Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 39
Mikil umsvif hafa ein-kennt allt starf íkringum íslenskahestinn síðustu árin.
Hestamennska hefur aukist
gríðarlega meðal þéttbýlisbúa
og er hestaíþróttin sú íþrótt og
það tómstundargaman sem
flestir Íslendingar
leggja stund á.
Hestamennskan
er fjölskylduvæn;
hún brúar kyn-
slóðabil og færir fólk
nær landinu sjálfu
og náttúrunni. Um-
ræðuefni skortir
aldrei á meðal hesta-
manna, þeir eru fé-
lagslyndir og hesta-
mennskan þéttir
raðir vina. Það deilir
enginn um það að
námið í Hólaskóla
og öflugir, vel menntaðir hesta-
menn hafi unnið þrekvirki,
þekking og meðferð á hestum er
önnur og reiðmennsku hefur
fleygt fram. Íslenski hesturinn
er sem slíkur alþjóðlegur, bæði
ræktaður og dáður í tugum
þjóðlanda.
Hrossabú og hrossabúgarðar
voru ekki til hér fyrr en á síð-
ustu árum og hefur þeim fjölgað
ört, þannig að hrossabændur
teljast nú fast að eitt þúsund,
þar af eru 200–300 bú þar sem
hesturinn og þjónusta í kringum
hann er aðalbúgrein.
Samtök hestamanna, bæði
Landssamtök hestamannafélaga
(LH), Félag hrossabænda og
Félag tamningamanna hafa átt
gott samstarf við landbún-
aðarráðuneytið um öflugt stuðn-
ingsform, þar sem peningar
hafa nýst vel til að taka á og
færa í betra horf margt sem
færir hestamennskuna og at-
vinnugreinina fram á veginn og
tryggir að upprunalandið Ísland
sé og verði forystulandið.
Eitt það þýðingarmesta og
það sem á eftir að breyta hesta-
mennskunni mest og jafna að-
stöðu hestamanna í landinu,
ekki síst í unglinga- og æsku-
lýðsstarfi, eru
áform um reiðhús
og reiðhallir víða
um land. Það hefur
heyrst í umræðunni
að þessum pen-
ingum væri betur
varið til annarra
verkefna. Ég ætla
ekki að deila um
það að mörg verk-
efni eru brýn og
þola illa bið. Mik-
ilvægt er að upplýsa
að þær 330 millj. kr.
sem varið verður til reiðhúsanna
af hálfu ríkisins, eru pen-
ingasjóður og andvirði eigna
sem Lánasjóður landbúnaðarins
lét eftir sig þegar sjóðurinn var
seldur. Andvirði sjóðsins, 2.653
millj. kr., var varið til lífeyr-
issjóðs bænda. Þessar 330 millj.
kr. hafa því orðið til innan land-
búnaðarins og koma öllum þeim
til góða sem starfa í hesta-
mannafélögum. Reiðhúsin munu
skila betri hestamönnum og
gera ungu fólki kleift í gegnum
reiðkennara og bætta kennslu-
aðstöðu að ná enn meiri færni í
hestamennskunni. Ég er sann-
færður um að þessi fjárupphæð
á eftir að hafa gríðarleg áhrif á
framþróun hestamennskunnar
sem íþróttagreinar, ekkert síður
en íþróttahúsin höfðu á frjálsar
íþróttir og sundlaugar á sundið.
Ég vil ennfremur þakka sveit-
arfélögum og fyrirtækjum
hvernig þau hafa víða gengið til
móts við hestamannafélögin og
tekið þátt í að stækka þessa
upphæð til þess að aðstaðan
verði enn öflugri. – Njótið vel,
hestamenn.
Reiðhús og
reiðhallir
hestamanna
Eftir Guðna Ágústsson »… þessi fjár-upphæð á eftir
að hafa gríðarleg
áhrif á framþróun
hestamennskunnar
sem íþróttagrein-
ar …
Guðni Ágústsson
Höfundur er
landbúnaðarráðherra.
sins. Al-
dur
eglulega
ur í
i.
nta-
Thor sem
bók-
kynninga
islandsk
heldur
úsinu á
ik eins
gerði oft
t bóka-
kum og
dóttir
inni í
aðra
dinn á
rinn.
rfræktur
börn á
Þetta er
ur
em
ur
ska for-
eldra sem hér búa vita af þess-
ari starfsemi þannig að sem
flestir komi í skólann. Sveit-
arfélögum í Danmörku er skylt
að greiða kostnað við kennslu
móðurmáls barna.
Íslenski söfnuðurinn, safn-
aðarnefnd, heldur hér fundi.
Kirkjukórinn heldur fundi og
æfir í Jónshúsi.
Kvennakórinn æfir í Jónshúsi.
Kórinn Staka hefur hér æf-
ingaaðstöðu.
Auk alls þessa má nefna fé-
lagsvist einu sinni í mánuði,
fermingarfræðslu einu sinni í
viku allan veturinn, reglulega
kaffisölu á sunnudögum sem kór-
arnir sjá um til skiptis í fjáröfl-
unarskyni.
Jón Runólfsson er for-
stöðumaður Jónshúss og stýrir
því með glæsibrag ásamt konu
sinni Ingu Harðardóttur. Húsið
er, segir Jón, opið í um klukku-
stundir á viku fyrir margskonar
fasta starfsemi auk þess sem
gestir og gangandi leggja leið
sína í Jónshús til þess að kynnast
húsinu og þó sérstaklega sýning-
unni um starf Jóns Sigurðssonar,
sem er á næst efstu hæð hússins.
Það er algerlega ómissandi þátt-
ur í heimsókn til Kaupmanna-
hafnar að koma þar og sjá hvern-
ig þau Jón og Ingibjörg opnuðu
íbúð sína litla fyrir öllum þeim
Íslendingum sem vildu heim-
sækja þau og sækja ráð til þeirra
af margvíslegu tagi.
Jónshús er perla í því íslenska
menningarsamfélagi sem enn er í
Kaupmannahöfn. Í Danmörku
búa um 10 þúsund Íslendingar og
hingað koma tugir þúsunda
ferðamanna árlega. Hér er mikil
Íslandssaga sem er gaman að
virða fyrir sér en Kaupmanna-
höfn var höfuðborg Íslands í 500
ár.
Í tengslum við fund stjórnar
hússins 9. nóvember sl. afhenti
Þórunn Guðmundsdóttir Jensen
stórkostlega fallegt málverk er
hún gerði eins og horft væri úr
Kverkfjöllum norður og austur
eftir hálendi Íslands. Karl Krist-
jánsson tók við málverkinu fyrir
hönd Alþingis og mun það prýða
aðalsal hússins um ókomin ár.
Gjöfin sýnir þann hlýja hug sem
Íslendingar búsettir í Danmörku
bera til Jónshúss.
Hús Jóns Sigurðssonar er
þannig félagaheimili enn í dag –
rétt eins og flestir geta ímyndað
sér að Jón Sigurðsson hefði sjálf-
ur viljað hafa í þessu húsi því
saman ráku þau Ingibjörg fyrsta
íslenska félagsheimilið erlendis.
Tilgangurinn með þessum línum
er að þakka fyrir þetta hús sem
er mikilvægt fyrir alla Íslendinga
hvort sem þeir búa í Danmörku
eða á Íslandi.
mili og
urðssonar
» Jónshús er perla íþví íslenska
menningarsamfélagi
sem enn er í Kaup-
mannahöfn.
Höfundur er sendiherra Íslands
í Danmörku.
TENGLAR
.............................................
http://www.jonshus.dk.
Jónshús í Kaupmannahöfn.
isfjármálum, umfangsmikið einkavæðingarferli,
skattalækkanir og breytingar á lífeyriskerfinu.
Valgerður sagði orðræðuna um Evrópumálin að
breytast, sleggjudómar séu fátíðari og hnútukastið
hafi minnkað. „Yfirveguð og málefnaleg viðbrögð
allra málsmetandi stjórnmálaflokka og stjórnmála-
manna við nýlegu upphlaupi þingmanns Frjálslynda
flokksins um innflytjendur er skýrt dæmi um
hversu mörg skref okkur hefur auðnast að stíga á
þessari þroskabraut okkar í samskiptum við aðrar
þjóðir,“ sagði Valgerður.
Svipaða sögu megi segja af þátttöku í Schengen-
samstarfinu. Í upphafi hafi öll umræða snúist um
vegabréfafrelsi, biðraðir á flugvöllum og það hversu
mikið breytingar og stækkanir á Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar myndu kosta.
„Í þeirri baráttu sem við heyjum á degi hverjum í
glímunni við alþjóðlega glæpahringi, mansal og
fíkniefnasmygl, leikur Schengen-samstarfið lykil-
hlutverk og það hefur sennilega aldrei haft meira
vægi fyrir Ísland en einmitt nú. Þá tel ég einsýnt að
þær breytingar sem orðið hafa á varnarsamstarfi
Íslands og Bandaríkjanna við brottför varnarliðsins
muni færa okkur nær frændum okkar á Norður-
löndunum og öðrum Evrópuríkjum,“ sagði Valgerð-
ur.
n í
við
ar-
pu-
gði
og
afi
álf-
uð-
rf-
æri
um
an
ós
kk-
æð
at-
að
afi
kki
ík-
kk fyrir
ambandið
Morgunblaðið/Ómar
ð búum í,“ sagði Valgerður. „Hvort sem við gerum það
u á okkar forsendum þegar og ef við kjósum.“
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Tveimur spurningum erósvarað um áhugaNorðmanna á að-komu að varn-
armálum við Ísland, að mati
Vals Ingimundarsonar, pró-
fessors í sagnfræði við hugvís-
indadeild Háskóla Íslands.
