Morgunblaðið - 01.04.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 01.04.2007, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hringdu í 530 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift! www.oryggi.is Hver vaktar þitt heimili um páskana? Hi m in n og h af / SÍ A Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is NEMENDUR úr 9. bekk Ingunnarskóla fóru í heim- sókn á Foldasafn á dögunum og höfðu meðferðis bóka- kistu Borgarbókasafnsins til að skila bókunum sem hafa verið í láni á skólabókasafninu síðastliðinn mán- uð. Nemendur skoðuðu safnið og fylltu kistuna aftur með bókum sem vöktu áhuga þeirra. Einnig notuðu margir tækifærið til að verða sér úti um bókasafns- skírteini og fengu svo lánaða með sér heim geisladiska, DVD-diska, myndbönd og tímarit svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Bókakistur Borgarbókabókasafnsins eru nýjasta við- bótin í þjónustu þess og eiga uppruna sinn í Foldasafni. Fyrstu kisturnar fóru í öll skólasöfn Grafarvogshverfis auk þess sem Ingunnarskóli í Grafarholti fékk einnig sína kistu. Fyrir skólasöfnin og nemendur er þetta eins og að koma höndum yfir sjóræningjakistu en í henni er ómældur fjársjóður bóka sem fjalla um margvíslegt efni sem vænta má að unglingar hafi áhuga á að kynna sér. Þó að ekki sé langt um liðið síðan þetta samstarf hófst milli Borgarbókasafns og skólasafnanna hafa kisturnar þegar vakið mikla lukku. Markmiðið með bókakistunum er að efla samstarf milli skóla og Borg- arbókasafns, ásamt því að hvetja unglinga til lesturs. Morgunblaðið/RAX Eins og að komast í sjóræningjakistu EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Spölur sem á og rekur Hvalfjarðargöngin hefur ákveðið að áfrýja til Hæsta- réttar dómsmáli sem félagið tapaði í Héraðsdómi Vesturlands hinn 26. mars þegar skráður eigandi tiltekins bíls var sýknaður af kröfu félagsins um veggjöld þar sem ekki þótt sann- að að hann hefði verið undir stýri þegar bílnum var ekið margoft í gegnum göngin án þess að veggjald væri borgað. Krafa Spalar hljóðaði upp á 112 þúsund krónur en myndir náðust af bílnum, þar sem honum var ekið 56 sinnum um göngin. Skráður eigandi bílsins hafði selt bílinn en lét undir höfuð leggjast að tilkynna eigendaskiptin og var hon- um sem skráðum eiganda bílsins stefnt fyrir dóm vegna málsins. Nýi eigandi bílsins viðurkenndi að hafa farið nokkrum sinnum í gegnum göngin án þess að borga og sömu- leiðis viðurkenndi fyrrverandi eig- andinn að hafa svikist um að borga veggjald á öðrum bíl og féllst á greiðsluskyldu vegna þess, 2 þúsund krónur, þ.e. 1.000 krónur í veggjald og aðrar 1.000 krónur í álag. Spölur tapaði hins vegar málinu á hendur manninum þar sem ekki tókst að sanna að hann hefði keyrt bílinn í umrædd 56 skipti. Var Spölur dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í málskostnað. Benedikt Bogason héraðsdómari dæmdi málið. Að sögn Gylfa Þórðarsonar, fram- kvæmdastjóra Spalar, þarf að huga að betri heimildum fyrir félagið til að rukka veggjald svo ekki opnist gátt fyrir fólk að svíkjast undan greiðslu í göngin með fyrrnefndum hætti, ef hæstiréttur raskar ekki niðurstöðu héraðsdóms. Spölur fellir sig ekki við ósigur í veggjaldamáli Málinu verður áfrýjað Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Sniðganga Bíl var ekið 56 sinnum um göngin án þess að greitt væri gjald. EIGNIR Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins jukust um 18,7% að nafnvirði á síðasta ári, en það jafn- gildir 10,4% raunávöxtun á eignum sjóðsins, sem er stærsti lífeyris- sjóður landsins. Raunávöxtunin er þó ekki eins góð og árið á undan 2005 þegar raunávöxtun eigna sjóðsins var 14%. Ávöxtun eigna sjóðsins síðustu fimm ár er að meðaltali 8,6% og síðustu tíu ár 6,4%. Heildareignir sjóðsins jukust um 55 milljarða króna á árinu og námu 282,3 milljörðum króna í árslok. Stærstur hluti eigna sjóðsins er í innlendum skuldabréfum eða tæp 52%. Eignir í innlendum hlutabréf- um eru rúm 15%, en í erlendum hlutabréfum tæp 30%, en ávöxtun þess hluta eignasafnsins var best á síðasta ári eða um 25%. 