Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 19
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 19
Lista- og menningarráð Kópavogs hefur ákveðið að veita árlega
viðurkenningu til framúrskarandi námsmanns á sviði lista.
Skilyrði er að viðkomandi sé búsettur í Kópavogi.
Ráðið óskar eftir ábendingum um slíka námsmenn
frá kennurum, listamönnum og öðrum sérfróðum aðilum.
Ábendingum skal skilað skriflega,
fyrir 10. apríl nk. til:
Lista- og menningarráðs Kópavogs
Fannborg 2, 2. hæð
200 Kópavogi
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg H. Hauksdóttir í síma 570 1600
Lista- og menningarráð Kópavogs
Framúrskarandi árangur
í listnámi
Nú styttist óðum í að égverði léttari. Það eruorð að sönnu því égminni helst á ofalda
kind um þessar mundir. Það er í
raun hreint furðulegt að ég skuli
halda jafnvægi.
Næturnar eru að mestu svefn-
lausar. Ég sef í sitjandi stellingu,
er sífellt að vakna og er svo svona
að smá-leka niður eftir rúminu
eftir því sem líður á nóttina.
Mér er gersamlega fyrirmunað
að snúa mér af eigin rammleik,
þvílík er fyrirferðin, svo að bónd-
inn er vakinn með reglulegu milli-
bili til að snúa gripnum.
Og það er enginn hægðarleikur
skal ég segja ykkur.
Ég á bágt með að trúa fólki sem
segir að því finnist þungaðar kon-
ur fallegar. Þungaðar konur eru
fyrst og fremst sprenghlægilegar.
Ég er farin að leggja fæð á
kvenfólk sem talar fjálglega um
það hversu dásamlegt það sé að
vera barnshafandi. Mér líður
sjaldan verr en einmitt þegar ég
hef gengið með börn. Eiginlega al-
veg hreint bölvanlega.
Ég mun eignast barnið á spít-
alanum UCLA sem er háskóla-
sjúkrahús og því næsta víst að þar
verður margt um manninn. Gott
að maður er giftur skemmtikrafti
sem mun þá væntanlega geta stytt
læknanemum stundir með gam-
anmálum milli hríða. Ætli ég ætti
ekki að baka eitthvað?
Mér var úthlutað nýjum lækni á
dögunum sem mun fylgja mér síð-
ustu sporin. Óðinn einn veit
hversu mörgum börnum hann hef-
ur fylgt í heiminn, þau skipta ef-
laust þúsundum.
Stofan hans var heldur fornfá-
leg, innréttingarnar svona frá því
rétt um stríð og umhverfið allt
minnti helst á leikmynd. Í Hollý-
wood er það nefnilega svo að mað-
ur getur átt það á hættu hvar sem
er að vera staddur í leikmynd. Svo
að ég greip tímarit sem lágu
frammi til að ganga úr skugga um
að þau væru frá árinu sem rétt er
gengið í garð. Það reyndist vera og
mér leið aðeins betur.
Það eru þá sennilega einhverjar
mannaferðir um stofuna hugsaði
ég með mér, allavega kemur póst-
urinn ennþá hér við.
Nú leið og beið. Það virtist ekki
vera mikið lífsmark á stofunni. Við
vorum þau einu sem biðum og
ekki virtist vera margt um mann-
inn innan við glerið.
Ég hef nú ekki hingað til haft
fordóma gagnvart mér eldra fólki,
öðru nær. Mér var uppálagt sem
barni að bera virðingu fyrir starfs-
og lífsreynslu fólks og hef reynt að
hafa það að leiðarljósi í gegnum
lífið.
Ég verð hins vegar að við-
urkenna að það runnu á mig tvær
grímur þegar ég hitti þennan
heldri borgara, því mér finnst al-
veg eins líklegt að honum muni
ekki endast aldur til að sjá þetta
barn líta dagsins ljós.
Ég giska á að hann sé um átt-
rætt, jafnvel eldri.
Mér létti hins vegar stórum
þegar doktorinn hafði það á orði í
upphafi skoðunarinnar að hann liti
á meðgöngu sem eðlilegan hlut og
að hann hvetti mig til að halda
áfram að lifa lífinu á sem eðlileg-
astan máta. Það er nefnilega svo, í
þessu high-tech-samfélagi sem við
búum í, að það er búið að gera
meðgöngu og fæðingu að þvílíkum
iðnaði að það er undarlegt að
nokkur leggi yfirleitt í það að
eignast börn.
Hann sagði síðan sposkur í
gegnum skeggið að ef mér hugn-
aðist að eiga náin samskipti við
bóndann skyldi ég endilega gera
það en klykkti svo út með að segja
að ef mér væri það á móti skapi
skyldi ég hreinlega berja hann í
hausinn og hló við.
Mig langaði til að segja honum
að það væri ekki nokkur hætta á
að til þess kæmi og vísa þá til
Dúmbó-náttfatanna og brjóst-
sviðataflnanna sem fylgja mér
flestar stundir en sat á mér.
Fannst einhvern veginn hálf-
óviðeigandi að klæmast við gam-
almennið þótt hann hafi auðvitað
boðið upp á það.
Sjálf líkamsskoðunin var
óvenjulega ítarleg miðað við það
sem ég hef áður upplifað. Ég tí-
undaði þetta við tengdamóður
mína í síma eftir á en hún var að
eiga sín börn í byrjun sjöunda
áratugarinns og hún tjáði mér að
svona hefðu hlutirnir alltaf verið
gerðir í den. Og átti þá við all-
löngu áður en hún hafði gengið
með sín börn.
Ég á stefnumót við gamla í
næstu viku … blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir.
Gamalt og gott
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn