnjósnari í þjónustu Breta, Oleg Gordíevskí, er ekki í vafa um að rússneskir leyniþjónustumenn hafi myrt Lítvínenko.Vinur Lítvínenkos, Andrei Nekrasov, sem ræddi við hann rétt áður en hann missti með- vitund á fimmtudag, sagði hann hafa verið sannfærðan um að það hefði verið leyniþjónustan FSB, arftaki KGB, sem hefði eitrað fyrir hann. „Ég vil lifa þetta af, bara til að þeir komist ekki upp með þetta. Skepn- urnar náðu mér en þeir geta ekki náð öllum,“ sagði Lítvínenko. Faðir hans, eiginkona og 10 ára gamall sonur, Anatolí, voru hjá honum síð- ustu dagana á sjúkrahúsinu. Lítvín- enko flúði til Bretlands fyrir sex ár- um og sótti um hæli vegna meintra ofsókna af hálfu rússneskra stjórn- valda. Á miðvikudag sagði ítalskur ör- yggissérfræðingur, Mario Scaram- ella, að Lítvínenko ætti óvini í röðum rússnesku mafíunnar og spilltra embættismanna sem vildu hann feig- an. Scaramella, sem hefur aðstoðað ítölsk stjórnvöld við rannsóknir á njósnum Sovétmanna á dögum kalda stríðsins, segist hafa hitt Lítvínenko á veitingastað í London 1. nóvember, sama dag og njósnarinn fyrrverandi veiktist. Á þeim fundi hafi hann sýnt Lítvínenko tölvuskeyti, þar sem komu fram upplýsingar um morð- ingja blaðakonunnar Önnu Polit- kovskaju, ásamt lista yfir þá sem ráða átti af dögum, þ.m.t. þá tvo, Lítvínenko og Scaramella. Kemur fram í breska blaðinu Tim- es að fyrr um daginn hafi Lítvínenko hitt tvo Rússa á hóteli og annar þeirra verið Andrei Lúgovoj, fyrr- verandi félagi hans hjá sovésku leyniþjónustunni, KGB. Lítvínenko var ráðinn af dögum með geislavirku efni Pútín forseti vísar ásökunum um aðild Rússa á bug Reuters Dauðvona Njósnarinn fyrrverandi, Alexander Lítvínenko, á sjúkrahúsinu. Myndin var tekin á mánudag en þá var hann þegar orðinn mjög veikur. Í HNOTSKURN »Pólón 210 er sjaldgæfastanáttúrulega frumefnið. Í fyrstu var talið að eitrað hefði verið fyrir Lítvínenko með þung- málminum þallín. » Pútín Rússlandsforseti ogmenn hans hafa síðustu árin verið sakaðir um að beita svip- uðum aðferðum og Sovétstjórnin gamla til að þagga niður í and- stæðingum sínum. Eftir Kristján Jónsson og Baldur Arnarson Eftir Baldur Arnarson og Davíð Loga Sigurðsson í Colombo ÞORFINNUR Ómarsson, tals- maður norrænu eftirlitssveitanna, SLMM, á Sri Lanka vísaði í gær á bug orð- rómi um að Helen Ólafsdóttur, sem gegnt hefur stöðu talsmanns SLMM, yrði vísað úr landi. „Í fyrsta lagi hefur enginn beðið hana um að yfirgefa landið,“ sagði Þorfinnur, en sögusagnir þessa efnis birtust á nokkrum vefsíðum í gær. „Það eru alls konar greinar skrif- aðar í svona þjóðfélagi. Þar sem ástand mála er eins og hér hafa ýms- ir hag af því að þyrla einhverju upp. Þetta er sett fram á óábyrgan hátt. Þá átti Jón Óskar Sólnes, starfandi yfirmaður SLMM, fund með emb- ættismönnum stjórnarinnar í utan- ríkisráðuneytinu í Colombo í dag [í gær] þar sem staðfest var að það væri enginn fótur fyrir þessu.“ Eins og fyrr segir var ýjað að því í greinum á vefnum að Helen yrði send úr landi, en í frétt um málið á vefsíðu dagblaðsins Asian Tribune var ástæðan sögðu sú, að hún hefði hallað á stjórnina í yfirlýsingum sín- um um átök hersins og uppreisnar- manna úr röðum tamílsku Tígranna. Orðrómi um brottvísun vísað á bug Helen Ólafsdóttir áfram á Sri Lanka Helen Ólafsdóttir FRÁBÆRTVERÐ ÁÞREKTÆKJUM Frábærar æfingar fyrir þrek, fætur og handleggi. VERÐFRÁKR. 45.900 Kettler Marathon kr. 165.000 VERÐFRÁKR. 8.900 VERÐFRÁKR. 3.500 VERÐKR. 2.400VERÐFRÁKR.1.500 VERÐKR. 63.900 VERÐKR. 119.000 VERÐFRÁKR. 99.000 50 kg lóðasett kr. 14.500 Púði + hanskar Hanskar VERÐKR. 2.600 65 sm 75 sm Markið • Ármúla 40 • 108 Reykjavík • Sími 553-5320 • Opnunartími verslunar: Mán. - fös. 10.00-18.00 Laugardaga 11.00-15.005% staðgreiðsluafsláttur VERÐFRÁKR. 26.500 P IPA R • S ÍA • 60757

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.