Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning „WAGNER á sín góðu augnablik, en slæmu stundarfjórðunga“ lét Oscar Wilde einhverju sinni hafa eftir sér. Orð hans komu upp í hugann á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fimmtudagskvöldið, en þá var ein- göngu tónlist eftir Wagner á boð- stólum. Ekki bara „the best of“ eins og vaninn er á svokölluðum óp- erutónleikum, þ.e.a.s. vinsælustu aríurnar, forleikirnir og kóratriðin, heldur allur þriðji þátturinn úr óp- erunni Parsifal, auk Liebestod og forleiksins úr Tristan og Isolde. Vissulega spilaði hljómsveitin vel. Þar sem ég sat hljómaði forleikurinn að Tristan og Isolde ákaflega mjúk- ur og tær, en jafnframt gæddur þeirri ótrúlegu andagift sem ein- kennir tónlistina. Hinsvegar olli frammistaða söng- konunnar Ruth Marie Nicolay veru- legum vonbrigðum. Hún var svo skjálfrödduð að hin magnaða aría Liestod úr Tristan fór að mestu fyr- ir ofan garð og neðan hjá henni. Virða ber að Nicolay hljóp á elleftu stundu í skarðið fyrir aðra söng- konu; synd að söngur hennar heppn- aðist ekki almennilega. Fyrir utan slakan söng var styrk- leikajafnvægið á milli hljómsveit- arinnar og söngkonunnar alls ekki eins og það átti að vera. Það er þekkt vandamál að söngraddir ber- ast illa í Háskólabíói og hefði hljóm- sveitarsjórinn, Johannes Fritzsch, átt að gæta sín á þessu. Hann gerði það hinsvegar ekki, með þeim afleið- ingum að þegar mest gekk á sást söngkonan aðeins opna munninn í sífellu – en ekkert heyrist í henni fyrir gauraganginum í hljómsveit- inni. Svipaða sögu er að segja um flutn- inginn á þriðja þættinum úr Parsi- fal. Að vísu voru allir söngvaranir, þau Kolbeinn Ketilsson, Kristinn Sigmundsson, Wolfgang Schöne, að ógleymdum karlakórnum Fóst- bræðrum og félögum úr Hljómeyki, með öflugri og glæsilegri raddir en söngkonan fyrrnefnda, en samt voru það bara Kristinn og Schöne sem náðu almennilega í gegnum hljóm- sveitina – með herkjum. Og þar sem birtan í salnum var ekki nægileg til að maður gæti með góðu móti fylgst með framvindu óperunnar í tón- leikaskránni, var útkoman ekki beinlínis skemmtileg. Ég neita því ekki að Wagner var eitt mesta tónskáld sögunnar. Tón- list hans er svo meistaralega byggð upp að við hliðina á honum virka Verdi og Pucchini eins og gamlir skallapopparar. Engu að síður eru óperur hans einmitt það, ÓPERUR, með atburðarás sem ekki aðeins á að vera máluð í tónum, heldur einnig í leik og sviðsmynd. Tónlist hans á að hljóma í húsi sem býr yfir voldugum hljómburði, ekki í lélegu bíóhúsi. Óneitanlega átti Wagner sín góðu augnablik á þessum tónleikum. En slæmu stundarfjórðungarnir voru miklu fleiri, og þeir voru oft lengi að líða. Jónas Sen Slæmir stundarfjórðungar TÓNLIST Háskólabíó Óperutónleikar Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti þriðja þáttinn úr Parsifal og atriði úr Tristan og Isolde ásamt Karlakórnum Fóstbræðrum og félögum úr Hljómeyki. Einsöngvar: Kolbeinn Ketilsson, Kristinn Sigmunds- son, Wolfgang Schöne og Ruth Marie Ni- colay. Johannes Fritzsch stjórnaði. Fimmtudagur 24. nóvember. GUÐRÚN Jóhanna Ólafsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson kynna í dag íslenska tónlist í beinni útsend- ingu frá tónleikasalnum Bellas Ar- tes í Ríkisútvarpi Spánar (Radio Nacional de España) á rás þess fyr- ir klassíska tónlist. Hefst útsend- ingin kl. 10:55 að íslenskum tíma. Unnt er að hlusta á tónleikana í heild á Netinu, á slóðinni http:// www.rtve.es/rne/rc/index.htm. Tónleikar Guðrúnar og Víkings eru liður í sérstakri kynningu spænska Ríkisútvarpsins á