440 milljarðar í erlendum verðbréfum Um síðustu áramót námu eignir lífeyrissjóðakerfisins tæpum 1.500 milljörðum króna og jukust um nærfellt 300 milljarða króna í fyrra. Þar af nam erlend verð- bréfaeign rúmum 440 milljörðum króna og óx um tæpa 150 milljarða króna á árinu. Sjóðfélagalán námu tæpum 110 milljörðum kr. og hækkuðum um 18% milli ára og eignir í innlendum hlutabréfum námu tæpum 240 milljörðum króna og jukust um 50 milljarða króna milli ára. Eignir LSR jukust um 55 milljarða 1.500 milljarðar í lífeyrissjóðunum „KOMI í ljós að friðhelgiskaflinn standist ekki nútímakröfur þarf að fara yfir hann og endurskoða,“ segir Björn Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra, um þau orð Boga Nils- sonar ríkissóknara í Morgunblaðinu í gær að margir telji tímabært að huga að endurskoðun refsiákvæða al- mennra hegningarlega um brot gegn friðhelgi einkalífs. Var tilefnið sýknudómur í máli þar sem maður var sakaður um brot gegn blygðunarsemi stúlku með því að taka af henni nektarmynd og sýna hana öðrum. Björn segir lögin í stöðugri endur- skoðun. „Almennu hegningarlögin hafa verið endurskoðuð jafnt og þétt, nú síðast kaflinn um kynferðisbrot. Það er alltaf verið að endurskoða kafla í almennum hegningarlögum og hefur svo verið allar götur, alveg frá því þau voru sett.“ Bogi vék einnig að því að ýmsar breytingar í dönsku hegningarlögun- um, sem væru fyrirmynd almennra hegningarlaga, hefðu ekki ratað í lagaumhverfið hér. Björn segir menn taka mið af þróun erlendis og að end- urskoðun á kynferðisbrotakaflanum sýni að tekið sé bæði mið af því sem sé að gerast hér og erlendis. Lögin í stöð- ugri endur- skoðun NOTENDUM mbl.is býðst í dag að taka þátt í gagnvirku vefvarps- bloggi á vef Morgunblaðsins. Hug- myndin er sú að gagnvirkt vef- varpsblogg verði framvegis vettvangur lesenda Morgunblaðsins og mbl.is að ræða málefni líðandi stundar, fara yfir þau mál sem eru í brennidepli og koma athugasemd- um á framfæri við ritstjórn Morg- unblaðsins. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Gagnvirkt vefvarpsblogg á mbl.is ♦♦♦ Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að þau ummæli Sigurðar Halldórssonar, fyrrum stjórnarformanns Iceland Express, að fyrrverandi eigendur hafi misst eignarhald á félaginu vegna þess að samkeppnisyfirvöld hafi ekki tekið á samkeppnishindr- unum Icelandair eigi ekki við nein rök að styðjast. Páll Gunnar bendir á að kæra Iceland Express hafi borist í febr- úar 2004 og samkvæmt fréttum hafi nýir kjölfestufjárfestar komið ná- lægt Iceland Express í október sama ár eða átta mánuðum síðar. „Það er fullkom- lega óraunhæft að ætla að sam- keppnisyfirvöld hafi á svo stutt- um tíma getað gripið inn í og tekið ákvörðun um réttmæti kvörtunar Ice- land Express. Eini möguleikinn á því hefði verið að taka bráða- birgðaákvörðun í málinu. Til grund- vallar slíkri ákvörðun þurfa að liggja fyrir skýr gögn um ætluð brot. Þau gögn lágu ekki fyrir á þeim tíma og þess vegna höfðu sam- keppnisyfirvöld engar forsendur til þess að taka bráðbirgðaákvörðun. Þess vegna eiga ummæli Sigurðar um að fyrrverandi eigendur hafi misst félagið vegna þess að yfirvöld hafi ekki tekið á samkeppnishindr- unum Icelandair ekki við nein rök að styðjast,“ sagði Páll Gunnar. Hann sagði að það væri vert að hafa í huga að samkeppnisyfirvöld hefðu skömmu áður eða síðla árs 2003 tekið á samkeppnishindrunum Icelandair, þegar þau hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Icelandair hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína vegna hinna svokölluðu vorsmella. Hann sagði að samkeppnisyfir- völd hefðu að sjálfsögðu viljað ljúka málinu fyrr en gagnaöflun í því hefði reynst sérstaklega erfið og samkeppnisyfirvöld ítrekað þurft að kalla eftir mikilvægum kostnaðar- upplýsingum frá Icelandair. Þá yrði heldur ekki litið framhjá því að mörg stór mál hefðu verið til með- ferðar hjá samkeppnisyfirvöldum á þessum sama tíma sem auðvitað hefði líka áhrif á málsmeðferðina. Styðst ekki við nein rök Meðferð samkeppnisyfirvalda á kæru Iceland Express vegna samkeppnishindrana Icelandair ekki ástæða þess að fyrrum eigendur misstu eignarhald á félaginu Í HNOTSKURN »Nýlegar lagabreytingareiga að greiða fyrir gagna- öflun samkeppniseftirlitsins. » Icelandair á að greiða 190milljóna kr. stjórnvalds- sekt en kærir ákvörðunina. Páll Gunnar Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.