Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 65
GJAFIR Í ANDA JÓLANNA Í
KIRKJUHÚSINU LAUGAVEGI 31
KIRKJUHÚSIÐ - BÓKABÚÐ Á KRISTNUM GRUNNI
Kirkjuhúsið - Skálholtsútgáfan
Sími: 552 1090 og 562 1581
Netfang: skalholtsutgafan@skalholtsutgafan.is
www.skalholtsutgafan.is
frá kr. 1490,-
kr. 1700,-
kr. 700,- kr. 1990,-
frá
kr
. 1
50
0,
-
frá kr. 9900,- frá kr. 4500,-
frá kr. 5500,- Mánaðarenglar kr. 1690,-
Handmálaðir krossar frá kr. 1990,- kr. 7450,-
JÓNSI úr Sigur Rós og Alex So-
mers hafa gefið út myndabókina Ri-
ceboy Sleep. Í gær opnuðu þeir svo
sýningu í Galleríi Turpentine í
tengslum við útgáfuna þar sem
gestum gefst kostur á að skoða
myndir úr bókinni ásamt mynd-
bandsverkum.Morgunblaðið/Sverrir
Jónsi og
Alex í
Turpentine
Á HVERJU ári koma út íslenskar
barnabækur sem leitast við að
kynna sagnaarfinn og þjóðtrúna
fyrir nútímabörnum. Við eigum t.d.
nokkrar vel heppnaðar myndabæk-
ur unnar upp úr Íslendingasög-
unum. Sumir höfundar kjósa að
vefa þjóðtrúna inn í samtímaskáld-
sögur en einnig er brugðið á það
ráð að endursegja þjóðsögur. Þetta
hafa þær Anna Kristín Ásbjörns-
dóttir og Florence Helga Thibault
gert í frumraun sinni í gerð barna-
bóka. Anna Kristín hefur endursagt
sjö af þjóðsögum Jóns Árnasonar.
Sögurnar sjö sem valdar eru fást
við kunnugleg þemu úr álfasögum.
Anna Kristín leitast við að halda
nokkuð fornu tungutaki sagnanna
og breyta setningum sem minnst,
hún fellir frekar heilar setningar
innan úr til að stytta. Yfirleitt tekst
þetta ágætlega en á einstökum stað
er breyting hennar ekki til bóta og
einn prófarkalestur til viðbótar
hefði gert textanum gott.
Það sem helst vekur athygli við
fyrstu sýn eru myndir Florence
Helgu Thibault. Í samræmi við sög-
urnar sem einatt lýsa huldufólki og
hýbýlum þess sem afar skraut-
legum og meira í ætt við arabískar
nætur en íslenska sveit hefur hún
skapað flúraðar myndir undir áhrif-
um frá naífisma og austurlensku og
arabísku flúri. Myndirnar eru í
samræmi við texta og myndgera
það sem þar kemur fram. Skemmti-
leg smáatriði má finna á mörgum
stöðum, eins og óróann fyrir ofan
álfabarnavaginn, skrautlega fiska í
sjó, blómsveig um háls kusu. Per-
sónur og andlitsfall þeirra eru því
miður heldur stirðari en skrautlegt
flúrið og sumar myndirnar hafa á
sér tölvulegt yfirbragð. Eins og áð-
ur sagði virðist við fyrstu sýn sem
Florence Helga hafi haft skraut-
legar lýsingar á álfheimum í huga
við gerð myndanna, og á flestum
myndanna er mannfólkið í hefð-
bundnum sveitafötum, en þó ekki
alltaf. Skilin milli tveggja heima
eru því nokkuð óljós. Dæmi um
þetta er sagan Drengur elst upp
með álfum. Í sögunni segir af fá-
tækri kerlingu og niðursetningi
sem hírast í fjósi en myndin sýnir
skrautlegar kýr og vel búið fólk.
Þegar drengurinn snýr aftur úr álf-
heimum að sækja fóstru sína er
hún í skrautlegum álfameyjalegum
kjól. Sagan gengur út á að álfarnir
bjarga drengnum frá bágum kjör-
um og myndirnar virka því frekar
ruglandi á lesandann sem þarf að
glugga í textann aftur og aftur til
að átta sig á því hvað myndin eigi
að sýna. Þessi skortur á grein-
armun milli tveggja heima gerir
hugsunina á bak við frumlegar og
fallegar myndirnar ekki eins mark-
vissa og ella. Í stað þess gefa gam-
alli hugmynd um dýrlega álfheima
líf á frumlegan máta verður bókin
einungis skemmtilega skrautleg.
Engu að síður er hér um nokkuð
nýstárlegar myndskreytingar að
ræða, sem birta íslenska álfheima í
framandi og heillandi ljósi.
Heillandi heimar
BÆKUR
Barnabók
Anna Kristín Ásbjörnsdóttir endursagði,
Florence Helga Thibault teiknaði, Bjartur
2006, 32 bls.
Álfasögur úr þjóðsögum Jóns Árnasonar
Ragna Sigurðardóttir
DJASSTRÍÓIÐ Hrafnaspark, sem
er skipað þeim Jóhanni Guðmunds-
syni og Ólafi Hauki Árnasyni á gít-
ara og Pétri Ingólfssyni á kontra-
bassa, er um þessar mundir að
senda frá sér sína fyrstu plötu. Af
því tilefni mun tríóið halda nokkra
tónleika.
Í kvöld klukkan 23 verða tónleikar
á veitingastaðnum Café Rósenberg í
Reykjavík en næstkomandi fimmtu-
dag verða þeir félagar svo með tón-
leika á veitingastaðnum Græna hatt-
inum á Akureyri. Aðgangseyrir á
tónleikana er 1.000 krónur.
Hrafnaspark
á Rósenberg
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Sýningar hefjast í nóvember!