Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 33

Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 33 FYRIR nærri fimmtíu árum hélt ég til náms í Minnesota í Banda- ríkjunum beinustu leið frá Afríku. Það var margt sem ég þurfti að læra, til dæmis að það væri ekkert asnalegt að ganga um með eyrna- skjól í fimmtán stiga gaddi. Alla ævi hef ég verið að læra af reynsl- unni. Nú langar mig til að deila með ykkur fimm lærdómum sem ég hef dregið af reynslu minni sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í tíu ár. Ég tel að sam- félög þjóðanna þurfi að tileinka sér þessa lærdóma í glímunni við áskoranir tutt- ugustu og fyrstu ald- arinnar. Í fyrsta lagi berum við öll sameiginlega ábyrgð á öryggi hvers annars. Engin þjóð getur tryggt öryggi sitt gagnvart hættum á borð við útbreiðslu kjarnorkuvopna, lofts- lagsbreytingum, farsóttum eða árásum hryðjuverkamanna frá griðastöðum í ónýtum ríkjum með því að sækjast eftir yfirráðum yfir öllum öðrum. Við getum einungis öðlast varanlegt öryggi með því að leitast við að tryggja öryggi hvers annars. Þessi ábyrgð felur líka í sér sameiginlega ábyrgð á að vernda fólk gegn þjóðarmorði, stríðs- glæpum, þjóðernishreinsunum og glæpum gegn mannkyninu. Allar þjóðir samþykktu þetta á Alheims- leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári. En þegar við lítum til morða, nauðgana og sveltis sem íbúar Darfur mega þola, gerum við okkur grein fyrir því að slíkar kenningar eru orðin tóm ef þeir skirrast við að taka forystuna sem hafa pólitískt, efnahagslegt – og þegar önnur úrræði duga ekki – hernaðarlegt vald. Við berum líka þá ábyrgð gagn- vart komandi kynslóðum að varð- veita auðlindir sem tilheyra þeim jafnt sem okkur. Á hverjum degi sem við aðhöfumst lítið eða ekkert til að hindra loftslagsbreytingar, veltum við kostnaðinum yfir á börnin okkar. Í öðru lagi berum við öll ábyrgð á velferð hvers annars. Við verðum að minnsta kosti að gefa með- bræðrum okkar tækifæri til að eignast hlut í velmegun okkar. Í þriðja lagi eru bæði öryggi og velmegun háð því að mannréttindi séu virt og að réttarríki sé við lýði. Fjölbreytni hefur alla tíð auðgað mannsandann og ólík samfélög hafa lært hvert af öðru. En ef samfélög okkar eiga að búa við frið, verðum við að leggja áherslu á það sem sameinar okkur: að við tilheyrum mannkyninu og að lög verndi mannlega reisn okkar. Þetta er líka mik- ilvægt fyrir þróun. Það er mun líklegra að hvort heldur sem eru útlendingar eða heimamenn fjárfesti þegar grundvallarréttindi þeirra eru tryggð og þeir vita að þeir geti treyst á sanngjarna málsmeðferð í samræmi við lög. Það er líklegra að verkefni sem fela í sér raun- verulega þróun verði samþykkt ef þeir sem þurfa mest á þróun að halda geta látið til sín heyra. Ríki verða einnig að fara eftir reglum í innbyrðis samskiptum. Ekkert samfélag neins staðar líður fyrir of mikið réttarríki en mörg líða fyrir skort á því – og það sama gildir um alþjóðasamfélagið. Þessu þurfum við að breyta. Fjórði lærdómurinn er sá að ríkisstjórnir eiga að standa öðrum reikningsskap gerða sinna jafnt á alþjóðlegum vettvangi sem heima fyrir. Hvert einasta ríki hlýtur að bera einhvers konar ábyrgð gagn- vart öðrum ríkjum ef aðgerðir eins ríkis hafa umtalsverð áhrif á annað ríki. Eins og staðan er nú, eru veik- burða og fátæk ríki auðveldlega dregin til ábyrgðar því þau þurfa á erlendri aðstoð að halda. Stór og valdamikil ríki hafa mest áhrif á önnur ríki en það eru einungis þegnar þess ríkis sem hafa taum- hald á því. Af þessum sökum bera íbúar og stofnanir öflugra ríkja sérstaka ábyrgð á því að taka tillit til skoðana og hagsmuna alheims- ins. Jafnframt þarf að taka tillit til sjónarmiða annarra en rík- isstjórna. Einstök ríki geta ekki lengur – og gátu kannski aldrei – tekist á við áskoranir á heimsvísu hvert í sínu horni. Þau þurfa í sí- vaxandi mæli að treysta á stuðning aragrúa samtaka fólks sem sam- einast í viðleitni til að hugsa um og breyta heiminum. Hvernig geta ríki staðið hverju öðru reikningsskap gerða sinna? Eingöngu fyrir tilstuðlan milli- ríkjastofnana. Lokalærdómur minn er að slíkar stofnanir verður að skipuleggja á réttlátan og lýð- ræðislegan hátt og að fátæk og veikburða ríki hafi einhvers konar áhrif á framferði hinna ríku og sterku. Þróunarríki ættu að hafa meiri áhrif innan alþjóðlegra fjár- málastofnana sem taka ákvarðanir sem varða líf og dauða þjóða þeirra. Samsetning Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna endurspeglar raunveruleika ársins 1945 en ekki nútímans og því ætti að fjölga ríkj- um með föstum eða lang- tímasætum í ráðinu. Ekki er síður mikilvægt að öll ríki sem sæti eiga í ráðinu axli þá ábyrgð sem fylgir slíkum forrétt- indum. Öryggisráðið er ekki tæki til þess að tryggja hagsmuni ein- stakra ríkja. Ráðið er stjórn- arnefnd alþjóðlegs öryggiskerfis okkar. Bandaríkjamenn líkt og aðrir veraldarbúar hafa aldrei þurft meira á virku alheimskerfi að halda en einmitt núna. Reynslan hefur kennt okkur hvað eftir ann- að að kerfið virkar ekki þegar Bandaríkin standa með hendur í skauti og virkar best þegar víðsýn forysta er við völd í Bandaríkj- unum. Af þessum sökum bera banda- rískir leiðtogar mikla ábyrgð. Bandaríska þjóðin verður að sjá til þess að þeir standi undir henni. Fimm lærdómar Kofi A. Annan »Nú langar mig til aðdeila með ykkur fimm lærdómum sem ég hef dregið af reynslu minni sem fram- kvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna … Kofi Annan Höfundur er framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna. Greinin er byggð á ræðu sem hann flutti á Truman- forsetasafninu og bókhlöðunni í In- dependence Missouri í Bandaríkj- unum 11. desember sl. Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Hair play frá Rakarastofan Klapparstíg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.