Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Njarðvík | „Auðvitað hef ég misst af ýmsu
vegna tímans sem fer í sundið, en ég hef fengið
svo margt annað í staðinn og finnst ég ekki
hafa farið á mis við neitt. Það má kannski segja
að ég sé í öðrum takti og á allt annarri línu en
jafnaldrar mínir,“ sagði Erla Dögg Haralds-
dóttir, sundkona úr Njarðvík, sem síðastliðna
helgi setti sitt fyrsta Íslandsmet í fullorð-
insflokki. Á Íslandsmeistaramótinu í sundi
sem haldið var í nýrri Laugardagslaug sló hún
fimm ára gamalt met Láru Hrundar Bjarg-
ardóttur með því að synda 200 metra fjórsund
kvenna á tímanum 2:16,94. Erla Dögg sagðist í
samtali við blaðamann hafa átt þetta inni og
hafi sett stefnuna á metið.
Erla Dögg er einn af þessum glæsilegu af-
reksmönnum sem er góður fulltrúi bæði ungs
fólks og íþróttamanna. Þegar flestir heltast úr
lestinni eftir að þeir byrja í framhaldsskóla
heldur hún ótrauð áfram og sinnir báðu vel.
„Ég vil standa mig vel í náminu og þess vegna
hef ég tekið þá ákvörðun í samráði við Stein-
þór Gunnarsson þjálfara minn að taka ekki
þátt í Evrópumótinu í Helsinki um miðjan des-
ember. Ég er í prófum á þessum tíma og er
meðal annars í stúdentsáfanga bæði í íslensku
og stærðfræði og þó að Íþróttaakademínan
geri mér kleift að hliðra prófunum til yrði
þetta alltof mikið álag. Ég á alltaf á hættu að
veikjast þegar ég er undir miklu álagi og þess
vegna reyni ég að komast hjá því. Í staðinn
ætla ég að einbeita mér að næsta móti sem er í
janúar,“ sagði Erla Dögg og er hér að vísa í ár-
angur helgarinnar þar sem hún tryggði sér
þátttökurétt á Evrópumótinu. Erla Dögg sagði
jafnframt að tveir aðrir sundmenn, sem einnig
tryggðu sér þátttökurétt, ætluðu ekki að fara
vegna prófanna í desember.
Íþróttaakademían breytir miklu
Erla Dögg er á góðri siglingu í sundinu og
hún ætlar sér meiri hluti í íþróttinni. „Núna
hef ég sett stefnuna á Ólympíuleikana sem
haldnir verða 2008. Þá verð ég tvítug og von-
andi að klára stúdentsprófið líka,“ sagði Erla
Dögg og bætti við að hún tæki stúdentsprófið á
venjulegum hraða, enda ekki tími fyrir hrað-
braut. Eftir það hefur hún sett stefnuna á
Bandaríkin til að geta haldið áfram í sundinu
og telur líklegt að námið muni tengjast stærð-
fræði sem sér finnist skemmtilegust.
Hún æfir sund bæði á morgnana og síðdegis
að loknum skóla. Hún sagði að Íþrótta-
akademían hafi breytt miklu varðandi sundæf-
ingarnar. „Íþróttaakademían býður afreks-
fólki í Fjölbrautaskóla Suðurnesja upp á
afreksbraut og kosturinn við það er að nú eru
morgunæfingarnar til dæmis á skólatíma í stað
þess að vera frá 6 til 8 og ég fæ einingar fyrir.
Þeir fylgjast líka vel með okkur og við fáum
margvíslegan fróðleik í gegnum akademíuna.“
Erla Dögg byrjaði 10 ára í sundi eftir að
hafa æft fimleika í nokkur ár. Það fékk hún
góðan undirbúning og sundkennari hennar í
grunnskóla sá í henni hæfileika. „Steinþór
Gunnarsson sem er þjálfari minn núna, ásamt
Inga Þór Einarssyni, var að kenna mér sund á
þessum árum og ýtti alveg rosalega á eftir mér
að koma á sundæfingu. Ég kíkti og það varð
ekki aftur snúið.“
Átta ára þrotlausar æfingar hafa komið
Erlu Dögg þangað sem hún er nú og þó megn-
ið af unglingsárunum hafi verið eytt ýmist á
æfingum, í æfingabúðum eða á sundmótum
segist hún ekki sjá eftir neinu. „Krakkarnir í
skólanum töluðu oft um það að ég væri alltaf
úti og ég var oftast í sundinu þegar þau voru á
diskótekum. En þegar ég hef séð árangurinn
finnst mér ég ekki hafa farið á mis við neitt.
Ég hef fengið svo margt annað í staðinn.“
Stóð varla í lappirnar af þreytu
Fyrsta Íslandsmótið í fullorðinsflokki er í
höfn og það sagði Erla Dögg góða tilfinningu.
„Það næsta sem ég hafði komist metinu henn-
ar Láru Hrundar var 2:19 árið 2004. Metið
hennar var 2:17 og sett árið 2001. Í gegnum
tíðina hafa mjög fáar konur verið að synda
undir 2:20 og engin undir mínum tíma frá
2004. Mig langaði að setja met og stefndi að
því. Ég vissi að ég ætti þetta inni og þráin eftir
metinu kom mér alla leið.“ Erla Dögg sagðist
ekki hafa áttað sig á því að hafa sett metið fyrr
en hún heyrði fagnaðarópin. „Ég var föðmuð
og kysst þegar ég kom upp úr en ég stóð varla
í lappirnar af þreytu. Það var ekki fyrr en ég
fór í hinn hluta laugarinnar til að synda að
bakkanum að ég áttaði mig á því að ég hafði
slegið metið og þá fóru tárin að renna. Það var
líka góð tilfinning að labba til þjálfarans.“
– Áttu einhvern tíma aflögu fyrir áhugamál?
„Ég á eiginlega engin önnur áhugamál en
sundið. Kærasti minn er líka í sundi og því jafn
tímabundinn og ég en við reynum að vera sam-
an um helgar og kíkja kannski í bíó. Kvöldin
fara í að læra og þegar flestir jafnaldrar mínir
eru að hugsa um djamm helgarinnar er ég að
hugsa um hvíldina, enda yfirleitt æfingar um
helgar líka. Ég ætla hins vegar að taka mér
hvíld frá sundinu um jólin og fara með kærast-
anum og fjölskyldu hans á skíði til Ítalíu.“
– Eru sammála því að íþróttir séu góð for-
vörn?
„Ég tek hlutina mjög alvarlega og er öguð
og skipulögð. Ég held mig alveg frá óreglu en
ég veit um íþróttamenn í óreglu. Mér finnst
það hins vegar algjört rugl. Ég held að hér
skipti manngerðin líka máli,“ sagði Erla Dögg.
„Hef ekki farið á mis við neitt“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Góð aðstaða Fimmtíu metra innilaug bætir mjög aðstöðu sundfólks í Reykjanesbæ. Erla
Dögg Haraldsdóttir sér ekki eftir þeim tíma sem hún eyðir í sundlaugum hér og erlendis.
Erla Dögg Haraldsdóttir
hefur verið í sundlauginni
mest öll unglingsárin
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Okkar ávinningur er öðru
fremur það forvarnargildi sem þetta
hefur beint á þá einstaklinga sem í
þessu eru og gangast undir ákveðinn
samning í því efni. Hins vegar er
mikið forvarnargildi í því að þessi
hópur verður fyrirmynd fyrir eldri
krakka í grunnskólanum sem horfa
til þess að taka þátt í þessu akadem-
íustarfi,“ sagði Grímur Hergeirsson,
verkefnisstjóri íþrótta-, forvarna- og
menningarmála í Árborg, um þátt-
töku sveitarfélagsins í starfsemi
íþróttaakademíanna við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands.
Síðastliðinn fimmtudag var und-
irritaður samstarfssamningur milli
Sveitarfélagsins Árborgar og Knatt-
spyrnuakademíu Íslands á Suður-
landi. Einnig var á föstudagskvöld
undirritaður sams konar samningur
við handknattleiksdeild Selfoss um
handboltaakademíu við skólann.
Aðstoð og annar stuðningur
Samkvæmt samningnum við KAÍS
mun Árborg leggja akademíunni til
æfingaaðstöðu á gervigrasvellinum
við Engjaveg á Selfossi auk stuðn-
ings í formi fjárstyrks. Knatt-
spyrnuakademían mun á móti taka
þátt í forvarnaverkefnum og halda
námskeið í fótbolta fyrir krakka í Ár-
borg á aldrinum 10 til 15 ára.
Miklar vonir eru bundnar við
starfsemi knattspyrnuakademíunnar
og handboltaakademíunnar en báðar
eru samstarfsverkefni við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Nemendur í
knattspyrnuakademíunni eru sam-
tals 39 nú á haustönn, af báðum kynj-
um.
Handboltaakademían fær sams
konar stuðning í formi fjárstyrks og
aðgangs að æfingaaðstöðu. Nem-
endur hennar eru 25 talsins á haust-
önn. Auk þessara tveggja akademía
er starfandi körfuboltaakademía við
FSu sem einnig nýtur stuðnings
sveitarfélagsins en hún var braut-
ryðjandi í þessu efni og gengur vel.
