Morgunblaðið - 01.04.2007, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það leggur hver upp með sitt.
VEÐUR
Það er svo fáránlegt að það hafitekið samkeppnisyfirvöld þrjú
ár að afgreiða kæru Iceland Ex-
press gagnvart Icelandair að það er
varla hægt að tala um það.
Hvernig í ósköpunum á að verahægt að skapa íslenzku við-
skiptalífi viðunandi starfsramma,
þegar eftirlitsstofnanir samfélags-
ins vinna á
þennan veg?
Og hvaðveldur
þessum
seinagangi?
Hafa samkeppnisyfirvöld ekki yf-ir nægilegum starfsmanna-
fjölda að ráða? Eða er þetta stjórn-
leysi hjá viðkomandi stofnun, sem
veldur?
Alla vega er ljóst að svona vinnu-brögð ganga ekki.
Það er ósköp eðlilegt að fyrrver-andi eigendur Iceland Express
bregðist harkalega við.
Það getur vel verið að yfirvöld áÍslandi hafi komizt upp með að
vinna svona fyrir hálfri öld en það á
ekki lengur við.
Það er eins og samkeppnisyfir-völd séu uppi á 19. öldinni.
Í tilviki sem þessu er ekki við öðruað búast en að þeir, sem kærðu
og hafa orðið að bíða allan þennan
tíma eftir niðurstöðu geri kröfu til
bóta. Það er augljóst að þeir hafa
orðið fyrir fjárhagslegum skaða af
þessum drætti á afgreiðslu málsins.
Það er of margt sem gengur á aft-urfótunum hjá eftirlitsstofn-
unum samfélagsins.
Á því verður að ráða bót.
STAKSTEINAR
Þrjú ár!
SIGMUND
!"
#$%
& '
( &
) *
+
, $
-
.
)+
!
!
/0
/
1
2
0
+ 0
(+
3/
#
4
&56
7 2
"&
"
#
$ !
!
$
8
("9:;
! "#$$
% &
' (
""
9 (
%
& ' &
(
)
<0
< <0
< <0
%
'
*
$+, -
:"
6
.' & &-
&!/
& !
4
0
%(& &'&
$ -
& !.
" 0
$ 9
% 1+ #
$
0 ' #
$!.
!
23 44
( 5(*
$
1%23=2
=(<3>?@
(A,-@<3>?@
*3B.A',@
!"
1!"
0
0
"!""
!"
! 1! !
! ! !1
"! !
!
!1
! ! ! !!1
10
0
0
0
0"
0
0
0
10
0
0
0 0
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Valdimar Másson | 31. mars
Vafasöm játning
Ekki ætla ég að mæla
fyrir sakleysi David
Hicks[…]. En ég set
spurningarmerki við
aðferðirnar sem not-
aðar eru til að ná í
játninguna. Loksins
núna, eftir fimm ár, játar þessi
maður aðild sína. Hann má ekki
segjast hafa verið pyntaður. Hann
má ekki tjá sig um dóminn í heilt
ár. Og hann má ekki einu sinni
kæra Bandaríkin fyrir ólöglega
sviptingu á frelsi.
Meira: http://kaldi.blog.is/
Guðmundur Steingrímsson |
30. mars
18 gul spjöld
[…] stýrivaxtahækk-
anir Seðlabankans
[eru] í raun ekkert ann-
að en gul spjöld á rík-
isstjórnina. Efnahags-
stjórnin [er] ekki í lagi.
Ríkisstjórnin er þannig
búin að fá 18 gul spjöld frá Seðla-
bankanum síðan 2004. Stýrivextir
hafa verið hækkaðir 18 sinnum til
þess að slá á þenslu. Í fótboltaleik fá
menn auðvitað aldrei 18 gul spjöld.
Menn fá rautt.
Meira: http://gummisteingrims.blog.is
Eggert Herbertsson | 31. mars
Ekki málefnalegt
Það er alveg með ólík-
indum að hlusta á for-
sætisráðherra í um-
ræðu um aðild að ESB
og upptöku evru.
Það hefur aldrei
neinn sagt að upptaka
evru leysi öll vandamál. Hins vegar
hefur fólk bent á marga kosti þess að
ganga í ESB og taka upp evru, ekki
gallalaust, en kostirnir eru margir.
Mér leiðist þegar forsætisráðherra
reynir að loka umræðunni með
svona leiðinda útúrsnúningum […]
Meira: http://eggerth.blog.is
Gísli Freyr Valdórsson | 31. mars
Vindhögg Össurar
Á fimmtudagskvöld
sótt ég fund Varðbergs
og hélt Björn Bjarna-
son þar góða ræðu.