Spurningarnar lúta að form-
legri stöðu málsins innan Atl-
antshafsbandalagsins, og af-
stöðu Bandaríkjanna til þess.
Valur gerði hlutverk Evr-
ópuþjóða í íslenskum utan-
ríkis- og öryggismálum að um-
ræðuefni í erindi á ráðstefnu
um nýja stöðu Íslands í örygg-
ismálum sem fram fór í Þjóð-
minjasafni Íslands í gær. Þar
ræddi hann m.a. um áhuga
Norðmanna á íslenskum varn-
armálum, sem fjallað var um í
Morgunblaðinu sl. sunnudag.
„Tveimur spurningum er
ósvarað. Í fyrsta lagi hvort ís-
lensk stjórnvöld vilji gera
þetta formlega innan loftferða-
eftirlits NATO, eins og Norð-
menn vilja, og leggja áherslu á.
Því hefur ekki verið svarað. Í
öðru lagi hvort Bandaríkja-
menn styðji málið, eins og þeir
lofuðu árið 2004, en þetta kom
upp þá þegar deilurnar stóðu
um orrustuþoturnar hér,“
sagði Valur.
Hann segir Norðmenn líta
svo á að Ísland geti end-
urheimt landfræðipólitískt
vægi vegna orkuflutninga um
landhelgi landsins, auk þess
sem þörf sé á öflugra fiskveiði-
eftirliti á Norður-Atlantshafi.
„Flutningar risaskipa ná-
lægt ströndum Íslands vekja
öryggispólitískar spurningar.
Hættan af slysum getur aukist
verulega er aðflutningsleiðir
milli heimsálfa færast nær
landinu,“ sagði Valur.
„Ástæða þess hversu mikla
áherslu Norðmenn leggja á
norðurslóðir er einkum sú að
þeir vilja standa vörð um olíu-
og gashagsmuni, og fullveld-
ishagsmuni sína, ekki síst á
Barentshafi og gagnvart Rúss-
um. Þeir hafa átt í langvinnum
landamæra-
deilum við
Rússa um
efnahags-
lögsöguna í
Barentshafi,
en það
svæði sem
hér um ræð-
ir hefur að
geyma veru-
legar olíu-
lindir.“
Frá og með næsta ári munu
olíu- og gasflutningar Norð-
manna og Rússa til Bandaríkj-
anna aukast nokkuð. Valur
fullyrti í gær að þar yrði þó
ekki um stóraukningu að ræða.
Um tíma hafi litið út fyrir að
Rússar hygðust flytja meg-
inhlutann af fljótandi gasi sem
unnið yrði á næstu árum til
Bandaríkjanna, sem hefði get-
að haft í för með sér gerólíkt
ástand í íslenskum öryggis-
málum á öðrum áratug þess-
arar aldar.
Rússar hafi hins vegar
ákveðið fyrir skömmu að flytja
gasið eftir gasleiðslum til Evr-
ópu, en ekki með skipum til
Bandaríkjanna, þó sumir telji
að sú ákvörðun sé ekki end-
anleg. Í það minnsta sé ólíklegt
að þessir flutningar verði eins
miklir og áður var talið.
Undir þrýstingi
Valur sagði yfirmenn í norska
hernum undir miklum þrýst-
ingi um að skera niður kostn-
að. Auk þess virtist ljóst að
þeir hefðu svipaða afstöðu og
Donald Rumsfeld, fyrrverandi
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, að fastar herstöðvar
skiptu minna máli en áður, það
sem mestu skipti væri hreyf-
anleiki hersveita, herbúnaðar
og borgaralegra sveita.
„Því má ekki gera ráð fyrir
því að þetta verði eitthvert
verulegt framlag; íslensk
stjórnvöld þurfi að leggja eitt-
hvað af mörkum. Þau hafa lýst
sig reiðubúin til að leggja
meira til öryggismála með því
að festa kaup á nýju varðskipi,
flugvél og þremur þyrlum,“
sagði Valur.
Afstaða Banda-
ríkjamanna enn
ekki komin fram
Valur
Ingimundarson