Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 54

Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 54
54 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ RagnheiðurJónsdóttir frá Þrúðvangi í Vest- mannaeyjum fædd- ist í Selkirk í Kan- ada 4. desember 1905. Hún lést á Hraunbúðum, dval- arheimili aldraðra í Vestmannaeyjum, 9. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson frá Dölum, Vestmannaeyjum, f. 15.7. 1869, d. 4.9. 1962, og Guðríður Bjarnadóttir frá Svaðkoti í Vestmannaeyjum, f. 28.2. 1875, d. 3.9. 1950. Börn Jóns og Guðríðar voru: Bjarni, f. 1896, dó í frumbernsku, Jóna Jóhanna, f. 10.7. 1899, d. 1906/07, Bjarney Ragnheiður, sem hér er minnst, Jóna Jóhanna, f. 29.12. 1907, d. 4.10. 2005, og Ólafur Gunnsteinn, f. 12.12. 1911, d. 30.3. 1984. Jón og Guðríður fluttu til Kanada skömmu eftir aldamótin 1800– 1900, en komu aftur heim haustið 1907. Árið 1908 byggðu þau húsið Brautarholt við Landagötu í Vest- mannaeyjum, og var fjölskyldan jafnan kennd við það hús. Fyrri maður Ragnheiðar var Arthur Aanes. Þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru: A) Guð- jón Emil, f. 24.7. 1930, d. 8.5. 1983, eiginkona Una Þórðardóttir, f. 1926, d. 1996. Þeirra börn eru: 1) Ragnar Jón, f. 1952, sambýliskona Berglind Þórhallsdóttir, f. 1960. Ragnar á tvær dætur og fimm barnabörn. 2) Þóra, f. 1953, maki á Bakka í Kelduhverfi 25.8. 1900, d. 6.6. 1979. Börn þeirra eru: A) Óli Haukur, f. 16.10. 1935, d. 22.1. 1937. B) Hólmfríður, f. 24.2. 1940, maki Ragnar Jóhannesson, f. 1932. Þeirra börn eru: 1) Ragn- heiður Anna, f. 1960, maki Einar Þ. Waldorff, f. 1956, þau eiga eina dóttur, að auki á Einar tvo syni. 2) Linda Kristín, f. 1964, maki Ómar Bragi Birkisson, f. 1961, þau eiga þrjú börn. 3) Sigurður Ingi, f. 1965, eiginkona Guðfinna Evgenía Sigurðardóttir, f. 1965, þau eiga tvo syni. 4) Ragnar Þór, f. 1972, eiginkona Stella Mjöll Aðalsteins- dóttir, f. 1976, þau eiga einn son. 5) Sindri Freyr, f. 1981, ókvæntur og barnlaus. C) Gerður Guðríður, f. 27.12. 1944, maki Guðni Ólafs- son f. 1943, d. 1999. Þeirra börn eru: 1) Agnar, f. 1966, eiginkona Svanhvít Yngvadóttir, f. 1967. Agnar á þrjú börn og þrjú fóstur- börn. 2) Sigurður Óli, f. 1968, eiginkona Rannveig Þyrí, f. 1968, þau eiga tvö börn. 3) Bjarki, f. 1972, sambýliskona Rakel Einars- dóttir, f. 1977. Bjarki á einn son og eina fósturdóttur. 4) Ragnheiður Guðfinna, f. 1980, sambýlismaður Tryggvi Þór Hafstein, f. 1975. Ragnheiður á einn son. Ragnheiður var einn af stofn- endum Slysavarnafélagsins Ey- kyndils, Kvenfélags Landakirkju, Oddfellowstúkunnar nr. 3 Vil- borgar og Félags eldri borgara í Vestmannaeyjum. Mestan hluta ævi sinnar sinnti hún húsmóður- störfum, en vann einnig um nokk- urra ára skeið við ræstingar í Sparisjóði Vestmannaeyja og Magnúsarbakaríi. Ragnheiður verður jarðsungin frá Landakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Sveinn Rúnar Val- geirsson, f. 1955, eignuðust fjóra syni, barnabörnin eru sex. 3) Sigurður Víglund- ur, f. 1956, eiginkona Ásdís Haraldsdóttir, f. 1956, þeirra börn eru tvö og eitt barna- barn. 4) Helga, f. 1958, maki Tryggvi Sveinsson, f. 1956, þau eiga tvo syni og eitt barnabarn. 