Þegar Björn minntist á
þessa tillögu um 240
manna varalið, hugsaði
ég með mér, ,„nú á eitthvað eftir að
heyrast frá vinstrimönnum“. (Lesist:
frá þeim sem aldrei hafa viljað taka
öryggismál landsins alvarlega og
snúa öllum slíkum umræðum upp í
eintóma vitleysu.)
Og ekki þurfti að bíða lengi. Össur
hefur eytt gærmorgninum í að búa
til blogg sem ég reyndar held að
hann trúi ekki sjálfur fyllilega. Kem
nánar að því síðar.
En af hverju er það þannig að það
má aldrei ræða öryggismál í landinu
án þess að vinstrimenn missi fæt-
urna og þeyti um fjölmiðla með inni-
haldslaust blaður og vitleysisgang.
Ég get ekki séð að það sé mikill skaði
að því að í 300 þúsund manna sam-
félagi sé hægt að mynda um 1.000
manna löggæslulið á skömmum
tíma. Hvergi kom fram í ræðu
Björns í gær að það stæði til að hið
240 varalið yrði vopnað eða neitt
þess háttar.
En eins og ég sagði hér áðan held
ég að Össur sé ekki alveg sam-
kvæmur sjálfum sér í þessum mál-
flutningi sínum. Hann hefur ann-
aðhvort verið sendur af þinglokknum
eða Ingibjörgu Gísladóttur. Nú er
staðreyndin reyndar sú að fæstir
innan þingflokks Samfylkingarinnar
hafa nokkurt vit á varnar- og örygg-
ismálum. Einhvern veginn hefur fólk
haldið að Össur yrði trúverðugur.
Þannig að Össur er sendur út af
hinni sökkvandi örk Samfylking-
arinnar til að ráðast á Björn. Líklega
hefur enginn annar þorað. Össur
hefði samt kannski átt að lesa ræð-
una áður en hann tjáði sig um hana.
Annars hef ég áður tjáð mig um
vanmátt Samfylkingarinnar til að
fjalla um þessi mál. Það má sjá hér
og hér.
En burtséð frá þessu öllu hefur
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra, aldrei sagt að hann vilji setja
hér á stofn íslenskan her – aldrei
nokkurn tímann!
En sósíalistar og fjölmiðar á Ís-
landi hafa margoft fullyrt að hann
vilji stofna her. Enginn hefur þó get-
að vísað í nein ummæli Björns.
Meira: http://gislifreyr.blog.is
BLOG.IS
Kynning á Lögmáli Guðs
Námskeið verður haldið á skírdag, fimmtudaginn 5. apríl,
kl. 11.00-17.00.
Kynnt verður Divine Principle (lögmál Guðs), þekkingin sem
uppgötvuð var af dr. séra Sun Muyng Moon í gegnum opinberanir.
Lögmál Guðs útskýrir huga, hjarta og eðli Guðs, lögmál hans og
endurreisnarforsjá, frá syndafalli mannsins til okkar daga. Fyrri hluti
Lögmáls Guðs verður kynntur og er heiti kaflanna eftirfarandi:
Kynning - Lögmál Guðs - Syndafall mannsins - Hinir síðustu dagar og
mannkynsagan - Messías, koma hans og tilgangur með komu hans.
Námskeiðið verður að mestu flutt á ensku, (power point)
texti og skýringarmyndir. Kynnir er Þormar Jónsson.
Nánari upplýsingar og skráning hjá honum í síma 552 5808
og 660 7748, tomlenka@simnet.is
UNGBARN í andnauð á sjúkrahús-
inu í Nuuk, höfuðstað Grænlands, var
flutt með sjúkraflugvél Mýflugs á
Landspítalann í fyrradag ásamt full-
orðnum sjúklingi og lenti vélin í
Reykjavík um kl. 23 á föstudags.
Óskað var eftir aðstoð Slökkviliðs
Akureyrar við að útvega sjúkraflug-
vél vegna málsins og var haft sam-
band við Flugfélag Íslands sem hefur
þjónustað austurströnd Grænlands,
en ekki var mögulegt að fá flugvél
þaðan. Þá var haft samband við Land-
helgisgæsluna og athugað með TF-
SYN, flugvél Gæslunnar, ekki reynd-
ist mögulegt að nýta þann kost þar
sem flugmenn voru komnir á tíma.
Gæslan hélt áfram að vinna að lausn
málsins af sinni hálfu en ljóst var að
þrátt fyrir að flugmenn gætu komið
inn væri ekki lendingarfært fyrir
Fokkervél í Nuuk. Um það leyti sem
þessar upplýsingar bárust tilkynnti
Mýflug að félagið ætti tiltæka sjúkra-
vél sem send var í loftið kl. 11.29 frá
Akureyri með neyðarflutningsmann
frá Slökkviliði Akureyrar og lækni frá
FSA.
Sjúklingar sóttir
til Grænlands