Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 53
✝ Marja IngibjörgSveinsdóttir var
fædd á Skarði í
Skarðshreppi á
Reykjaströnd í
Skagafirði 27. júlí
1910. Hún andaðist
á Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar 16.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Sveinn Lár-
usson, f. 14. apríl
1887, d. 29. mars
1972, og Lilja Krist-
ín Sveinsdóttir, f. 7.
ágúst 1881, d. 1933. Seinni kona
Sveins var Una Friðriksdóttir, d.
2005. Bræður Ingibjargar voru
Lárus Sigurberg Sveinsson, f. 24.
júní 1912, d. 24. ágúst 1993, og
Sveinn Þórarinn Sveinsson, f. 2.
nóvember 1914, d. 1. desember
1995.
Hinn 15.apríl 1939 giftist Ingi-
björg Páli Ásgrímssyni, f. 21. mars
1892, d. 3. ágúst 1978. Foreldrar
Páls voru Ásgrímur Sigurðsson, f.
8. desember 1856, d. 23. júní 1936,
og Sigurlaug Sigurðardóttir, f. 21.
desember 1861, d. 4. apríl 1952.
Ingibjörg og Páll eignuðust þrjú
börn. Þau eru: 1) Magnús, f. 6.
september 1939, maki Anna Ólafs-
dóttir, f. 4. júlí 1940. Fyrri kona
eru Eiríka og Páll. Fyrir hjóna-
band átti hann eina dóttur, Birg-
ittu. Hún býr í Danmörku.
Ingibjörg fluttist á fyrsta aldurs-
ári með foreldrum sínum að Steini
á Reykjaströnd þar sem hún bjó til
16 ára aldurs, en þá fluttist fjöl-
skylda hennar að Ingveldarstöðum
á Reykjaströnd þar sem hún átti
heima til 25 ára aldurs. Þaðan
flutti hún til Akureyrar og var þar
einn vetur. Síðan flutti hún til
Siglufjarðar og vann þar við heim-
ilisstörf til 1938, er hún réðst sem
ráðskona til Páls Ásgrímssonar að
Mjóstræti 2. Ingibjörg tók þar við
heimilishaldi, en kona Páls hafði
látist frá þremur ungum drengjum
nokkrum árum áður. Einnig var
öldruð móðir Páls, Sigurlaug, á
heimilinu þar til hún lést.
Ingibjörg vann við síldarsöltun
meðan síld kom til Siglufjarðar og
eftir það við fiskvinnslu. Hún starf-
aði í verkakvennafélaginu Vöku
og í kvennadeild slysavarnafélags-
ins Vörn. Einnig tók hún virkan
þátt í félagsstarfi aldraðra meðan
hún hafði heilsu til. Ingibjörg bjó
alla sína búskapartíð í Mjóstræti 2
en veturinn 1990 flutti hún í Skál-
arhlíð, dvalarheimili aldraðra á
Siglufirði þar sem hún bjó meðan
heilsa hennar leyfði. Síðustu árin
dvaldi hún á Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar.
Ingibjörg verður jarðsungin frá
Siglufjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Magnúsar var Kol-
brún Hálfdán-
ardóttir, dóttir þeirra
er Harpa Hrönn. 2)
Sigríður, f. 10. des-
ember 1940, maki Jó-
hann Löve, f. 30. júlí
1935. 3) Lilja, f. 15.
janúar 1948, maki
Magnús Stein-
grímsson, f. 2. júní
1951. Börn þeirra eru
Sigurjón H., Ingi-
björg og Ríkey Huld.
Langömmubörn Ingi-
bjargar eru sjö tals-
ins. Páll átti þrjá syni frá fyrra
hjónabandi. Þeir eru: 1) Indriði, f.
15. desember 1927, maki Elísabet
Hermannsdóttir, f. 16. júní 1928.