5) Kristín, f. 1961, sam- býlismaður Sigfús Jóhannsson, f. 1964. Kristín á þrjú börn og tvö barnabörn. 6) Sverrir Guðjón, f. 1965, d. 1995, eiginkona Magdalena Ásgeirsdóttir, f. 1966, þau voru barnlaus. B) Stúlka, fædd andvana 1931. C) Örn, f. 18.11. 1932. Fyrri kona Guðrún María Halldórsdóttir, f. 1933, þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Kristinn Jón, f. 1960, eiginkona Ekaterina Ivanova, f. 1962. Krist- inn á eina dóttur. 2) Margrét Mar- ín, f. 1965, maki Einar Karlsson, f. 1968 og eiga þau tvær dætur. Seinni kona Erla Guðjónsdóttir, f. 1932, þau slitu samvistum. Börn þeirra: 1) Guðríður, f. 1970, maki Hafliði Þórðarson, f. 1967. Guð- ríður á þrjú börn. 2) Eiríkur Örn, f. 1977, ókvæntur og barnlaus. Örn ól einnig upp þrjú fósturbörn, Halldór Guðmund Bjarnason, f. 1954, Theódóru Jónu Þórarins- dóttur, f. 1953, og Guðjón Þór Þór- arinsson, f. 1960. Hinn 20. júlí 1935 giftist Ragn- heiður Sigurði Ólasyni forstjóra, f. Elskuleg móðir okkar, Ragnheið- ur Jónsdóttir frá Þrúðvangi, er látin í hárri elli. Fyrir tæpu ári síðan hélt hún upp á 100 ára afmæli sitt með stæl. Það var stór stund fyrir hana að ná þessum tímamótum og mikið var hún glöð að sjá flesta afkomendur sína, aðra ættingja og vini, sem fjöl- menntu og fögnuðu með henni. Mamma fæddist í Selkirk í Kan- ada hinn 4. desember 1905 en fluttist til Vestmannaeyja með foreldrum sínum tæplega tveggja ára gömul og bjó í Eyjum alla tíð síðan. Hún mamma var að mörgu leyti merkileg kona og í raun og veru langt á undan sinni samtíð. Hún varð í raun og veru aldrei gömul í okkar augum, var ung í anda, fylgdist vel með og talaði oft um að ef hún væri nú „sjötug stúlka“ þá væru henni all- ir vegir færir. Hún hafði svo sannarlega lifað tímana tvenna og hafði frá mörgu að segja frá liðinni tíð. Henni fannst stórkostlegt hve tækninni fleygði fram og var fljót að tileinka sér flest- ar þær nýjungar sem buðust. Hún hafði t. d. mikla ánægju af að horfa á sjónvarp og vídeó og fannst stórkost- legt að geta tekið upp efni úr sjón- varpinu og geta síðan horft á það aft- ur seinna, enda nýtti hún sér það ótæpilega. Hún var dugnaðarforkur og vann öll sín verk af vandvirkni og sam- viskusemi og það er óhætt að segja að aldrei hafi henni fallið verk úr hendi. Alveg fram undir það síðasta var hún að vinna alls konar handa- vinnu og útbjó hvert listaverkið af öðru. Það eru ekki nema um fjögur ár síðan hún þræddi nálarnar fyrir „stelpurnar“ í föndrinu á Hraunbúð- um, þá 97 ára gömul. Hún starfaði mikið að alls kyns fé- lagsmálum hér í bæ og var heiðurs- félagi í nokkrum þessara félaga. Hún hafði mjög gaman af að spila og fyrir aðeins þremur árum vann hún fyrstu verðlaun í Félagsvist á Hraunbúð- um, ekki bara einu sinni, heldur fjór- um sinnum sama