Morgunblaðið - 04.03.2007, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 53
menning
Foreldrar Patricks Wolf erulisthneigð, móðirin list-málari og faðirinn djass-tónlistarmaður. Sex ára
gamall var hann farinn að læra á
fiðlu að eigin ósk, eftir að hafa heyrt
fiðluverk í útvarpi sem hann hreifst
af, en fimm árum síðar segist hann
hafa áttað sig á því að hann myndi
aldrei ná þeirri færni sem þarf til að
vera í fremstu röð, til að vera ein-
leikari í heimsklassa. Hann var þó
ekki af baki dottinn, ef ekki stæði til
boða að verða heimsþekktur einleik-
ari myndi hann bara verða heims-
þekktur poppari.
Rétt kominn á táningsaldurinn
þegar hann smíðaði sér þeremín.
Fjórtán ára var hann svo kominn í
hljómsveit, Minty, þar sem áherslan
var ekki bara á músík heldur voru
aðrar listgreinar í hávegum. Hann
byrjaði líka að taka upp á þessum
tíma með dyggum stuðningi frá Fat
Cat-útgáfunni, sem Íslendingar
þekkja af góðu einu. Sjálfur segist
hann varla hafa verið að semja tón-
list, frekar að hann hafi verið að
framleiða óskiljanlegan hávaða og
hrópa bulltexta yfir allt saman, fyrst
og fremst til að vekja athygli. Til
gamans má geta þess að í viðtali við
The Guardian skýrði hann frá því að
hann hefði gefið Björk eina spólu
með ruglinu í sér en vonar í dag að
hún hafi ekki hlustað á hann þrettán
ára gamlan að syngja um geishur
ekki kominn úr mútum.
Fyrsta sólóskífan
Sextán ára gamall strauk Wolf að
heiman og lifði á götuspilamennsku í
strengjakvartett næstu árin og
stofnaði einnig hljómsveit, Maison
Crimineaux. Þeirri sveit var boðið að
spila í Frakklandi og meðal gesta
var Kristian Robinson sem þekktur
er undir listamannsnafninu Capitol
K. Hann tók Wolf undir sinn vernd-
arvæng og gaf í framhaldinu út
fyrstu sólóskífu pilts, Lycanthropy,
sem kom út sumarið 2003.
Plötunni var vel tekið, enda er hún
einkar skemmtileg, fjölbreytt og
ungæðislega glannaleg. Hljóð-
færaskipan er óvenjuleg, til viðbótar
við hefðbundnari apparöt notar Wolf
ýmis sjaldheyrðari hljóðfæri, en
hnýtir allt saman með fartölvunni
sinni. Eins og hann rekur söguna
var það meðvituð ákvörðun hjá hon-
um að hafa plötuna svo fjölbreytta
sem raun ber vitni – hann vildi koma
í veg fyrir að sér yrði skipað á ein-
hvern stílbás þar sem hann sæti síð-
an fastur upp frá því. Í viðtali við
Pitchfork vitnaði hann í ævisögu
Joni Mitchell og sagðist hafa haft
þau orð Mitchell í huga að á fyrstu
plötunni verði listamaður að sýna
allt það sem hann kann til að hafa
frelsi til að gera hvað sem honum
sýnist á næstu plötum.
Eins og getið er lærði Wolf músík
frá unga aldri og tók upp þráðinn
eftir að Lycanthropy kom út, tók sér
ár í tónsmíðanám í Trinity-
tónlistarskólanum í Lundúnum.
Reyndar lét Wolf þau orð falla í við-
tali nokkru síðar að hann hefði eig-
inlega lært mest á því að læra ekki
það sem menn vildu kenna honum,
hann hafi komist að því að lagasmíð-
ar eftir regluverki væri ekki eitthvað
fyrir hans smekk.
Lögin á plötuna samdi hann í sum-
arhúsi í Cornwall þar sem hann seg-
ist hafa glímt við þunglyndi og
brostnar vonir sem vel má heyra á
skífunni. Áður en hann gat tekið lög-
in upp var peningurinn búinn og
hann varð að flytja heim til foreldr-
anna og finna sér vinnu.