Börn þeirra eru Sigríður og Einar
Páll. 2) Einar, f. 9. apríl 1929, d. 18.
júní 1977, maki Matthildur Har-
aldsdóttir, f. 29. ágúst 1941. Sonur
þeirra er Einar Örn. Fyrri kona
Einars var Inga Heide. Börn
þeirra eru Stefán og Margrét
Heide. Fyrir hjónaband átti Einar
eina dóttur, Sigrúnu, móðir henn-
ar er Þórunn Bergþórsdóttir 3) Ás-
grímur, f.13. ágúst 1930, d. 17. des-
ember 1984, maki Ragnheiður
Hermannsdóttir, f. 11. janúar
1947. Fyrri kona Ásgríms var
Anna Þorgrímsdóttir. Börn þeirra
Kveðja til móður.
Við kveðjum þig með kærleiksríkum huga,
þér Kristur launar fyrir allt og allt.
Þú varst svo sterk og lést ei böl þig buga
og birtan skín í gegnum húmið kalt.
Það er gott er lífsins degi lýkur,
að ljómi birta um þann sem kvaddur er.
Því eitt er víst, að Guð vor gæskuríkur,
glaða framtíð hefur búið þér.
Kæra mamma, ljúfur Guð þig leiði,
um landið efra að Edens fögrum lund,
og á þinn legstað blóm sín fögur breiði,
svo blessi Drottinn þessa hinstu stund.
Í okkar hjarta ljúf þín minning lifir,
þú leiddir okkur fyrstu bernskuspor.
Við biðjum Guð, sem ræður öllu yfir,
að enn þér skíni blessuð sól og vor.
(H. J.)
Við þökkum fyrir árin sem við átt-
um með þér.
Hvíl í friði.
Magnús, Sigríður og Lilja.
Mér brá svolítið þegar faðir minn
hringdi og tilkynnti mér að amma
væri dáin. Það kom svo snöggt. Ég
hugsaði svo oft til hennar ömmu
gömlu sem bjó fyrir norðan, og sá
fyrir mér brosmilda konu sem alltaf
var að gera að gamni sínu, því hún
hafði góðan húmor. 96 ára er hár ald-
ur en gamla konan var bara hress
þegar við heimsóttum hana í ágúst
síðastliðnum. En svona er lífið. Það
er margt sem rennur í gegnum huga
mér núna. Minningar frá því ég var
barn og var að heimsækja ömmu á
Sigló. Við komum oftast að kvöldlagi
því þetta var löng keyrsla í þá daga.
Við vorum flest orðin þreytt og úrill
þegar við renndum í hlað. Þá stóð sú
gamla úti, brosandi út að eyrum og
beið eftir okkur. Ilmurinn af kakói og
pönnukökum fylltu loftið. Þetta var
góður tími. En svo fór heimsóknum
að fækka þegar mamma og pabbi
slitu samvistum. En ég fór svo aftur
að heimsækja hana þegar ég var sjálf
komin með mann og börn. Ein minn-
ing kemur alltaf sterk fram í huga
minn. Það var þegar við komum
nokkur sumur í röð á Siglufjörð á fót-
boltamót með dóttur okkar hana
Tönju. Amma var alltaf jafn hissa og
hneyksluð á því að telpan tæki þátt í
þessari drengjaíþrótt, því að fótbolti
væri of grófur fyrir telpur. Hún ætti
miklu frekar að spila handbolta. Það
væri snilldar íþrótt. Amma hafði
nefnilega gaman af handbolta og
horfði oft á hann í sjónvarpinu. Það
var líka annað sem amma hafði alltaf
áhyggjur af eftir að hún flutti af Mjó-
strætinu og upp á elliheimili og það
var hvort við hefðum nóg að borða.
Já, svona var hún amma mín. En
minningarnar geymast áfram þótt
amma sé farin.
Elsku amma, Guð geymi þig og
varðveiti.
Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum föðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu föðurhjarta.
Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga,
en sér í lagi þau sem tárin lauga,
og sýndu miskunn öllu því, sem andar,
en einkum því, sem böl og voði grandar.
(M. Joch.)