veturinn. Hún elskaði að ferðast og hafði farið víða um heim, m.a. fór hún til Kanada að skoða fæðingarbæ sinn. Árið 1993, þá nærri 88 ára að aldri, fór hún ásamt okkur systrunum og þremur barnabörnum sínum í ferða- lag til Englands, þar sem við fórum m.a. til Grimsby og fengum að skoða húsið þar sem hún starfaði sem vinnukona þegar hún var um tvítugt. Það fannst henni stórkostlegt. Lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá henni, en lundin var létt og fleytti henni yfir mörg boðaföllin. Það var yfirleitt stutt í hláturinn og glað- værðina hjá henni og oft slegið á létta strengi, enda var hún vina- mörg. Hún vildi öllum vel og þá sér- staklega þeim er minna máttu sín, en hún dró heldur ekki af að segja fólki til syndanna ef henni mislíkaði. Ung að árum lærði hún að spila á píanó. Hafði hún mikla ánægju af grípa í píanóið, eins og hún sagði og gerði það allt þar til hún fór á Dval- arheimili aldraðra í byrjun árs 2002, jafnvel þó hendurnar væru orðnar vinnulúnar og krepptar. Elsku mamma. Við viljum þakka þér fyrir allt sem þú gafst okkur og allt það sem þú varst okkur með þessum ljóðlínum: Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig, elsku mamma. Þínar dætur Fríða (Hólmfríður) og Gerður Guðríður Sigurðardætur. Týndu ekki buddunni! Hvað þessi áminning fékk oft að fljóta með í mínum uppvexti, en mér, krakkan- um, varð það á að týna fínu frönsku buddunni sem hún keypti í París á sínum tíma, í stuttri sendiferð fyrir hana, líklega á Skólaveginum á leið- inni í bakaríið. Þetta varð venjulega síðasta kveðjan áður en haldið var að heiman, hvort heldur var út í búð eða „upp á land“ en síðustu áratugi sem okkar prívat spaug og hlógum við þá og blikkuðum hvor aðra. Amma var fædd í Kanada 4. des- ember 1905 og ól mig upp að hætti aldamótakynslóðarinnar þar sem nýtnin var í fyrirrúmi – „öngu hent“ sem átt gæti eitthvert notagildi. Þess vegna voru nokkur pör af ónýtum gúmmíhönskum í vaskaskápnum því þeir voru klipptir niður í teygjur, og ein skúffan í eldhúsinu troðfull af plastpokum og plastfilmum – sí- þvegnum – því það mátti nota aftur og aftur. Ljós hvergi látin loga að óþörfu, né vatn látið renna. Ofnskúff- an full af hertum brauðskorpum því þær voru „snakk“ sjöunda áratugar- ins, gjarna notið yfir nýfengnu sjón- varpi. En allur var varinn góður með sjónvarpið, þess vegna voru sett á mig stór og mikil sólgleraugu við sjónvarpsgláp og litfilma yfir sjón- varpsskjáinn, bæði til varnar og til „litar“ á svarthvítu efninu. Sjón- varpsefnið Walter og Connie var enskukennsla sjónvarpsins á fyrstu árum þess og það nýtti amma sér mér í hag, því kennslubók var keypt og hún hlýddi mér yfir ásamt því að rifja upp sína ensku, en hún kom til Íslands tveggja ára, altalandi á enska tungu. Eini óþarfinn sem ég man eftir að hún leyfði sér var að kaupa norsku vikublöðin, en jafnvel þau fengu lengri lífdaga hjá ömmu, því hún útbjó „júmbóblöð“ fyrir krakkana með því að rífa út úr þeim teiknimyndasögur og