Morgunblaðið - 01.04.2007, Side 20
AP
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
N
ýtt fatamerki hefur vakið mikla athygli í
London fyrir litríka stuttermaboli með
smellnum slagorðum. Merkið heitir
House of Holland og hóf göngu sína fyr-
ir aðeins um hálfu ári. Maðurinn á bak
við það heitir Henry Holland og hefur nýverið lokið
BA-námi frá London College of Printing.
Tíska umfram pólitík
Bolirnir eru í anda þeirra sem breski hönnuðurinn
Katharine Hamnett gerði fyrst fræga fyrir rúmum 20
árum en hún klæddist einum slíkum með pólitískum
skilaboðum á fundi með þáverandi forsætisráðherra,
Margaret Thatcher. Í þetta skipti eru skilaboðin ekki
pólitísk heldur gamansöm og sækja öll í sama tísku-
brunninn. Textinn rímar og notast er við nafn þekktrar
manneskju úr tískuheiminum. Dæmi um skilaboð úr
væntanlegri vetrarlínu til tveggja heimsþekktra fyrir-
sætna eru : „I’ll Show You Who’s Boss, Kate Moss og
„I’ve Got More Than A Handful For Naomi Campbell“.
Nýtt andlit Marni og Lanvin, fyrirsætan Jessica Stam,
fékk líka sinn eigin bol: „Wham, Bam, Thank-you
Stam“.
Á vefsíðunni www.houseofholland.co.uk er hægt að
kaupa boli úr nýjustu línunni fyrir 35 pund, eða um
4.500 krónur, þar sem áherslan er á fatahönnuði, ekki
fyrirsætur. Á einum bolnum úr línunni stendur: „Do
Me Daily, Christopher Bailey“ en Bailey er aðalhönn-
uður hins þekkta breska merkis Burberry. Ekki verður
gerð tilraun til að þýða slagorðin hér en öll eru þau
gamansöm og að hluta til er lögð meiri áhersla á rím og
grín en innihald, öfugt við hjá Hamnett.
Vefurinn er litríkur og skemmtilegur og fyrirsætan
Agyness Deyn frá Manchester situr fyrir á myndunum.
Hún er með aflitað hár og stuttklippt, klæðist gjarnan
litríkum fötum, hefur gaman af því að fara út á lífið og
passar vel inn í viðskiptavinahóp Hollands.
Bolirnir hafa notið vinsælda meðal tískusinnaðra og
seljast vel í búðum á borð við Colette í París, Barneys í
New York og Harvey Nichols í London.
Hamnett í slaginn á ný
Holland hefur bæði gaman af skrifum og tísku og
segir að bolagerðin hafi sameinað þetta tvennt vel. Í
kjölfarið hitti hann líka marga af hönnuðunum sem
hann ritaði um og segir það í raun hafa verið eitt tak-
markið með uppátækinu. Bolagrínið þreytist þó á end-
anum og verður Holland eflaust að finna upp á ein-
hverju nýju ef hann ætlar að halda áfram í
tískubransanum.
Í kjölfar vinsælda Hollands hefur frumkvöðullinn
Hamnett farið að framleiða stuttermaboli sína á ný.
Slagorðin hennar eru þó öll pólitísk og snúast mörg um
umhverfið eins og „Worldwide Nuclear Ban“ og „Clean
Up Or Die“. Fúlasta alvara þar á ferð. Hægt er að
kaupa bolina fyrir 45 pund, um 5.900 kr., á
www.katharinehamnett.com.
AP
Tískuslagorð Fjórar fyrirsætur klæddar í nýjustu bolalínu Henry Holland á tískusýningu í London í febrúar.
Afstaða Hönnuðurinn Hamnett hitti Thatcher þáver-
andi forsætisráðherra í bol með pólitískri yfirlýsingu.
Hollensk slagorð
Fyrir fyrirsætur
Slagorðið lýsir yfir
ósk um að spila
Twister án klæða
með Lindu.
● Do you want to study in Denmark?
● Do you want to study in Denmark in an international
environment?
● Are you looking for a programme which gives you good
job opportunities?
● Are you interested in Computer Science or IT?
● Are you looking for a short education at university
level?
Do as Hrund Brynjólfsdóttir and other young students.
Every year The Academy of Southern Denmark in Søn-
derborg welcomes students from Iceland. Come and join
us! Sønderborg has an active ”Íslendingafélag”.
Visit our website www.sdes.dk to read more about your
future in Denmark.
Do you want to study
Computer Science or IT?
Grundtvigs Allé 88
DK-6400 Sønderborg
Tlf. +45 7412 4141
www.sdes.dk
daglegtlíf
Serbókróatinn Goran Bregovic
segist stela frá hefðinni og
reyna að skila einhverju til nú-
tímans með vöxtum. » 22
tónlist
Frá veikburða málsvara til her-
fræðilegs stórveldis. Þorleifur
Friðriksson hefur srkáð sögu
Dagsbrúnar. » 24
sagnfræði
Sverrir Þórðarson blaðamaður
fylgdist með stríðsréttarhöld-
unum yfir nasistum í Nürnberg
árið 1946. » 26
stríðsglæpir
|sunnudagur|1. 4. 2007| mbl.is