tónlist frá Norðurlöndum. Efnisskrá þeirra spannar vítt svið íslenskrar tónlistar, íslensk þjóðlög, sönglög eftir þekkt tónskáld og verk nú- tímatónskálda. Meðal höfunda má nefna Sigfús Einarsson, Sigvalda Kaldalóns og Ólaf Ó. Axelsson. Guðrún og Víkingur voru sam- tíða í Tónlistarskólanum í Reykja- vík og hafa flutt tónlist saman á opinberum vettvangi frá árinu 1999. Morgunblaðið/ÞÖK Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Morgunblaðið/Eyþór Víkingur Heiðar Ólafsson Guðrún Jóhanna og Víkingur Heiðar með tónleika í Madríd Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is LIBORIUS er ný verslun Jóns Sæmundar Auðarsonar og Hrafn- hildar Hólmgeirsdóttur. Þar hófst ný tónleikaröð fyrir tveimur vikum, og var það Daníel Ágúst sem þá reið á vaðið. Í kvöld er það hins vegar Sprengjuhöllin sem mun troða upp. Sprengjuhöllin hefur verið starf- andi í núverandi mynd í u.þ.b. ár og sífellt er að bætast við starf- semina. „Við vorum að setja nýtt lag í spilun, en það kallast „Tímarnir okkar“,“ segir Bergur Ebbi Bene- diktsson, gítarleikari og söngvari. „Ég veit ekki hvort það er hægt að kalla svona lagað smáskífu, en þetta er a.m.k. hliðstætt því sem gerist erlendis.“ Samkvæmt þeim rökum er um aðra smáskífu Sprengjuhallarinnar að ræða, en lagið „Can’t dance“ fór í spilun fyr- ir nokkru síðan. „Tímarnir okkar“ glymur nú á X-inu og X-FM og er einnig tekið að hljóma á Rás 2. Lagið var tekið upp í hljóðveri á einum vinnudegi, átta tímum, og segir Bergur að þeir hafi ekki yf- irgefið svæðið fyrr en þeir voru komnir með disk í hendurnar sem innihélt lagið. „Við komum vel undirbúnir, viss- um upp á hár hvað við vildum og erum þvílíkt ánægðir með þetta. Ég er hissa á því að þetta sé ekki orðið vinsælasta lag landsins. En það kemur, við erum mjög sig- urvissir hvað lagið varðar.“ Sprengjuhöllin lék eins og margar fleiri sveitir á Airwaves og segir Bergur að hátíðin hafi verið góður vettvangur til kynningar á sveit- inni. „Fólk er farið að biðja okkur um að spila að fyrra bragði og við vor- um t.d. beðnir um að koma þessu lagi í spilunarhæft form. Svo eru einhverjir blaðamenn farnir að hafa samband við okkur í gegnum netið.“ Eftir Liborius mun Sprengju- höllin spila á X-mas tónleikum X- ins og um svipað leyti spilar hún með Benna Hemm Hemm í Stúd- entakjallaranum. Og svo er það breiðskífa eftir áramót … Sprengjuhöllin leikur í Liborius Ljósmynd/Leó Stefánsson Sprengjuhöllin „Ég er hissa á því að þetta sé ekki orðið vinsælasta lag landsins,“ segir Bergur Ebbi um nýtt lag Sprengjuhallarinnar. Tónleikarnir hefjast klukkan 18.00. Liborius er til húsa í Mýrargötu, gegnt Slippnum. „Tímarnir okkar“ og fleira með Sprengjuhöllinni má nálgast á www.myspace.com/ sprengjuhollin. SÖGUTÍMI Bölvunarinnar II er tveimur árum eftir sögutíma fyrri myndarinnar. Kvikmyndin gerist í tveimur löndum, þ.e. Bandaríkjunum og Kína, nánar tiltekið Hong Kong. Hin yfirnáttúrulega bölvun hefur lagst á Audrey, systur Karenar. Hún reynir hvað hún getur að komast á snoðir um uppruna bölvunarinnar og að losa sig við hana. En hvað hefur viðleitni henn- ar í þessum efnum að gera með fjölskyldurnar sem búsettar eru í Chicago, ljósmyndablaðamann frá Hong Kong og þrjár skóla- stúlkur í alþjóðlega mennta- skólanum í Tókíó? Bölvunin II var frumsýnd í Sambíóunum í gær. Bölvunin II Bölvunin Takako Fuji Kayako í einu af hlutverkum myndarinnar. Erlendir dómar Entertainment Weekly: 58/100 Variety: 40/100 The New York Times: 40/100 Empire: 40/100 Allt skv. Metacritic
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.