saumaði síðan bunkann saman með þykkum græn- um maskínupappír utanum sem kápu. En þó hún sparaði við sjálfa sig var hún mjög örlát við aðra. Amma lifði tímana tvenna og jafn- vel þrenna þau hundrað og eina ár sem hún var hérna megin við tjaldið eins og hún orðaði það sjálf. Tvær heimsstyrjaldir, frostaveturinn mikla 1918 sem hún sagði mér oft frá, kreppunni og skömmtunarmið- unum þar sem hún varð oft að fara á fætur fyrir allar aldir og standa í langri röð eftir mjólkurpotti eða öðr- um brýnum nauðsynjum. Þar við bættist flótti undan eldgosi 1973 með afa sem orðinn var veikur af þeim grimma sjúkdómi Alzheim- er. Eftir að hafa búið í Hafnarfirði og Grindavík fluttu afi og amma aftur til Vestmannaeyja 1975. Heilsu afa hrakaði en amma stóð vaktina þar til hann lést árið 1979. Eftir lát afa varð tíminn rýmri hjá ömmu og hún hóf að framleiða söluvörur, m.a. kleinur, sokka og kókoskúlur og það er mér oft umhugsunarefni hvað þessir aur- ar gátu orðið að digrum sjóðum, en fyrir kókoskúlusjóðinn fór hún m.a. í nokkrar utanlandsferðir og skemmti sér konunglega í þeim öllum því hún hafði yndi af ferðalögum og betri ferðafélaga er vart hægt að fá. Við náðum að fara saman í nokkrar ferð- ir til Lindu, systur minnar, sem var búsett í Lúxemborg um langt skeið og þá skemmtum við okkur alltaf mjög vel. Amma var langflottust af okkur, hún þurfti ekki að færa til saumana eða laga föt eftir verslunar- ferðir, hún bara passaði í sína stærð. Eitt sinn þegar við vorum fáklæddar í sólbaði sagði hún stundarhátt und- an derhúfunni með kampavínsglasið í seilingarfjarlægð: „Asskoti eruð þið digrar stelpur,“ – þar fór það og við drógum inn bumburnar og fórum í bolina aftur. Samt held ég að Eng- landsferð ömmu ásamt okkur systr- um, mömmu, Gerði frænku og Sindra bróður hafi staðið upp úr að öðrum ferðum ólöstuðum, en þá tók- um við leigubíl frá London til Grimsby til að uppfylla drauminn hennar um að líta aftur augum húsið þar sem hún vann sem vinnukona um tvítugt. Hún vísaði okkur veginn að húsinu eins og hún hefði engu gleymt á þeim 70 árum sem liðin voru og jafnvel hliðið var eins, enn með áletr- uninni Brandur. Okkur var boðið að koma inn og glampinn í augunum hennar óx þar sem hún gekk á milli herbergja og rifjaði upp hvar einstök húsgögn hefðu staðið, og hver sat hvar. Við enduðum ferðina í York þar sem hún fékk að renna sér í gegnum víkingasafnið á vagni og hefði viljað fara aftur og aftur. Það var oft skálað í þessari ferð og gaf hún okkur ekkert eftir í sérríinu, rjóð í kinnum og skellihlæjandi. Bíl- stjórinn varð auðvitað hennar besti vinur og gaf henni að skilnaði mynd af sér og leigubílnum. Þessi ferð varð oft tilefni mikilla hlátraskalla og við skemmtum okkur við þessar minn- ingar síðustu stundirnar áður en hún dó. Amma var elst af þremur systk- inum og fékk því ýmiss konar skyld- ur umfram systkini sín. Má þar nefna að daglega varð hún að skila ákveðnu handavinnuverki, t.d. einum ramma í hekluðu rúmteppi. Var