Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 21
:
Skóverslun - Kringlunni
Sími 553 2888
Teg. 304054
Stærð 36-41
Litur: Svartur og
brúnn
Verð 9.995
Teg. 7363
Stærð 36-41
Litur: Svartur og
brúnn
Verð 10.995
Teg 75191
Stærð 36-42
Litur: Svartur og
brúnn
Verð 17.995
Teg. 7457
Stærð 36-41
Litur: Svartur og
brúnn
Verð 10.995
Teg. 1035
Stærð 36-41
Litur: Svartur og
brúnn
Verð 15.995
Kuldaskór
Mikið úrval
!!" # $
$ %%% # &
!" #
' "
$
%
$
( # # &
'
)
Gaza, Jabaliya. AFP, AP. | Miri Eisin,
talskona Ísraelsstjórnar, segir að
ekki sé hægt að taka alvarlega tilboð
fulltrúa nokkurra vígasveita Palest-
ínumanna í gær um takmarkað
vopnahlé. Aðeins hafi verið boðið að
hætta flugskeytaárásum á Ísrael frá
Gaza gegn því að Ísraelsher hætti öll-
um aðgerðum gegn vígasveitum.
Fulltrúi Íslamska Jihad, Khader
Habib, sagði að ef Ísraelar sam-
þykktu tilboðið yrði „ef til vill hætt að
skjóta á borgir Ísraela“.
Mustafa Barghuti, sem er óháður
fulltrúi á Palestínuþingi og sótt hefur
Ísland heim, gagnrýndi viðbrögð Ísr-
aela í gær og sagði þá bera ábyrgð á
vítahring ofbeldisins. „Í hvert skipti
sem Palestínumenn vilja binda enda
á ofbeldið segja Ísraelar nei,“ sagði
Barghuti.
Palestínsk kona, 57 ára gömul, níu
barna móðir og amma 41 barns,
sprengdi sig á Gaza á fimmtudag og
mun hafa ætlað að taka ísraelska
hermenn með sér í dauðann, þrír
þeirra særðust lítillega. Konan bjó í
flóttamannabúðum og hét Fatima
Omar Mahmud al-Najar. Birtu Ezz-
edine al-Qassam-herdeildirnar,
vopnaðar sveitir Hamas, stjórnar-
flokks Palestínumanna, myndband
eftir tilræðið þar sem Najar sagðist
vera „píslarvottur frá borginni Jab-
aliya“. Er þetta í fyrsta skipti í nær
tvö ár sem liðsmenn Hamas gangast
við sjálfsmorðstilræði gegn Ísr-
aelum. Fyrir tveim vikum hótuðu
herdeildirnar að hefja á ný sjálfs-
morðsárásir til að hefna 19 Palest-
ínumanna sem féllu í árás Ísr-
aelshers á borgina Beit Hanun.
Ísraelar sögðu að um mistök hefði
verið að ræða en hinir föllnu voru að-
allega konur og börn.
Útför Najar var gerð í gær að við-
stöddu miklu fjölmenni. „Ég veit að
hún vildi verða píslarvottur. Hún var
hugrökk. En ég er samt undrandi á
að hún skyldi gera þetta,“ sagði Leila
An-Najar, 13 ára barnabarn Najar.
Ísraelar hafna
boði um vopnahlé
Reuters
Sjálfsmorð Fatima al-Najar, konan
sem sprengdi sig á Gaza.