Ástin sigrar
Menn voru þó ekki búnir að
gleyma Patrick Wolf og aðstand-
endur þýskrar útgáfu sem hrifust af
Lycanthropy leituðu pilt uppi, buðu
honum að spila á tónleikum og síðan
að gefa út plötu. Úr varð Wind in the
Wires sem kom á óvart á sínum tíma,
heilsteyptari plata en frumraunin, ró-
legra yfir henni og tónlistin einsleit-
ari. Hún fékk ekki eins lofsamlega
dóma og Lycanthropy, en góða dóma
samt og tónleikahald hans í kjölfarið
kom honum svo vel á framfæri að
honum bauðst samningur við stórfyr-
irtæki og er ávöxturinn The Magic
Position sem kom út í liðinni viku.
Eins og fram kemur eru sólóskíf-
urnar sem Patrick Wolf hefur sent
frá sér býsna ólíkar og sú þriðja fer í
enn nýjar áttir, sýnir enn nýja hlið á
Wolf. Hann er þó ekki einn á skíf-
unni, fær til liðs við sig ýmsa gesti,
eins og Marianne Faithfull og Sin-
fóníuhljómsveit Vínarborgar. Wolf
er svo enn að syngja um sjálfan sig –
það fer ekki á milli mála að piltur var
ástfanginn upp fyrir haus þegar lög-
in voru samin. Að vísu slitnað upp úr
sambandinu á meðan á vinnslu plöt-
unnar stóð en svo gegnsýrð voru
lögin af ást að tilfinningin skilaði sér
þrátt fyrir allt.
Játningar Patricks Wolf
Varla verður á móti því mælt að Patrick Wolf er bráðger piltur, enda kom
út í vikunni þriðja sólóskífa hans þó hann sé ekki nema 23 ára gamall. Hann
er þó ekki bara bráðger heldur opinskár líka og segja má að plöturnar séu
eins og beinar útsendingar út sálarkirnunni. Eins er því farið með nýju plöt-
una, The Magic Position.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Bráðger Patrick Wolf er ófeiminn við að bera tilfinningar sínar á torg.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
EINBÝLI OG RAÐHÚS ÓSKAST Í FOSSVOGI
Traustir kaupendur hafa óskað eftir því að við útvegum
einbýlis- og raðhús í Fossvoginum.
Traustar greiðslur eru í boði og rúmur afhendingartími.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
lögg. fasteignasali.
Sverrir
Kristinsson
EINBÝLI Á SELTJARNARNESI ÓSKAST
Fjárhagslega mjög traustur aðili hefur óskað eftir því við
Eignamiðlun ehf. að við útvegum honum einbýlishúsi á
sunnanverðu Seltjarnarnesi. Verðuhugm. allt að 200 millj.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
lögg. fasteignasali.
Sverrir
Kristinsson
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST
500-800 fm skrifstofuhúsnæði óskast sem fyrst til kaups.
Staðsetning mætti gjarnan vera Múlahverfi eða Borgartún.
Fleiri staðsetningar koma jafnvel til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
Iðnbúð 4, sími 565 8755
Guðrún Rós Pálsdóttir
sem áður vann á Hár og útlit Rún
í Garðabæ hefur flutt sig yfir á
hárgreiðslustofuna Andromedu
og býður viðskiptavinum sínum
hjartanlega velkomna.
Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Mozart,
Atli Heimir
og Harry
Potter
Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is
LAUGARDAGINN 10. MARS KL. 15.00
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Einsöngur ::: Guðrún Ingimarsdóttir
Kynnir ::: Skúli Gautason
tónsprotinn í háskólabíói
Wolfgang Amadeus Mozart ::: Töfraflautan, forleikur
Wolfgang Amadeus Mozart ::: Aría Næturdrottningarinnar
Hector Berlioz ::: Nornadans úr Symphonie fantastique
Paul Dukas ::: Lærisveinn galdrameistarans
Atli Heimir Sveinsson ::: Intermezzo úr Dimmalimm
Camille Saint-Saëns ::: Dance Macabre
John Williams ::: Hedwig’s theme úr Harry Potter
Tónleikaröðin Tónsprotinn er sannkallaður ævintýraheimur
tónlistar fyrir fólk á aldrinum 8–88 ára. En að sjálfsögðu
er ekkert aldurstakmark! Tónleikarnir byggjast á léttri og
skemmtilegri efnisskrá þar sem afar og ömmur, pabbar og
mömmur, krakkar á öllum aldri og Sinfóníuhljómsveitin
geta átt ánægjulega stund saman. Það er alltaf frábær stemn-
ing á Tónsprotanum.