Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 62

Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 62
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is MEÐAL áhugaverðra bóka í hinu títtnefnda jólabókaflóði er stórvirkið Mergur málsins. Íslensk orðatiltæki, uppruni saga og notkun, eftir Jón G. Friðjónsson. Titillinn útskýrir efnivið bókarinnar en er hér um að ræða stórbætta endurútgáfu samnefndrar bókar frá árinu 1993. Eru hér á ferðinni orða- tiltæki en ekki málshættir, föst orðasambönd, slagorð, orðasambönd og annað í þeim dúr. Jón ritar formála að bókinni en þar kemur meðal annars fram að textinn hefur aukist um liðlega þriðjung. Aukn- ingin er komin til meðal ann- ars vegna aukinnar yfirlegu höfundar yfir ýmsum ritum auk þess sem íslensku biblíumáli eru gerð betri skil. Ýmis orðatiltæki hafa svo bæst við í gegnum árin og fest sig í sessi í tungu- málinu. Sem dæmi um slíkt tiltekur Jón meðal annars að koma út úr skápnum og að það vanti nokkrar blaðsíður í einhvern. Stundum hafa þær áhyggjuraddir heyrst að orðaforði Íslendinga hafi minnkað mikið. Sumir vilja meira að segja taka svo djúpt í árinni að segja að íslensk tunga komi til með að deyja út og sé farin að blandast er- lendum tungumálum um of. Rúmlega þús- und blaðsíður af orðatiltækjum, uppruna þeirra og merkingu, sýna okkur að af nógu er að taka til að skreyta íslenskt mál og gera það sem fjölbreyttast. Að rota alla ketti í einni verstöð Efni bókarinnar er raðað upp eftir kjarna orðatiltækjanna, jafnan nafnorði. Fletti maður til dæmis upp nafnorðinu veggur getur maður fræðst um merkingu og upp- runa orðtakanna að læðast með veggjum, að mála skrattann á vegginn, að skilja ekki skriftina á veggnum og að standa með bakið uppvið vegg, svo fátt eitt sé nefnt. Undir nafnorðinu köttur má svo komast að hvað það þýðir að hengja bjölluna á köttinn, kaupa köttinn í sekknum, róa köttinn af gærunni og að rota alla ketti í einni verstöð. Við hvert uppflettiorð er hægt að sjá notkunardæmi, skýring- ardæmi, upprunaskýringu, er- lendar samsvaranir eða líkingu, allt eftir því sem við á. Bókin er hin skemmtilegasta aflestrar, margt kemur á óvart um uppruna orðatiltækja en ann- að þekkti maður áður. Gaman er að glöggva sig á sögu orða- tiltækja sem maður notar jafnvel í daglegu máli án þess að hugsa mikið úti hvaðan þau eru runnin. Råbe på Ulrik Orðatiltækið að kalla á Eyjólf þýðir að kasta upp. Færri vita kannski að orða- tiltækið er þýðing úr dönsku (råbe på Ulrik) en er líklega ekki dregið af hljóðinu við uppköst, enda myndar sú miður skemmti- lega iðja varla hljóð sem minna á orðið Eyj- ólfur. Allt önnur Ella er notað um eitthvað sem gegnir allt öðru máli. En hver er þessi Ella? Samkvæmt Mergi málsins á orðatiltækið rætur sínar að rekja til Eyrarbakka. Kaup- menn þar voru víst tregir til að lána mönn- um fyrir áfengi ef þeir voru skuldugir en gerðu undantekningar ef um erfidrykkjur var að ræða. Þetta munu margir hafa not- fært sér og segir sagan frá karli nokkrum frá Álftahól í Landeyjum sem átti konu að nefni Elín. Kallinn ætlar að fá smá sopa hjá kaupmanni út í krít og fullyrðir að Ella sé dáin. Þegar kaupmaðurinn gengur á hann um konumissinn sér kallinn að sér og full- yrðir að hann eigi við „allt aðra Ellu“. Ekki má gleyma garminum