Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 33
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 33             Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is Hugmyndin kviknaði fyrirtveimur árum, dóttirmín var þá fimm ára ogfyrir jólin hafði ég sagt henni að Jesú ætti afmæli,“ segir Anna María Sigurðardóttir sem stendur að útgáfu á dvd-diski með jólatengdu efni nú fyrir jólin. „Ég er ekki góð að segja sögur,“ held- ur Anna María áfram. „Þær verða yfirleitt snubbóttar hjá mér og í styttri útgáfu. Þetta ár, þegar dóttir mín var fimm ára, áttaði ég mig á því að hún var með jóla- guðspjallið, þá fallegu sögu, nánast í smáatriðum alveg á hreinu,“ seg- ir Anna María. „Kennarinn henn- ar, Margrét Matthíasdóttir í Ísaks- skóla, hafði, sem hluta af undir- búningi jólanna, sagt börnunum frá fæðingu Jesú. Og hún gerði það svona listilega vel að dóttir mín kunni þetta í smáatriðum.“ Sagt frá jólahaldi fyrri tíma Þetta varð til þess að Anna María ákvað að verða sér úti um efni tengt jólunum og hóf leitina. „Ég fann ekkert efni á þessum nótum,“ segir hún. „Þá er ég að meina upplýsandi og fræðandi efni um þetta mál. Ég prófaði líka að „gúgla“ þetta og athuga hvort ég fyndi þá ekki eitthvað með ensku tali, en fann hvergi,“ segir hún og að í framhaldinu hafi kviknaði hjá henni hugmyndin um að gera þetta sjálf … „og ég hugsaði með mér að það yrði að sjálfsögðu að vera al- hliða jóladiskur, þar sem yrði föndrað og sungið.“ Anna María gerði sér í hug- arlund beinagrind að því hvernig hún vildi hafa diskinn og hófst svo handa. „Ég velti lengi fyrir mér hver gæti séð um föndrið, af því að það að setjast niður með fjölskyld- unni og föndra eða baka pip- arkökur er órjúfanlegur þáttur í undirbúningi jólanna. Ég mundi auðvitað eftir Herdísi [Egilsdóttur] frá því að ég var lítil og komst fljótlega að þeirri niðurstöðu að Herdís væri rétta manneskjan,“ segir Anna María. Hún og Herdís spýttu í lófana í febrúar á þessu ári og hófu verkið, en Gunnar Gunnsteinsson er leik- stjóri. „Ég er náttúrlega bara amatör í þessu, hef ekki gert neitt þessu líkt áður,“ segir Anna María. „Við vorum síðan svona þríeyki, ég kem með beinagrind inn í þetta samstarf og þau köst- uðu fram hugmyndum. Fljótlega fannst okkur að það þyrfti að segja svolítið frá jólahaldi fyrr á tímum og Árni Björnsson kom þá fljótlega upp í kollinn,“ segir hún um aðkomu Árna. „Hann segir okkur m.a. hvernig laufabrauðið varð til og þarna er ýmis annar fróðleikur, t.d. hvað orðið aðventa þýðir.“ Mikið púsl Anna María segir diskinum ætl- að að vera mótvægi við lætin sem oft verða allsráðandi fyrir jólin. „Hann á að skapa ró og stemningu heima fyrir.“ Anna María starfar sem við- skiptafræðingur hjá Sparisjóði Kaupþings hf. og sú spurning vaknar óhjákvæmilega hvort ekki hafi verið erfitt að sameina vinnu, heimilishald, barnauppeldi og allt sem því tilheyrir vinnunni við disk- inn sem hlýtur að hafa verið tölu- verð. „Þetta var mikið púsl,“ við- urkennir hún. „Ég notaði hádegið mjög vel og allir fundir voru þá, en ég notaði svo líka kvöldin mjög vel. Mín vinna var aðallega hug- myndavinna og maður fær auðvit- að hugmyndir hvenær sem er,“ segir hún létt. „Ég setti eiginlega bara fram óskalista um hvað ætti að vera á diskinum og svo passaði ég upp á fjármagnið.“ Að hluta til er efnið á diskinum tekið upp í listasafni Einars Jóns- sonar. „Það safn er einstaklega fal- legt og kannski þekkja það ekkert mjög margir,“ segir Anna María. Á diskinum syngur Jóhanna Vigdís Arnardóttir jólalag og les sögu, Herdís Egilsdóttir leiðbeinir við jólaföndur og sr. Ása Björk Ólafs- dóttir rifjar upp sögu aðventunnar. Árni Björnsson þjóðháttafræð- ingur svarar spurningum barna um jólin í gamla daga og sr. Hjört- ur Magni Jóhannsson flytur jóla- hugvekju. Auk þess syngur Skóla- kór Kársness jólalög. Upptökur fóru fram í Listasafni Einars Jóns- sonar, Fríkirkjunni í Reykjavík og Árbæjarsafni. Anna María fékk styrki til út- gáfunnar, m.a. frá Velferðarsjóði barna og diskarnir eru seldir í Hagkaupum. Morgunblaðið/Ásdís Hugmyndasmiðurinn Anna María Sigurðardóttir í garðinum við Listasafn Einars Jónssonar þar sem diskurinn var tekinn upp að hluta til. Mótvægi við öll lætin fyrir jólin STÓLKOLLAR hafa fengið stærri og veigameiri sess í hönnun og hí- býlum á fyrsta áratug 21. ald- arinnar en þeir hafa áður haft. Þessir stólar, sem hafa alltaf þótt hálfgildingar á við þá sem eru með baki, eru nú flottari og glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Hér á árum áður þóttu kollarnir ekki boðlegir annars staðar en í eldhúsinu og þá gjarnan nefndir eldhúskollar en nú eru þeir orðnir stofustáss enda oft mikið lagt í hönnunina. Þeir setja skemmtilegan svip á rými og eru hreyfanlegir svo auðvelt er að breyta til öðru hvoru. Morgunblaðið/Ásdís Stólkollar fá uppreist æru Sérstakur Þessi glæsilega kollaruna nefnist Gallery. Epal. Einfaldur Stundum er formið einfalt en áklæðið líflegt. Bo Klassískur Hvítur kollur skemmtilega og stílhreinn. Exó. Nútímalegur Sterkur litur og skemmtilega kúpt form. Exó.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.