Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 30
viðskipti
30 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
F
rá því ríkisbankarnir
voru einkavæddir hef-
ur orðið mikil breyt-
ing á fjármálamarkaði
og staðan í dag er allt
önnur en áður. Viðskiptabankarnir
hafa vaxið gríðarlega og eflst að
sama skapi. Fyrir vikið hefur sam-
keppnin aukist til muna. Það er
m.ö.o. umhverfið sem hefur knúið
á um þessar breytingar,“ segir
Ragnar Z. Guðjónsson um helstu
ástæðu samruna Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar, SPH, og Sparisjóðs vél-
stjóra, SPV.
Nýtt fyrirtæki hóf göngu sína í
gær undir heitinu BYR – spari-
sjóður. Ragnar, sem áður réð ríkj-
um hjá SPV, mun stýra því ásamt
Magnúsi Ægi Magnússyni, sem áð-
ur veitti SPH forstöðu.
Sameiningin á sér tíu mánaða
aðdraganda en í apríl í fyrra sam-
þykktu stjórnir beggja sjóða að
skoða kosti þess að sameinast.
Tveimur mánuðum síðar var sam-
einingin samþykkt af stjórnum
sparisjóðanna og fór þá í gang
flókið lögformlegt ferli en Fjár-
málaeftirlitið þurfti að fara af kost-
gæfni yfir málið þar sem þetta
mun vera í fyrsta skipti sem tveir
stórir sparisjóðir sameinast ein-
göngu á viðskiptalegum for-
sendum, þ.e.a.s. þegar annar
þeirra á ekki við ramman reip að
draga. 1. desember var haldinn
stofnfjáreigendafundur í báðum
sjóðum, þar sem samruni var sam-
þykktur einróma, og ný stjórn kos-
in. Þessu ferli lauk 11. desember
þegar Fjármálaeftirlitið veitti
formlegt leyfi fyrir sameiningunni.
Síðan hefur sameiningarferlið
staðið yfir og lauk ákveðnum
áfanga í gær þegar gömlu nöfn-
unum var lagt og hið nýja tekið í
notkun.
Ragnar segir menn hafa lagt
nótt við dag undanfarna mánuði
enda í mörg horn að líta þegar fyr-
irtæki renna saman. „Við settum
okkur það markmið að viðskipta-
vinir okkar myndu ekki verða varir
við samrunann og það tókst mjög
vel,“ segir hann.
SPV og SPH höfðu lengi unnið
saman að ýmsum verkefnum og
Magnús og Ragnar segja að
skemmtilegt hafi verið að sameina
sjóðina enda hafi starfsemin skar-
ast sáralítið. „Þetta small alveg
saman. Sjóðirnir hafa að mestu
starfað hvor á sínu markaðs-
svæðinu og útibú okkar eru t.a.m.
hvergi hlið við hlið. Samlegðar-
áhrifin eru því mikil. Við höfum til
gamans sagt að í stað þess að
leggja saman 1 og 1 og fá 2 höfum
við lagt saman 1 og 1 og fengið 3,“
segir Magnús.
Enda þótt breytt umhverfi á
fjármálamarkaði sé aðalástæða
samrunans koma fleiri þættir til.
Ragnar segir að á síðustu miss-
erum hafi komið að SPH og SPV
nýir stofnfjáreigendur með brenn-
andi áhuga á því að auka veg
sparisjóðanna. „Sparisjóðirnir,
sem oft hefur verið talað um sem
fjórða hjólið í samkeppni á fjár-
málamarkaði, sátu eftir í þessu
nýja umhverfi og við því þarf að
bregðast. Þess vegna tókum við þá
ákvörðun að sameinast í stórt og
vaxandi fyrirtæki. Við viljum taka
þátt í samkeppninni og vera góður
valkostur fyrir fólkið og fyrir-
tækin.“
Þarfir viðskiptavina
orðnar fjölbreyttari
Magnús segir að þarfir við-
skiptavinarins hafi öðrum þræði
kallað á þessar breytingar líka.
„Þær þarfir eru alltaf að verða
meiri og fjölbreyttari. Við sjáum
að fjöldi fyrirtækja hefur á und-
anförnum árum sótt í þessa svo-
kölluðu útrás og bankarnir hafa
fylgt þeim. Ef við hefðum ekki
stigið þetta skref þá hefðu okkar
viðskiptavinir einfaldlega þurft að
leita annað eftir því baklandi sem
þarf.“
Þeir Ragnar segja að þetta eigi
ekki síður við um starfsfólk fyrir-
tækisins. „Það er mikil samkeppni
um starfsfólk á fjármálamarkaði
og til þess að viðskiptavinirnir vaxi
ekki frá okkur þurfum við hæft
starfsfólk. Við vonumst til þess að
BYR verði góður og spennandi
vinnustaður fyrir hæfileikaríkt fólk
og erum raunar ekki í nokkrum
vafa um að fyrirtækið verður það,“
segir Ragnar.
Hagsmunir stofnfjáreigenda
spila vitaskuld líka inn í. „Það hafa
einnig orðið breytingar á þeim
markaði. Menn hafa verið að
kaupa stofnfé á yfirverði og vilja
því að sjálfsögðu gera sparisjóðina
að góðum fjárfestingarkosti í leið-
inni. Við erum að vísu ekki með
stofnfjármarkað hér eins og er en
verið er að leggja drög að því og
þær hugmyndir verða kynntar á
aðalfundi BYRS 13. mars næst-
komandi,“ segir Ragnar.
Kappkostað að finna
spennandi lausnir
Sparisjóðsstjórarnir segja að
viðskiptavinir SPH og SPV hafi
alla tíð kunnað vel að meta þjón-
ustu sem byggist á lipru skipulagi
og stuttum boðleiðum. Áfram verði
kappkostað að finna spennandi
lausnir, sérsniðnar að þörfum
hvers og eins, einstaklinga jafnt
sem fyrirtækja. „Samruninn þýðir
að við munum styrkja okkur sem
bakland og getum gert miklu
meira en við gátum gert áður,“
segir Magnús. „Nú getum við gert
hluti einir sem við þurftum áður að
fá aðra sparisjóði eða einhverja
aðra aðila til að gera með okkur.“
Einstaklingsþjónustan nær til
allra æviskeiða og fyrirtækjaþjón-
ustan til allra helstu þjónustuþátta
Hagstæður vindur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byr í seglin Ragnar Z. Guðjónsson og Magnús Ægir Magnússon, Sparisjóðsstjórar BYRS – sparisjóðs, horfa björtum augum til framtíðar og segja að sjóð-
urinn verði mun betra bakland fyrir viðskiptavini sína eftir samrunann. Ísland er aðalmarkaðssvæði BYRS með áherslu á stór-Reykjavíkursvæðið.
Annar og þriðji stærsti
sparisjóður landsins,
Sparisjóður Hafnarfjarð-
ar og Sparisjóður
vélstjóra, sameinuðust
formlega í gær undir
heitinu BYR – sparisjóð-
ur. Ástæðan er fyrst og
fremst breytt umhverfi á
fjármálamarkaði. Orri
Páll Ormarsson ræddi
við stjórnendur hins nýja
fyrirtækis, Magnús Ægi
Magnússon og Ragnar Z.
Guðjónsson.