honum Katli er notað þegar ekki má skilja einhvern út- undan. Téður Ketill mun vera Mússólíní en setningin er fengin úr Útilegumönnunum, leikriti Matthíasar Jochumssonar. Það þykir ekki til eftirbreytni að bera kápuna á báðum öxlum frekar en að slá keilur. Menn vökva lífsblómið þegar þeir fá sér í aðra tána. Þetta eru aðeins örfá dæmi um orða- tiltæki sem hægt að fræðast um í Mergi málsins. Bókin er stórskemmtileg fyrir grúskara og áhugamenn og -konur um ís- lenskt mál. Bókin er svo myndskreytt skemmtilegum smámyndum eftir Ólaf Pétursson en sjá má sýnishorn af myndunum hér með greininni. Ella og garmurinn Ketill kalla á Eyjólf Mergur málsins er rúmlega þúsund blaðsíðna uppflettirit um íslensk orðatiltæki Eins og fjandinn sé á hælunum á honum. Bakari hengdur fyrir smið. Þá er fjandinn laus! Þetta grey er hvorki fugl né fiskur. Teymdur á asnaeyrunum. Hleypur eins og fætur toga. Býður hinn vangann. Sendur út af örkinni. |laugardagur|25. 11. 2006| mbl.is staðurstund Ort verður um snjóinn að þessu sinni í útvarpsþættinum Orð skulu standa sem er á dagskrá Rásar 1 í dag. » 67 útvarp Í Gerðubergi verður opnuð sýning á myndskreytingum úr barnabókum útgefnum á árinu. » 67 barnabækur Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson kynna íslenska tónlist í Rík- isútvarpi Spánar. » 64 tónlist Jón Þór Birgisson, eða Jónsi úr Sigur Rós, hefur opnað sýningu í Galleríi Turpentine ásamt Alex Somers. » 65 myndlist Stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt sáust þjóta um á vespu í borginni Ho Chi Minh í Víetnam. » 68 fólk TÓNLISTARHÓPURINN Camer- arctica leikur verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Dimitri Schostakowitsch á tvennum af- mælistónleikum í Norræna húsinu á morgun, sunnudag. Tónleikarnir eru á vegum 15:15 tónleikasyrpunnar og er tilefnið 250 ára fæðingarafmæli Mozarts og 100 ára afmæli Schostako- vitsch Á efnisskrám tónleikanna eru fjölbreytt kammerverk með mis- munandi hljóðfæraskipan, verk sem hópurinn hefur getið sér gott orð fyrir að leika á tónleikum í Reykjavík og vítt og breitt um landið síðastliðinn áratug. Á fyrri tónleikunum kl. 13:15 verða leikin Flautukvartett í C dúr KV 171 eftir W.A. Mozart, Rómönsur op. 127 fyrir sópran, fiðlu, selló og píanó eftir D. Schostakowitsch og Víólukvintett í B dúr KV 174 eftir W.A. Mozart. Sérstakir gestir Camerarctica á þeim tónleikum eru Marta G. Halldórsdóttir sópransöngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleik- ari. Á seinni tónleikunum kl. 15:15 eru á efnisskrá Strengjakvartett nr. 7, op. 108 eftir Schostako- vitsch og Klarinettkvintett í A dúr KV 581 eftir W.A. Mozart. Tónleikarnir eru um klukku- stundar langir hvorir um sig. Camerarctica skipa þau Hall- fríður Ólafsdóttir flauta, Ármann Helgason klarinett, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Martin Fre- wer fiðla, Guðrún Þórarinsdóttir víóla, Jónína Auður Hilmarsdóttir víóla og Sigurður Halldórsson selló. Tónleikarnir eru, eins og áður segir, í Norræna húsinu á morg- un og hefjast kl. 13:15 og 15:15. Tónleikar | Haldið upp á 250 ára Mozart og 100 ára Schostakowitsch Tvennir afmælistónleikar á vegum 15:15 Morgunblaðið/ÞÖK Æfing Tónlistarhópurinn Camerarctica á æfingu í Norræna húsinu í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.