hún þá kölluð inn úr leik sjö ára gömul að hekla sitt skylduverk. Ég fékk síðan það verkefni að lappa upp á þetta teppi fyrir nokkrum árum og varð þá hugsað til hennar ömmu minnar sjö ára að hekla það sem ég varð að kljást við tímunum saman. Þetta varð þó kveikja að mikilli handa- vinnuástríðu því eftir hana liggja margir listilega vel unnir munir og má þar nefna gestadúk sem hún saumaði öll nöfn út í staðinn fyrir gestabók að ekki sé minnst á öll þau kynstur fatnaðar sem hún hefur saumað í gegnum áratugina á flesta fjölskyldumeðlimi. Snemma á níræðisaldri, hófst lík- lega hennar blómaskeið í lífinu, en þá fékk hún úthlutað íbúð í Kleifar- hrauni í tengslum við dvalarheimilið Hraunbúðir. Hún nýtti sér þó ekki þá þjónustu á neinn hátt, heldur sá um sig sjálf, eldaði ljúffenga rétti og bauð í mat. Uppáhaldið okkar voru fiskibollurnar hennar sem við hám- uðum í okkur, svo og steiktu gell- urnar, kafsteiktu kótiletturnar og lúðubuffið. Hún var mjög vinsæl heim að sækja og oft mjög gest- kvæmt. Þá brá hún sér oftsinnis nið- ur að Hraunbúðum að heimsækja gamla fólkið eins og hún orðaði það sjálf – sjálf manna elst. Síðustu ár voru útsaumaðar jóla- myndir, jóla- og áramótakort hennar aðalviðfangsefni og leitaði hún víða fanga í mynstri og blandaði saman svo útkoman varð sérhönnuð jólaæv- intýr, þá komu að góðum notum allir spottar og endar sem safnað hafði verið á síðustu áratugum. Amma var mikill dýravinur og hélt t.d. mús í geymsluskúr sem stóð við húsið og fæddi hana á konfekti og pylsum. Fuglarnir fengu sinn skammt af hertum brauðskorpum möluðum niður með sleggju og ljót- asti köttur Eyjanna, eyrnalaus, tannlaus og rófulaus fékk sína soðn- ingu bak við hús. Hún hló nú alltaf þegar ég sagði henni að fyrir þetta væri hún búin að fá mörg prik á himnum. Það fór að halla undan fæti hjá henni fyrir um fjórum árum, en þá varð hún fyrir því óláni að detta illa og eftir það varð hún að bregða búi og gerast vistmaður á Hraunbúðum. Hún var aldrei sátt við að fara svona snemma á elliheimili, aðeins 97 ára gömul, en gerði það besta úr því sem komið var, skrapp til Reykjavíkur keypti sér nýjar mublur í herbergið sitt og hélt áfram að bjóða gestum upp á konfekt og sérrí. Hún átti aldeilis hauk í horni þar sem mamma var því hún kom til ömmu öll kvöld ársins tvær til þrjár klst. í senn og hélt henni selskap og skipti þá engu hvort væri þjóðhátíð eða gamlárskvöld. Amma hélt þó áfram að láta sig dreyma og sagði oft að ef hún væri aðeins sjötug stúlka myndi hún flytja til Reykjavíkur, stofna fyrirtæki, vinna í tíu ár og ferðast síðan fyrir ágóðann. Nú er hún farin í langt ferðalag, sem er kannski ekki eins langt og okkur grunar, aðeins hinum megin við tjöldin. Hún sagðist flytja inn til mín þegar hún væri öll til að líta eftir nöfnum sínum, þ.e. mér og dóttur minni Bjarneyju, og ég held svei mér að hún sé komin. Ég kveð hana með miklu þakklæti og virðingu fyrir öllum þeim gildum sem hún gaf mér. Ég kveð hana með söknuði