Meginmarkmið akademíanna eru
að auka færni nemenda í íþrótta-
greininni og þjálfa þá jafnframt á
markvissan hátt í að tileinka sér
þann aga og lífsstíl sem til þarf til að
ná árangri í afreksíþróttum. Nem-
endur gangast undir samning um
þátttöku í akademíunni þar sem þeir
skuldbinda sig meðal annars til að
temja sér góðar venjur í námi, mat-
aræði og hvíld auk þess sem þeir
skuldbinda sig til að neyta ekki
áfengis, vímuefna eða annarra ólög-
legra lyfja á námstímanum.
Þarf að halda vel á spöðunum
„Það getur orðið margvíslegur
ávinningur af þessu starfi þegar fram
líða stundir en það þarf að halda vel á
spöðunum. Þetta er í heildina mjög
stórt verkefni og skólinn spilar stórt
hlutverk í þessu efni með sínar
áherslur og töflugerð. Hann gerir
þetta mögulegt með því að koma
íþróttaæfingunum fyrir í stundatöflu
nemendanna. Með stuðningi sínum
er sveitarfélagið að stuðla að því að
þetta starf festist í sessi og það er
gríðarlega mikilvægt að svo verði,“
segir Grímur Hergeirsson.
„Það er markmið sveitarfélagsins
að þróa hér afreksmannaumhverfi í
íþróttum þannig að við getum eign-
ast afrekslið í íþróttum í meira mæli
en nú er. Það þarf að koma til meiri
og betri aðstaða og íþróttafélögin hér
þurfa að stilla sig inn á sömu
áherslur og eru í akademíunum og
vera samstiga þeim og áherslum
sveitarfélagsins. Ég geri alveg ráð
fyrir því að sveitarfélagið vilji á sama
hátt styðja við íþróttafélögin í sveit-
arfélaginu til þess að skapa og efla
sitt afreksfólk í íþróttum. Það er góð
auglýsing og um leið fjárfesting að
eiga afreksfólk í fremstu röð í íþrótt-
um. Við höfum átt og eigum nú þegar
góða íþróttamenn og konur hér í
sveitarfélaginu og viljum vera í
fremstu röð á þessu sviði sem öðrum,
sagði Grímur Hergeirsson verkefn-
isstjóri.
Þróa afreksmannaumhverfi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Væntanleg afrek Grímur Hergeirsson á nýjum gervigrasvelli á Selfossi.
Þrjár íþróttaaka-
demíur eru nú starf-
andi á Selfossi
Í HNOTSKURN
» Sveitarfélagið Árborg ogKnattspyrnuakademía Ís-
lands á Suðurlandi gerðu sam-
starfssamning í vikunni.
» Sams konar samningurvar gerður við handknatt-
leiksdeild Selfoss um hand-
boltaakademíu við Fjölbrauta-
skólann. Fyrir er körfubolta-
akademía við FSu.
» Árborg leggur akadem-íunum til æfingaaðstöðu
auk fjárstyrks.
Hveragerði | Miklar og líflegar um-
ræður urðu á íbúafundi á vegum
Hveragerðisbæjar sem haldinn var á
Hótel Örk á miðvikudagskvöld.
Fram kemur á vef Hveragerðisbæj-
ar að sjaldan eða aldrei hefðu fleiri
mætt til fundar af þessu tagi. Áætlað
var að um 70 manns hafi mætt.
Guðmundur Baldursson, bæjar-
tæknifræðingur, fór yfir ýmis mál er
varða frágang og umgengni í kring-
um hús og garða. Eyþór Ólafsson,
formaður skipulags- og bygginga-
nefndar, kynnti deiliskipulag þeirra
svæða sem næst koma til úthlutunar
í Hveragerði. Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri, kynnti síðan vinnu við
fjárhagsáætlun bæjarins.
Að afloknu stuttu kaffihléi spunn-
ust líflegar umræður þegar fundar-
gestir komu á framfæri ábendingum
og óskum til bæjarstjórnar. Fund-
inum stjórnaði Guðjón Sigurðsson,
skólastjóri.
Fjölmenni á
íbúafundi í
Hveragerði
Árborg | Íþrótta- og tómstunda-
nefnd Sveitarfélagsins Árborgar
hefur samþykkt að breyta fyr-
irkomulagi á útnefningu íþrótta-
manns Árborgar. Í stað eins
íþróttamanns ársins verða fram-
vegis tveir útnefndir, kona og karl.
Samþykkt var að vinna að und-
irbúningi nýrra reglna í þessa veru.
Fram kemur í fundargerð nefnd-
arinnar að stefnt er að uppskeruhá-
tíð fimmtudaginn 28. desember
næstkomandi og kosin hefur verið
nefnd til að undirbúa hátíðina.
Íþróttakona
verður útnefnd
♦♦♦
ÁRBORGARSVÆÐIÐ