Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Hvaðan komu
landnámsmenn?
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
LÆKNIRINN ER
AÐEINS SEINN,
VINSAMLEGAST
FÁIÐ YKKUR SÆTI
OG BÍÐIÐ
ÞAÐ ER EINS
GOTT AÐ ÞÚ
HAFIR KOMIÐ
MEÐ NESTI
LÁTTU
ÚTHERJANA
KOMA NÆR OG
REYNA AÐ
STÖÐVA
HLAUPIN...
ÉG ÆTTI AÐ VERA
KOMINN EFTIR 5 MÍNÚTUR
MEIRA VESENIÐ
ÉG ER EINI ÞJÁLFARINN Í
SÖGUNNI SEM HEFUR
STJÓRNAÐ LEIK Á MEÐAN
HANN ÝTIR SYSTUR SINNI Í
KERRU Í KRINGUM HVERFIÐ
ÆI
ÉG TRÚI EKKI AÐ VIÐ
HÖFUM FUNDIÐ
RISAEÐLUBEIN Í FYRSTA
FORNLEIFAUPPGREFTINUM
OKKAR!
OG ÞAÐ ER
MEIRA AÐ
SEGJA ALVEG
HEILT!
KANNSKI
ER ÖLL
BEINA-
GRINDIN
HÉRNA Í
JÖRÐINNI
VIÐ EIGUM
EFTIR AÐ VERÐA
HEIMSFRÆGIR!
VIÐ EIGUM
EFTIR AÐ
VERÐA RÍKIR!
ÉG ÆTLA AÐ
KAUPA MÉR
PORSCHE
ÉG SÉ
OKKUR FYRIR
MÉR Á
FORSÍÐUNNI Á
NATIONAL
GEOGRAPHIC
MÉR FINNST FRÁBÆRT ÞEGAR ÞÚ
KEMUR MEÐ SALAT HANDA MÉR
ÁÐUR EN ÉG FÆ AÐALRÉTTINN
ÞETTA ER
AÐAL-
RÉTTURINN! ÉG
ER AÐ SETJA
ÞIG Í MEGRUN
ÞAÐ ER SVO
SÁRT AÐ HEYRA
FULLORÐINN
MANN GRÁTA
ÞETTA ER
UPPÁHALDS
SKYNDIBITINN
MINN
HVAÐ ERTU AÐ
GERA LALLI?
ÉG ER AÐ SETJA INN
FÆRSLU Á BLOGGIÐ MITT
ERTU
MEÐ
BLOGG
JÁ, ÞAÐ ER
GÓÐ LEIÐ TIL
ÞESS AÐ DEILA
HUGLEIÐINGUM
SÍNUM OG
REYNSLU MEÐ
HEIMINUM
EN EKKI
GÓÐ LEIÐ TIL
AÐ AFKASTA
HLUTUM Í
VINNUNNI
ÞAÐ ÁTTI AÐ
VERA FUNDUR
KLUKKAN
11:00, VAR
ÞAÐ EKKI?
NASHYRNINGURINN
ÆTLAR AÐ KÆRA
MIG EF ÉG NOTA
HANN Í MYNDINNI
MINNI
ÞANNIG AÐ
ÉG VERÐ
AÐ SETJA
HANA Á ÍS
ÉG VERÐ BARA
AÐ NOTAST VIÐ
PERSÓNUR SEM
ERU EKKI TIL
ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ
ÉG GET EKKI
NOTAÐ ÞIG
EN M.J. PARKER KEMUR TIL
MEÐ AÐ LEIKA OFURHETJU Í
NÝJU MYNDINNI MINNI!
Nafnfræðifélag Íslandsbýður til fyrirlesturs ídag, laugardag, kl. 13.Fyrirlesturinn er hald-
inn í stofu 201 í Odda, Háskóla Ís-
lands, en þar mun Páll Pálsson á
Aðalbóli fjalla um örnefni sem tapast
og skerðast þegar Hálslón myndast
vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Páll kallar sjálfan sig grúskara, en
hann er sjálfmenntaður áhugamaður
og má með réttu kallast sérfræð-
ingur í örnefnum svæðisins þar sem
hann hefur búið lengstan hluta æv-
innar: „Það má kannski segja að er-
indið fjalli um hegðun örnefna,“ seg-
ir Páll kíminn. „Brúarjökull og
Jökulsá hafa um langt skeið mótað
landið og má segja að jökullinn reki
nöfnin á undan sér, gangi á landið,
og hafa örnefni horfið eftir því sem
jökullinn hefur sótt fram.
Það sama gerist nú með Hálslóni,
að töluverður skiki lands hverfur og
örnefni ýmist hverfa, eða skerðast
s.s. ár og lækir sem renna í lónið,“
útskýrir Páll.
Það er því ekki nýtt að umhverfi
Brúarjökuls breytist og örnefni
með: „Sem dæmi má nefna Maríu-
tungur, afréttarspildu þar sem nú
kallast Vesturöræfi. Heimildir
benda til að það hafi verið mjög
eftirsóknarvert að reka fé á þetta
land sem hefur verið gott og grös-
ugt. Finna má frásagnir af 100
lamba rekstri frá jörðinni Skriðu í
Fljótsdal í Maríutungur og hefðu
menn varla lagt á sig slíkan upp-
rekstur á fé að ástæðulausu. Land-
inu er lýst sem gróðurríku, sem
sennilega skapast af samspili jökuls
og lands. Í Maríutungum er svokall-
aður Útigönguhnaus og greinilegt
að tíðkast hefur að reka hross þang-
að og láta þau ganga allan veturinn í
Maríutungum. Þessi hnaus ber í dag
varla lengur nafn með rentu því
hann er í dag orðinn eins og malar-
hrúgald við jökulkvíslina því jökull-
inn er búinn að hefla jarðveginn nið-
ur og síðast árið 1890 að jökullinn
lagðist með öllu yfir Maríutungur.“
Í erindi sínu mun Páll segja frá
breytingum sem eru að verða á ör-
nefnum í nágrenni Jöklu og Brúar-
jökuls, hegðun jökulsins og áhrifum
hans á landið og rennsli vatna í
gegnum tíðina. Fjallað verður um
svæðið í máli og myndum og hvernig
búskaparhættir hafa tekið mið af
breytilegu landslagi: „Það skiptir
miklu að þekkja umhverfi og kenni-
leiti landsins, sér í lagi þegar lesa á
gamlan texta, sem oftar en ekki er
sprottinn upp úr umhverfinu. Ef
ekki er hægt að skilja það umhverfi
sem þar er lýst verður textinn um
leið oft illskiljanlegur. Nafnfræði-
félaginu hefur þótt ástæða til að
vekja athygli á þeim örnefnabreyt-
ingum sem nú eru að verða á svæð-
inu af mannavöldum og hefur félagið
viljað leggja hart að Landsvirkjun
að gera nákvæmt og gott örnefna-
kort af því landi sem fer undir vatn,
líkt og gert var þegar stíflað var í
Fljótum og talsvert af landi og minj-
um fór undir vatn.“
Páll bætir við að rétt eins og ör-
nefni á svæðinu hafi þróast fyrr á
öldum, breytast og bætast við ör-
nefni á svæðinu enn í dag: „Þetta
svæði hafði verið nokkuð afskekkt
og helst bændur og búalið sem um-
gengust þetta land. Þegar vega-
samband batnaði og fólk fór í aukn-
um mæli að ferðast hingað fóru að
bætast við ný nöfn,“ segir Páll. „Það
virðist manninum ósjálfrátt að reyna
að gefa stöðum í umhverfi sínu nöfn.
Fyrirlesturinn í dag er öllum op-
inn og aðgangur ókeypis.
Nafnfræði | Fyrirlestur í Odda í dag kl. 13
um áhrif virkjunarframkvæmda á örnefni
Örnefni sem
hverfa undir lón
Páll Pálsson
fæddist á Aðal-
bóli í Hrafnkels-
dal 1947. Að
loknu skyldu-
námi fékkst hann
við ýmis vinnu-
mannsstörf. Páll
hefur fengist við
pípulagningar
samhliða landbúnaðarstörfum og
er bóndi á Aðalbóli.
Leikaraparið Brad Pitt ogAngelina Jolie eru nú í borg-
inni Ho Chi Minh í Víetnam, þar
sem sást til þeirra þjóta um á vespu.
Ljósmyndir af parinu birtust fram-
an á dagblöðum í Víetnam í dag en
það vakti furðu fjölmargra þar-
lendra sem aldrei hafa heyrt á
stjörnuparið minnst.
,,Ég sá myndirnar í blaðinu en
skil ekki enn af hverju allur þessi
hamagangur er í kringum þessa
Vesturlandabúa,“ sagði Nguyen
Van Thu, byggingaverkamaður í
Hanoi, í samtali við Reuters-frétta-
stofuna.
Parið lenti í Víetnam í gær og
virðist vera í fríi frá tökum á mynd-
inni A Mighty Heart á Indlandi.
Fólk folk@mbl.is