Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 33
FYRIR nærri fimmtíu árum hélt
ég til náms í Minnesota í Banda-
ríkjunum beinustu leið frá Afríku.
Það var margt sem ég þurfti að
læra, til dæmis að það væri ekkert
asnalegt að ganga um með eyrna-
skjól í fimmtán stiga gaddi. Alla
ævi hef ég verið að læra af reynsl-
unni. Nú langar mig til að deila
með ykkur fimm lærdómum sem
ég hef dregið af
reynslu minni sem
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna í
tíu ár. Ég tel að sam-
félög þjóðanna þurfi
að tileinka sér þessa
lærdóma í glímunni
við áskoranir tutt-
ugustu og fyrstu ald-
arinnar.
Í fyrsta lagi berum
við öll sameiginlega
ábyrgð á öryggi hvers
annars. Engin þjóð
getur tryggt öryggi
sitt gagnvart hættum á borð við
útbreiðslu kjarnorkuvopna, lofts-
lagsbreytingum, farsóttum eða
árásum hryðjuverkamanna frá
griðastöðum í ónýtum ríkjum með
því að sækjast eftir yfirráðum yfir
öllum öðrum. Við getum einungis
öðlast varanlegt öryggi með því að
leitast við að tryggja öryggi hvers
annars.
Þessi ábyrgð felur líka í sér
sameiginlega ábyrgð á að vernda
fólk gegn þjóðarmorði, stríðs-
glæpum, þjóðernishreinsunum og
glæpum gegn mannkyninu. Allar
þjóðir samþykktu þetta á Alheims-
leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna
á síðasta ári. En þegar við lítum til
morða, nauðgana og sveltis sem
íbúar Darfur mega þola, gerum við
okkur grein fyrir því að slíkar
kenningar eru orðin tóm ef þeir
skirrast við að taka forystuna sem
hafa pólitískt, efnahagslegt – og
þegar önnur úrræði duga ekki –
hernaðarlegt vald.
Við berum líka þá ábyrgð gagn-
vart komandi kynslóðum að varð-
veita auðlindir sem tilheyra þeim
jafnt sem okkur. Á hverjum degi
sem við aðhöfumst lítið eða ekkert
til að hindra loftslagsbreytingar,
veltum við kostnaðinum yfir á
börnin okkar.
Í öðru lagi berum við öll ábyrgð
á velferð hvers annars. Við verðum
að minnsta kosti að gefa með-
bræðrum okkar tækifæri til að
eignast hlut í velmegun okkar.
Í þriðja lagi eru bæði öryggi og
velmegun háð því að mannréttindi
séu virt og að réttarríki sé við lýði.
Fjölbreytni hefur alla tíð auðgað
mannsandann og ólík samfélög
hafa lært hvert af
öðru. En ef samfélög
okkar eiga að búa við
frið, verðum við að
leggja áherslu á það
sem sameinar okkur:
að við tilheyrum
mannkyninu og að lög
verndi mannlega reisn
okkar.
Þetta er líka mik-
ilvægt fyrir þróun.
Það er mun líklegra
að hvort heldur sem
eru útlendingar eða
heimamenn fjárfesti
þegar grundvallarréttindi þeirra
eru tryggð og þeir vita að þeir geti
treyst á sanngjarna málsmeðferð í
samræmi við lög. Það er líklegra
að verkefni sem fela í sér raun-
verulega þróun verði samþykkt ef
þeir sem þurfa mest á þróun að
halda geta látið til sín heyra.
Ríki verða einnig að fara eftir
reglum í innbyrðis samskiptum.
Ekkert samfélag neins staðar líður
fyrir of mikið réttarríki en mörg
líða fyrir skort á því – og það
sama gildir um alþjóðasamfélagið.
Þessu þurfum við að breyta.
Fjórði lærdómurinn er sá að
ríkisstjórnir eiga að standa öðrum
reikningsskap gerða sinna jafnt á
alþjóðlegum vettvangi sem heima
fyrir. Hvert einasta ríki hlýtur að
bera einhvers konar ábyrgð gagn-
vart öðrum ríkjum ef aðgerðir eins
ríkis hafa umtalsverð áhrif á annað
ríki.
Eins og staðan er nú, eru veik-
burða og fátæk ríki auðveldlega
dregin til ábyrgðar því þau þurfa á
erlendri aðstoð að halda. Stór og
valdamikil ríki hafa mest áhrif á
önnur ríki en það eru einungis
þegnar þess ríkis sem hafa taum-
hald á því. Af þessum sökum bera
íbúar og stofnanir öflugra ríkja
sérstaka ábyrgð á því að taka tillit
til skoðana og hagsmuna alheims-
ins. Jafnframt þarf að taka tillit til
sjónarmiða annarra en rík-
isstjórna. Einstök ríki geta ekki
lengur – og gátu kannski aldrei –
tekist á við áskoranir á heimsvísu
hvert í sínu horni. Þau þurfa í sí-
vaxandi mæli að treysta á stuðning
aragrúa samtaka fólks sem sam-
einast í viðleitni til að hugsa um og
breyta heiminum.
Hvernig geta ríki staðið hverju
öðru reikningsskap gerða sinna?
Eingöngu fyrir tilstuðlan milli-
ríkjastofnana. Lokalærdómur
minn er að slíkar stofnanir verður
að skipuleggja á réttlátan og lýð-
ræðislegan hátt og að fátæk og
veikburða ríki hafi einhvers konar
áhrif á framferði hinna ríku og
sterku.
Þróunarríki ættu að hafa meiri
áhrif innan alþjóðlegra fjár-
málastofnana sem taka ákvarðanir
sem varða líf og dauða þjóða
þeirra. Samsetning Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna endurspeglar
raunveruleika ársins 1945 en ekki
nútímans og því ætti að fjölga ríkj-
um með föstum eða lang-
tímasætum í ráðinu.
Ekki er síður mikilvægt að öll
ríki sem sæti eiga í ráðinu axli þá
ábyrgð sem fylgir slíkum forrétt-
indum. Öryggisráðið er ekki tæki
til þess að tryggja hagsmuni ein-
stakra ríkja. Ráðið er stjórn-
arnefnd alþjóðlegs öryggiskerfis
okkar.
Bandaríkjamenn líkt og aðrir
veraldarbúar hafa aldrei þurft
meira á virku alheimskerfi að
halda en einmitt núna. Reynslan
hefur kennt okkur hvað eftir ann-
að að kerfið virkar ekki þegar
Bandaríkin standa með hendur í
skauti og virkar best þegar víðsýn
forysta er við völd í Bandaríkj-
unum.
Af þessum sökum bera banda-
rískir leiðtogar mikla ábyrgð.
Bandaríska þjóðin verður að sjá til
þess að þeir standi undir henni.
Fimm lærdómar
Kofi A. Annan »Nú langar mig til aðdeila með ykkur
fimm lærdómum sem ég
hef dregið af reynslu
minni sem fram-
kvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna …
Kofi Annan
Höfundur er framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna. Greinin er byggð á
ræðu sem hann flutti á Truman-
forsetasafninu og bókhlöðunni í In-
dependence Missouri í Bandaríkj-
unum 11. desember sl.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg