Morgunblaðið - 04.03.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 62. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Mögnu› tilbo› á
n‡jum vörum
1. - 5. mars
SÖNGFUGLINN
HELENA EYJÓLFSDÓTTIR HELDUR UPP Á 50
ÁRA DÆGURLAGASÖNGAFMÆLI Í KVÖLD >> 51
Í LEIT AÐ HINUM
FULLKOMNA TÓNI
GusGus
ÞRÆLAR SKÖPUNAR >> 20
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
JACK Straw, fyrrverandi utanríkisráðherra Bret-
lands og leiðtogi Verkamannaflokksins á þingi, er
þeirrar hyggju að það væri múslímum til góðs ef
uppgjör í ætt við siðbótina, sem Lúther og Kalvín
leiddu í kristinni trú, ætti sér stað meðal þeirra.
Straw sagði á fundi með blaðamönnum frá Mið-
Austurlöndum, Afríku og Evrópu að brýn þörf væri
á umræðu. Hún ætti sér stað milli arabískra þjóð-
arsinna og Múslímska bræðralagsins í Egyptalandi
og síðan væri ágreiningur sjía og súnnía. „En það
hefur ekki átt sér stað siðbót eins og var í krist-
indómi á 16. öld,“ sagði Straw. „Án hennar hefði
kapítalisminn aldrei orðið. Múslímaheimurinn var
vagga algebrunnar, algóritmans og annarra fræða,
en hann hefur ekki átt sambærilegt blómaskeið síð-
an, fyrir utan kannski Íran.“
Sér ekki eftir að hafa vakið blæjudeiluna
Straw vakti mikið uppnám þegar hann sagði að
blæjur fyrir vitum múslímskra kvenna væru ávísun
á aðskilnað. Hann kvaðst á fundinum ekki sjá eftir
Siðbót ekki átt sér stað í íslam
Jack Straw segir íslam ekki hafa gengið í gegnum umbætur eins og kristindómur á sextándu öld
að hafa vakið þessa umræðu. „Það kom kona með
blæju fyrir andlitinu á fund minn og sagði: „Gott að
hitta þig augliti til auglitis, herra Straw.“ Ég hugs-
aði með mér að þetta væri skrítið vegna þess að ég
sæi hana ekki, en sagði við sjálfan mig að best væri
að þegja. Síðan fór ég hins vegar að hugsa málið.“
Straw kvaðst ekki sjá eftir að hafa vakið þessa
umræðu: „Það er ekki hægt að vega hvert orð og
meta, annars myndi maður aldrei segja neitt, sem
skiptir máli.“
Morgunblaðið/KBL
Engin siðbót Straw vill umbætur. Samfélag undir smásjánni | 10
ÁFORM Bandaríkjamanna um eld-
flaugaskjöld í Evrópu vekja blendin
viðbrögð. Í Póllandi var skildinum
mótmælt á föstudag.
Vikuspegill
Mótmæltu
eldflaugaskildi
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„VIÐ vorum bara í rólegheitunum í
vinnunni og á leiðinni í sumarbústað.
En svo breyttist allt, okkur var sagt
að eitthvað mikið væri að barninu
okkar.“
Með þeim orðun lýsir Elfa Hrönn
Valdimarsdóttir því þegar hún og
maður hennar, Freyr Friðriksson,
fengu þær fréttir að tæplega tveggja
ára sonur þeirra, Tjörvi, væri með
eitt alvarlegasta krabbamein sem
greinist í börnum, taugakímsæxli
sem dreifði sér hratt um líkamann.
„Maður heldur einfaldlega að barnið
manns sé að deyja þegar maður
heyrir orðið krabbamein,“ segir Elfa.
„Síðan tók við hörð og erfið meðferð
sem Tjörvi þoldi sem betur fer mjög
vel.“
Freyr tekur í sama streng. „Þegar
maður heyrir orðið krabbamein þá
virðist ekkert nema dauðinn fram-
undan. En samt sem áður fengum við
strax mikla von og það eigum við m.a.
læknunum og hjúkrunarfræðing-
unum á Barnaspítalanum að þakka.“
Tjörvi er nú á góðum batavegi og
kom fjölskyldan heim frá Svíþjóð í
síðustu viku. Foreldrarnir blogguðu
allan tímann um erfiða meðferð son-
arins en í skrifunum kveður þó við
bjartsýnistón. „Maður verður bara að
trúa,“ segir Elfa spurð um þetta.
„Það væri ómögulegt að komast í
gegnum svona lífsreynslu án þess að
hafa góða von.“ | 22–23
Morgunblaðið/Golli
Seigla Er Tjörvi Freysson var ungur snáði vaknaði hann með kúlu á gagnauganu sem var fyrsta vísbending um alvarlegt krabbamein.
„Maður verður bara að
trúa og hafa góða von“
JELENA Bonner, ekkja Andreis
Sakharovs, segir að Míkhaíl
Khodorkovskí sé pólitískur fangi
og ekki eigi að nota orðið lýðræð-
islegt um Rússland yfirleitt.
Lýðræði á ekki
við um Rússland