Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 35 Kokkabókastatíf einlit og munstruð Klapparstig 44 • sími 562 3614 Pronouncement of a summons to aPPear before the board of conciliation in oslo (oslo forliksråd) Summons to appear before Oslo Board of Conciliation(Oslo forliksråd) – dept. 2 – case no. 26002634. Plaintiff: DnB NOR Bank ASA, Oslo Norway consel: Lindorff AS, PB7055 3007 Drammen Norway defendant: Halldor Vidar Sanne, last known adress: Hjallbraut 66, IS-220 Hafnarjordur, Iceland The nature and purpose of the case: Payment due NOK 109.655,33 in addition; interest and case/court expenses. Pursuant to Norwegian Domstollov § 181 we hereby serve Complaint/summons to appear before the Board of Conciliation (Oslo forliksråd – avd. 1) in Oslo, Norway, Wednesday, 24/01-2007 kl.13.00 Place: Pilestredet 19, 0164 oslo norway Should the defendant not appear a judgement by default will be sentenced pursuant to Norwegian tvistemålslov § 289. This pronouncement is considered to be made 4 – four weeks from the time this notice is hung in our courtroom. Date for notification: 14.12 2006. The complaint and summons to appear before the Board may be obtained if you contact us; oslo conciliation board (oslo forliksråd) dept. 2, Pileastredet 19, n-0164 oslo, norway, tel.no. 0047 21014700. MIKIÐ hefur verið rætt og ritað að undanförnu um tvöföldun Suður- landsvegar. Krafan um bættan veg varð að vonum hávær í kjölfar hörmulegs slyss á veginum fyrir stuttu, þegar tveir lét- ust í hörðum árekstri tveggja bifreiða sem komu úr gagnstæðri átt. Mikill þrýstingur er á stjórnvöld að ráðast í tafarlausar úrbætur. Þessar kröfur eru mjög skiljanlegar en er skyn- samlegast í stöðunni í dag að ráðast af fullum krafti í tvöföldun Suð- urlandsvegar? Getur verið að meiri hags- munum sé fórnað fyrir minni hagsmuni með því að tvöfalda Suðurlandsveg fremur en að leggja svokallaðan 2+1 veg með aðskildum akstursstefnum og hafa þá meira fjármagn til ráðstöf- unar til að bæta aðra vegi þar sem þörfin er líka mjög brýn? Við verðum að gera greinarmun á nauðsynlegum úrbótum og munaði. Tvöföldun Suðurlandsvegar flokkast sennilega undir munað ef tekið er mið af umferðarmagni á veginum. Er- lendis er að jafnaði notuð sú þum- alputtaregla að tvöföldun vega sé æskileg, þegar umferðarmagnið fer yfir 20.000 ökutæki á sólarhring. Á Hellisheiði nær umferðin ekki helm- ingi þess magns á mestu annatímum yfir sumarmánuðina. Það er þó sjálf- sagt að haga undirbúningi þannig að stefnt sé að tvöföldun Suðurlands- vegar í nánustu framtíð og hefur samgönguráðherra raunar boðað það. Það virðist hafa gleymst í um- ræðunni að aðalmálið er að aðskilja akstursstefnur, hvort heldur það er gert með tvöföldun vegarins eða 2+1 akbrautum með vegriði á milli akst- ursstefna. Umferðaröryggisins vegna þarf þessi aðskilnaður akbrauta að gerast eins hratt og kostur er. Það er alveg ljóst að tvöföldun Suðurlands- vegar verður ekki tilbúin fyrr en í fyrsta lagi eftir 7–8 ár. Það á eftir að hanna veginn, finna honum vegstæði, kaupa land og fara með fyrirhugaðar framkvæmdir í umhverfismat. Und- irbúningur að 2+1 vegi með vegriði er mun lengra komin. Það má heldur ekki gleyma því að það þarf líka að aðskilja akstursstefnur á fleiri vegum en á Suðurlandsvegi. Til að mynda hafa orðið mörg mjög alvarleg um- ferðarslys á Vest- urlandsvegi á und- anförnum árum þar sem bifreiðar hafa ekið framan á hvor aðra og það síðasta varð því miður um liðna helgi. Á þeirri leið eins og svo víða í vegakerfinu þarf að aðskilja aksturs- stefnur. Vegagerðin hefur nú þegar byggt upp svo- kallaðan 2+1 veg með vegriði á Suðurlands- vegi í Svínahrauni. Vegriðið er notað til að aðskilja akstursstefnur. Engin alvarleg slys hafa orðið á þessum veg- arkafla frá því hann var opnaður. Þessi lausn hefur verið notuð víða er- lendis, og þá sérstaklega á Norð- urlöndum, með góðum árangri. Vega- gerðin er nú þegar búin að láta hanna veg af