Kveðja.
Harpa Hrönn og fjölskylda.
Í dag kveðjum við elskulega ömmu
okkar og langömmu, Ingibjörgu
Sveinsdóttur, sem var alltaf kölluð
amma Inga eða bara amma á Sigló.
Þar sem amma Inga bjó á Siglufirði
en við í Reykjavík urðu samveru-
stundirnar ekki mjög margar á
hverju ári en góðar. Þegar maður
kom í heimsókn til ömmu á Sigló þá
vaknaði maður oftar en ekki við ilm-
inn af nýbökuðum pönnukökum.
Einnig lumaði amma Inga oft á
heimatilbúnum ís í frystinum og þótti
það mjög eftirsóknarvert að fá slíkt
góðgæti. Meðan heilsa ömmu leyfði
kom hún alltaf til Reykjavíkur um
jólin og var hjá okkur.
Eins og gengur og gerist var æv-
inlega farið með ömmu í búðir og var
það hlutverk okkar krakkanna að
finna ömmu eftir að hún hafði „týnst“
í búðunum við að skoða allt sem ekki
var til í búðunum á Siglufirði. Einnig
var það merki þess að amma væri
komin til okkar að öll útvarpstæki í
húsinu voru hærra stillt en venjulega
svo engin hætta væri á að missa af
veðurfréttunum. Amma hafði gaman
af því að spila bingó enda voru það
ófá skiptin sem amma gaf okkur
krökkunum hluta af þeim vinningum
sem hún hafði unnið á bingó. Á seinni
árum fór amma að mála dúka og
postulín sem við nutum góðs af.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Við biðjum góðan guð að geyma
þig og varðveita, elsku amma.
Sigurjón, Inga, Ríkey
og fjölskyldur.
Ingibjörg Sveinsdóttir
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Undirskrift | | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á myndamót-
töku: pix@mbl.is og láta umsjónar-
menn minningargreina vita.
Minningargreinar
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
ÞÓRÐAR MATTHÍASAR SIGURJÓNSSONAR
bónda,
Fosshólum.
Guð blessi ykkur öll.
Vilborg Gísladóttir,
Jón Þórðarson,
Guðmunda Anna Þórðardóttir, Sæmundur Kr. Egilsson,
Sigríður Arndís Þórðardóttir, Sigurður Sigurðarson,
Vilborg María Ísleifsdóttir, Sigurður Matthías Sigurðarson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MARINÓ E. ÞORSTEINSSON
leikari,
Víðilundi 20,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn
27. nóvember kl. 13.30.
Þorsteinn Marinósson, Bryndís Guðnadóttir,
Ingibjörg M. Marinósdóttir, Óli Þór Ragnarsson,
Guðrún Marinósdóttir, Kristján Lilliendahl,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR BALDVINSSONAR
veitingamanns í Mokka Kaffi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Droplaugarstöðum.
Guðný Guðjónsdóttir,
Oddný Guðmundsdóttir, Gunnar R. Kristinsson,
Sesselja Guðmundsdóttir, Hannes Sigurðsson,
Örn Guðmundarson, Rafael Varona,
Stefán Arnar, Guðný, Hildur og Hugrún.
✝
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
ÖNNU FINNBOGADÓTTIUR.
Finnbogi Á. Guðmarsson, Metta Kwanthong,
Erna Guðmarsdóttir, Steinþór Sigurðsson,
Örn Guðmarsson, Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
Elín Ágústsdóttir, José Ramos,
barnabörn, barnabarnabarn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar,
MARTHA KRISTJÁNSSON,
Brúnastekk 2,
Reykjavík.
lést á heimili sínu fimmtudaginn 23. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vala og Brynja Kristjánsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
minnar, fósturmóður, ömmu, systur og mágkonu,
BIRNU INGIBJARGAR EGILSDÓTTUR,
Stórholti 6a,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á
gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurður Sigmarsson,
Helgi Jónsson, Nótt Magdalena Helgadóttir,
systkini og mágar.