Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 22
|fimmtudagur|14. 12. 2006| mbl.is Bókin sem allir eru að tala um - og þú verður að lesa „Frásögnin er einlæg og verð- ur sterkari fyrir bragðið. Hún einkennist af hugrekki, því að til sögunnar eru þeir nefndir, sem svífast greini- lega einskis til að skara eld að eigin köku.“ Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra á björn.is „Ég ætlaði ekkert að lesa hana, bara að þefa af henni eins og maður gerir við flest- ar bækur á þessum árstíma. En það var eitthvað við upp- hafið (...) sem laðaði mig inn í bókina uns ég gat ekki hætt að lesa. Flott verk.“ Silja Aðalsteinsdóttir á tmm.is „Með betri ævisögum ís- lenskra stjórnmálaleiðtoga. Opinská, fróðleg, áhrifarík og umfram allt skemmtileg. Ég mæli sterklega með þessari bók.“ Guðmundur Steingrímss. á gummisteingrims.blog.is Frábærlega vel skrifuð bók eftir Þórunni Hrefnu Sigur- jónsdóttur um einn merkasta stjórnmálamann síðari ára, Margréti Frímannsdóttur. Magnús Már Guðmundsson, formaður Ungra jafnaðarmanna. Einlæg og átakamikil ævisaga sem lætur engan ósnortinn daglegtlíf Í Washington má gera ýmislegt annað en að velta sér upp úr heimsmálunum jafnvel þótt það geri úrhellisrigningu. » 28 ferðalög Á Ítalíu hefst aðventan fyrir al- vöru 8. desember og eftir það má fólk fara að skreyta jólatrén sín. » 29 aðventan Skortur virðist vera á Lego- leikföngum fyrir þessi jól um Evrópu alla og þar á meðal á Ís- landi. » 24 börn Allt að 95% verðmunur mæld- ist á nýjum jólabókum í verð- könnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í gær. » 26 verðkönnun Fyrir þessi jól kaupa Íslendingar rúmlega 40.000 lifandi jólatré. En hvernig á að meðhöndla þær tegundir sem eru í boði? » 25 neytendur Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Við höfum stundum veriðfleiri og stundum færriog svo hafa bæst nýirmeðlimir í hópinn. En harða kjarnann myndum við stelpurnar sem kynntumst þeg- ar við byrjuðum saman í sex ára bekk hér í sveitinni,“ segja þær Agnes Heiður Magnúsdóttir, Sylvía Sigurðardóttir og Jónína Kristjánsdóttir sem hafa það fyrir reglu að hittast á aðventunni, njóta samverunnar og búa eitthvað til í leiðinni eins og jólakort og jóla- gjafir. Í þetta sinn hittast þær heima hjá Sylvíu í Reykholti í Biskupstungum, en í þeirri sveit eru þær allar þrjár fæddar og upp- aldar. „Við höfum flutt burt í millitíð- inni og þá hist á aðventunni í Reykjavík, Hveragerði eða annars staðar og stundum brotist áfram í vondum veðrum til að komast alla leið. En nú erum við Agnes fluttar aftur á æskuslóðirnar og í hópinn hafa bæst frænkur og systur sem eru búsettar hér,“ segir gestgjaf- inn Sylvía. Ein úr hópnum, Heiðbrá Harðardóttir, lét sig ekki muna um að koma alla leið frá Kirkjubæj- arklaustri til að vera með á jóla- fundinum, en henni kynntust Agnes og Jónína þegar þær voru saman í Fjölbraut á Selfossi á sín- um tíma. Erla Ólafsdóttir lætur sig heldur aldrei vanta á aðventukvöld vinkvennanna en hún er úr Skafta- fellssýslu rétt eins og Heiðbrá. „Við Heiðbrá vorum í herbergi við hliðina á Agnesi og Jónínu á heimavistinni á Selfossi og við átt- um það allar sameiginlegt að vera að flytja í fyrsta skipti að heiman, sextán ára og bláeygar og við náð- um strax vel saman og höfum hald- ið vinskap síðan þá.“ Tvær í hópnum eru ný- liðar, þær Bryndís Krist- jánsdóttir systir Jónínu og Ás- laug Rut Krist- insdóttir frænka þeirra. Það er þó nokkur handa- gangur í öskj- unni þegar tek- ið er til við sápugerð sem Agnes leiðir, hún bræðir efni í potti og hellir í mót. Hinar taka meiri þátt í baðsaltsgerðinni og ilmolíurnar ná að yfirgnæfa jólailminn. Jólalögin hljóma yfir sjö raddir kátra vinkvenna og nóg er af góðgæti sem Sylvía reiðir fram af mik- illi gestrisni. Eftir að sápur og baðsalt hef- ur verið af- greitt og maginn fyllt- ur af góðum mat tek- ur jólakortagerðin við og þá er meira hægt að spjalla, spá og spek- úlera. Rifja upp gamlar minningar og hlæja að því hvaða strákum þær voru skotnar í á unglingsárunum. Og hvað þær skemmtu sér mikið þegar þær bjuggu í bænum í pínu- litlum íbúðum og þeyttu rjóma uppi í rúmi á aðventukvöldinu. Systurnar Jónína og Bryndís keppast við að hrista af sér orð- spor um lítil afköst í kortagerðinni, aðrar nostra lengi við hvert kort og afraksturinn er mjög fjöl- breyttur. Vinkonur búa til sápu, bað- salt og jólakort Vinkonur Það er gaman að koma saman, spjalla og rifja upp gamla tíma á meðan jólakortin eru búin til og sáp- urnar mótaðar. Frá vinstri: Áslaug, Agnes, Sylvía, Bryndís, Erla, Heiðbrá og Jónína. Morgunblaðið/ Kristín Heiða Jólakortagerð Efniviðurinn í kortin kemur úr ýmsum áttum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.