þessu tagi alla leiðina austur til Selfoss svo það mætti byrja strax á því að breikka veginn þar sem þess þarf og setja vegrið til að aðgreina akstursstefnur. Slíkur vegur hefur verið hannaður þannig að auðvelt verður að bæta við fjórðu akreininni síðar þegar réttar forsendur eru fyrir tvöföldun á öllum vegarkaflanum. Jafnvel þótt til væru nægir pen- ingar í ríkiskassanum er skyn- samlegt, tímans vegna, að hefja fram- kvæmdir á Suðurlandsvegi með 2+1 akbrautum með vegriði til að að- greina akstursstefnur, sem síðar er hægt að breyta í tvöföldun. Hlið- stæðar framkvæmdir á norðurleið- inni þola heldur enga bið. Um tvöföldun Suðurlandsvegar Birgir Hákonarson skrifar um tvöföldun Suðurlandsvegar » Tvöföldun Suður-landsvegar flokkast sennilega undir munað ef tekið er mið af um- ferðarmagni á veginum. Birgir Hákonarson Höfundur er framkvæmdastjóri um- ferðaröryggissviðs Umferðarstofu. ÖGMUNDUR Jón- asson, formaður BSRB og þingflokks- formaður Vinstri grænna, vill sem stjórnmálamaður láta taka sig alvarlega. En þegar raunveruleikinn er annar en hinn „pólitískt rétti“ mál- staður, þá skiptir áróðurinn og málflutn- ingurinn meira máli – eða hvað? Ögmundur sagði í samtali við Fréttastofu Stöðvar tvö í tilefni af sam- þykkt Alþingis um lækkun virð- isaukaskatts, m.a. á geisladiska og gos- drykki, að skoða mætti lækkun virð- isaukaskatts á lyf, en „að umræða síðustu mánaða hafi leitt í ljós að hátt verðlag á lyfj- um er fyrst og fremst til komið vegna fá- keppni [...] og mikillar álagningar þeirra sem annast sölu og dreif- ingu á lyfjum“ Ég geri ráð fyrir að Ögmundur hafi tekið eftir yfirlýsingum heil- brigðisráðherra og formanns Lyfja- greiðslunefndar sem hafa fagnað góðu samstarfi við framleiðendur frumlyfja og þeirri staðreynd að verð frumlyfja sé nú hið sama hér og í samanburðarlöndum okkar. Ég geri líka ráð fyrir að Ögmundur viti vel að það eru stjórnvöld, hið op- inbera sem hann hallar sér svo gjarnan að, sem í raun ákveða lyfja- verð. En staðreyndir sem þessar henta ekki málflutningi Ögmundar. Raunveru- leikinn hentar ekki Ög- mundi. Það er betra að lifa í Undralandi, segja það sem hentar og af- neita raunveruleik- anum. Staðreyndin er sú að heildsöluverð frumlyfja hér á landi er nú 6,4% lægra en í Danmörku. Ríkið hefur notið þess, en ekki al- menningur. Almenn- ingur myndi sann- arlega njóta lækkun virðisaukaskatts á lyf. En Ögmundur sér það ekki. Hann sér vænt- anlega Lyfjaverzlun ríkisins í sínu Undra- landi í hillingum, með opinbera starfsmenn raðandi í rekkana, greiðandi félagsgjöld til Ögmundar og félaga – hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þá kýs ég frekar raunveruleik- ann og nýt þess að lesa um Lísu í Undralandi. Ögmundur, Undra- landið er hennar en ekki þitt. Vertu með okkur hinum í raunveruleik- anum. Ögmundur í Undralandi Jakob Falur Garðarsson gerir athugasemd við ummæli Ögmundar Jónas- sonar um lyfjaverð Jakob Falur Garðarsson » Staðreyndiner sú að heildsöluverð frumlyfja hér á landi er nú 6,4% lægra en í Dan- mörku. Ríkið hefur notið þess, en ekki al- menningur. Höfundur er framkvæmda- stjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn MORGUNBLAÐIÐ hefur tekið í notkun nýtt móttökukerfi fyrir að- sendar greinar. Formið er að finna ofarlega á forsíðu fréttavefjarins www.mbl.is undir liðn- um „Senda inn efni“. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að skrá sig inn í kerfið með kennitölu, nafni og netfangi, sem skrifað er í þar til gerðan reit. Næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notanda- svæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarks- lengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt. Þeir, sem hafa hug á að senda blaðinu greinar í umræðuna eða minningar- greinar eru vinsamlegast beðnir að nota þetta kerfi. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 569-1210. Nýtt mót- tökukerfi aðsendra greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.