yfir því sem var en gleði yfir því sem verður. Og ég lofa að týna ekki buddunni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Guð blessi minningu ömmu minn- ar, sem var mér svo undurkær. Ragnheiður Anna Georgsdóttir. Ættmóðirin er hrokkin upp af standinum, svo notuð séu hennar eigin orð. Í mínum huga er amma ei- líf. Eilífðin og hún eru eitt. Enda lifir hún áfram í okkur afkomendunum. Amma var til staðar frá upphafi til- veru minnar, með blánku í hári og bros á vör og margar minningar tengjast henni. Hansarós í kristals- kál. Iðna Lísa og Fljúgandi diskar. Hin ógnvekjandi skör á Þrúðvangi, gula eldhúsborðið með skúffunni og kleinudeig. Knold og Tot. Gissur Gullrass. Sérsaumuð Júmbóblöð. Töludósirnar. Gimsteinar og ger- semar. Rúsínubrauð. Kaffikvörnin. Skammelið með hjartanu. Hjarta- vöfflur. Innkaupanetin og trollið. Fótstigna saumavélin sem orsakaði vott af sjóveiki, þegar legið var á fót- stiginu. Ævintýraheimur kjallarans. Litla jólatréð og spilandi töfrakirkja. Bíóferðir á sunnudögum í boði Óla Ísfeld. Sound of Music. Áfram- myndirnar. Hosiló. Tvistað í eldhús- inu og fætinum lyft með tilþrifum. Magarúll og söngur. Margnýttur smjörpappír. Plastpokar með kleinu- lykt. Borðtuskur sem héngu saman á lyginni. Þrettándaboð. Heitt súkku- laði. Kóngulóarkaka. Þorskkvarnir lagðar undir í púkki. Jassó á milli manna. Rommí. Smá svindl. Aldri og minnisleysi borið við. Rjóðar kinnar, bros á vör og glettni í augum. Amma steðjaði, arkaði og spásseraði. Bein í baki, upplitsdjörf, létt á fæti og kvik. Hún var ekki hávær kona, enda var Það ekki til siðs hjá hennar kynslóð að láta mikið fyrir sér fara. Þó var hún verulega fyndin og mörg tilsvör- in óborganleg. „Þetta er ekkert sjó.“ „Ekki er það vatn.“ „Skál fyrir Manga.“ „Mangi langi með......“ „Þetta er óttalegur galdragarmur.“ „Viltu ekki Bismarkinn, mann- eskja?“ „Heldurðu að maður verði svona gamall á að éta aldrei neitt út- runnið?“ Öll þessi tilsvör lifa góðu lífi, auk annarra sem ekki skulu tí- unduð hér. Amma ferðalangur. Pils í nælonsokkum. Blússurnar. Frúnni fært í rúmið í Bexhill. Jól og áramót í Lúxemborg. Rappteppið og slamm- að í takt. Dónastaupin á Kínastaðn- um – ég sé bara ekki neitt... Írsku koníaksglösin. Tómatsósuflöskurn- ar. Smyglarinn. Servíettuhringir. Bílabænir. Körfur. Gestadúkur. Skírnarkjóll. Jólakort. Eldspýtu- stokkar. Dúkar. Púðar. Dúkar. Púð- ar. Fatnaður. Bleiupokar. Óteljandi dýrgripir. Amma var allt þetta og svo miklu, miklu meira. Þó að árin yrðu næstum 101varð andinn aldrei gamall, lífsþorsti, gleði og hlátur fylgdu henni lengst af. Undir það síð- asta var hún búin að fá nóg og var meira en tilbúin að kanna ókunna stigu. Elsku amma, hafðu það gott hin- um megin, með bros á vör og blik í auga. Sakna þín, en samgleðst um leið. Takk fyrir samveruna. Linda Kristín Ragnarsdóttir og fjölskylda. Elsku amma mín. Nú er víst stundin runnin upp þar sem komið er Ragnheiður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.